Morgunblaðið - 06.07.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GERT er ráð fyrir að ný ráðu-
neytisbygging fyrir dóms- og
kirkjumálaráðuneytið, umhverf-
isráðuneytið og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið á
stjórnarráðsreitnum við Sölvhóls-
götu 9 til 11 í Reykjavík verði
tekin í notkun í ársbyrjun 2005,
en um er að ræða um 4.800 fer-
metra byggingu á fjórum hæðum
ásamt tveggja hæða bílakjallara.
Nú eru samtals 103 starfsmenn
í þessum ráðuneytum en gert er
ráð fyrir að þeir verði 125 eftir
þrjú ár. Alls bárust 25 tillögur í
hönnunarsamkeppni um bygg-
inguna og voru fjórar verðlaun-
aðar.
Fyrstu verðlaun hlutu arkitekt-
arnir Bernhard Franken, Carsten
Troja og Kirstin Fried frá Frank-
en Architekten GmbH. Í nið-
urstöðu dómnefndar segir m.a. að
tillagan sé vel af hendi leyst, bæði
hvað varðar útlit og innra fyr-
irkomulag. „Útlit byggingarinnar
er metnaðarfullt og efnisval utan
og innan er áhugavert. Framsetn-
ing tillögunnar er auðlesin og
góð. Hugmyndafræði tillögunnar
er spennandi og heilsteypt. Sam-
eiginlegum svæðum og rými
ráðuneytanna er vel fyrir komið.“
Önnur verðlaun hlutu Að-
alsteinn Snorrason arkitekt,
Björn Guðbrandsson arkitekt,
Birgir Teitsson arkitekt, Gísli
Gíslason arkitekt, Guðrún Ingv-
arsdóttir arkitekt og Halldór Jón
Karlsson byggingarfræðingur, hjá
Arkís ehf.
„Húsið er fallegt og hefur ró-
legt en sterkt yfirbragð og vel
mótað form. Aðkoma er skemmti-
leg,“ segir m.a. í umsögn dóm-
nefndar.
Þriðju verðlaun hlutu Erik W.
Nielsen, Arnar Þór Jónsson og
Hallgrímur Þór Sigurðsson.
„Áræðin og snjöll tillaga þar sem
ráðuneytunum þremur er raðað
lóðrétt í bygginguna. Útlit bygg-
ingarinnar er frumlegt og
heillandi, en framhlið Sölvhóls-
götu 11 er haldið óbreyttri,“ segir
m.a. í áliti dómnefndar.
Tillaga Sigrúnar Birgisdóttur,
AAdip, Cherie Yeo, RIBA, Mich-
ele Ragozzino, RIBA, Simon Mol-
esworth, RIBA, Marie-Pierre
Vandeputte, Penny Tand, Marie
Sundberg, Christopher Harts-
horne og Kalle Soderman fékk
sérstaka viðurkenningu, en í um-
sögn dómnefndar segir m.a.: „At-
hyglisverð tillaga sem er í senn
áræðin og djarflega fram sett.
Hugmyndafræðin sem tillagan
byggist á er góð og það að setja
skrifstofurýmin inn í „klettinn“
og í „skjöldinn“ er skemmtileg.
Þá eru ýmis atriði tillögunnar vel
hugsuð, sérstaklega eru sneið-
myndir hússins áhugaverðar. Efn-
isval er áhugavert. Fyrirkomulag
á inngangi er gott.“ Dómnefndina
skipuðu Skarphéðinn Steinarsson,
skrifstofustjóri í forsætisráðu-
neyti, sem jafnframt var for-
maður, Reynir Kristinsson fram-
kvæmdastjóri og Jóhanna Hansen
verkfræðingur, tilnefnd af hálfu
verkkaupa, og Steve Christer
arkitekt og Ólafur Sigurðsson
arkitekt, tilnefndir af hálfu
Arkitektafélags Íslands.
Ritari dómnefndar var Ásdís
Ingþórsdóttir arkitekt og trún-
aðarmaður samkeppninnar var
Pétur Pétursson, starfsmaður
Ríkiskaupa.
Ráðgjafar dómnefndar voru
Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneyt-
isstjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneyti, Jón Thors,
fyrrv. skrifstofustjóri í dóms- og
kirkjumálaráðuneyti, Þórður H.
Ólafsson, skrifstofustjóri í um-
hverfisráðuneyti, og Þórhallur
Arason, skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneyti.
Kostnaðarmat tillagna annaðist
vinnuhópur undir stjórn Þráins
Sigurðssonar hjá Framkvæmda-
sýslu ríkisins.
Ný ráðuneytisbygging
tekin í notkun 2005
„Áræðin og snjöll tillaga þar sem ráðuneytunum þremur er raðað lóð-
rétt í bygginguna,“ segir í áliti um tillöguna sem varð í 3. sæti.
