Morgunblaðið - 17.05.2002, Page 58

Morgunblaðið - 17.05.2002, Page 58
MINNINGAR 58 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ að hún hafði á eigin spýtur safnað hjálpartækjum í stórum stíl fyrir hönd klúbbsins sem send voru til Litháen en þetta er verkefni sem Lionshreyfingin stendur sameigin- lega að. Fyrir einstök störf sín í þágu Lions var Dóra gerð að Melvin Jones fé- laga. En það er mesta virðing, heiður og þakklætisvottur sem klúbbur eða hreyfingin getur sýnt félaga sínum. Með fráfalli Dóru hefur verið höggvið stórt skarð í okkar hóp. Við sjáum á eftir vinkonu sem hafði sér- staka útgeislun til að bera og frá henni stafaði einstök gleði og hlýja. Við höfum ætíð dáðst að andlegum styrk hennar og hetjuskap og notið birtunnar og ylsins sem frá henni stafaði. Við höfum átt margar ógleymanlegar stundir saman bæði í starfi og leik. Fyrir þær erum við þakklátar og þeirra munum við ætíð minnast. Með söknuði og eftirsjá kveðjum við mætan félaga. Sumir kveðja og síðan ekki söguna meir – Aðrir með söng er aldrei deyr (Þorsteinn Vald.) Við vottum Kristjáni, börnum þeirra, tengdabörnum og öðrum ást- vinum einlæga samúð. Guðríður M. Thorarensen, Ásta Bára Jónsdóttir, Edda Imsland. Kveðja frá Lionsklúbbnum Tý Í dag kveðjum við vin okkar hana Dóru. Hana kveðjum við með sökn- uði en um leið skilur hún eftir sig frá- bæra minningu um glaðværa og góða manneskju sem ávallt gladdi þá sem nálægt henni voru. Við félagarnir í Tý og fjöskyldur okkar munum minnast margra samverustunda, frá skemmtunum, í sameiginlegum verkefnum sem staðið var að og síð- ast en ekki síst minningar frá sum- arferðum þar sem ungir sem aldnir hrifust af lífskrafti hennar Dóru. Dóra kom þannig fram að einungis góðar minningar standa eftir sem við munum öll varðveita með okkur. Hún var sannur Lionsfélagi og heiðruð með Melvin Jones-orðunni eins og Kristján félagi okkar. Kæri Kristján, við félagar þínir í Tý og fjölskyldur okkar viljum votta þér, börnum þínum, tengdabörnum og allri fjölskyldu dýpstu samúð á þessum erfiða tíma. Megi Guð blessa ykkur og minn- inguna um hana Dóru okkar. F.h. félaga í Lionsklúbbnum Tý Theódór S. Halldórsson formaður. Í dag kveðjum við kæra vinkonu og vinnufélaga, Halldóru B. Jóns- dóttur. Dóra var hugmyndarík og drífandi kona sem kom öllum í gott skap sem í kringum hana voru. Jákvæðni henn- ar og félagslyndi urðu til þess að hún var sjálfkjörinn foringi hópsins þeg- ar skipuleggja átti samkomur og skemmtanir. Minnisstæðar eru ferðirnar út í óvissuna og ógleymanleg er ferðin til Danmerkur á síðasta ári þar sem Dóra var hrókur alls fagnaðar. Við minnumst vinkonu okkar sem hetju og baráttukonu sem ekki var á því að gefast upp en varð að lúta í lægra haldi fyrir þeim sjúkdómi sem lagði hana að velli. Dóra sinnti þjónustu við konur sem nota gervibrjóst og lagði grunn- inn að þjónustunni sem veitt er í dag hjá Eirbergi. Hún rækti starf sitt af alúð og hafði samkiptin persónuleg og tryggði að skjólstæðingnum liði sem best. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur hið sama, en orðstír deyr aldregi hverjum sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Við vottum fjölskyldu Dóru okkar dýpstu samúð. Vinnufélagar Eirbergi ehf. Kveðja frá starfsfólki Össurar hf. Fallin er frá samstarfskona okkar hjá Össuri, Halldóra Borg Jónsdótt- ir, kölluð Dóra í daglegu tali. Þegar við lítum yfir farinn veg og hugsum um stundirnar sem við áttum með Dóru kemur fyrst upp í hugann sá já- kvæði kraftur og útgeislun sem frá henni stafaði. Hún var glaðvær og já- kvæð og vílaði aldrei neitt fyrir sér. Til hennar var alltaf hægt að leita með stór mál og smá. Dóra hóf störf hjá Össuri hf. í sumarbyrjun 1995. Hún starfaði í versluninni við af- greiðslustörf en þar voru m.a. seld gervibrjóst fyrir konur sem misst höfðu brjóst í kjölfar brjóstakrabba- meins. Dóra tók að sér að þjónusta þessar konur og veita þeim ráðgjöf, og gerði það einstaklega vel. Hún vann mikið og gott starf í þágu Krabbameinsfélagsins, m.a. í Samhjálp kvenna þar sem hún tók þátt í að heimsækja konur sem höfðu greinst með brjóstakrabbamein og veitti þeim ráðgjöf og styrk. Fyrir nokkrum árum átti Dóra frumkvæði að því að flutt var til landsins þreifi- brjóst sem var ætlað til kennslu. Þetta þreifibrjóst var síðan gefið Krabbameinsfélaginu og hefur það verið nýtt hjá félaginu til forvarnar- starfa. Það var fyrst og fremst kraft- ur og dugnaður sem einkenndi Dóru og þrátt fyrir erfið veikindi heyrði maður hana aldrei kvarta. Við kveðj- um Dóru með söknuði og erum þakk- lát fyrir að hafa fengið að kynnast henni og njóta starfskrafta hennar. Við vottum aðstandendum samúð okkar. Að berjast upphátt er einkar djarft. En öllu vaskari er sá sem orrustu heyja í eigin brjósti við ógæfu liðsstyrk má. Við treystum að honum til heiðurs sem í hernaði slíkum dó englarnir marséri – allir í takt – einkennisklæddir í snjó. (Þýð. Hallberg Hallmundsson.) Halldóra Jónsdóttir er látin langt um aldur fram. Hún gerðist sjálf- boðaliði Samhjálpar kvenna árið 1989, til stuðnings konum sem grein- ast með brjóstakrabbamein. Var stuðningshópnum mikill fengur í þeim liðsauka. Halldóra bjó yfir óþrjótandi orku og áræði sem sífellt kom okkur á óvart. Þó vissum við að hún gekk ekki alltaf heil til skógar. Dæmi um eljusemi hennar eru mörg. Hún var sannur forkur í fjáröflun fyrir starfsemina í gegnum árin. Hún lagði á sig ómetanlega vinnu vegna 20 ára afmælis Samhjálpar kvenna. Frjór hugur hennar og tengsl við stóran hóp fólks kom starfsemi okk- ar oft einkar vel, t.d. í tengslum við „Opið hús“ hjá stuðningshópnum. Allt þetta verður seint fullþakkað. Veikindum sínum mætti Halldóra með sama kjarki og krafti og öðrum verkefnum sem hún tókst á við í líf- inu, þótt oft væri þungt undir fæti. Mikil kjarnakona er gengin. Við minnumst hennar með virðingu og þökk í huga. Fjölskyldunni vottum við einlæga hluttekningu og biðjum góðan Guð að styrkja þau í sorginni. Samhjálp kvenna. Langt um aldur fram hefur Dóra kvatt okkur eftir erfið veikindi. Með nokkrum fátæklegum orðum langar okkur til að minnast hennar. Við kynntumst henni Dóru og Kidda manninum hennar vorið 1968 er við hittumst í Landmannalaugum. Má segja að vinátta okkar hafi orðið sterk strax þá, enda þau hjónin bæði einstaklega skemmtileg. Er Kiddi og Ingvi fóru saman í framhaldsnám til Álaborgar ákváðum við að leigja saman ein- býlishús og búa þar ásamt ungum dætrum okkar. Það var oft kátt á hjalla í þessu húsi, sem við skírðum Heklu. Mikill gestagangur var þarna og var það ekki síst Dóru og Kidda að þakka, enda hrókar alls fagnaðar. Dóra ákvað fljótlega eftir að við komum út að fara út á vinnumark- aðinn, og ég man svo vel að hana vantaði far inn í borgina, svo hún spurði bláókunnugt fólk, sem hún vissi að færi í borgina um klukkan hálfsex á hverjum morgni, hvort hún gæti fengið far með því, sem hún að sjálfsögðu fékk. Ég dáðist að þessari framtakssemi. Á hverju föstudagskvöldi fórum við Dóra í bingó og höfðum mikið gaman af, fengum líka mjög oft vinn- inga. Ég var ólétt að öðru barninu mínu á þessum tíma og höfðum við Dóra það oft í flimtingum að ég, hún og Daníel bingó værum að fara sam- an í bingó. Og það var einmitt í bingó sem ég tók sóttina og hún Dóra studdi mig heim til að taka sjúkrabíl upp á spítala. Dóra var stoð mín og stytta á þessum tíma, enda var það sjálfgefið að biðja Dóra og Kidda um að vera barninu skírnarvottar. Það er eins og það hafi gerst í gær, þegar við fjögur sátum saman á kvöldin eftir að börnin voru sofnuð og drukkum kvöldkaffið, að heyra óteljandi sögur frá þeim hjónum, en það brást ekki að alltaf lumuðu þau á skemmtilegum sögum sem unun var að hlusta á. Elsku Dóra mín, þú hefur gefið okkur svo miklu meira en þú getur ímyndað þér og okkur líður vel að vita að þér líður vel núna. Megi sorg- ir aðstandenda þinna linast með tím- anum. Við sendum þeim öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigríður Jóna Egilsdóttir, Ingvi I. Ingason. Elsku Dóra. Þegar við hófum störf hjá Innanlandsdeild Össurar fyrir nokkrum árum, þá minnumst við þess hve vel þú tókst á móti okkur og bauðst okkur velkomnar til starfa. Það er heiður að hafa fengið að starfa með þér og eignast þig sem vin. Þú bjóst yfir svo mörgum kostum en ef við ættum að draga fram einhverja sem lýstu þér best þá var það já- kvæðni, glaðværð og dugnaður. Atorka þín og dugnaður voru ein- stök. Þegar eitthvað stóð til, hvort sem það var í sambandi við vinnuna eða skemmtiferð, þá komst þú alltaf með hugmyndir um hvað væri hægt að gera, svo oft var leitað til þín þeg- ar skipuleggja átti óvissuferðir, dek- urdag og fleira. Við minnumst þess í einni ferð okkar þegar rútan rann í hlað hjá bóndabæ og allir fengu út- hlutað fötu, svuntu, húfu og hanska frá þér. Svo rakstu alla beint út í fjós- ið til að fara að mjólka. Þegar í fjósið var komið stóð ekki til að mjólka heldur að dansa kántrýdans. Þú hafðir mikið gaman af svipnum á okkur þá og hlóst mikið. Hjá þér var fjöldskyldan alltaf í fyrirrúmi og þú geislaðir af stolti þegar þú sýndir okkur myndir af börnum þínum og barnabörnum. Við kveðjum þig með söknuð í hjarta og minningar í huga. Fjöldskyldu hennar og öðrum ást- vinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Halldóru Jónsdóttur. Þínar vinkonur, Fanný, Þórunn og Unnur. HALLDÓRA BORG JÓNSDÓTTIR ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minning- argreina ✝ Sölvi Guttorms-son var fæddur á Síðu í Víðidal í V- Hún. 2. febrúar 1913. Hann lést á sjúkra- húsinu á Hvamms- tanga 10. maí síðast- liðinn. Foreldrar Sölva voru Guttorm- ur Stefánsson, f. í Fljótsdal 