Morgunblaðið - 17.05.2002, Qupperneq 36
UMRÆÐAN
36 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er ekki bæði
hægt að draga úr
kostnaði og stórauka
útgjöld.
Eftir lestur á stefnu-
skrá sjálfstæðismanna
í Mosfellsbæ setur
mann hljóðan. Hvernig
ætla sjálfstæðismenn
að draga úr kostnaði,
(lækka hlutfall rekstr-
arkostnaðar af skatt-
tekjum) og á sama tíma
að stórauka útgjöld?
Þvílík þversögn!
Stefnuskrá D-listans er
ávísun á stóraukin út-
gjöld sem ekki verður
mætt nema með stór-
aukinni skattheimtu, ef það þá dugar
til. Líklegra er að svona stefnuskrá
valdi gríðarlegri skuldasöfnun.
Vandasamt og dýrt er að gera öll-
um til hæfis, óvíst hvort það takist.
Enn dýrara að yfirbjóða allt og alla!
,,Biti við hverja músarholu“.
Geta kjósendur treyst þeim sem
segja í öðru orðinu að skuldir séu
orðnar of háar og rekstur bæjar-
félagsins of dýr en í hinu orðinu lofa
enn dýrari rekstri og
þar með stórauknum
skuldum?
Í stefnuskrá D-
listans er hvergi
minnst á einkavæðingu
en í leiðara Varmár,
öðru af tveim málgögn-
um sjálfstæðismanna í
Mosfellsbæ, leggur
verðandi oddviti sjálf-
stæðismanna áherslu á
að einkavæðing sé
lausnin. Hvað ætla
sjálfstæðismenn að
einkavæða? Skólana,
leikskólana, íþrótta-
húsið eða e.t.v. fé-
lagsþjónustuna? Eru
einhverstaðar einkavinir sem búið er
að lofa einkavinavæðingu?
Hvert er hið rétta andlit sjálfstæð-
ismanna? Stefnuskrá troðfull af lof-
orðum eða niðurskurður þjónustu og
einkavæðing?
Sjálfstæðismenn, sýnið á ykkur
hið rétta andlit, ekki fela frjáls-
hyggjuandlitið á bakvið stefnuskrá
sem gæti allt eins verið samin af
Steingrími J. Sigfússyni.
Segið kjósendum satt, þeir eiga
skilyrðislaust rétt á því.
Þetta eru misvísandi skilaboð sem
Sjálfstæðisflokkurinn sendir kjós-
endum. Heldur einhver að kjósendur
trúi þessu?
Síðasta tölublað Mosfellsblaðsins,
hinu málgagni sjálfstæðismanna í
Mosfellsbæ, er þeim ekki til sóma og
lítt uppbyggilegt. Fullt af persónu-
legum ósannindum og er jafnvel
ærumeiðandi.
Frambjóðendur, hvar í flokki sem
þið eruð staddir, verið heiðarlegir,
ekki vanvirða kjósendur, segið þeim
ávallt satt og rétt frá.
Ekki vanvirða kjósendur!
Marteinn
Magnússon
Mosfellsbær
Vandasamt og dýrt,
segir Marteinn
Magnússon, er að
gera öllum til hæfis.
Höfundur skipar 3. sæti B-lista
framsóknarmanna í Mosfellsbæ.
FYRIR ekki svo
mörgum árum var
ásýnd Borgarholts í
Kópavogi talsvert önn-
ur en hún er nú. Þeir
sem leið áttu um bæ-
inn sáu Kópavogs-
kirkju tróna uppi á
hólnum yfir hálf-
byggðu Gerðarsafni
þar sem gapandi tóftir
störðu á vegfarendur
og litu í fjarlægð út
fyrir að vera hálfhrun-
inn kastali tengdur
gamalli bensínstöð.
Ferðamennirnir klór-
uðu sér í höfðinu og
flettu hraðar í hand-
bókinni og leituðu að lýsingu á forn-
sögulegum rústum. Það er ekki svo
vitlaus samlíking því Gerðarsafn
stóð fokhelt heilt kjörtímabil án
frekari aðgerða og þessi undarlega
þrenning á holtinu vakti furðu
þeirra sem fóru hjá. Í dag er þessi
mynd gjörbreytt því síðan Sjálf-
stæðisflokkurinn komst til valda
hefur Borgarholtið tekið algjörum
stakkaskiptum. Svæðið hefur verið
skipulagt með tilliti til þarfa bæj-
arbúa og skapaður þar heildstæður
stíll þar sem byggð og náttúra mæt-
ast í sátt.
