Morgunblaðið - 17.05.2002, Síða 34
MENNTUN
34 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VITA valdamenn heimsinshvernig best er að leysavandamál? Vita börninþað? Hvaða aðferðir eru
heillavænlegar til þess, og leiða ekki
til meira ofbeldis? Blaðamaður settist
í kennslustund með börnum í þriðja
B.J. og spáði í svörin með þeim. Í stof-
unni hanga veggspjöld og minnismið-
ar um góð gildi: „Hjálpa, læra, hlusta“
og „Við berum virðingu fyrir sjálfum
okkur og öðrum.“
Bára Jóhannsdóttir leggur dæmi
um vandamál fyrir bekkinn; árekstur
systkina og spyr: „Hvert er vanda-
málið? Hvernig má leysa það?“ Börn-
in lögðu til möguleika, og völdu svo
saman eftir umræður þann sem var
líklegur til vinnings. Svo röðuðu þau
sér upp í hring og sungu lífsgildi
bekkjarins og röppuðu texta sinn eftir
laginu „We are the champions“.
Upphaf aðferðarinnar
Bára segir að í bekknum sé fjallað
um lífsgildi án predikunar, og að einn-
ig sé reynt að temja sér að láta ekki
smáatriði fara í taugarnar á sér. Gera
greinarmun á aðalatriði og aukaritiði.
Ávallt sé hugsað: „Hvert er vanda-
málið – hvernig getum við leyst það?“
Blaðamaður spurði börnin um lífs-
gildin og þau sögðu að þeim hefði tek-
ist að greiða úr árekstrum sín í milli
með því að muna eftir þeim, og einnig
hefðu þau vilja til að hjálpa öðrum.
Þetta efni sem bekkurinn hefur til-
einkað sér og þessi aðferð er ekki ein-
angrað fyrirbæri þar, heldur hluti af
uppeldisstefnu sem tekin var upp í
Foldaskóla. Stefnan er kennd við
uppbyggingu (Restitution) og felst í
því að kenna börnum og unglingum
sjálfsstjórn og sjálfsaga. Aðferðin var
þróuð og reynd í tuttugu ár af Diane
Gossen frá Saskatoon í Kanada og
samstarfsfólki. Aðferðin byggist á
spurningatækni og hugmyndinni að
rækta þurfi skilyrði sjálfstjórnar áður
en hún er byggð upp.
Að verða sammála
Uppbyggingarstefnan hefur verið
þróuð og notuð í Foldaskóla í nokkur
ár og hingað hafa t.d. komið erlendir
ráðgjafar í því augnamiði að þjálfa
starfsfólk í aðferðafræðinni. Magni
Hjálmarsson, námsráðgjafi í Folda-
skóla, hefur notað þessa stefnu og
kennt hana öðrum. Hann segir að hún
sé um það að nemendur læri að
þekkja tilfinningar og þarfir og að
kennarar læri að nota spurninga-
tækni til að hjálpa nemendum að
vinna úr erfiðum tilfinningum sínum,
eins og vonbrigðum og reiði. Hann
nefnir dæmi.
Staðan hjá tveimur nemendum í
skólanum var þannig að ef þeir mætt-
ust þá hófust jafnskjótt slagsmál. Sátt
virtist óhugsandi, en loks var komið á
fundi í skólanum á milli þeirra. Hvor
fór í sitt herbergið með foreldrum sín-
um. Námsráðgjafinn fór á milli her-
bergja og beitti aðferðinni. Staðan var
stál í stál milli þessara nemenda, og
ráðgjafinn hóf leitina að því sem þeir
gætu verið sammála um. Fyrsta setn-
ingin sem þeir gátu verið sammála
um var þessi: „Getum við verið sam-
mála um að þetta sé leiðinlegt.“ Þann-
ig hófst leiðin að sátt sem endaði með
samkomulagi, þeir reyndust vera
sammála um sitthvað fleira.
Magni hefur haft umsjón með upp-
byggingarstefnunni í Foldaskóla og
hefur nú þýtt og gefið út þrjár þema-
bækur í einni bók undir heitinu Upp-
eldi til ábyrgðar, eftir Diane Gossen.
Magni segir að skólinn sé ekki ein-
ungis fræðslustofnun, heldur einnig
samfélag, og að markmiðið sé að gera
það umhyggjusamt. Það sem ein-
kenni þetta samfélag sé áherslan á
lífsgildin fremur en reglurnar.
Allt á þetta upphaf sitt og endi í
umræðu milli einstaklinga og hópa,
voninni um að samfélagið verði það
sem flestir geti verið sammála um.
Lífsgildi eru í öndvegi, en reglur eru
nytsamlegar til að styðja gildin. Regl-
ur í Foldaskóla eru fáar en skýrar, og
við brotum eru einnig greinileg við-
urlög sem farið er eftir. Gerður er
greinarmunur á umgengnisreglum og
öryggisreglum.
Öryggisreglurnar taka til atriða
sem ógna öryggi og trufla mám. Eftir
umræður og samráð við foreldra og
kennara á fundum voru öryggisreglur
Foldaskóla samþykktar. Þær eru eft-
irfarandi: Engar líkamlegar meiðing-
ar. Engin barefli eða önnur vopn.
Ekkert andlegt ofbeldi, yfirgang, of-
sóknir, árásir eða einelti. Engin fíkni-
efni, áfengi eða tóbak. Engar ögranir
við starfsmenn skólans. Viðurlög eru
síðan við brotum. Einnig voru stofu-
reglur/umgengnisreglur unnar á
sama hátt: Tala af kurteisi, láta aðra í
friði, sjá sjálf(ur) um dótið sitt og
sinna hlutverki
sínu. Lýsing á
hlutverkum er
unnin af kennur-
um og nemend-
um.
Hvernig
manneskja?
Stundum þarf
að beita viður-
lögum en þau
gefa reglunum nauðsynlegan kraft,
en oft er hægt að byrja á að tala um
lífsgildin og opna með þeim leið til
uppbyggingar. Þá verður megin-
spurningin: Hvernig manneskja viltu
vera? Ákjósanlegast er að hvert barn
hafi unnið að mótun eigin lífsgilda og
hver bekkur hafi valið sér tiltekin lífs-
gildi og mótað bekkjarsamning.
Lífsgildi í öðrum bekk gætu hljóm-
að svona ef tekið er dæmi úr bókinni
Uppeldi til ábyrgðar: Virðing fyrir
sjálfum sér og öðrum. Dugnaður, að
gera sitt besta. Gæta varúðar. Í lagi
að mistakast. Það er gaman að læra.
Þegar unnið er með lífsgildi í bekkj-
um er gott ráð að byrja á því að safna
saman lífsgildum úr fjölskyldu hvers
og eins, og byggja síðan á þeim. „For-
eldrar eru fyrirmyndir og sýna börn-
unum lífsgildi sín með framkomu
sinni á hverjum degi. Við viljum
virkja lífsgildi fjölskyldunnar með því
að spyrja, en ekki með því að segja
fólki til í þessu efni. Agi uppbygging-
ar er innri kraftur, sjálfsagi byggður
á lífsgildum fremur en reglum.“ (76).
Sambandið við einkunnir
Uppbyggingarstefnan er vissulega
kenning, og málið er kunnáttan að
framkvæma hana. Hún skarast við
margt annað sem hefur verið uppi á
teningnum undanfarin ár, og er í
ákveðnum samhljómi við t.d. kenn-
ingar dr. Thomas Gordons sem skrif-
aði m.a. bækurnar Samskipti foreldra
og barna, og Samskipti kennara og
nemenda (Æskan, 2001).
