Morgunblaðið - 26.06.2002, Blaðsíða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 13
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ
Skrifaðu okkur
Taktu þátt í póstkortaleik ESSO í sumar og þú gætir unnið
glæsilegt Coleman-fellihýsi!
Það er sáraeinfalt að taka þátt
Í hvert sinn sem þú tekur eldsneyti hjá ESSO í sumar færðu tvö póstkort.
Annað þeirra er stílað á Helgarútgáfuna, útvarpsþátt Stefáns Karls á Rás 2.
Þú skrifar eitthvað skemmtilegt og stingur því í næsta póstkassa. Hitt
kortið notar þú að vild og sendir ókeypis hvert sem þú vilt innanlands í
boði Íslandspósts.
En þetta er ekki allt …
Vikulega velur Stefán Karl eitt framúrskarandi skemmtilegt, frumlegt eða
skrítið kort og les í þættinum. Þeir sem fá kortið sitt lesið fá skemmtilega
ævintýraferð í verðlaun.
Ferðamálaráð Íslands
A
B
X
/
S
ÍA
skoðaðu
Í S L A N D S Æ K J U M fi A ‹ H E I M
Í lok sumars verða glæsilegir vinningar
dregnir úr innsendum kortum.
• Coleman-fellihýsi frá EVRO, að
verðmæti 850 þúsund kr.
• 5 flugferðir innanlands fyrir tvo með
Flugfélagi Íslands.
• 5 gasgrill, FiestaExpress, frá ESSO.
• 20 bensínvinningar að verðmæti 4
þúsund kr. hver.
Póstkortaleikur
ESSO
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
SKIPULAGS- og bygginganefnd
Mosfellsbæjar hefur ákveðið að
framlengja frest til að gera athuga-
semdir við aðalskipulag sveitarfé-
lagsins 2002–2024 til 1. júlí næst-
komandi. Þurfa athugasemdir að
berast skipulagsnefndinni skriflega
fyrir þann tíma.
Fram kemur á heimasíðu bæjar-
ins að tillagan er til sýnis í afgreiðslu
Mosfellsbæjar í Þverholti 2 en einnig
er hægt að skoða tillöguna á heima-
síðunni sem er með slóðina
www.mos.is.
Frestur til
athugasemda
lengdur
Mosfellsbær
BROTIST var inn í skemmu við
golfklúbb á Bakkakotsvelli í Mos-
fellsbæ aðfaranótt mánudags og
stolið þaðan sláttuvélum og orfum
að verðmæti um ein og hálf milljón
króna.
Að sögn Björns Viðars Ólasonar
vallarstjóra var hurð á skemmu
spennt upp og þaðan stolið stórri
Husquarna-vél á hjólum með öku-
mannssæti sem notuð er til að slá í
kringum tré á vellinum, tveimur
Husquarna-loftpúðavélum, og
þremur sláttuorfum af gerðunum
Honda og Husquarna. Þá var
þrennum eyrnahlífum með útvörp-
um stolið.
Björn segir að þjófarnir hafi
gengið hreint til verks og greinilegt
að þeir hafi verið fleiri en einn að
verki þar sem stærsta sláttuvélin
vegur á bilinu 300–350 kg. Hann
bendir á að sú vél sé sú eina sinnar
tegundar í einkaeign en auk klúbbs-
ins hefur Reykjavíkurborg yfir að
ráða slíkum vélum. Björn á von á að
erfitt muni reynast fyrir þjófana að
kaupa varahluti í vélina án þess að
upp um þá komist.
Lögregla vinnur nú að rannsókn
málsins og segir Björn að þeir sem
þekkja til vélanna hafi verið látnir
vita af þjófnaðinum ef vera skyldi að
þeir yrðu varir við tækin í umferð.
Brotist inn í skemmu
við Bakkakotsvöll
Sláttuvélum
fyrir eina og
hálfa milljón
stolið
Mosfellsbær
VERIÐ er að leggja göngustíg á
um 900 metra kafla frá Siglinga-
stofnun Íslands við Vesturvör og út
að dælustöð við Hafnarbraut í
vestur.
Að sögn Steingríms Haukssonar,
staðgengils bæjarverkfræðings, er
búið er að leggja holræsi og mal-
bika en eftir er að ganga endan-
lega frá stígunum. Stígurinn teng-
ist öðrum kafla austan við hann. Þá
er eftir að ganga frá stíg vestan við
Marbakka en ráðgert er að fram-
kvæmdunum ljúki í sumar.
Lokið við
að malbika
Kópavogur
Morgunblaðið/Arnaldur
♦ ♦ ♦