Morgunblaðið - 17.05.2002, Page 67

Morgunblaðið - 17.05.2002, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 67 DAGBÓK Árnað heilla DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 17. maí, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Pálína Guðrún Gísladóttir og Jón Gíslason, til heimilis að Skálafelli, Suðursveit, Austur- Skaftafellssýslu. Þau voru gefin saman að Uppsölum í sömu sveit af séra Jóni Péturssyni. GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 17. maí, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Snjólaug Þorsteinsdóttir og Jón Helgason, Mýrarvegi 111, Akureyri. LJÓÐABROT Á NÝÁRSDAG (1845) Svo rís um aldir árið hvert um sig, eilífðar lítið blóm í skini hreinu. Mér er það svo sem ekki neitt í neinu, því tíminn vill ei tengja sig við mig. Eitt á ég samt, og annast vil ég þig, hugur mín sjálfs í hjarta þoli vörðu, er himin sér og unir lágri jörðu og þykir ekki þokan voðalig. Eg man þeir segja: „Hart á móti hörðu“. En heldur vil ég kenna til og lifa, og þó að nokkurt andsreymi ég bíði, en liggja eins og leggur uppi í vörðu, sem lestastrákar taka þar og skrifa – og fylla, svo hann finnur ei, af níði. Jónas Hallgrímsson 1. e4 c6 2. c4 d5 3. exd5 cxd5 4. cxd5 Rf6 5. Rc3 Rxd5 6. Rf3 Rxc3 7. bxc3 g6 8. d4 Bg7 9. Bd3 Rc6 10. 0–0 0–0 11. He1 Da5 12. Bd2 Bg4 13. Be4 e6 14. Hb1 Hab8 15. a4 Dc7 16. h3 Bxf3 17. Dxf3 Da5 18. Bf4 Hbc8 19. Bd6 Hfe8 20. Hxb7 Rd8 21. Hb4 f5 Staðan kom upp á Reykjavík- urskákmótinu sem lauk fyrir skömmu. Oleg Korneev (2568), annar sigurvegari mótsins, hafði hvítt gegn Heinrik Daniel- sen (2520). 22. Bd5! Kh8 23. Be5 Rf7 24. Bxg7+ Kxg7 25. Bb3 Hc7 26. h4 Hec8 27. He3 e5 28. Hb5 e4 29. Dg3 f4 30. Dxf4 Da6 31. Hxe4 h5 32. He6 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MARGAR leiðir standa sagnhafa opnar í fjórum spöðum, án þess þó að nokkur sé fullkomlega örugg. En þá er vandinn sá að velja þá bestu: Vestur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ 3 ♥ D7652 ♦ Á872 ♣K72 Suður ♠ ÁKD742 ♥ K3 ♦ 3 ♣Á653 Vestur Norður Austur Suður 1 tígull Pass Pass 2 spaðar Pass 2 grönd Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Vestur kemur út með tígulkóng, sem tekinn er með ás. Hver er nú besta leiðin? Spilið vinnst alltaf í 3–3- legu í trompi, svo við skul- um slá því föstu að vörnin eigi spaðaslag. Ýmislegt kemur til greina: Það mætti taka þrjá efstu í trompi og spila hjartakóng með því hugarfari að frí- spila hjartað. Betra af- brigði af þeirri áætlun er þó að spila hjarta á kóng- inni í öðrum slag, áður en trompið er tekið. Ennfrem- ur mætti dúkka lauf í þeirri von að sá litur falli 3–3. Allt er þetta góðra gjalda vert, en dugir þó ekki í legu af þessum toga: Norður ♠ 3 ♥ D7652 ♦ Á872 ♣K72 Vestur Austur ♠ G1085 ♠ 96 ♥ Á10 ♥ G984 ♦ KDG106 ♦ 954 ♣D9 ♣G1084 Suður ♠ ÁKD742 ♥ K3 ♦ 3 ♣Á653 Besta spilamennskan leynir á sér, en hún byggist á því að nýta smátrompin heima. Sagnhafi trompar tígul í öðrum slag og tekur ÁKD í spaða. Spilar næst SMÁU hjarta að drottn- ingu blinds. Vestur á nær örugglega ásinn og má ekki drepa á hann strax. Inn- koman á hjartadrottningu er notuð til að trompa tígul, og endahúturinn er sá að taka AK í laufi og stinga tígul í þriðja sinn með síð- asta trompinu. Þetta gefur sex slagi á tromp og tíu í allt. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 70 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag, 19. maí, er sjötugur Höskuldur A. Sig- urgeirsson, Litla-Hvammi 1, Húsavík. Hann og eigin- kona hans, Hólmfríður J. Hannesdóttir, verða með opið hús í salnum, Hvammi, milli kl. 15 og 18 laugardag- inn 18. maí. 50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 17. maí, er fimmtugur Sigurð- ur Jónasson, ráðgjafi hjá European Consulting Partners og framkvæmda- stjóri ZooM. Af því tilefni er fjölskylda hans með op- ið hús fyrir ættingja, vini og starfsfélaga milli kl. 16 og 19 í dag í Súlunesi 7, Garðabæ. FRÉTTIR                     Ársfundur Eftirlaunasjóðs starfsmanna Íslandsbanka Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Ársreikningar kynntir. 3. Skýrsla um trygginga- fræðilega úttekt kynnt. 4. Fjárfestingarstefna kynnt. 5. Önnur mál. Ársfundur Eftirlauna- sjóðs starfsmanna Íslandsbanka verður haldinn 4. júní nk. kl. 17.15 á 5. hæð, (Hólum), Kirkjusandi. Stjórn Eftirlaunasjóðs starfsmanna Íslandsbanka. Barnabolir Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. með myndum kr. 590 Mikið úrval VINSTRI grænir bjóða til hjólaferðar um Kópavog laugardaginn 18. maí. Lagt verður af stað frá Hamraborg 11 kl.11. Aðrar tímasetningar eru: kl. 11.25 frá Sundlaug Kópavogs, kl. 12.10 frá Nóa- túni við Furugrund, 12.45 frá Bónus á Smiðjuvegi, 13.15 frá Núpalind og 13.40 frá Bónus á Smáratorgi. Boðið verður upp á svala- drykki á áningarstöðum fyrir hjólreiðamenn, og svala- drykki og léttar veitingar í ferðarlok í boði framboðsins, segir í fréttatilkynningu. Hjólreiða- dagur VG í Kópavogi NÁMSTEFNA verður haldin á Reykjalundi laugardaginn 18. maí kl. 9 á vegum Nordisk Förening för Rehabilitering (NFR), sem um þessar mundir heldur aðalfund sinn á Íslandi. Á námstefnunni verður fjallað um fjölþætt vandamál fólks með langvarandi verki. Meðal fyrirles- ara er Gunnilla Brattberg, læknir í Stokkhólmi, sem m.a. mun fjalla um listina að lifa með verki. Pró- fessor Lillemor Hallberg frá Nor- ræna heilbrigðisháskólanum í Gautaborg fjallar um konur og verki. Sagt verður frá árangri með- ferðar á verkjasviði Reykjalundar og m.a. fjallað um hugræna atferl- ismeðferð sem þar er beitt. Einnig verða fyrirlesarar frá hinum Norð- urlöndunum sem fjalla m.a. um at- vinnuþátttöku fólks með langvinna verki. Þá verður fjallað um trygg- ingalæknisfræðileg sjónarmið og prófessor Stefán Ólafsson mun fjalla um „íslensku leiðina“, sam- anburð á tryggingakerfi Íslands og annarra Norðurlanda, segir í fréttatilkynningu. Núverandi formaður NFR er Magnús Ólason, læknir á Reykja- lundi. Norræn námstefna um verki og verkjameðferð UM helgina ætla KFUM og K að fara með tveggja hæða strætó í eigu félaganna til Grundarfjarðar þar sem öllum bæjarbúum er boðið koma í kaffi og kleinur og að skoða vagninn sem er breskur að uppruna og hefur verið innréttaður með tækj- um eins og þythokký, PlayStation2, DVD-spilurum og breiðtjaldssjón- varpi. „Farið verður á laugardag og er vagninn opinn öllum milli 16–18, en þá er endað með helgistund á efri hæð vagnsins. Um kvöldið er svo unglingafundur í vagninum áður en haldið er heim. Slíkir fundir hafa verið haldnir í kirkjunni hálfsmán- aðarlega undanfarin ár,“ segir í fréttatilkynningu frá KFUM og K. KFUM og K leggja land undir fót STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert persónuleiki sem er gjarn á að láta skoðanir þínar í ljós, ert staðfastur og hefur heilbrigð viðhorf til lífsins. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Nýttu þá möguleika sem eru fyrir hendi því fólk lað- ast að þér og er tilbúið að gefa þér tækifæri. Naut (20. apríl - 20. maí)  Láttu það eftir þér og kauptu það sem þig langar verulega í. Nú er rétta tímasetningin til þess að kaupa eitthvað sem þú ert stoltur af. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú getur búist við miklu álagi í starfi í dag. Mundu samt að taka hvíld öðru hverju til þess að ná fyrri orku. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Einhver sem býr yfir meiri reynslu getur gefið þér góð ráð. Hlýddu á það sem þessi persóna hefur að segja af áhuga og hógværð. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Gerðu það sem þú getur til þess að vekja hrifningu annarra. Sólin er hátt á lofti og þú getur auðveld- lega náð fram markmiðum þínum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Skráðu þig á námskeið, heimsóttu bókasafn, lista- safn, eða gerðu eitthvað sem getur vakið áhuga þinn á menningu og fegurð. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hefur mikla sköpunar- hæfileika. Láttu þessa hæfi- leika þína njóta sín til fulls. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Alltaf lærir maður eitthvað nýtt á ferðalögum. Þetta þurfa ekki að vera langar ferðir. Gönguferð getur verið gefandi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Öllum finnst gott að heyra að einhver elski þá. Reyndu að koma persónu, sem skiptir þig máli, í skilning um að hún sé þér mikilvæg. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Margir taka fjölskyldum sínum sem sjálfgefnum hlut. Hvað er langt síðan þú lést í ljósi tilfinningar þínar gagnvart fjölskyldu þinni? Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þótt þú hafir mikla trú á þeim aðferðum sem þú not- ar máttu ekki loka á þann möguleika að aðrir beiti líka ágætum vinnuaðferð- um. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert að eðlisfari forvitinn um allt sem máli skipti í líf- inu. Notaðu daginn til þess að koma skipulagi á líf þitt svo að þú hafir tíma til þess að skoða það sem skiptir þig mestu máli. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.