1. septem- ber 1866, alinn upp að Arnheiðarstöðum í Fljótsdal, d. 11. nóv- ember 1928, og Arn- dís Guðmundsdóttir, f. að Klömbrum 30. október 1873 og ólst upp á Hara- stöðum í Þverárhreppi, d. 4. sept- ember 1950. Systkinin voru ellefu, sjö þeirra komust á fullorðinsár. Þau voru Soffía, Sigurður, Sigur- björg, Anna, Sölvi, Guðmundur og Droplaug sem lifir systkini sín. Sölvi kvæntist árið 1949 Hildu Elísabeth Hansen, f. í Svíney í Fær- eyjum 9. mars 1917. Foreldrar hennar voru Hanus Hansen sjó- maður og bóndi í Svíney og kona hans Elsebeth Petronella Hansen. Börn þeirra eru: 1) Arndís Helena, f. 31. desember 1950, gift Eggerti Garðarssyni, f. 4. júlí 1950, d. 25. október 1991. Börn þeirra eru Sól- ey Halla, f. 11. mars 1972, Örlygur Karl, f. 12. apríl 1975, kvæntur Huldu Ósk Ragnarsdóttur, f. 27. desember 1979, börn þeirra Hekla Ýr, f. 8. október 1996, og Hera Rán, f. 16. febrúar 2001. Erling Viðar, f. 5. júlí 1977, sambýliskona er Jóhanna Birna Guðmundsdótt- ir, f. 30. mars 1980. 2) Guttormur Páll, f. 15. mars 1952, kvæntur Kristbjörgu Gunnarsdóttur, f. 23. ágúst 1953. Börn þeirra: Jóna Kristín, f. 6. janúar 1975, sambýlis- maður Þór Snær Sigurðsson, f. 28. nóvember 1973, dóttir Kristjana Björg, f. 6. febrúar 2001. Hilda El- ísabeth, f. 18. desember 1975, gift Björgvin Unnari Ólafssyni, f. 4. nóvember 1975, börn Guttormur Unnar, f. 2. september 1995, og Helga Rós, f. 7. ágúst 1997. Rósa Matthildur, f. 31. des- ember 1979, sam- býlismaður Viðar Örn Guðnason, f. 6. janúar 1977, sonur Guðni Grétar, f. 11. mars 1999. Sölvi, f. 13. október 1990. 3) Sigurbjörg Berglind, f. 18. maí 1954, gift Eðvald Daníelssyni, f. 14. apríl 1957. Börn þeirra: Brynjar Már, f. 18. júní 1976, kvæntur Kristrúnu Ein- arsdóttur, f. 4. desember 1972, börn hennar: Alexander Már, f. 14. desember 1992, og Irma Lind, f. 15. desember 1993. Sonja Mjöll, f. 27. júlí 1979, sonur Draupnir Orri, f. 11. október 2000. Sölvi Mars, f. 6. desember 1982. Sölvi ólst upp á Síðu og þegar faðir hans lést tók hann við búi með móður sinni og systkinum, þar til hún lést 1950 og bjó hann þar til ársins 1972, en þá flutti hann til Hvammstanga og bjó þar síðan. Ásamt búskap á Síðu vann hann við vöruflutninga bæði á sínum vörubílum og einnig annarra. Vet- urinn 1932–1933 stundaði hann nám á Bændaskólanum á Hvann- eyri. Eftir að hann flutti til Hvammstanga vann hann við Verslun Sigurðar Pálmasonar, bæði sem verkstjóri í sláturhúsi og sem pakkhúsmaður þar til hann var kominn á áttræðisaldur. Sölvi gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir sýslu og sveit, t.d. sat í hreppsnefnd Þverárhrepps, skólanefnd Þverárhrepps og var formaður sóknarnefndar Breiða- bólstaðarsóknar til margra ára. Útför Sölva verður gerð frá Hvammstangakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Við viljum minnast Sölva afa í nokkrum orðum. Afi var góður og brosmildur rólegheitamaður sem alltaf var til í að spjalla. Margar minningar skjóta upp kollinum þeg- ar við hugsum til hans. Í æsku minn- umst við sérstaklega þess að er hann kom í heimsókn hafði hann alltaf sír- íus-rjómasúkkulaði með sér til að gefa stelpunum sínum. Enn er hlegið að því þegar hann kom óvænt á Síðu til okkar