Morgunblaðið - 17.05.2002, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 31
KVIKMYNDASAFN Íslands og Þjóðminjasafn Íslands
standa um helgina fyrir samstarfsverkefninu „Enginn get-
ur lifað án Lofts“ í tilefni af því að á þessu ári verða 110
ár frá fæðingu og 50 ár frá andláti Lofts Guðmundssonar,
ljósmyndara og frumkvöðuls í íslenskri kvikmyndagerð.
Í tilefni af verkefninu hefur verið opnuð yfirlitssýning í
Hafnarborg í Hafnarfirði á ljósmyndum úr safni Loft Guð-
mundssonar. Sýningin er unnin í umsjón myndadeildar
Þjóðminjasafnsins og hefur af því tilefni verið gefin út
vegleg sýningarskrá sem veitir yfirlit yfir ævi og lífsstarf
Lofts. Þá mun Kvikmyndsafn Íslands standa fyrir sýn-
ingum á frumkvöðlaverkum Lofts á sviði kvikmyndagerðar
um hvítasunnuhelgina. Með þessum hætti verður leitast við
að gefa heildarmynd af umsvifum Lofts á sviði ljósmynd-
unar og kvikmyndagerðar.
Efnt verður til formlegrar opnunar ljósmyndasýning-
arinnar í Hafnarborg kl. 17 í dag, föstudag, en kl. 18 verð-
ur kvikmynd Lofts, Milli fjalls og fjöru, sýnd í Bæjarbíói.
Um helgina verða tvær kvikmyndasýningar kl. 14 í Bæj-
arbíói. Á laugardag verða sýndar tvær myndir, Hnatt-
flugið sem er stutt heimildarmynd eftir Loft frá árinu 1924
og frumkvöðlaverkið Milli fjalls og fjöru, sem er fyrsta ís-
lenska talmyndin. Á hvítasunnudag, 19. maí, verða sýndar
heimildarmyndirnar Ísland í lifandi myndum og Reykjavík.
Verkefnið „Enginn getur lifað án Lofts“ er liður í
Listahátíð í Reykjavík, og er jafnframt styrkt af Hafn-
arfjarðarbæ.
Ísland í lifandi myndum var frumsýnd árið 1925 og er
yfirgripsmikil þögul heimildarmynd um land og þjóð þar
sem lýst er fegurð landsins og sérkennum; höfuðatvinnu-
greinunum sjávarútvegi og landbúnaði; samgöngum og
mörgu fleiru. Heimildarmyndin Reykjavík er gerð árið
1944 og fjallar um höfuðborgina sem stendur í miklum
framkvæmdum á lýðveldisstofnunarári. Eitt einkenni
myndarinnar er hversu mikið er sýnt frá verklegum fram-
kvæmdum, gatnagerð, grjótnámi, húsbyggingum og fleiri
störfum, þar sem vinna á höndum og innreið vélaraflsins
helst í hendur.
Milli fjalls og fjöru er gerð árið 1949 og er fyrsta ís-
lenska talmyndin. Myndina gerði Loftur eftir eigin sögu,
sem á sér stað í kyrrstæðu sveitasamfélagi Íslands á 19.
öld og fjallar um vald, réttlæti og þá sem minna mega sín í
samfélaginu. Í myndinni leika Gunnar Eyjólfsson, Bryndís
Pétursdóttir, Brynjólfur Jóhannesson, Inga Þórðarson og
Alfreð Andrésson.
Hnattflugið er stuttur heimildarþáttur sem Ólafur L.
Jónsson sýningarmaður tók fyrir Loft árið 1924, þegar sá
síðarnefndi var önnum kafinn við að mynda síldarvertíðina
fyrir Ísland í lifandi myndum. Sú verkaskipting varð upp-
hafið að kvikmyndafélagi þeirra Lofts og Ólafs sem tók
stutta frétta- og heimildarþætti til sýningar sem auka-
myndir í Nýja bíói.
Aðgangur á kvikmyndsýningar á verkum Lofts Guð-
mundssonar í Bæjarbíói er 1.000 kr.
Ljósi varpað á líf og störf
Lofts Guðmundssonar
Leitast er við að gefa yfirlit yfir ævi og lífsstarf Lofts Guð-
mundssonar, ljósmyndara og kvikmyndagerðarmanns, í
samvinnuverkefninu „Enginn getur lifað án Lofts“ í Hafn-
arborg og Bæjarbíói. Fjölbreytt dagskrá er um helgina.