Íslenskir skólar hafa í vaxandi
mæli unnið með lífsgildi, og má nefna
að kennarar, foreldrar og nemendur í
Vesturbæjarskóla (http://vesturbaej-
arskoli.ismennt.is/vildarvog) hafa
undanfarið verið að safna lífsgildum
sem þeir vilja setja í öndvegi. Magni
segir að þegar skólar ákveði að til-
einka sér hugmyndir eins og þessar
séu þeir um leið að efla tilfinninga-
þroska, félagsfærni og siðvit með öll-
um sem að vinnunni koma.
Ef til vill getur hvarflað að fólki að
með þessu verði skólar of mjúkir, taki
uppeldishlutverkið of alvarlega og
gleymi hörðu meginhlutverki sínu í
lífsbaráttunni: Að nemendur fái háar
einkunnir, að skólinn sé með þeim
bestu á landinu! Magni svarar þessu
að lokum: „Þegar tekist hefur að gera
samskipti áreynslulítil og skólinn
sinnir vel þörfum einstaklinganna,
fara einkunnir í bóklegum greinum
hækkandi.“
Uppeldi
og lífsgildi
í skólum
Að hjálpa, læra, hlusta og bera
virðingu fyrir okkur og öðrum
Að efla tilfinningaþroska,
félagsfærni og siðvit með öllum Morgunblaðið/Kristinn
Stungið er upp á ýmsum úrræðum áður en lausnin finnst.
Bára Jóhannsdóttir lagði vandamál/verkefni fyrir
bekkinn, sem valdi síðan mögulegar lausnir.
Hjálpa, læra, hlusta og virða eru gildin sem 3. B.J. valdi sér eftir nokkrar pælingar. Gildin urðu svo töm í söng.
Magni
Hjálmarsson
Tilfinningaþroski í öndvegi settur.
Lífsgildin tjáð og sungin í 3. B.J. í Foldaskóla.
Gleðin og dansinn gegna hlutverki í bekknum.
Annar kafli í bókinni Uppeldi til
ábyrgðar eftir Diane Gossen í
þýðingu Magna Hjálmarssonar
heitir Ólíkar leiðir við agastjórn.
Þar eru meðal annars nefndar
fimm stöður stjórnunar:
Með því að refsa eða hóta
refsingu (punisher).
Með því að vekja sektar-
kennd (guilter).
Með því að koma sér í mjúk-
inn hjá viðkomandi (buddy).
Með því að benda á reglur og
sýna festu (monitor).
Með því að vekja til umhugs-
unar um lífsgildi og þarfir og
leita lausna til að mæta
hvoru tveggja (manager),
(bls. 37).
Í kaflanum eru þessar stjórn-
unaraðferðir greindar. Nefna má
dæmi. Framkoma þess sem kem-
ur inn sektarkennd hjá börnum er
í formi predikunar og skamma.
Viðkomandi segir: „Þú áttir að
vita betur,“ viðbrögð þess
skammaða er að gera tilraun til að
fela, neita og ljúga. Barnið biðst ef
til vill fyrirgefningar, en sjálfs-
traustið minnkar. Sá sem beitir
uppbyggingu, kann aðferðir aga-
stjórnunar og beitir þeim ef nauð-
synlegt þykir. Viðkomandi vill aft-
ur á móti að barnið taki þátt í því
að leysa vandann. Hann spyr
spurninga eins og „Hvernig viltu
lagfæra það sem fór aflaga? Hve-
nær getur þú gert það?“ Hann
reynir að laða fram lífsgildin og
vonast til að útkoman verði hug-
prýði. Barnið spyr loks: „Hvernig
get ég lagað þetta, hvað get ég
gert til að bæta fyrir þetta?“ og
það lærir sjálfsuppbyggingu.
Uppeldi til ábyrgðar
Lífsgildi/Samband uppeldisaðferðar, velgengni í skóla og farsældar í lífinu er verðugt rannsóknarefni fyrir for-
eldra og skólafólk og fræðimenn, en sífellt fleiri velta þessum málum fyrir sér og gera tilraunir. Gunnar
Hersveinn fór í heimsókn í Foldaskóla og fylgdist með beitingu aðferðar sem nefnd er uppbyggingaraðferðin.