Morgunblaðið - 26.06.2002, Page 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 21
NORMAN Mineta, samgönguráð-
herra Bandaríkjanna, kveðst þess
fullviss að hægt verði að ráða fram úr
miklum rekstrarvanda járnbrauta-
fyrirtækisins Amtrak, og koma í veg
fyrir að lestar þess stöðvist nú í byrj-
un sumarleyfatímans. Framkvæmda-
stjóri Amtrak, David Gunn, hafði var-
að við því að hann myndi leysa
fyrirtækið upp ef ekki fengist ríkis-
ábyrgð fyrir 200 milljóna dollara láni.
Fundur hófst sl. mánudag þar sem
samgönguráðuneytið og frammá-
menn járnbrautarfyrirtækisins
ræddu leiðir til að leysa vanda þess.
„Ég er þess fullviss að okkur mun
takast að koma í veg fyrir að þjónusta
fyrirtækisins verði lögð niður,“ sagði
Mineta í fundarhléi. Hann sagði ekk-
ert um það hvað nákvæmlega væri
rætt á fundinum, en ítrekaði þá af-
stöðu ríkisstjórnarinnar að umtals-
verðar breytingar kynnu að verða
gerðar á rekstri Amtrak, fengi fyr-
irtækið opinbera aðstoð áfram.
Þjónustunet Amtrak er þéttast í
norðausturhluta Bandaríkjanna, á
milli Boston, New York og Washing-
ton en fyrirtækið rekur járnbrautir,
göng og lestarstöðvar í 46 af Banda-
ríkjunum 50 og ganga lestir þess alls
á milli um 500 stöðva víðs vegar um
landið. Síðan fyrirtækið var stofnað
árið 1971 hefur það aldrei skilað
hagnaði. Á síðasta ári nam tapið á
rekstrinum rúmum milljarði dollara.
Fundað um
Amtrak
Washington. AFP.
Bandaríkin
GALLI í forriti, sem notað er til
þess að reikna út heilsutjón af sót-
ögnum í andrúmsloftinu, hefur ár-
um saman valdið því að sumar rann-
sóknir hafa sýnt tvöfalt meiri áhrif
en reyndin er, að sögn tímaritsins
Nature.
„Þetta var þegar orðið svo við-
urkennt forrit þegar við byrjuðum
að nota það að mér datt ekki í hug
að vera með nokkrar efasemdir,“
sagði Francesca Dominici, sem
stundar rannsóknir í heilbrigðismál-
um við Johns Hopkins-háskóla í
Bandaríkjunum. Hún setti endur-
skoðaðar tölur á vefsíðu sína í byrj-
un júní og tveir rannsóknahópar,
annar í Kanada og hinn í Grikk-
landi, eru nú einnig að endurskoða
sínar niðurstöður.
Kanna hugsanleg tengsl
Vísindamennirnir kanna hugsan-
leg tengsl milli tíðni andláta vegna
lungnasjúkdóma og magns sótagna
í loftinu en þær koma einkum úr út-
blæstri dísilvéla. Margir þættir geta
haft áhrif á dánartíðnina og umrætt
forrit, sem nefnist S-Plus, tekur þá
með í reikninginn til að hægt sé að
kanna hve mikil áhrif sótið hefur.
Framleiðandi forritsins segir að
við flestar aðstæður virki forritið
prýðilega en gæta þurfi þess að
stilla það rétt með tilliti til þess sem
verið er að mæla.
Hart er deilt um heilsufarsleg
áhrif af sótögnum í Bandaríkjunum
og íhugar stjórn George W. Bush
forseta að herða reglur um útblást-
ur slíkra agna. Andstæðingar
hertra reglna eru sagðir líklegir til
að nýta sér forritsmálið og fullyrða
að rannsóknir sem benda til mik-
illar hættu séu óáreiðanlegar.
Sótagnir og rannsóknir á heilsufari
Forritsgalli tvöfaldaði hættuna
KOMIÐ hefur í ljós, að vel þekkt
blóðþrýstingslyf, svonefndir
ACE-blokkarar, sem eru æða-
víkkandi lyf, hafa mun víðtækari
virkni en upphaflega var ætlað, og
geta þau dregið úr hættu á hjarta-
áfalli, heilaáfalli og jafnvel komið í
veg fyrir sykursýki. Þá virðist lyf-
ið geta dregið úr vöðvarýrnun hjá
gömlu fólki. Frá þessu er greint í
The New York Times í gær.
Niðurstöður nýrra rannsókna á
ACE-blokkurum (angiotensin
converting enzyme) og nýrri lyfj-
um er virka á svipaðan máta leiða
í ljós að þessi áhrif lyfjanna eru til
viðbótar þeim áhrifum þeirra, að
lækka blóðþrýsting, eins og þeim
var upphaflega ætlað.
The New York Times hefur eft-
ir dr. Salim Yusuf, framkvæmda-
stjóra hjartasjúkdómadeildar
McMaster-háskóla í Hamilton í
Kanada, að þessi uppgötvun minni
á söguna af aspiríni, lyfi sem var
hannað sem einfalt verkjalyf en
reyndist hafa góð áhrif til að koma
í veg fyrir hjarta- og heilaáfall.
Góðar aukaverkanir
blóðþrýstingslyfja
♦ ♦ ♦
RÚSSNESKIR vísindamenn í Push-
chino, 120 km suður af Moskvu, eru
lagðir af stað í göngu til höfuðborg-
arinnar til þess að mótmæla mikl-
um launalækkunum sem þeir hafa
orðið fyrir undanfarinn áratug og
versnandi aðbúnaði.
Um 100 vísindamenn efndu til
mótmælafundar á götum úti og
hluti hópsins lagði síðan af stað til
höfuðborgarinnar þar sem þeir
ætla að leggja áherslu á umkvart-
anir sínar með útifundi við stjórn-
arráðið á morgun.
Að minnsta kosti hálf milljón vís-
indamanna hefur yfirgefið Rúss-
land undanfarinn áratug vegna
lágra launa, að sögn háttsetts vís-
indamanns þar eystra. Hafa vís-
indamennirnir fengið „langtíma-
samninga erlendis, og eiginlega
engir hafa snúið aftur“, sagði Vikt-
or Kalinushkin, yfirmaður stéttar-
félags vísindamanna.
Rússneskir vísindamenn sem fá
vinnu erlendis hafa á bilinu 260 þús-
und til 620 þúsund krónur í mán-
aðarlaun, sagði Kalinushkin, en í
Rússlandi hafa þeir um 8.500 krón-
ur að meðaltali. Algengast er að
rússneskir vísindamenn fái vinnu í
Japan, Bandaríkjunum, Bretlandi,
Kanada, Frakklandi og Þýskalandi.
Rússneskir eðlisfræðingar, líffræð-
ingar, efnafræðingar og tölvunar-
fræðingar eru eftirsóttastir.
Rússneskir
vísindamenn
mótmæla
Moskvu. AFP.