ALLT frá því að þýski karlasextett-
inn Comedian Harmonists sló í gegn
á árunum kringum 1930 með lögum á
borð við Creole Love Call, Du passt
so gut zu mir wie Zucker zum Kaffe
og forleiknum að Rakaranum í Sev-
illa, þar sem hópurinn hermdi í söng
eftir jafnt djassgrúppum sem sinfón-
íuhljómsveitum, hafa öðru hverju
skotið upp kollinum hópar sem hafa
spreytt sig á þessari erfiðu kúnst.
Ekki hafa allir þessir hópar þótt eiga
erindi sem erfiði, og fáir ef engir
jafnast á við Comedian Harmonists,
þar til ef til vill nú, að að sex ungir
Kúbumenn sem kalla sig Vocal
Sampling fara sigurför um heiminn
með söng sem sagður er engu líkur.
Sexmenningarnir útskrifuðust
fyrir um áratug úr Tónlistaraka-
demíunni í Havanna á Kúbu. Þeir
slógu í gegn þegar þeir sungu í af-
mæli Harrys Belafontes og hafa síð-
an farið sem eldur í sinu um allan
heim með einstakan flutning sinn á
salsa og latneskri tónlist sem oft fer
yfir í djass og jafnvel rapp. Þeir búa
öll hljóð til með röddum höndum og
fótum þannig að engu er líkara en
stór hljómsveit búin blásturshljóð-
færum og slagverki leiki undir söng
þeirra.
Þeir fylltu sex þúsund manna sal
Royal Albert Hall í fyrra og hafa
vakið mikla athygli fyrir sína ein-
stöku tónlistarhæfileika. Tónlistina
sækja þeir að mestu í heillandi kúb-
anska tónlistarhefð, en eins og Com-
edian Harmonists forðum, spreyta
þeir sig líka á öðrum tegundum tón-
listar; eins og klassík, en að sögn
René Baños, forsprakka hópsins,
ætla þeir til dæmis að troða upp með
innganginn að Also sprach Zarath-
ustra eftir Richard Strauss, en sú
tónlist er mörgum eftirminnileg úr
myndinni Apocalypse Now.
Og umsagnir gagnrýnenda hafa
allar verið á einn veg, og þetta sagði
til dæmis gagnrýnandi The Times í
London eftir tónleika hópsins þar:
„Tónlistargaldur! Vocal Sampling
hlýtur að teljast einn merkilegasti
músíkhópur heims… Þeir eru svo
sannfærandi að í upphafi er maður
viss um að þeir hljóti að styðjast við
undirleik á bandi eða að hinir raun-
verulegu hljóðfæraleikarar hafi falið
sig fyrir utan sviðið. En svo er ekki
því jafnvel hljómar blásturshljóð-
færanna og flautunnar eiga upptök
sín í þessum sex börkum. Nákvæmni
þeirra var einstök, framsetningin
leikræn og efnisvalið frumlegt.“
Dansinn er Kúbumönnum
í blóð borinn
René Baños forsprakki hópsins
segir að á tónleikunum á Listahátíð
verði þeir að miklum hluta til með
efni af nýjustu plötunni sinni, Camb-
io de tiempo. „Þetta er fjölbreytt og
ólíkar tegundir tónlistar – bæði ólík-
ar tegundir kúbanskrar tónlistar af
plötunni, og en líka tónlist önnur en
kúbönsk, eins og forleikurinn að Svo
mælti Zaraþústra. Þetta er það sem
okkur langaði sérstaklega til að sýna
ykkur Íslendingum ólíkar tegundir
kúbanskrar tónlistar, með þessu ut-
anaðkomandi kryddi, klassík og ann-
arri suður-amerískri tónlist.“
Það er löng þögn þegar René Bañ-
os er spurður að því, hvað það sé í
kúbanskri tónlist sem geri hana svo
heillandi og gríðarvinsæla um allan
heim – líka hér í norðrinu kalda.
