Morgunblaðið - 17.05.2002, Síða 64
64 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
HINN 20. apríl síðastliðinn birtist í
Morgunblaðinu bréf frá Maríu Krist-
ínu Steinsson fyrrverandi keppanda í
fegurðarsamkeppni þar sem hún
fjallar um keppnina Ungfrú Ísland.is.
Hér er greinilega á ferðinni mjög
hæfileikarík ung stúlka eins og sjá má
á heimasíðu hennar á www.mariak-
steinsson.com. Hún er líka mjög fróð
um fegurðarhugmyndir almennings.
Hún heldur því fram að þær stúlkur
sem hlotið hafa titilinn Ungfrú Ís-
land.is hafi allar haft einhver útlitslýti
sem ekki geta talist falleg samkvæmt
almennu fegurðarskyni. En þá spyr
ég, hvað er almennt fegurðarskyn?
Getur einhver sagt mér hvar ég finn
greinargóða lýsingu á almennu feg-
urðarskyni? Sem betur fer erum við
þannig úr garði gerð að við höfum
jafn mismunandi smekk eins og við
erum mörg. En er þá eitthvað til sem
heitir almennt fegurðarskyn? Ég held
ekki en get þó viðurkennt að hún Elva
Dögg Melsteð hefur engin útlitslýti
sem teljast ekki falleg samkvæmt
mínu eigin fegurðarskyni og það
sama á við um aðrar stúlkur sem hlot-
ið hafa titilinn Ungfrú Ísland.is
Ég er Maríu hjartanlega sammála
um að það er jákvætt að innri fegurð
fái nú líka að njóta sín í fegurðarsam-
keppni. Henni Maríu finnst að vísu
sorglegt að sjá þær stúlkur sem geisla
af fegurð hafðar að fífli í þessari
keppni. Þetta er ekkert grín. Sam-
kvæmt bréfi Maríu eru þessar stúlkur
fíflgerðar með því að hafa þær sem
uppfyllingarefni eða til yndisauka fyr-
ir þá sem hafa gaman af því að horfa á
ytri fegurð. En María, hafa þessar
stúlkur þá nokkra innri fegurð til að
bera?
Yfir á planið. Í bréfi sínu tekur
María það fram, að keppnin Ungfrú
Ísland.is sé á lágu plani. Og rökin? Jú,
keppnin var haldin á skemmtistað
sem ungt fólk, sem á sér ekkert líf,
leggur leið sína á um helgar (orð Mar-
íu sjálfrar). Manni finnst nú að ung og
hæfileikarík stúlka sem skrifar svona
af fúsum og frjálsum vilja til birtingar
í einu víðlesnasta dagblaði landsins
mætti alveg spyrja sjálfa sig hvort að
hún eigi sér sjálf eitthvert líf. Hvort
ekki sé kominn tími til að líta augna-
blik í eigin barm og hætta að benda
fingri og dæma þennan eða hinn. Er
það að fara á einhvern skemmtistað
um helgar að eiga sér ekkert líf?
Tja, ég skal segja ykkur það. María
heldur greinilega að hún lifi hinu full-
komna lífi og að smekkur hennar sé
hinn eini sanni smekkur (sbr. umfjöll-
un hennar um tónlistarvalið í keppn-
inni). Fegurðarskyn Maríu er meira
að segja orðið hið ‘almenna fegurð-
arskyn’. Hið eina sanna fegurðar-
skyn. Ég verð að segja þér María,
mér finnst bréfið þitt ekki lýsa neinu
nema hugsanlega þínum eigin hroka.
Ég fæ á tilfinninguna að þú látir
svona vegna þess að þú kannt ekki að
tapa. Það var jú ein stúlka í þessari
keppni sem ber eftirnafnið Steinsson
er það ekki? Á heimasíðunni þinni eru
myndir af ykkur saman og þú setur
upp súran svip á einni þeirra. Textinn
undir myndunum er svona: „Þessar
myndir eru teknar á Ungfrú Reykja-
vík (Apríl 1998) þegar Eyrún sistir
tók þátt. Á fyrri myndinni set ég upp
svip vegna þess að Eyrún fékk ekki
titil eins og mér fannst hún eiga skil-
ið.“
Getur verið María, að sú gagnrýni
sem þú setur fram á keppnina Ungfrú
Ísland.is, vinningshafa hennar, útlit
þeirra og jafnvel eitthvert fólk, sem
þú þekkir ekki neitt en fer á einhvern
skemmtistað um helgar, eigi sér ein-
hverjar rætur? Getur verið að upp-
runa þessarar gagnrýni sé hægt að
rekja til þess að úrslitin voru ekki eins
og þú hefðir viljað sjálf, þ.e.a.s. litla
systir þín vann ekki? Ég ætla að leyfa
mér að vitna í þig sjálfa og segi:
„Dæmi nú hver fyrir sig“.
JÓN ÓMAR ÁRNASON,
Ránargötu 2.
Um útlitslýti og
Ungfrú Ísland.is
Frá Jóni Ómari Árnasyni:
NÚ ERU í framboði til borgar-
stjórnarkosninganna hér í Reykja-
vík sex listar.
Ef maður lítur alveg hlutlaust á,
hlýtur maður að skilja að framboðin
hafa misjafna aðstöðu.
Slíkt hlýtur kannski alltaf að vera í
nokkrum mæli, en þó hygg ég, að
aldrei hafi annað eins óréttlæti verið
og verður að setja í rétt samhengi.
Það fer sem sé ekki framhjá nein-
um að R-listinn hefur gengið óvenju
langt í því sem flestir skilja sem mis-
notkun á stofnunum borgarinnar.
Gegndarlaust dynja á fólki frá
flestum fjölmiðlum, bæði auglýsing-
ar og það sem túlkað er sem fréttir
en eru samt varla annað en auglýs-
ingar, þar sem vakin er athygli á
störfum og dugnaði bæði borgar-
stjórans og annarra frambjóðenda
R-listans.
Alveg er með eindæmum, í þessu
líka fréttahungri þegar fjölmiðlar
gefa sig út sem rannsóknarblaða-
menn, að enginn virðist hafa tekið
eftir að þetta sé neitt athugavert.
Og svo er auðvitað að benda á það,
hve óréttlátt, að ég ekki segi óprúttið
það er að frambjóðendur skuli ekki
sjálfir átta sig á þessum ójafna leik.
Væri kannski rétt að Samkeppn-
isstofnun skoði málið?
Allur ferill R-listans virðist annars
vera svindl og ósannindi.
Núna þessa dagana eru þeir á
flótta undan eigin gerðum og skríða í
hvert skálkaskjólið öðru fáránlegra.
Alfreð sagði ósatt um samskipti
Línu.nets og Columbía V.
Það er orðið margsannað.
Auðvitað til að draga úr og breiða
yfir vandræðin með Línu.net.
Eitt leikritið hjá ISG er að láta
taka mynd með forstjóra Hörpu, þar
sem ákveðið er að skera upp herör
gegn veggjakroti.
En fyrir örfáum árum talaði hún
um að veggjakrot væri ákveðin útrás
fyrir listþörf ungs fólks og vildi helst
hjálpa því til að krota sem allra mest.
HELGI ORMSSON,
fyrrverandi borgarstarfsmaður.
Ósannindi og flótti
Frá Helga Ormssyni: