Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 66
DAGBÓK
66 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Björgvin
EA, Árni Friðriksson
RE og Trinket.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg
Lotta Kosan, Nikolay
Afnasyev og Lodvig
Andersen.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
leikfimi og vinnustofa,
kl. 13 bókband, kl. 14
bingó. „Vor í vesturbæ“
dagana 23., 24. og 25
maí. Frá kl. 13–17 verð-
ur hátíð með söng, dansi
og veislukaffi. Allir vel-
komnir.
Árskógar 4. Bingó kl.
13.30. Kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Allar upp-
lýsingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–12 bókband, kl.
9–16 handavinna, kl. 10–
17 fótaaðgerð, kl.13
frjálst að spila.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið,
Hlaðhömrum, er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Kóræfingar hjá
Vorboðum fimmtudaga
kl. 17–19. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga á föstudögum kl.
11. Uppl. hjá Svanhildi í
s. 586 8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060, kl. 8-16.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9 opin handa-
vinnustofan. Föstudag-
inn 17. og laugardaginn
18. maí verður handa-
vinnusýning og basar
frá kl. 13–17, kaffiveit-
ingar, allir velkomnir.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
„Opið hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids kl.
13.30. Morgungangan á
morgun, farið frá
Hraunseli kl 10.
Kór eldri Þrasta og
Gaflarakórinn halda tón-
leika í Víðistaðakirkju í
dag, 17. maí, kl. 20 að-
gangur ókeypis. Vest-
mannaeyjaferð 2. til 4.
júlí. Rúta, Herjólfur og
gisting í 2 nætur. Skrán-
ing í Hraunseli sími
555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Göngu-
Hrólfar fara í leik-
húsferð á Sólheima
laugardaginn 18. maí að
sjá „Hárið“. Brottför frá
Ásgarði, Glæsibæ, kl.
14. Allir velkomn-
ir,skráning á skrifstofu
FEB.
Þeir sem hafa skráð sig í
Vestfjarðaferð 18.–23.
júní og Vestmannaeyjar
11.–13. júní þurfa að
staðfesta ferðina fyrir
18. maí.
Dagsferð 27. maí, Hafn-
arfjörður-Heiðmörk.
Kaffi og meðlæti. Leið-
sögn: Páll Gíslason og
Pálína Jónsdóttir, brott-
för frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 13, skrán-
ing hafin á skrifstofu
FEB.
Fræðslunefnd FEB
stendur fyrir ferð í
Skrúðgarða Reykjavík-
ur 29. maí. Brottför frá
Ásgarði, Glæsibæ, kl.
13.30, skráning á skrif-
stofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánu- og miðvikudögum
frá kl. 10–12 í s.
588 2111. Skrifstofa fé-
lagsins er flutt í Faxafen
12, sama símanúmer og
áður. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
myndlist og rósamálun á
tré, kl. 9–13 hárgreiðsla,
kl. 9.30 gönguhópur, kl.
14 brids. Opið sunnu-
daga frá kl. 14–16, blöð-
in og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag kl. 9–16.30 vinnu-
stofur opnar, kl. 9.30
boccia, frá hádegi spila-
salur opinn. Kl. 13 bók-
band. Veitingar í Kaffi
Bergi. Lokað verður
mánudaginn 20. maí, 2. í
hvítasunnu. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband,
kl. 13.15 brids.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 9 handavinna,
bútasaumur, kl. 11 spurt
og spjallað. Í dag spilað
bingó kl. 14.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, postulín, kl. 12.30
postulín. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 10 boccia.
Allir velkomnir.
Tómstundastarf eldri
borgara í Reykjanesbæ.
Sýning á handverki eldri
borgara dagana 26.–31.
maí, að báðum dögum
meðtöldum. Kaffi-
húsastemmning og lif-
andi tónlist. Tekið á
móti munum á sýn-
inguna þriðjud. 21. maí í
Selinu.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 13.30 sungið
við flygilinn, kl.14.30–16
leikur Ragnar Páll Ein-
arsson á hljómborð fyrir
dansi, kaffiveitingar.
Leikhúsferð. Farið verð-
ur miðvikudaginn 22.
maí í Borgarleikhúsið að
sjá leiksýninguna
„Kryddlegin hjörtu“.
Skráning í síma
562 7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 leikfimi og fótaað-
gerðir, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur á
morgun kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105,
Nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánu-
og fimmtudaga.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16–25 ára) að mæta með
börnin sín á laugard. kl.
15–17 á Geysi, Kakóbar,
Aðalstræti 2 (gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Hana-nú, Kópavogi.
Sýningar á „Smelli … 2
aldrei of seint“ alla daga
kl. 14 fram til
laugardagsins 18. maí í
Hjáleigunni, Félags-
heimili Kópavogs. Geng-
ið inn baka til. Aðeins
þessar sýningar. Pant-
anir og sala miða er í
Gjábakka, s. 554 3400,
og hjá Dóru, s. 899 5508.
Miðar eru einnig seldir
við innganginn.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir sem
hafa áhuga á að kaupa
minningarkort vinsam-
legast hringi í síma
552 4994 eða síma
553 6697, minning-
arkortin fást líka í Há-
teigskirkju við Háteigs-
veg.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju,
sími 520 1300 og í
blómabúðinni Holta-
blóminu, Langholtsvegi
126. Gíróþjónusta er í
kirkjunni.
Minningarkort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67 og í Kirkju-
húsinu v/Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í blóma-
búðinni Burkna, hjá
Sjöfn, s. 555 0104, og hjá
Ernu, s. 565 0152 (gíró-
þjónusta).
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma
561 0545. Gíróþjónusta.
Í dag er föstudagur 17. maí, 137.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
En vonin bregst oss ekki, því að
kærleika Guðs er úthellt í
hjörtum vorum fyrir heilagan
anda, sem oss er gefinn.
(Rómv. 5, 5.)
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
MIKILL fjöldi erlendra blaða-manna, talsvert á fjórða hundr-
að, sótti ráðherrafund NATO í
Reykjavík í vikunni. Aðstaða fyrir
blaðamennina í húsum Tæknigarðs
og Endurmenntunarstofnunar Há-
skólans var öll til fyrirmyndar og
jafnaðist á við það bezta, sem Vík-
verji hefur kynnzt á sambærilegum
viðburðum erlendis, enda voru er-
lendu blaðamennirnir ánægðir með
viðurgjörninginn.
x x x
ÍSLENZK stjórnvöld og hags-munaaðilar í ferðaþjónustu stund-
uðu öfluga landkynningu í blaða-
mannamiðstöðinni og mokuðu
bæklingum, kortum og öðrum upp-
lýsingum í blaðamennina. Þetta skil-
aði m.a. því að þegar átti að fara að
halda blaðamannafund til að greina
frá niðurstöðum fundar Evró-Atl-
antshafsráðsins á miðvikudag, þar
sem 46 utanríkisráðherrar sátu,
reyndist stór hluti blaðamannanna
horfinn af fundarstaðnum, menn
búnir að leigja sér bíla og flugvélar og
farnir að skoða Gullfoss og Geysi eða
í Bláa lónið. Frekar en að halda
blaðamannafundinn í Bláa lóninu,
eins og einhver stakk upp á í gamni,
ákvað NATO bara að blása hann af
og láta fréttatilkynningu duga, enda
má segja að ekki hafi orðið nein stór-
tíðindi á þeim fundi miðað við fundina
daginn áður. Í staðinn fékk Ísland ef-
laust góða kynningu, því að oft skrifa
varnar- og utanríkismálaskríbentar
heimspressunnar líka ferðagreinar.
x x x
FYRIR blaðamenn, sem ekki kom-ust út á land og kynntust ekki ís-
lenzkum sveitavegum, var svolítið
sýnishorn af hefðbundnum íslenzk-
um umferðarmannvirkjum í næsta
nágrenni blaðamannamiðstöðvarinn-
ar. Hinni venjulegu aðkomu að
Tæknigarði um Brynjólfsgötu og
bílastæði Háskólans hafði verið lokað
af öryggisástæðum og í staðinn þurfti
að aka um lóð verkfræði- og raunvís-
indadeildar frá Hjarðarhaga. Þar er
ófrágenginn húsgrunnur, malborin
bílaplön og rúsínan í pylsuendanum:
Rammíslenzkur malarvegur með
beygju, holum og dýfu. Sem hluti af
ferðaþjónustunni er þetta auðvitað til
fyrirmyndar, en Víkverja er þó til efs
að þeir sem nema og starfa í húsum
VR séu hrifnir af þessu umhverfi.
x x x
VÍKVERJA hefur borizt svohljóð-andi bréf frá Svanfríði Jónas-
dóttur þingmanni þar sem hún þakk-
ar viðurkenningarorð í pistlinum sl.
föstudag um vef hennar.
„Ég átta mig hins vegar á því að þú
hefur ekki séð nema brot af þeim
mataruppskriftum sem hann [vefur-
inn] geymir, þ.e.a.s. einungis fremstu
síðu hvar þú finnur aðallega fiskisúp-
ur, allar þrautreyndar og góðar. En
þar er líka að finna baunarétti og ef
þú opnar þar koma fleiri baunaréttir í
ljós og leiðbeiningar um það hvernig
maður útbýr þá á sem þægilegastan
hátt. Jafnframt verður til nýr und-
irdálkur undir Matarást; Lífið er
saltfiskur. Þar er að finna nokkra úr-
vals saltfiskrétti, flesta af portúgölsk-
um og spænskum uppruna, en vel að-
lagaða að okkar smekk og venju. Ég
mæli sérstaklega með þessum með
svörtu ólífunum og harðsoðnu eggj-
unum og Uppáhaldi skipstjórans.
Verði þér að góðu,“ segir Svanfríður
– og Víkverji þakkar fyrir sig.
Handbolti í stað
fjölskyldumyndar
Á föstudagskvöldum eru
yfirleitt sýndar fjölskyldu-
myndir frá Disney. Á mínu
heimili er þetta fjölskyldu-
stund á heimilinu. Sl. föstu-
dag var sýndur handbolta-
leikur og var sú breyting
hvergi auglýst. Við héldum
að myndin yrði þá sýnd á
eftir handboltanum en svo
var ekki, myndinni var bara
sleppt og börnin urðu mjög
sár og leið.
Jóhanna Vigfúsdóttir.
Var krýnd 1953
Í MORGUNBLAÐINU 12.
maí sl. stóð að það væru 50
ár liðin frá því Elísabet
drottning var krýnd. Það er
ekki rétt, því hún var krýnd
1953. Faðir hennar dó 6.
febrúar 1952 og hún var
krýnd 2. júní 1953. Það
verða ekki liðin 50 ár fyrr
en árið 2003. Ég var stödd í
Edinborg og er þetta því
mjög minnisstætt.
Sigríður Johnsen.
Takk, Norðurljós
MIG langar að þakka Ís-
lenska útvarpsfélaginu
(Norðurljós) fyrir að starf-
rækja útvarpsstöðvarnar
Klassík FM og hina
ónefndu djass/soul-stöð á
tíðninni FM 97,7. Ef maður
vill fría sig aðeins frá síbylj-
unni eru þessar stöðvar
svarið. Á tíðninni FM 97,7
er held ég reyndar um til-
raunadagskrá að ræða, en
viðleitnin er góð. Þó þarf
nauðsynlega að uppfæra
lagalistann á báðum stöðv-
um. Slíkt ætti að vera fram-
kvæmanlegt með lág-
markstilkostnaði. Maður er
farinn að geta stillt klukk-
una sína eftir ákveðnum
lögum – sem er vandræða-
legt fyrir stöðvarnar. Báð-
ar þessar stöðvar fá samt
lúmskt mikla hlustun og
eiga tilvistarrétt til fram-
búðar.
Útvarpshlustandi
á þrítugsaldri.
Fjölmiðlar
fara hamförum
STUNDUM finnst manni
fjölmiðlar fara hamförum í
fréttaflutningi. Má þar
nefna mál Árna Johnsen og
hasarinn í kringum Hafskip
forðum. Og ekki stóð á
lýðnum að draga fram
höggstokkinn. Þá mátti oft
greina illkvittnisblik í aug-
um sumra og jafnvel gamlir
krimmar glottu af vandlæt-
ingu. Sumt fólk virðist
stjórnast af fjölmiðlum eða
þeir sem ekki geta myndað
sér sjálfstæðar skoðanir og
láta aðra hugsa fyrir sig. Í
mínu ungdæmi sögðu menn
gjarna þegar þeir vildu
sanna mál sitt: Ég sá það á
prenti. En þá var imba-
kassinn ekki kominn til að
rugla mannskapinn. Sagt
er að fólk sé saklaust uns
sekt er sönnuð og þegar
orrahríðin stóð sem hæst
datt mér þessi sígilda vísa í
hug:
Enginn lái öðrum frekt/
einn þó nái að falla/ hver
einn gái að sinni sekt/ synd-
in hrjáir alla.
Eldri borgari.
Jeppadekk
í Hverafold
ÞÚ SEM sóttir jeppadekk-
in í Hverafold á annan í
páskum, vertu heiðarlegur
og hafðu samband í síma
822 0557 eða 587 1957. Við
hljótum að geta komist að
samkomulagi.
Öðrum til varnaðar
11. MAÍ kl. 10.15 lá leið mín
til Keflavíkur ásamt 40
konum í rútu.
Þar sem ég beið á Um-
ferðarmiðstöðinni lagði ég
frá mér smá farangur og
leit af honum eitt augnablik
en á meðan var veskinu
mínu stolið. Það er leiðin-
legt að þarna skuli þrífast
gengi sem situr um að stela
af farþegum. Þetta hvarfl-
aði ekki að mér á sólbjört-
um maímorgni eins og þá
var. Ég var að vona að ein-
hver fyndi gleraugum mín í
grænu hulstri. Ég þarf ekki
að vonast eftir gsm-síman-
um né kreditkortunum,
ökuskírteini og snyrtidóti
en ég lifi í voninni um að
skilvís finnandi komi eigum
mínum til lögreglunnar.
Gróa Guðnadóttir.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
FIMMTUDAGINN 9. maí,
uppstigningardag, fórum
við 14 konur úr Mennta-
smiðju kvenna á Akra-
nesi að Sólheimum í
Grímsnesi. Aðallega til að
sjá uppfærslu íbúa á
Hárinu (hárið okkar) eins
og þau kalla það og skoða
þennan fallega stað Sól-
heima. Þetta var í einu
orði sagt frábær sýning
og fannst okkur þetta
einstök upplifun í alla
staði og ekki spillti fyrir
að miðaverð er aðeins
500 kr. Veitingar á kaffi-
húsi staðarins voru einn-
ig mjög góðar og ódýrar.
Við viljum senda okkar
bestu kveðjur og þakkir
til allra íbúa á Sólheimun
og þökkum kærlega fyrir
ógleymanlega skemmtun
og vonumst til að fleiri
eigi eftir að hafa eins
gaman af að sjá sýning-
arnar sem eftir eru og
við.
F.h. nemenda í Mennta-
smiðju kvenna á Akra-
nesi 2002.
Ásta Ástbjartsdóttir,
Bjarney Jóhannesdóttir.
Kveðja til íbúa
Sólheima í Grímsnesi
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 blautur inn að skinni, 8
pyngju, 9 hitann, 10
skartgripur, 11 nauta, 13
áann, 15 karldýr, 18 eitt-
hvað smávegis, 21
hreinn, 22 látni, 23 verk-
færið, 24 skipshlið.
LÓÐRÉTT:
2 lýkur, 3 níska, 4 þreifa
fyrir sér, 5 bolflík, 6 við-
bót, 7 sæla, 12 látbragð,
14 spor, 15 fnykur, 16
sjúkdómur, 17 stíf, 18
alda, 19 saurnum, 20
fuglinn.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 áheit, 4 sópur, 7 önduð, 8 rollu, 9 arg, 11 nýra,
13 rita, 14 feyra, 15 vagl, 17 krám, 20 eir, 22 liðug, 23
ungar, 24 norpa, 25 launi.
Lóðrétt: 1 áhöfn, 2 eldur, 3 taða, 4 sorg, 5 polli, 6 rausa,
10 reyfi, 12 afl, 13 rak, 15 valan, 16 góðir, 18 ruggu, 19
myrti, 20 egna, 21 rugl.