„Það er kannski fyrst að nefna
rytmíkina í tónlist okkar. Það er
reyndar nokkuð sem við deilum með
fleiri suður-amerískum þjóðum, en á
Kúbu er rytminn í músíkinni svo
mikilvægur, og þess vegna er tónlist
eins og salsa svo vinsæl og auðvitað
tengist þetta dansinum, sem hverj-
um Kúbumanni er í blóð borinn. En
ætli þetta séu ekki bara hlutir sem
höfða til allra, hvar sem þeir eru;
rytminn er hreyfiafl fyrir líkamann
og það er gaman að dansa.“
Fiktuðu með söng
Sagan af því hvernig hópurinn
Vocal Sampling varð til er stór-
merkileg. René Baños segir að þeir
félagarnir hafi allir verið saman í
hljóðfæranámi í Tónlistarakadem-
íunni í Havana. „Við vorum fyrst og
fremst hljóðfæraleikarar. En svo
fórum við að fikta með sönginn þeg-
ar við hittumst, og prófa að herma
eftir hljóðfærunum. Þetta var fyndið
og skemmtilegt, en smám saman
þróaðist sú hugmynd hjá okkur að
þetta gætu verið fullgild tónlistarat-
riði út af fyrir sig, og músíkalskt
spennandi. Þess vegna ákváðum við
að gera alvöru úr þessu samstarfi, og
það höfum við gert núna í áratug.“
Hópurinn hefur ferðast um allan
heim og hvarvetna hlotið frábærar
viðtökur. Þetta er fyrsta heimsókn
þeirra til Íslands og René Baños seg-
ist ekki alveg vita við hverju þeir eigi
að búast hér. „Ég hef það þó á til-
finningunni að það séu áhugasamir
og afslappaðir hlustendur á Íslandi.
Reyndar hef ég heyrt margt um
landið og mér hefur verið sagt að það
sé mjög fallegt. Ég vona að við get-
um séð eitthvað af landinu; kannski
eldfjall. En ég er viss um að það
verður gaman að syngja fyrir ís-
lenska eyjarskeggja. Það var frá-
bært að heyra að það skyldi hafa
selst fljótt upp á tvenna tónleika – og
enn betra að við skyldum hafa getað
bætt við þeim þriðju. Ég hlakka til.“
Tónleikarnir verða á Broadway í
kvöld kl. 21 og á morgun kl. 15 og 21.
Sexmenningarnir í Vocal Sampling með þrenna tónleika á Listahátíð
„Á Kúbu er rytminn í mús-
íkinni svo mikilvægur“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kúbumennirnir í Vocal Sampling við komuna til Reykjavíkur í gær.
Í GERÐARSAFNI í Kópavogi
verður í ágúst haldin sýningin
„Viðræður tveggja listamanna
af abstraktkynslóðinni“. Þar
verða sýnd verk eftir Jóhannes
Jóhannesson listmálara og
Gerði Helgadóttur mynd-
höggvara, en þau stunduðu
nám samtímis í Flórens og Par-
ís í kringum 1950.
Í tengslum við sýninguna
hafa afkomendur Jóhannesar
hug á að mynda sem heilsteypt-
asta skrá yfir verk hans og eig-
endur þeirra og eru eigendur
verka eftir Jóhannes vinsam-
lega beðnir um að hafa sam-
band í síma 8978620 (Halla Jó-
hannesdóttir) eða senda
tölvupóst á kjoi@itn.is eða
sigsoley@isholf.is.
Auglýst
eftir verk-
um Jó-
hannesar
SÝNING Sigtryggs Bjarna
Baldvinssonar í Englaborg,
Flókagötu 17, hefur verið fram-
lengd til 26 maí. Sýninguna
nefnir listamaðurinn Treemix-
Remix og er hún opin daglega
kl. 14–18.
Sýning
framlengd
Serbnesk list
í Listhúsinu
Í VEISLUGALLERÍI í List-
húsinu í Laugardal stendur nú
yfir sýning á verkum serbneska
listamannsins Predrag P.
Petkovic.
Predrag Petkovic (Pedja) er
fæddur í Belgrad í Júgóslavíu
1946. Um þrítugt gekk hann í
listaháskólann í Belgrad og
hefur fengist við skúlptúr jafnt
sem önnur listform. Pedja hef-
ur haldið fjölmargar einka- og
samsýningar í Júgóslavíu
(gömlu og nýju) og tekið þátt í
samsýningum í Búdapest,
Prag, Sofíu og París. Einkasýn-
ingar á verkum hans hafa verið
haldnar í Washington, París,
Búdapest og Vín.
Sýningin er opin alla daga,
nema sunnudaga, frá kl. 9–
18.30 og stendur fram að mán-
aðamótum.