og hafði ekkert súkkulaði meðferðis. Var þá leitað í öllum vös- um og ekkert fannst. Eftirleiðis gleymdi hann því aldrei að hafa eitt- hvert góðgæti með í för. Það var allt- af gaman að koma í heimsókn til afa og ömmu, vel tekið á móti fólki og var Hilda amma alltaf snögg að koma upp veisluborði. Gaman var að heyra ömmu raula færeysku sálmana sína og afi sitjandi í sínum hægindastól sem ískraði svo eftirminnilega í, brosandi og í mesta lagi tuðandi yfir því að amma heyrði ekki neitt. Afi kom suður í síðasta mánuði og náðum við að spjalla saman og sagði hann okkur þá frá því er hann tók bíl- prófið en hann hafði bílpróf í 70 ár. Þegar hann fór í fyrsta sinn til Reykjavíkur þurfti hann að byrja á því að ganga að Holtavörðuheiðinni þar sem hann fékk far og svo sigldi hann frá Borgarnesi til Reykjavíkur því að ekki var þá búið að brúa Hvít- ána. Við töluðum einnig um hve margt hefði breyst á aðeins einni mannsævi, eins og hvað ferðaleiðirn- ar hafa styst frá nokkrum dögum á hestbaki niður í 2 klst. á bíl í gegnum göngin. Svo hvíslaði lítill fugl að okk- ur um daginn að þegar afi og Nanni voru á heimleið hefði lögreglan stoppað þá á heiðinni fyrir of hraðan akstur. Afi var alltaf hress, sérstaklega eftir að hann fékk gangráðinn, þá varð hann miklu hressari og ung- legri. Það var alveg ótrúlegt að mið- að við aldurinn, 89 ár, var hann enn alveg klár í kollinum og aðeins kom- inn með nokkur grá hár í vangann. Það var erfitt að sjá hann á spítalan- um, en þar fengum við tækifæri til að halda í höndina á honum og kveðja hann áður en hann færi til ömmu. Elsku afi, þín verður sárt saknað. Hvíl í friði. F.h. barnabarnanna Jóna Kristín, Hilda Elísabeth, Rósa Matthildur. Við andlát Sölva Guttormssonar koma fram margar minningar frá liðnum árum. Sölvi var samstarfsmaður minn um árabil við Verslun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga, en einnig áður í góðum viðskiptum sem bóndi á Síðu. Eftir að hann og Hilda kona hans brugðu búi og fluttu til Hvammstanga vann hann um árabil ýmis störf í pakkhúsi og sláturhúsi VSP og rækti öll sín verk með stakri natni og umhyggju. Það var einnig ljúft að hafa Sölva í hópi starfsfólks- ins á skemmtistundum, sem oft voru tíðkaðar, ferðir eða aðrar samveru- stundir. Sölvi var hæglátur maður, en glettinn og sagði skemmtilega frá. Hann var með fyrstu mönnum sem hófu akstur í héraðinu og var einnig í ferðum milli Hvammstanga og Reykjavíkur. Margar sögur sagði hann af þeim ferðum, sem tóku stundum allt að einum sólarhring, þótt ekkert sérstakt hamlaði för. Sölvi bjó hin síðustu ár í góðu sam- býli með eldri borgurum í Nestúni á Hvammstanga, fyrst með Hildu sinni og síðar einn, eftir fráfall henn- ar 1998. Það var alltaf gott að koma til hans, heimsóknirnar hefðu þó mátt vera tíðari af minni hálfu, því notalegt var að tylla sér hjá honum og rabba. Sölvi hélt góðri heilsu til hins síðasta, þótt elli kerling sækti á. Við fjölskylda mín þökkum sam- fylgdina, biðjum honum blessunar og vottum börnum hans og afkomend- um samúð okkar. Minningin um Sölva Guttormsson er hrein og þar fellur hvergi á skuggi. Karl Sigurgeirsson. SÖLVI GUTTORMSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.