Árið 1992 kom Sjálfstæðisflokk-
urinn fram með nýja sýn fyrir svæð-
ið sem kynnt var í
Landsmálablaðinu
Vogum árið 1992. Þar
var lagt til að á svæð-
inu skyldi verða menn-
ingarmiðstöð Kópa-
vogsbúa. Allir vita
hvaða spor sú framtíð-
arsýn hefur markað
þar sem Salurinn,
fyrsta sérhannaða tón-
listarhús landsins, var
vígt 2. janúar 1999 og á
afmælisdegi bæjarins,
11. maí sl., var svo
vígsla á síðari hluta
miðstöðvarinnar þar
sem nú eru Bókasafn
Kópavogs og Náttúru-
fræðistofa Kópavogs. Þetta gerðist í
kjölfar þess að ráðist var í að ljúka
Gerðarsafni sem nú ber hróður bæj-
arins víða. Borgarholtið rís því svo
sannarlega undir nafni sem miðstöð
menningar og lista í Kópavogi.
Uppbyggingu þessa svæðis er
samt engan veginn lokið. Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur það á stefnuskrá
sinni að tengja saman Borgarholtið
og Hamraborgarsvæðið með því að
byggja yfir Kópavogsgjána. Þessi
draumur er nær því að rætast en
nokkru sinni áður þar sem bygging-
arnefnd bæjarins hefur samþykkt
teikningar af væntanlegri byggingu
yfir gjána. Þetta yrði jafnframt
fyrsti áfangi í að loka henni end-
anlega og farvegur framtíðarskipu-
lags til betri ásýndar Hamraborg-
arinnar. Hefur sú hugmynd verið
viðruð við ríkisvaldið að þar yrði
framtíðarhúsnæði Heilsugæslunnar
í Kópavogi og myndi það gerbylta
allri aðstöðu hennar og styrkja hlut-
verk Hamraborgarinnar í verslun
og þjónustu. Með tilkomu hússins
yrði síðan ráðist í að byggja yfir
lokahluta gjárinnar. Það svæði yrði
að hluta til nýtt fyrir bílastæði sem
þjónuðu bæði menningarhúsi, svo
og þeim fyrirtækjum sem starfrækt
eru í Hamraborginni. Jafnframt
væri þar opið rými sem gæfi mögu-
leika á starfrækslu ýmiss konar
þjónustu og skapaði svigrúm fyrir
fjölbreytt mannlíf í bænum. Síðast
en ekki síst fengjum við svæði þar
sem jólatréð okkar fengi stað við
hæfi.
Byggt yfir
Kópavogsgjána
Ármann Kr.
Ólafsson
Höfundur skipar annað sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir
næstu bæjarstjórnarkosningar.
Kópavogur
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur það á stefnuskrá
sinni, segir Ármann Kr.
Ólafsson, að tengja
saman Borgarholtið og
Hamraborgarsvæðið
með því að byggja yfir
Kópavogsgjána.
Sveitarstjórnarkosn-
ingar verða haldnar
25. maí næstkomandi
og í þeim kosningum
leitum við, frambjóð-
endur Sjálfstæðis-
flokksins í Mosfellsbæ,
eftir umboði til þess að
vinna fyrir og með
fólkinu í bænum okk-
ar. D-listafólkið er
kröftugt, áræðið og
lífsglatt og þar fer
saman reynsla af bæj-
armálum og nýtt fólk
með nýjar áherslur og
hugmyndir um bætta
þjónustu við bæjarbúa.
Við viljum leggja okk-
ar af mörkum til þess að gera góð-
an bæ betri og ætlum að laga
stjórnsýslu bæjarins að þörfum og
óskum bæjarbúa á öllum þjónustu-
sviðum, efla upplýsingastreymi
milli bæjaryfirvalda
og bæjarbúa til þess
að gefa öllum tækifæri
til að koma sjónarmið-
um sínum á framfæri.
