Morgunblaðið - 17.05.2002, Side 60

Morgunblaðið - 17.05.2002, Side 60
MINNINGAR 60 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sofðu vært hinn síðsta blund uns hinn dýri dagur ljómar Drottins lúður þegar hljómar hina miklu morgunstund. (V. Briem.) Ég vil í fáum orðum minnast Odds tengdasonar míns. Erfiðu sjúk- dómsstríði er nú lokið og hinn illvígi sjúkdómur hafði betur. Það er svo sárt þegar ungt fólk er hrifið á brott frá fjölskyldu og vinum og eftir stöndum við í vanmáttugri sorg. Oddur var glaðlyndur og vin- margur, veikindum sínum tók hann af æðruleysi. Útivera og fjallaferðir áttu hug hans enda öflugur liðsmað- ur í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu meðan heilsan leyfði. Okkur hjónum var hann sem besti sonur og breytti engu þó fjölskyldubönd rofnuðu, til- finningatengsl voru hin sömu enda bundu dætur hans og dóttur okkar ODDUR ÞORSTEINSSON ✝ Oddur Þorsteins-son fæddist á Heiði á Rangárvöll- um 6. apríl 1960. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 1. maí síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Keldum á Rangárvöllum 11. maí. þau bönd enn fastar, þær Hjördís Rún, Anna María og Kolbrún Eva. Við fjölskyldan þökkum samfylgd og kveðjum með þessum ljóðlínum. Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftanrjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson.) Sigrún Ólafsdóttir. Elsku frændi. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Elsku Ingibjörg og börn, Hjördís Rún, Anna María, Kolbrún Eva, Steini og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guð veri með ykkur. Inga Kolbrún. Á sumardaginn fyrsta settist náfrænka mín, Eyrún Eiríksdótt- ir, upp í bát hins mikla ferjumanns, sem ferjar okkur öll yfir ómælisdjúpið, sem bíð- ur okkar allra. Enda þótt hugmyndir okkar séu misjafnar um það, hvað við tekur handan djúpsins, hefur hún örugglega náð góðri lendingu og henni vonandi orðið að trú sinni, að vinir og venzlamenn hafi beðið henn- ar á hinni ókunnu strönd. Við Eyrún vorum bræðrabörn og nær jafnaldra, hún tæpu ári eldri en ég. Bæði fæddumst við í sama húsi við Óðinsgötu 25 hér í borg, en samkv. skipulagi var talið vera við Baldurs- götu 13. Var hvort tveggja heimils- fangið notað á víxl á þessum árum okkar frændsystkinanna í húsinu. Eyrún var jólabarn foreldra sinna, fædd 18. desember 1919, en ég sá aft- ur ljós dagsins í október árið eftir. Foreldrar hennar voru Rannveig Jónsdóttir frá Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri og Eiríkur Ormsson frá Efri-Ey í Meðallandi, föðurbróðir minn. Þau Rannveig áttu þá fyrir tvær dætur, Sigrúnu Ástrósu, fædda 1911, og Sigurveigu Margréti, fædda 1914. Var þannig um nokkurn aldursmun að ræða milli þeirra og þriðju syst- urinnar. Loks eignuðust þau Rannveig og Eiríkur fjórða barn sitt sex árum síð- ar, sem kalla mátti jóla- og nýársbarn. EYRÚN EIRÍKSDÓTTIR ✝ Eyrún Eiríks-dóttir fæddist í Reykjavík 18.12. 1919. Hún lést á dvalar- og hjúkrun- arheimilinu Holts- búð í Garðabæ 25.4. síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 6. maí. Var það sonurinn Gunn- laugur Karl, sem lifir einn systur sínar og heldur enn á lofti fyrir- tækinu Bræðurnir Ormsson, sem feður okkar stofnuðu árið 1922 og ráku saman um átta ára skeið og í því sama húsi, sem við Eyja frænka og Nonni frændi, eins og við, frændsystkin, vorum þá oftast nefnd að þeirra tíðar hætti og raunar alla tíð, sem fundum okkar bar saman. Að vonum eru samveruár okkar Eyju undir sama þaki hulin móðu fjarlægð- ar og ungs aldurs. Hins vegar lékum við okkur oft saman sem systkin, enda var frændinn á efstu hæðinni einn og sótti því oft niður á næstu hæð. Þar var honum líka alltaf tekið sem einum í fjölskyldunni og aldrei skilinn eftir, þegar heimilisfaðirinn brá sér til útlanda og færði börnum sínum ýmsa muni og góðgæti við heimkomuna. Þessu gleymir ung barnssál aldrei, þótt aldur færist yfir. Árið 1930 urðu mikil umskipti í sambúð fjölskyldnanna. Foreldrar Eyrúnar fluttust niður á Laufásveg 34 með fjölskyldu sína, en mínir for- eldrar fluttust á Sjafnargötu 1, þar sem faðir minn hóf eigin rekstur í raf- magnsiðnaði. Um allmörg ár urðu þannig ekki mikil tengsl milli fjölskyldna okkar Eyju, en engu að síður vissum við allt- af vel hvert af öðru og ekki síður, þeg- ar árin færðust yfir. Minntumst við Eyja þá oft þeirra ljúfu daga, sem við áttum saman í frumbernsku okkar. Árið 1946 giftist Eyrún miklum öðlingsmanni, Víglundi Guðmunds- syni rennismíðameistara í Hafnar- firði. Reisti hann þeim hús á Hring- braut 46 í Hafnarfirði í næsta nágrenni við móður sína og bræður. Þau hjón voru samvalin um alla snyrtimennsku innan húss sem utan. Var blómagarður þeirra í kringum húsið mjög rómaður og eins verðlaun- aður. Sama gilti einnig, þegar þau fluttust úr Hafnarfirði og settust að í nýju húsi í Stigahlíð 79 í Reykjavík. Veit ég, að vinir þeirra og kunningjar geta vottað það með mér, að það var unun að sækja þau hjón heim og njóta veitinga þeirra og líta augum þá smekkvísi, sem alls staðar blasti við. Árið 1981 lézt Víglundur, þá enn á góðum aldri. Var það mikið áfall fyrir frænku mína. Huggun hennar var sú í þeirri sorg, að hún átt fjögur börn, sem öll voru komin vel á legg og höfðu erft myndarskap foreldra sinna og alla góðvild. Ekki má heldur gleyma tengdabörnum hennar, sem léttu henni örugglega margar stundir. Eins voru barnabörnin orðin mörg, sem sóttu mjög til ömmu sinnar og voru henni miklir sólargeislar. Lengi vel bjó Eyrún í húsi sínu í Stigahlíð, en með hækkandi aldri reyndist henni óhægt um vik að búa þar, enda þótt hún væri umvafin börnum sínum og venzlaliði, sem léttu undir með henni eftir þörfum. Eyrún brá því á það ráð að selja hús sitt og kaupa sér ágæta íbúð í fjöl- býlishúsi í Garðabæ fyrir fáeinum ár- um. Þar undi hún sér vel, og mynd- arskapur hennar og smekkvísi skein þar um allt eins og á fyrri stöðum hennar. Því miður varð dvöl hennar þar styttri en hún hefði sjálf óskað sér. Þegar hér var komið, fór hún að eiga óhægt um allar hreyfingar. Um síðustu áramót heltók svo hinn mikli vágestur, krabbameinið, hana Eftir nokkra sjúkrahúslegu fluttist hún á hjúkrunar- og dvalarheimilið Holts- búð í Gaðabæ. Þar lézt hún í sum- arbyrjun