Morgunblaðið - 26.06.2002, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 49
DV
Kvikmyndir.is
Mbl
Kvikmyndir.com
1/2 kvikmyndir.is
1/2 kvikmyndir.com
Tímaritið Sánd
Rás 2Þær eru fjarska fallegar
En ekki koma of nálægt
Eina leiðin til að verða einn af strákunum aftur... er að verða “ein”
af stelpunum! Ekki missa af þessum geggjaða sumarsmell!
Sýnd kl. 8. Vit 367 Sýnd kl. 5.30. Ísl tal. Vit 358.
Sýnd kl. 9.30 og 11.10.
B.i. 16. Vit 388.
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit nr. 370.
kvikmyndir.is
MBL
Sýnd kl. 6, 7, 8, 9, 10 og 11. Vit 393.
1/2kvikmyndir.is ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 7.15 og 10.
Vit 380.
Sýnd kl. 7.30 og 10. Vit 384.
Sýn
d á
klu
kku
tím
afre
sti
Sýnd kl. 7.15 og 10.
B. i. 16. Vit 381.
Yfir 32.000
áhorfendurKvikmyndir.is
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
1/2
kvikmyndir.com
Radíó X
1/2HK DV
Leitin er
hafin!
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i 16.
Hún er ein af milljón og
möguleikar hans á að finna
hana eru engir!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.30, 8 og
10.30. B.i 16.
Menn eru dæmdir af verkum sínum.
Bruce Willis í magnaðri spennumynd.
Yfir 47.000 áhorfendur!
Sýnd kl. 5.30. B.i. 10.
1/2 RadióX
1/2 kvikmyndir.is
Sánd
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Skráning er í síma 565-9500
Sumarið er tíminn..!
Lestrarhraði fjórfaldast að jafnaði og eftirtekt batnar.
Við ábyrgjumst árangur þátttakenda.
Sumarið er góður tími fyrir þá sem vilja undirbúa sig vel
fyrir erfitt nám næsta vetur.
Margföldun á lestrarhraða eykur afköst í öllu námi og starfi.
Næsta námskeið hefst 3. júlí n.k.
HRAÐLESTRARSKÓLINN
w w w. h r a d l e s t r a r s k o l i n n . i s
HLJÓMSVEITINA Funerals skipa
þau Viðar Hákon Gíslason sem leik-
ur á bassa, Ragnar Kjartansson, sem
syngur og leikur á gítar, Þorgeir
Guðmundsson, sem leikur á tromm-
ur og syngur, Ólafur Jónsson, sem
leikur á rafgítar, Lára Sveinsdóttir,
sem syngur og leikur á harmónikku
og hljómborð, og Þorvaldur Gröndal,
sem syngur og leikur á gítar og
hljómborð.
Á síðasta ári gaf hljómsveitin út
breiðskífuna Phathetic Me og fékk
hún víðast hvar góðar viðtökur og
var meðal annars tilnefnd til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna.
Það er mikið að um að vera fram-
undan hjá útfararfólkinu en í kvöld
blæs það til tónleika auk þess sem ný
plata er á næsta leiti.
Morgunblaðið tók þau Þorvald og
Láru tali til að fræðast um tón-
leikana og væntanlega breiðskífu.
„Við erum að fara að taka upp nýja
plötu í júlí,“ upplýsir Þorvaldur.
„Já, í gömlum sveitabæ á Snæ-
fellsnesinu,“ bætir Lára við.
„Við verðum trúlega viku eða rúm-
lega það, sem sagt töluvert lengur en
síðast. Við erum komin með miklu
meira en nóg af efni á heila plötu,“
segir Þorvaldur.
– Síðasta breiðskífa sveitarinnar
var sem sagt tekin upp í sumar-
bústað og nýjasta afurðin verður
greinilega getin líka úti á landi, af
hverju hafið þið þennan háttinn á?
„Það gekk svo vel síðast. Við fór-
um í sumarbústað og ætluðum bara
að hafa það gott uppi í sveit en tók-
um upptökutæki með okkur. Við
komumst svo bara að því að þetta
átti svo vel við okkur,“ segir Þorvald-
ur.
„Einbeitingin verður betri,“ segir
þau Lára og Þorvaldur samsinnir.
„Já, maður dettur inn í einhvers
konar ævintýraheim og umhverfið
truflar mann ekki neitt,“ skýrir Lára
enn frekar.
– Verður nýja platan lík þeirri
fyrri eða kveður þar við nýjan tón?
„Þetta er bara svona eðlileg þróun
frá hinni plötunni,“ segir Þorvaldur.
