Morgunblaðið - 17.05.2002, Side 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 37
ÞETTA OG MARGT FLEIRA! I !
A
B
X
/
S
ÍA
9
0
2
0
6
9
5
Þú kaupir núna en borgar ekki fyrstu
afborgun fyrr en eftir
4 mánuði, vaxtalaust.
Og þá er möguleiki
á allt að 32 mánaða
raðgreiðslu.
30%af öllum
Casio hljómbo
rðum, Monster
Cable
fylgihlutum og
heyrnatólum.
Margar gerðir
símtækja á 995
kr.
OPIÐ LAUGARDAG 10 – 16
Opnumkl. 10:00!
Fyrstur kemur, fyrstur fær
– Takmarkað magn!
Blaupunkt
bílútvarp með
segulbandstæk
i
Verð áður 24.
995 kr.
Lenco
heyrna
tæki m/
magnar
a
Verð áð
ur 1.99
5 kr.
Súper v
erð!
95kr..
Kenwood200 diska geislaspilariVerð áður 49.995 kr.
19.995kr.
- 60%
- 60%
9.995 kr.
PrincessMilk Shake blandariVerð áður 5.995 kr.
2.995kr.
- 50%
Vörur Verð áður Útsala
Blaupunkt bílmagnari ..........................................................42.995 kr. .................19.995 kr.
Bose Acoustimass® 3 -IV hátalarasett ..............................49.995 kr. .................24.995 kr.
Bose Lifestyle 20 heimahljóðkerfi ....................................339.995 kr. ...............199.995 kr.
Bose Waveradio geislaspilara ............................................79.995 kr. .................59.995 kr.
Breville hraðsuðuketill ........................................................9.995 kr. ....................5.995 kr.
Casio vasadiskó m/útvarpi ..................................................5.495 kr. ....................2.995 kr.
Palm m100 lófatölva ............................................................17.995 kr. .................9.995 kr.
Kenwood ferðageislaspilari sem spilar MP3 diska .......29.995 kr. .................19.995 kr.
Lenco 21" sjónvarpstæki með innb. DVD spilara ..........94.995 kr. .................69.995 kr.
Nova vöfflujárn ....................................................................7.995 kr. ....................4.995 kr.
Philips 32" breiðtjaldstæki 50hz .......................................166.995 kr. ...............119.995 kr.
Philips ferðageislaspilari m/útvarpi .................................26.995 kr. .................16.995 kr.
Philips gufustraujárn Comfort ...........................................3.995 kr. ....................2.495 kr.
Philips krullubursti Profile..................................................3.795 kr. ....................1.995 kr.
Philips Visapure Húðsnyrtir ................................................6.495 kr. ....................3.995 kr.
Philips eldhúsvog..................................................................4.995 kr. ....................2.995 kr.
Philips 1600W ryksuga.........................................................22.995 kr. .................14.995 kr.
Princess krullujárn ...............................................................1.595 kr. ....................795 kr.
Remington rakvél vatnsheld .............................................13.995 kr. .................9.995 kr.
Samsung DVD spilari ............................................................39.995 kr. .................29.995 kr.
Sanyo heimabíósamstæða ..................................................119.995 kr. ...............79.995 kr.
Wilfa áleggshnífur ...............................................................4.995 kr. ....................3.495 kr.
Wilfa brauðrist ......................................................................3.495 kr. ....................2.495 kr.
Whirlpool kæliskápur 325L h159b60 ................................67.995 kr. .................47.995 kr.
Whirlpool kæliskápur 289L.................................................67.995 kr. .................47.995 kr.
Whirlpool keramikhelluborð með snerirofum ...............99.995 kr. .................69.995 kr.
Philco uppþvottavél .............................................................59.995 kr. .................49.995 kr.
Philco þvottavél 1200sn ......................................................69.995 kr. .................59.995 kr.
Whirlpool 1000W örbylgjuofn með grilli .......................53.995 kr. .................29.995 kr.
0% VEXTIR – FYRSTA
AFBORGUN Í OKTÓBER!
I
Í
LISTAHÁTÍÐ í
Reykjavík er hafin og
dagskráin er að vanda
glæsileg. Ég get varla
ímyndað mér atburð
sem er mikilvægari
fyrir borgarlífið og ég
minnist þess sem
krakki að þegar
Listahátíð stóð yfir
var alltaf gaman í
Reykjavík, borgin ið-
aði af lífi. Mínar bestu
minningar um hátíðina
er þegar tókst að
draga borgarbúa,
hvaðanæva að, inn í
miðborgina. Stundum
voru það götulistamenn sem gerðu
það, stundum voru það listasmiðjur
fyrir almenning. Í ár verða mörg
tækifæri til að koma saman og
gleðjast. Franskir trommarar sem
láta hífa sig upp yfir Tjörninni og
allskonar tónlistarviðburðir skjóta
upp kollinum út um alla borg.
Hljómar frábærlega. Ég hvet alla
til að kynna sér dagskrána á
www.artfest.is
En Listahátíð er ekki það eina
sem gerist í borginni og sem betur
fer höfum við haft gæfu á undan-
förnum árum til að koma okkur
saman um fleiri viðburði og reglu-
legri en hana til að auðga andann.
Þá er ég að tala um viðburði eins og
Airwaves, Menningarnótt, Ljósahá-
tíð og svo hátíðina sem mig langar
sérstaklega til að gera að umtals-
efni hér, Hinsegin daga. Allt eru
þetta viðburðir sem draga fjöl-
skyldur í bæinn, gera borgina okk-
ar skemmtilegri. Það er nefnilega
staðreynd að Reykvíkingar leita inn
í miðborgina sína, því þar líður okk-
ur vel. Þeir sem halda öðru fram
geta varla búið í sömu miðborg og
ég.
Um daginn sagði einhver við mig
að Reykjavík væri regnbogasam-
félag. Það sem viðkomandi átti auð-
vitað við var að í Reykjavík má
finna alla mannlífsflóruna og þar
ættu allir að geta þrifist í sátt og
samlyndi hver við annan. Litir
regnbogans sameinast til að gera
góða borg betri.
Regnbogasamfélag
Ég gladdist yfir þessari fallegu
myndlíkingu. Mér finnst hún ein-
læg og lýsa mikilli væntumþykju
um samfélagið okkar. En ég gladd-
ist ekki bara yfir jákvæðu hjarta-
laginu, ég gladdist ekki síður sem
samkynhneigður einstaklingur,
vegna þess að eins og allir vita er
regnbogafáninn fáni samkyn-
hneigðra. Honum hafa hugrakkir
samkynhneigðir borgarbúar flagg-
að í áraraðir en það hefur ekki verið
fyrr en á síðustu árum sem það hef-
ur greipst í vitund annarra Íslend-
inga að þessi fáni tengist þessum
hópi. Sú vissa hefur kannski helst
orðið til í tengslum við hina stór-
kostlega vel heppnuðu Hinsegin
daga sem haldnir hafa verið í
Reykjavík undanfarin ár. Á völdum
laugardegi í ágúst dansa hommar
og lesbíur og vinir þeirra niður
Laugaveginn, gleðja augu þeirra
sem horfa á og kitla hláturtaugar
með einlægri gleði sinni. Ég held að
ég gleymi aldrei fyrstu alvöru göng-
unni okkar niður þessa aðalgötu Ís-
lands. Ég var stressaður þegar
gangan, sem mér fannst lítil og fá-
menn, fikraði sig fyrir hornið hjá
Hlemmi. Skyldi okkur mistakast?
Ætli nokkur mæti til að sýna okkur
stuðning? Verðum við ekki bara
eins og lítil viðundrasýning alla leið
niður í bæ? En undur og stórmerki
mættu mér. Gatan og gangstéttirn-
ar voru troðfullar af fólki. Foreldr-
um með börnin sín, öfum, ömmum,
unglingum, öllum! Á Ingólfstorg
söfnuðust svo þúsundir manna.
Stjórnmálamenn töluðu, samkyn-
hneigðir listamenn og
vinir þeirra tróðu upp,
börnin fengu atriði
sem voru sérstaklega
ætluð þeim. Brosin
voru ósvikin. Það voru
gleðitárin okkar líka.
Stuðningurinn sem við
hlutum frá öðrum íbú-
um borgarinnar í bar-
áttu okkar fyrir mann-
réttindum var
yfirþyrmandi. Við vor-
um velkomin. Við vor-
um hluti af hinni stóru
regnbogaheild. Regn-
bogasamfélaginu.
Ég held að allir séu sammála um
að Hinsegin dagar séu orðnir
ómissandi hluti af borgarlífinu og
því hafa kröfurnar aukist. Undir-
búningur hefur líka staðið frá því að
síðustu hátíð lauk, ótal sjálfboðalið-
ar vinna nótt og dag, því þeir vita
núna hvað það er mikið mál að
standa að svona stórum viðburði.
Og stór verður hann. Það er útlit
fyrir að hátíðin og gangan verði
glæsilegri og litríkari en nokkru
sinni fyrr. Fyrirtækin í borginni
eru að vakna til lífsins, það er þess
virði að styðja framtak eins og
þetta. Nú síðast hitti ég breska
sjónvarpsmenn frá Channel 4 í
London, en þeir ætla að gera sjón-
varpsþátt um hátíðina, hróður
hennar hefur borist um alla heims-
byggðina. Mér er tjáð að 3–500 út-
lendingar muni koma sérstaklega
til Íslands til að taka þátt í hátíðinni
hinn 10. ágúst í sumar. Og þeir
verða ekki einir. Þúsundir borgar-
búa munu gleðjast með þeim,
ganga, horfa, hlæja, kannski gráta
smá og upplifa gleðina við það að
tilheyra regnbogasamfélaginu.
Þessi stórkostlega hátíð er verk
nokkurra hugrakkra og stórhuga
kvenna og karla. Þau hafa sannað
að með elju og vinnu er allt hægt en
þau hafa líka sannað að hvað sem
hver segir þá er Reykjavík borgin
okkar allra, hún er gott og jákvætt
samfélag. Þau hafa sýnt svo ekki
verður um villst að við viljum koma
saman, vera saman, gera hlutina
saman og sýna hvert öðru sam-
stöðu. Það ætlum við líka að gera
hinn 10. ágúst í Regnbogasamfélag-
inu Reykjavík.
Regnbogasamfélagið
Felix Bergsson
Reykjavík
Ég held að allir
séu sammála um, segir
Felix Bergsson, að
Hinsegin dagar séu
orðnir ómissandi hluti
af borgarlífinu.
Höfundur er leikari og skipar 20.
sæti Reykjavíkurlistans.
Þumalína
Pósthússtræti/Skólavörðustíg
Allt fyrir mömmu og litla krílið
Póstsendum – sími 551 2136