eftir stutt, en strangt hel- stríð. Nú er svo komið, að við Karl frændi erum orðnir einir eftir af því fólki, sem setti svip sinn á Óðinsgötu 25 á þriðja áratug liðinnar aldar. Bíðum við nú aðeins eftir hinum mikla ferju- manni enn um sinn. Að endingu sendi ég og fjölskylda mín öllum ástvinum Eyrúnar samúð- arkveðjur, og minnumst við hennar með þakklæti fyrir gengna tíð. Jón Aðalsteinn Jónsson. ✝ Guðjón Jónssonfæddist í Reykja- vík 7. júlí 1929. Hann lést á dvalarheim- ilinu Hlíð á Akureyri 12. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Kristjana Þorsteins- dóttir, f. 26. septem- ber 1900, d. 30. júní 1959, og Jón Hjörtur Vilhjálmsson, f. 17. júlí 1900, d. 24. ágúst 1938. Guðjón átti þrjár systur: Helga, f. 15. janúar 1928, d. 3. septem- ber 1994, gift Magnúsi Gíslasyni, þau eiga átta börn, Hulda, f. 25. ágúst 1930, gift Markúsi Stefáns- syni, þau eiga fimm börn, og hálf- systir samfeðra Hjördís, f. 23. nóv- ember 1923, d. 25. janúar 1983, gift Ívari Andersen, þau eiga fjög- ur börn. Hinn 24. júní 1955 kvænt- ist Guðjón Dísu Pétursdóttur, f. á Akureyri 17. júní 1934. Foreldrar hennar voru Pétur Fr. Guðmunds- son, f. 30. júní 1879, d. 29. sept- ember 1962, og kona hans Aðal- björg Jónsdóttir, f. 29. júní 1893, 1996. Fyrir átti Guðjón Ingi- björgu, f. 9. maí 1952, sambýlis- maður Charles Jón Brainard, f. 1958, dóttir hennar er Björk f. 1978, sonur hennar er Bergur Snorri, f. 2000. Guðjón átti ættir að rekja til Vestfjarða, hann ólst upp í Reykjavík, var mikið í sveit fyrir vestan og fór ungur til sjós frá ýmsum útgerðum. Eftir að hann fluttist til Akureyrar var hann um tíma á síldarbátum og togurum Útgerðarfélags Akur- eyrar. Eftir áralanga sjósókn starfaði hann hjá ÚA, á skrifstofu félagsins í nokkur ár. Guðjón fór þaðan til starfa á skrifstofu Verkalýðsfélaganna á Akureyri, starfaði fyrir Sjómannafélagið og Einingu, hann var formaður Sjó- mannafélags Eyjafjarðar um ára- bil og gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Sjómannasamtökin. Hann var framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar í eitt ár. Síðustu starfsár sín vann Guðjón á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Ein- ingar á Akureyri. Guðjón var fé- lagsmaður í Lionshreyfingunni. Hann var mikill áhugamaður um íþróttir, var um árabil virkur í Bridgefélagi Akureyrar. Guðjón var mikill áhugamaður um golf- íþróttina. Útför Guðjóns verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. d. 11. júlí 1950. Þau áttu átta börn af þeim eru þrjú á lífi. Guðjón og Dísa bjuggu fyrsta hjúskaparárið í Reykjavík og síðan að Hafnarstræti 47 á Ak- ureyri. Börn þeirra eru: 1) Sigrún Helga, f. 12. október 1955, sambýlismaður Sveinn R. Brynjólfs- son, f. 1955, d. 1994, börn þeirra: a) Brynj- ólfur, f. 1975, sam- býliskona Anna María Ingþórsdóttir, f. 1978, dóttir þeirra er Bjarklind Ásta, f. 1999; Sandra Hrönn, f. 1979. unn- usti Davíð Elvar Marinósson, f. 1979; og Birkir Guðjón, f. 1989. 2) Pétur Örn, f. 4. október 1956. 3) Kristján Jón, f. 26. ágúst 1958, dóttir Ellý Dröfn, f. 1975, sam- býlismaður Sturlaugur Þórir Sig- fússon, f. 1974, sonur hennar er Kristófer, f. 1993, og dóttir þeirra Rakel Ýr, f. 1999. 4) Aðalbjörg Dísa, f. 11. júní 1962, sambýlis- maður Oddgeir Eysteinsson, f. 1960, dóttir þeirra er Hafdís f. Flestir deyja bara einu sinni, þ.e. kveðja þennan heim og fara á vit feðra sinna. Guðjón var langt í frá tilbúinn að kveðja þegar hann fékk áfall fyrir um 5 árum uppi á golfvellinum á Akureyri. Okkur var auðvitað mjög brugðið þegar við fengum fregnirnar, vissum ekki annað en að hann hefði verið við fulla heilsu, stundaði sína vinnu og og var iðinn við golf- íþróttina. Fljótlega komu góðar fréttir að hann hefði komist til meðvitundar og væri á batavegi og hinn hressasti eftir atvikum. Síðan leið ekki á löngu áður en ljóst varð að þó líkaminn hresstist að þá hafði liðið of langur tími frá því að hann missti meðvitund og þangað til að tókst að vekja hann til lífsins aftur. Andlega náði Guðjón sér aldrei eftir þetta áfall. Ég kynntist Guðjóni fljótlega eftir að ég fór að vera heimagang- ur í Bakkahöllinni hjá Ólöfu og Adda Pé sem bæði eru nú látin. Ég fékk auðvitað að vita strax að á hæðinni fyrir ofan byggi Dísa frænka Öddu og Guðjón, þá með alla krakkana fjóra heima, Sig- rúnu, Pétur, Kristján og Dísu „litlu“. Þegar við Adda komum seinna í heimsóknir í Bakkahöllina hvarf Adda fljótlega upp til að heilsa upp á frændfólkið en ekki veit ég hvort því fylgdi eitthvert ónæði en fljótlega á eftir birtist Guðjón niðri og settist að spjalli með okkur Adda. Ég kunni strax alveg sérstaklega vel við Guðjón. Hann hafði mjög ákveðnar skoð- anir sem ég var kannski ekki alltaf sammála en hann var aldrei með neina fordóma og ætíð tilbúinn að hlusta á skoðanir annarra. Fljót- lega fór ég auðvitað líka að venja komur mínar á efstu hæðina og fékk þá að kynnast sömu gestrisn- inni hjá Dísu og Gauja eins og ég hafði fengið að njóta hjá Ólöfu og Adda. Og eftir að Ólafar og Adda naut ekki lengur við kom ekki ann- að til greina en að við gistum og værum eins og heima hjá okkur á efstu hæðinni þegar við komum til Akureyrar. Guðjón kom sjaldan í heimsókn til okkar í Kópavoginn þó hann væri oft á ferðinni, við vonum bara að það hafi verið vegna þess að hann hafði í nógu öðru að snúast og kom yfirleitt suður að morgni og fór aftur norð- ur seinni hluta dags. En það voru alltaf fagnaðarfundir þegar við komum norður. Það var því ákaf- lega sárt eftir að hann fékk áfallið að heimsækja hann í Selið og hitta hann þar líkamlega hressan, glað- an í bragði, en vita að hann ætti ekki afturkvæmt í Bakkahöllina. Eftir að hann flutti upp á sjúkra- deildina í Hlíð stóð hann oft úti í garði og horfði á nágrennið. Hvað hann hugsaði þá eða yfirleitt hvað hann hugsaði dags daglega veit ég ekki, en alltaf var hann í góðu skapi. Þegar ég heimsótti hann síðast eina kvöldstund núna í lok mars sat hann við sjónvarpið ásamt konu sem þar dvelur. Fljótlega sát- um við einir eftir, sögðum ekki margt, ef ég impraði á einhverju svaraði Guðjón en hann hafði ekki frumkvæði að samræðum. En kvöldstundin var notaleg. Ekki grunaði mig þá að þetta yrði í síð- asta sinn sem ég hitti hann því ég hafði fyrir heimsóknina átt von á að hann væri farinn að láta miklu meira á sjá en raunin var. Þó vissi maður auðvitað að hverju stefndi, en öll stefnum við víst í sömu átt þó e.t.v. á mismiklum hraða. Ég ætla ekki að fjalla um líf Guðjóns að öðru leyti, þar þekkja aðrir betur til en ég, um tíma hans á sjónum og síðan allt starf hans í landi í þágu sjómanna. Fyrir þau störf held ég að margir eigi honum þakkir skildar. Og betri afa en Guðjón hefur örugglega ekki verið hægt að hugsa sér. Ég veit að Guð- jón var ættaður að vestan, var af Vigurættinni eins og ég og margir aðrir, eins og margir aðrir góðir eins og við Guðjón vorum vanir að segja þeim í Bakkahöllinni sem ættaðir voru að austan. En nú hefur Guðjón kvatt í ann- að sinn og líkaminn verður ekki vakinn til lífsins á ný. Ég held ég særi engan þegar ég segi að hann eigi hvíldina skilið miðað við það hvernig komið var. En samt er allt- af sárt að kveðja. Elsku Dísa, Sigrún, Pétur, Stjáni og Dísa „litla“ og allt ykkar fólk, við vitum að góðar minningar um góðan eiginmann, faðir og afa munu styrkja ykkur á þessari kveðjustund. Guðjón kveðjum við með þakk- læti fyrir góðar samverustundir í gegnum árin. Víðir og fjölskylda. Fyrir hönd félagsmanna í Sjó- mannafélagi Eyjafjarðar langar mig að minnast í örfáum orðum forvera míns í starfi, Guðjóns Jóns- sonar. Kynni okkar hófust fyrir alvöru þegar ég tók við formennsku í sjó- mannafélaginu af Guðjóni en hann hafði þá verið búinn að óska eftir því við sína nánustu samstarfs- menn að láta af störfum sem for- maður. Þetta var árið 1989 en þá hafði Guðjón verið formaður fé- lagsins frá árinu 1976. Ég vil telja það til láns í lífinu að hafa fengið að kynnast Guðjóni og starfa með honum í stjórn félagsins en hann var ritari sjómannafélagsins frá 1989 til 1997 er hann varð að hætta afskiptum af félagsmálum vegna heilsubrests. Í öllum erfiðari mál- um sem komu til kasta stjórnarinn- ar var Guðjón sá maður sem allir litu til um lausnir á málunum og þar komum við ekki að tómum kof- unum. Alltaf á sinn rólega og yf- irvegaða hátt kom hann með tillögu að lausn sem farið var eftir. „Held- urðu að það væri ekki skynsamlegt að fara svona að,“ eða „ég held að það sé ekki rétt að nota þessa að- ferð,“ alltaf á sinn rólega, hógværa og yfirvegaða hátt. Það var sama hvenær maður leitaði til hans um ráðleggingu, hann gaf sér ávallt tíma til að ræða málin og koma með góð ráð. Þann tíma sem Guðjón starfaði fyrir sjómenn í Eyjafirði valdist hann til margra trúnaðarstarfa fyr- ir sjómenn á Íslandi. Hann sat í framkvæmdastjórn Sjómannasam- bands Íslands og þá sem ritari stjórnar, einnig sat hann í stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna, varamaður í verðlagsráði sjávarútvegsins og fjölmörgum öðrum nefndum og ráðum á vegum verkalýðshreyfing- arinnar. Að leiðarlokum þakka ég Guðjóni fyrir allt hans óeigingjarna starf í þágu sjómanna. Blessuð sé minn- ing Guðjóns Jónssonar. Ég votta eiginkonu og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Konráð Alfreðsson. GUÐJÓN JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.