„Það verður örugglega sami hrá-
leiki og á þeirri fyrri en við bætum
við fleiri röddum og fleiri hljóð-
færum,“ segir Lára.
Á leið í víking
– Verður Funerals mikið á ferð-
inni í sumar?
„Við erum að fara á Skóga á föstu-
daginn þar sem við leikum fyrir
Norðurlandaþing myndmennta-
kennara,“ segir Lára.
„Svo ætlum við bara að reyna að
spila eins mikið og við getum þar
sem við erum öll á landinu núna. Það
er líka verið að vinna í því að fá að
spila erlendis, vonandi í Bandaríkj-
unum, með haustinu,“ upplýsir Þor-
valdur.
„Já, en við þurfum fyrst að safna
okkur smápeningum fyrir ferðinni,“
segir Lára.
„Fyrri platan okkar hefur verið í
dreifingu erlendis og hlotið prýðilega
dóma. Það er því áhugi fyrir því að
fylgja henni eftir,“ segir Þorvaldur.
– Er ekki fremur langt síðan
Funerals lék saman síðast?
„Jú, við höfum ekki getað spilað
saman síðan einhverntímann um
áramótin þar sem einn liðsmannanna
býr erlendis,“ segir Þorvaldur.
„Hann er kominn heim núna svo
við erum alveg æst í að fara að spila,“
bætir Lára við.
Tónleikarnir fara sem áður segir
fram á Vídalín í kvöld og verður hús-
ið opnað klukkan 21. Aðgangseyrir
er 1.000 krónur og fylgir með óvænt-
ur glaðningur.
Þau Lára og Þorvaldur lauma svo
út úr sér í lokin að sérstakur leyni-
gestur muni troða upp á tónleik-
unum en neita að gefa meira upp að
svo stöddu.
Funerals heldur tónleika á Vídalín í kvöld
Ljósmynd/Brian Sweeney
Útfararfólkið mun leika við hvurn sinn fingur á Vídalín í kvöld.
Alveg æst í að spila
HLJÓMSVEITIN Vínyl lét nokkuð
að sér kveða í íslensku tónlistarlífi
fyrir um fimm árum síðan. Hljóm-
sveitin gaf frá sér þrjú lög sem öll
rötuðu inn á íslenska vinsældarlista.
Þrátt fyrir velgengina lagðist Vínyl í
dvala en hefur nú tekið upp þráðinn
þar sem frá var horfið og snýr form-
lega aftur á Stefnumóti Undirtóna í
kvöld.
Þó nokkrar mannabreytingar hafa
þó orðið í hljómsveitinni en þeir Arn-
ar Guðjónsson og Arnar Ólafsson
hafa sagt skilið við sveitina og manna
nú helming hljómsveitarinnar Leav-
es. Í stað þeirra eru komnir gítar-
leikarinn Egill Tómasson, sem leikið
hefur með sveitum á borð við Soðna
fiðlu og Kanada, og bassaleikarinn
Arnar Snær Davíðsson sem einnig
lék með Soðinni fiðlu. Þeir Kristinn,
Guðlaugur og Haraldur eru svo enn
á sínum stað í Vínyl.
Egill Tómasson segir það ekki
hafa komið til greina að stofna bara
nýja hljómsveit með hinum nýju liðs-
mönnum. „Tónlistin okkar er í anda
þess sem Vínyl var að gera á sínum
tíma þannig að okkur fannst sjálf-
sagt að halda nafninu við,“ sagði Eg-
ill.
Plata á árinu
Vínyl hefur nýlokið við upptökur á
laginu „Nobody’s Fool“ sem tekið
hefur verið til spilunar á nokkrum
útvarpsstövanna. Og það er nóg
framundan hjá þeim piltum.
„Við ætlum að taka upp 5 eða 6 lög
nú í júlí, eða hálfa plötu. Hinn helm-
inginn tökum við svo upp í ágúst. Það
kemur því pottþétt plata með Vínyl
út á þessu ári,“ segir Egill og bætir
við: „Í sumar erum við svo að fara í
tónleikaferð um landið með Jet
Black Joe svo það er nóg að gera.“
Tónlistarmaðurinn Kofued hitar
upp fyrir Vínyl í kvöld og opnar hús-
ið klukkan 21. Aðgangseyrir er 500
krónur og ætti enginn gamall né nýr
Vínyl-aðdáandi að láta tónleikana
fram hjá sér fara.
Vínyl og Kofued á Stefnumóti Undirtóna
Kvintettinn Vínyl á bekk, sumir liðsmenn sýnilegri en aðrir.
Upprisa Vínyls
Morgunblaðið/Sverrir
KARÍBAHAF - 12 d.
hálfvirði = 2 fyrir 1
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni