Morgunblaðið - 17.05.2002, Page 32

Morgunblaðið - 17.05.2002, Page 32
Föstudagur 17. maí 12.30 Listasafn Reykjavíkur – Hafnar- hús Chalumeaux-tríóið ásamt Ólafi Kjart- ani Sigurðarsyni baríton. Tónleikarnir eru í tengslum við sýninguna Mynd – íslensk samtímalist. Chalumeaux-tríóið er skipað klarin- ettuleikurunum Kjartani Óskarssyni, Óskari Ingólfssyni og Sigurði Ingva Snorrasyni. Flutt verður Trio trion- fante eftir Pál P. Pálsson (frumflutn- ingur), Flóin eftir Modest Muss- orgsky, Elegy (Harmljóð) og Berceuse du chat eftir Igor Stravinsky og Tríó eftir Tryggva M. Baldvinsson. 17.00 Hafnarborg Hafnarfirði Enginn getur lifað án Lofts Ljósmyndasýning. Samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Hafnarfjarð- arbæjar, Kvikmyndasafns Íslands og Myndadeildar Þjóðminjasafns Ís- lands. 17.05 Portið á Laugavegi 21 Örverkið Hringleikur eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Birtu Guðjóns- dóttur í leikstjórn Ásdísar Thorodd- sen. „Sá er verðugur síns kets er sitt kál át.“ Bein útsending á Rás 1 að viðstöddum áhorfendum. 18.00 Bæjarbíó Hafnarfirði Milli fjalls og fjöru eftir Loft Guð- mundsson, fyrsta íslenska talmyndin og Hnattflugið, stutt heimildarmynd frá 1924. 20.00 Listasafn Reykjavíkur – Hafnar- hús Frumsýning á heimildarmynd Þor- finns Guðnasonar um Guðjón Bjarnason en Guðjón er meðal lista- mannanna sem verk eiga á sýning- unni MYND sem nú stendur yfir í Hafnarhúsi. 20.00 Borgarleikhúsið Salka Valka, dansverk eftir Auði Bjarnadóttur. Síðasta sýning. 21.00 Broadway Vocal Sampling, kúbverska salsa- sveitin. Miðasalan er opin alla daga kl. 11– 20. Listahátíð í Reykjavík 11. – 31. maí Dagskráin í dag LISTIR 32 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ AFTUR er boðið til einleiks í Hafnarfjarðarleikhúsinu og nú er það Guðmundur Ingi Þorvaldsson sem flytur verk eftir sjálfan sig sem hann kallar: Skáld leitar harms. Guðmundur Ingi útskrifað- ist úr Leiklistarskóla Íslands fyrir fjórum árum og hefur síðan leikið í báðum stóru atvinnuleikhúsunum svo og starfað með frjálsum leik- hópum og leikstýrt í framhaldsskól- um. Skáld leitar harms er fyrsta frumsamda verk Guðmundar Inga og í því tekst hann á við alþekkta klisju um ungan mann sem dreymir um að vera rithöfundur en skortir bæði hæfileikana og úthaldið. Þetta er rúmlega tvítugur maður sem hefur aldrei „lent í neinu“, býr í for- eldrahúsum, á sæta og vel gefna kærustu og er í grundvallaratriðum „góður strákur“. En hann þráir eitthvað annað; vill ekki verða lög- fræðingur eins og pabbi, vill gera uppreisn gegn borgaralegum gild- um og verða frægur og dáður rit- höfundur. En hann skortir, að eigin mati, lífreynsluna og þjáninguna sem listin ku helst spretta upp úr og er því heldur úrræðalaus. Vandi unga mannsins er kannski einna helst fólginn í því að hann er fastur í „klisjunni um listamann- inn“ og það er „staða listamanns- ins“ sem hann sækist eftir fremur en listræn tjáning. Enda virðist hann hvorki hafa hæfileikana né þörfina fyrir slíka tjáningu og það er einmitt slík þörf sem hann leitar. Og ef það er þjáningin sem skapar slíka þörf er bara um að gera að kalla yfir sig þjáningu. Guðmundur Ingi túlkaði þessa persónu sína af ástríðu og krafti. Hann átti auðvelt með að draga fram hjákátlega hégómagirndina, sjálfselskuna, sjálfsvorkunnina og yfirþyrmandi getuleysið. En kannski hefði hann einnig mátt reyna að vinna aðeins „á móti“ klisjunni; reyna að finna einhverja ærlega taug í þessum unga manni, þó ekki væri nema til að vinna ör- litla samúð áhorfenda með brestum hans og veikleikum. Sá meðal-Jón (með skáldanafnið Einarr) sem birtist áhorfendum í túlkun skapara síns á sér engar málsbætur, hann er einfaldlega fullkomlega óþolandi í heimsku sinni og hégóma og manni stendur nokk á sama um ör- lög hans. Burtséð frá þessari persónusköp- un, sem er fangi í neti klisjunnar, má margt gott segja um þessa frumraun Guðmundar Inga á sviði leikritunar. Leikurinn er vel upp- byggður með góðri stígandi og snjöllum endalokum og söguþráður hinnar ímynduðu skáldsögu Jóns er óborganlega melódramatískur. Vonandi heldur Guðmundur Ingi áfram að fást við leikritaskrif og leggur sitt af mörkum til þess vors í íslenskri leikritagerð sem kannski er í uppsiglingu … Glímt við and- legt getuleysi LEIKLIST Hermóður og Háðvör Höfundur og leikari: Guðmundur Ingi Þor- valdsson. Leikstjóri: Friðrik Friðriksson. Dramatúrg: Kristín Eysteinsdóttir. Lýs- ing: Björn Kristjánsson. Leikmynd: Jó- hann Már Þórisson. Móðir: Margrét Helga Jóhannsdóttir. Rödd kærustu: Linda Ásgeirsdóttir. Hafnarfjarðarleik- húsið 10. maí. SKÁLD LEITAR HARMS Morgunblaðið/Sverrir „Leikurinn er vel uppbyggður með góðri stígandi og snjöllum endalok- um og söguþráður hinnar ímynduðu skáldsögu Jóns er óborganlega melódramatískur,“ segir m.a. í umsögninni. Á myndinni er Guðmundur Ingi Þorvaldsson í hlutverki skáldsins. Soffía Auður Birgisdóttir Tónlistarskóli FÍH, Rauðagerði 27 Burtfar- artónleikar Þór- önnu Daggar Björnsdóttur af sígildri braut skólans verða kl. 20. Með henni koma fram þeir Björn Th. Árna- son fagottleikari, Kjartan Óskarsson klarinettuleikari og Guðbjörg Sandholt söngkona. Listhús Ófeigs Skólavörðustíg 5 Sölusýning á verkum úr einkasafni er opin frá kl. 18-20. Þar eru m.a. verk eftir Gabríelu Friðriksdóttur, Georg Guðna, Hauk Dór, Húbert Nóa, Kristján Davíðsson, Kristján Jóns- son, Louisu Matthíasdóttur, Pétur Gaut, Sigurbjörn Jónsson. Sýningin er opin á verslunartíma til 8. júní. Í DAG Þórunn Dögg Björnsdóttir LEIKFÉLAG Vestmannaeyja frumsýnir í kvöld í Bæjarleikhúsinu leikritið Allt í plati eftir Þröst Guð- bjartsson. Leikstjóri er Andrés Sig- urvinsson og er þetta í annað sinn sem hann leikstýrir hjá félaginu. Leikritið er fjölskylduleikrit sem fjallar um helstu persónur úr sögum og ævintýrum Astrid Lindgren og Thorbjörns Egner. Helstu persónur sem fram koma í leikritinu eru Lína langsokkur, Karíus og Baktus, Kasper, Jesper og Jónatan, Soffía frænka, Lilli klifurmús, Mikki refur o.fl. Að sýningunni koma hátt í 50 manns með einum eða öðrum hætti. Næstu sýningar eru á morgun, laugardag og mánudag, kl. 14 og 17. Allt í plati í Eyjum Gallerí Fold, Rauðarárstíg Sýningu Færeyinganna Olivur við Neyst og Anker Mortensen í Bak- salnum og sýningu á vefmyndum Vigdísar heitinnar Kristjánsdóttur í Rauðu stofunni lýkur annan í hvíta- sunnu. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10–18, laugardag til kl. 17, hvíta- sunnudag og annan í hvítasunnu frá kl. 14–17. Sýningum lýkur GUÐRÚN Eva Mínervudóttir og Birta Guðjónsdóttir eru höfundar ör- leikrits dagsins á Listahátíð sem flutt verður á Rás 1 kl. 17.05. Verkið nefnist Hringleikur og verður leikið í portinu við Laugaveg 21. „Þetta er nokkurs konar trúðleikur sem verður flutt- ur á litlu hring- sviði,“ segir Guð- rún Eva. „Þarna eru fjórar persónur, tveir karlar og tvær kon- ur. Þrjú þeirra er á sviðinu en önnur konan snýr sviðinu. Hún lætur sví- virðingarnar dynja á þeim en þau eru að vonum ósátt við veru sína á sviðinu. Af einhverjum ástæðum telja þau sig bundin af veru sinni þar, en við blasir að þau gætu yfirgefið sviðið þegar þeim sýnist. Leikstjór- inn Ásdís Thoroddsen hefur sagt mér að verkið minni sig á alþýðu- leiklist miðalda. Þetta er skemmti- leikrit, en mér fannst helst hægt að gera eitthvað í þá átt við 10 mínútur. Það er fyndin hugmynd að vera með myndlistarmenn í vinnu fyrir útvarp og sjálf hef ég mjög gaman af öllum svona uppákomum úti á götu.