Við ætlum að láta
fara fram endurskoð-
un á fjármálum bæj-
arins með það að
markmiði að bæta
fjárhagsstöðu hans,
auka þjónustu og efla
þannig sókn til bættra
lífskjara bæjarbúa.
Þetta ætlum við að
gera vegna þess að
fjármálastjórn núver-
andi meirihluta er í
molum. Því þrátt fyrir
að skatttekjur hafi aukist vegna al-
menns góðæris í landinu og þrátt
fyrir 400 milljónirnar sem fengust
sem greiðsla frá Reykjavíkurborg
vegna breytinga á lögsögumörkum
hefur meirihlutinn ekki nýtt sér
þetta fjárhagslega svigrúm til þess
að greiða niður skuldir heldur eytt
enn frekar um efni fram. Þessa
óráðsíu verður að stöðva. Það gerist
ekki með núverandi meirihluta, það
er nokkuð ljóst.
Í Mosfellsbæ er öflugt og gott
starf í tónlistar-, leik- og grunn-
skólum og það viljum við styðja enn
frekar og veita þeim sem þar starfa
aukið faglegt og fjárhagslegt sjálf-
stæði. Við sjálfstæðismenn treyst-
um starfsfólki skólanna og foreldr-
um til þess að gera gott skólastarf
enn betra. Við viljum að skólastarf í
okkar bæ, með áherslu á vellíðan,
aga og árangur, verði leiðandi á
landsvísu.
Við getum státað af kjöraðstæð-
um íþrótta og útivistar fyrir unga
jafnt sem aldna og við sjálfstæð-
ismenn ætlum að efla enn frekar
þær aðstæður í samvinnu og sam-
ráði við félagasamtök og íbúa bæj-
arins.
Það sem hér að framan stendur
er aðeins hluti af stefnumálum okk-
ar sjálfstæðismanna í komandi
kosningum og býð ég alla Mosfell-
inga velkomna á kosningaskrifstof-
una í Kjarna til þess að spjalla við
okkur um það sem þeir hafa áhuga
á, því það viljum við heyra.
Í mínum huga snýst pólitík um
fólk og daglegt líf þess. Þegar ein-
staklingur eða fjölskylda velur sér
búsetu og temur sér ákveðinn lífs-
stíl samhliða þeirri ákvörðun þá er
það pólitík. Á hvern hátt fólk
ákveður að ferðast á milli staða,
gangandi, hjólandi, með almenn-
ingsvögnum eða á einkabíl, það er
pólitík. Hvernig samfélagið hlúir að
borgurunum er líka pólitík. Fjár-
mál bæjarins og meðferð þeirra,
stjórnun bæjarfélagsins og áhrif
hennar á daglegt líf bæjarbúa er
pólitík. Þess vegna skiptir alla Mos-
fellinga máli hvernig þessum mál-
um er stjórnað.
Í sveitarstjórnarkosningunum í
vor velja Mosfellingar þá sem þeir
treysta best til þess að vinna fyrir
sig næstu fjögur árin. Í mínum
huga er enginn efi: X-D fyrir fólk,
fyrst og fremst.
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Mosfellsbær
Við ætlum að láta fara
fram endurskoðun á
fjármálum bæjarins,
segir Ragnheiður Rík-
harðsdóttir, með það að
markmiði að bæta fjár-
hagsstöðu hans.
Höfundur skipar 1. sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
í Mosfellsbæ.
Mosfellsbærinn fyrir þig og mig
andi útivistarsvæðum
með merkingu
áhugaverðra göngu-
leiða, náttúruminja
og örnefna, með út-
gáfu upplýsinga-
bæklings og göngu-
korts í samvinnu við
önnur sveitarfélög og
hagsmunaaðila. Mik-
ilvægt er að halda
áfram þeirri upp-
byggingu á útivistar-
svæðinu við Selskóg
ofan Egilsstaða á
þann hátt að það nýt-
ist til almennrar úti-
veru allt árið, s.s. til
iðkunar skíðagöngu.
Tvískipt sorpgjald
D-listinn leggur til að sveitarfé-
lagið verði til fyrirmyndar í um-
hirðu og meðhöndlun á sorpi og
hvetji til vistvænni lífshátta. Það
hvetji íbúana til að draga úr sorp-
myndun og til flokkunar úrgangs
þannig að stærstur hluti hans verði
endurnýttur. D-listinn vill að sorp-
hirðugjald frá heimilum verði tví-
skipt, þannig að fólk hafi val um
hvort sorp sé tekið viku- eða hálfs-
mánaðarlega. Með því að bjóða upp
á þennan valmöguleika er verið að
koma til móts við breiðan hóp fólks
s.s. fámennar fjölskyldur, eldri
borgara og þá sem flokka sorp.
Hér hefur fátt eitt verið nefnt af
því sem D-listinn leggur til í stefnu-
skrá sinni í umhverfismálum á
Austur-Héraði. D-listinn vill að
traustur grunnur verði lagður í um-
hverfismál því á honum er hægt að
byggja upp umhverfis- og vistvænt
sveitarfélag til framtíðar. Til að svo
megi vera er mikilvægt að D-listan-
um verði tryggt gott gengi í kom-
andi sveitarstjórnarkosningum.
D-LISTINN á Aust-
ur-Héraði hefur lagt
fram stefnuskrá sína
fyrir kosningarnar 25.
maí næstkomandi. Í
stefnuskránni koma
fram þær áherslur og
markmið sem D-listinn
setur í forgang á kom-
andi kjörtímabili. Að
mínu mati er stefnu-
skráin metnaðarfull,
markviss og framsækin
og það gerir sveitarfé-
lagið okkar að fyrir-
myndar umhverfi og
enn betra og eftirsókn-
arverðara til búsetu.
Umhverfismál eru einn
af þeim málaflokkum sem D-listinn
leggur áherslu á í stefnuskrá sinni.
Í grein þessari mun ég kynna helstu
áherslur listans í umhverfismálum.
Áhersla í fráveitu-
og vatnsmálum
Fráveitumál innan alls sveitarfé-
lagsins er eitt af stóru forgangs-
verkefnunum á komandi kjörtíma-
bili og mikilvægt að halda áfram á
þeirri braut sem þegar er hafin í
þeim málaflokki. Í því sambandi er
nauðsynlegt að koma fráveitumál-
um á Egilsstöðum í gott ástand,
ásamt því að endurskoða og end-
urbæta fráveitur á Hallormsstað og
Eiðum. Rotþróavæðing á lögbýlum
verði lokið og sveitarfélagið sjái til
þess að rotþrærnar verði tæmdar
með reglubundnum hætti í dreif-
býli. Einnig leggur D-listinn áherslu
á að tryggja íbúum gott neysluvatn
bæði í dreifbýli og þéttbýli. Það
verður m.a. gert með því að byggja
miðlunartank á Egilsstöðum vegna
lágs vatnsþrýstings í hluta byggð-
arinnar og vatnsból á Hallormsstað
verði komið í viðunandi horf. Við
teljum að skoða verði hvort hag-
kvæmt verði að stofna orkuveitu í
sveitarfélaginu í samvinnu við
Fellahrepp, sem muni sjá um mál-
efni vatns- og hitaveitu og jafnvel
fráveitumál svo að vel fari.
Gott aðgengi
að útivistarsvæði
Náttúra Austur-Héraðs er fjöl-
breytt og býður upp á mikla mögu-
leika til margskonar útivistar. Í
sveitarfélaginu eru staðsettir
stærstu náttúrulegu birkiskógar
landsins og er náttúrperlan Hall-
ormsstaður þar með talin sem einn
af eftirsóknarverðustu ferðamanna-
stöðum sveitarfélagsins og landsins
alls. D-listinn telur mikilvægt að
tryggja íbúum sveitarfélagsins og
gestum þess gott aðgengi að aðlað-
Áherslur
D-listans á
Austur-Héraði
Guðmundur
Sveinsson Kröyer
Austur-Hérað
Stefnuskrá D-listans,
segir Guðmundur
Sveinsson Kröyer,
er metnaðarfull, mark-
viss og framsækin
og það gerir sveitar-
félagið okkar að
fyrirmyndar umhverfi.
Höfundur er jarðfræðingur og skip-
ar 3. sæti D-listans á Austur-Héraði.