„Húsið er fallegt og hefur rólegt en sterkt yfirbragð og vel mótað form,“ segir um tillöguna sem varð í 2. sæti.
Um verðlaunatillöguna segir að hún sé vel af hendi leyst, bæði hvað varðar útlit og innra fyrirkomulag.
FLUGLEIÐIR hf. hafa skorað á for-
svarsmenn heimasíðunnar diet.is að
hætta allri notkun á orðmerkjunum
„vildarklúbbur“ og „Viðskiptamanna-
klúbburinn“ sem og öðrum orðmerkj-
um með forskeytinu „vildar-“ að því
er fram kemur í bréfi sem lögmaður
Flugleiða hefur sent forsvarsmönn-
um diet.is.
Í bréfi sem lögmaðurinn ritar kem-
ur fram að tveimur forsvarsmönnum
diet.is hafi ítrekað verið kynnt að
Flugleiðir hafi lögvarðan rétt til vöru-
merkisins „vildarklúbbur“ sem hafi
sérstaklega verið skráð hjá Einka-
leyfisstofu. Þá segir að sama eigi við
um notkun orðmerkisins „Vildarvið-
skiptamanna klúbburinn“ á diet.is
enda sé þar um að ræða orðmerki
sem svipar til orðsins „vildarklúbb-
ur“. Vísað er í þessu sambandi til 4.
gr. laga um vörumerki þar sem segir
að aðrir en eigandi vörumerkis megi
ekki heimildarlaust nota í atvinnu-
starfsemi tákn sem séu lík vörumerki
hans ef notkun taki til eins eða svip-
aðrar vöru eða þjónustu og vöru-
merkjarétturinn nær til og hætt er
við ruglingi, þar með talið að tengsl
séu með merkjunum.
Á heimasíðu diet.is, sem er fyrir-
tæki sem selur heilsu- og megrunar-
vörur á Netinu, er „Vildarviðskipta-
manna klúbburinn“ auglýstur og fólki
boðið að kaupa sk. „vildarviðskipta-
pakka“ sem inniheldur, auk nær-
ingar- og snyrtivara, þjálfunarefni,
bæklinga og myndbandsspólu, með
afslætti.
Segjast hafa
lögvarðan
rétt á vöru-
merkinu
UMHVERFISRÁÐHERRA, Siv
Friðleifsdóttir, hefur staðfest úrskurð
Skipulagsstofnunar um mat á um-
hverfisáhrifum fyrirhugaðrar Vill-
inganesvirkjunar í Skagafirði. Í úr-
skurði Skipulagsstofnunar frá 24.
október 2001 var fallist á allt að 33
MW Villinganesvirkjun í Skagafirði
ásamt 132 kV háspennulínu frá virkj-
un að byggðalínu með þremur skil-
yrðum. Fyrsta skilyrðið var að lagður
yrði hliðarlækur sem gerði virkjunina
fiskgenga í samráði við veiðimála-
stjóra. Annað skilyrðið var að tryggt
yrði lágmarksrennsli um virkjunina í
samráði við veiðimálastjóra. Og þriðja
skilyrðið var að menningarminjar
sem færu undir lón yrðu rannsakaðar
og vegtenging og vinnubúðir í landi
Tyrfingsstaða yrðu vel staðsettar í
samráði við Fornleifavernd ríkisins.
Umhverfsráðuneytinu bárust tíu
kærur vegna fyrrgreinds úrskurðar
Skipulagsstofnunar.
Fram kemur í niðurstöðu umhverf-
isráðuneytisins að ráðuneytið telur að
fyrirhuguð framkvæmd, að teknu til-
liti til þeirra skilyrða sem Skipulags-
stofnun setti, muni ekki hafa umtals-
verð umhverfisáhrif. „Er það því
niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta
beri hinn kærða úrskurð með þeim
breytingum að skilyrði 1 í úrskurði
Skipulagsstofnunar orðist svo: Virkj-
unin verði gerð fiskgeng með lagn-
ingu hliðarlækjar eða á annan full-
nægjandi hátt í samráði við
veiðimálastjóra. Einnig bætist við
nýtt svohljóðandi skilyrði: Fram-
kvæmdaraðili skal vakta og fylgjast
með breytingum á strandlínunni í
samráði við Náttúrufræðistofnun Ís-
lands eftir að virkjunarframkvæmdir
eru hafnar.“
Umhverfisráðherra um
Villinganesvirkjun
Staðfestir
úrskurð
Skipulags-
stofnunar
♦ ♦ ♦
Flugleiðir vilja einar fá að
nota forskeytið „vildar-“