“ Að sögn Guðrúnar Evu er portið vel fall- ið til sýninga. „Í fyrrasumar voru hér eldgleypar og fleira gott fólk og það kom vel út. Við Birta vorum mjög glaðar yfir því að fá föstudagseftir- miðdag til sýningarinnar.“ Leikarar eru Sigrún Sól Ólafs- dóttir, Þröstur Guðbjartsson, Ólafur Guðmundsson og Halla Margrét Jó- hannesdóttir. Örleikrit á Rás 1 á Listahátíð Skemmtileikur á litlu hringsviði Guðrún Eva Mínervudóttir FYRRI hluti einleikaraprófs Péturs Valgarðs Péturssonar, gítarleikara, frá Nýja tónlistar- skólanum verður kl. 20 í kvöld, föstudagskvöld. Pétur leikur einleikshlutverkið Concerto (in Re) op. 99 fyrir gítar og kammer- sveit í þrem þáttum, eftir M. Castelnuevo-Tedesco, með hljóm- sveit Nýja tónlistarskólans. Á sömu tónleikum tekur Magnús Guðjónsson 8. stigs próf í gítar- leik. Á efniskrá Magnúsar verða verk eftir J.S. Bach, Hafliða Hallgrímsson, F. Sor og Villa- Lobos. Þá verða 8. stigs tónleikar Sigurlaugar Arnardóttur frá söng- deild skólans kl. 17 og Berghildur Bernharðsdóttir tekur 7. stigs próf frá sömu deild. Undirleikari á píanó er Richard Simm. Loks verða 8. stigs tónleikar Önnu Margrétar Óskarsdóttur í sal tónlistarskólans kl. 17 á morgun. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Händel, Saint-Saëns, Schu- bert, R. Strauss, Kurt Weill og ís- lensk tónskáld. Undirleikari á píanó er Bjarni Þ. Jónatansson. Nemendur Nýja tónlistarskólans sem fram koma á tónleikunum um helgina: Pétur V. Pétursson, Anna Margrét Óskarsdóttir, Sigurlaug Arnardóttir, Berghildur Bernharðsdóttir og Magnús Guðjónsson. Burtfararpróf í Gerðubergi Í LISTASAFNI Reykjavíkur – Hafnarhúsi verður frumsýnd heim- ildamyndin Guðjón í kvöld, kl. 20. Myndin er eftir Þorfinn Guðnason og spannar yfir tvö ár í lífi Guðjóns Bjarnasonar myndlistarmanns, en hann er einn þeirra listamanna sem verk eiga á sýningunni Mynd, sem nú stendur yfir í safninu. Í myndinni fylgjumst við með listsköpun og framavonum listamanns sem hyggur á landvinninga í útlöndum. Þetta er vegamynd í tvennum skilningi: Ferðast verður með Guðjóni inn í ís- lenskan listaheim auk þess sem leik- urinn berst víða um heim. Myndin er 52 mínútur að lengd en á undan henni verða sýnd brot úr nýjum ís- lenskum heimildamyndum. Guðjón Bjarnason Þorfinnur Guðnason Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Ný heimilda- mynd um listamann DRÖFN Guðmundsdóttir og Hrönn Vilhelmsdóttir opna sameiginlega sýningu í Listasal Man, Skólavörðu- stíg 14 á morgun, laugardag, kl. 15. Verkin sem Dröfn sýnir eru skúlptúrar úr gleri og matarstell sem hún hefur verið að hanna og vinna að undanfarið. Stellið var notað af framleiðslu- manninum Ágústi Guðmundssyni hjá Sigga Hall á Óðinsvéum á sýn- ingunni Matur 2002. Dröfn hefur að mestu unnið í gler síðan hún útskrifaðist úr mynd- höggvaraskor Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands 1993. Verkin sem Hrönn vinnur eru út frá bókmenntaarfinum. Ýmis texta- brot úr misgömlum ritum eru færð í rúnaletur eða með nútímaskrift í hör, satín, bómull og silki. Eitt verk- ið, Með lögum skal land byggja, hef- ur Hrönn hannað inn í Lögreglustöð- ina á Blönduósi, 4 m langur refill. Hrönn útskrifaðist úr textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1990. Sýningin stendur til 4. júní og er opin á verslunartíma og sunnudaga kl. 15–18. Gler og textíll í Man ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.