Morgunblaðið - 06.07.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Jón Hannibalsson afgreiddi Seðlabankann á sínum tíma með því að þar væru nagaðir
blýantar, hr. Davíð hefur nú afgreitt ESB á svipaðan hátt nema hvað að þeir væru bara
úti að aka.
ÓBYGGÐANENFD var nýlega á
ferð í Öræfum til að skoða kenni-
leiti og landamerki á milli jarða
vegna fyrirhugaðs úrskurðar um
þjóðlendulínu í Austur-Skaftafells-
sýslu. Að sögn Kristjáns Torfason-
ar, formanns nefndarinnar var um
að ræða vettvangsferð þar sem
skýrslur voru teknar af aðilum og
búendum á svæðinu. Þau mál sem
tekin voru fyrir varða annars veg-
ar Öræfin og hins vegar Suður-
sveit og voru þau bæði flutt og
tekin til úrskurðar af nefndinni.
Kristján segir að talsverðan tíma
muni taka að fara yfir þessi mál
og enn sé óvíst hvenær úrskurður
verður kveðinn upp.
Óbyggðanefnd á ferð í Öræfum
Óbyggðanefnd á ferð sinni í Öræfum.
LÖGREGLAN í Reykjavík vill
hvetja þá sem eru að fara að heim-
an um þessar mundir til að draga
úr líkum á innbrotum með því að
loka gluggum og gæta þess að á
þeim séu traust læsingajárn. Gæta
þarf vel að hurðarlæsingum og gera
aðrar þær ráðstafanir sem tak-
marka möguleika þjófa. Þá hvetur
lögreglan fólk til að biðja nágranna
um að fylgjast með ókunnum
mannaferðum og að lögregla verði
látin vita um slíkar ferðir.
Að undanförnu hafa verið til-
kynnt allnokkur innbrot í bíla, fyr-
irtæki, skrifstofuhúsnæði og heima-
hús, geymslur fjölbýlishúsa og
sumarbústaði. Lögreglan segir
þjófana vera á höttunum eftir auð-
seljanlegum tækjum, s.s. fartölvum,
stafrænum myndavélum og skjá-
vörpum. Einn maður var handtek-
inn síðastliðna helgi eftir innbrot í
skrifstofuhúsnæði, annar eftir að
hafa stolið tösku og veski á veit-
ingastað, auk þess sem tveir menn
voru handteknir nú í vikunni eftir
að hafa brotist inn í nokkrar bif-
reiðir og reynt að taka þaðan
hljómtæki. Í vikunni var fólk einnig
handtekið eftir að hafa verið að
reyna að selja stolnar myndavélar í
Austurstræti.
Innbrot í bíla eru algengustu inn-
brotin og hvetur lögreglan öku-
menn til að skilja ekki eftir verð-
mæti í bílunum. Forsvarsmenn
fyrirtækja þurfa einnig að gera ráð-
stafanir sem takmarka möguleika
þjófa, s.s. með bættri lýsingu og
betri læsingabúnaði, bæði á hurðir
og glugga.
Varað við innbrotsþjófum
Félag sam- og tvíkynhneigðra stúdenta
Fræðsla og um-
ræða í fyrirrúmi
FÉLAG sam- og tví-kynhneigðra stúd-enta (FSS) var
stofnað í janúar árið 1999.
Áður en til stofnunar fé-
lagsins kom hafði hópur
samkynhneigðs fólks innan
Háskóla Íslands hist á
óformlegum fundum.
Nú á dögunum opnaði fé-
lagið nýja heimasíðu,
http://gay.hi.is, þar sem
kennir margra grasa.
Morgunblaðið ræddi við
Ásgeir Þórarin Ingvarsson,
formann FSS, um nýju síð-
una, starf félagsins og
gagnsemi þess.
– Hvað má finna á nýju
heimasíðunni?
„Heimasíðan er aðal
vettvangur félagsins og
andlit þess út á við. Þar eru
daglega birtar fréttir og tilkynn-
ingar um efni er varða málefni
samkynhneigðra. Á síðunni er
einnig skilaboðaskjóða þar sem líf-
legar umræður fara fram um mál
af ýmsum toga. Síðan hefur líka að
geyma ítarlegar upplýsingar fyrir
samkynhneigða og aðstandendur
þeirra til að aðstoða þá við vanda-
mál sem þeir kunna að eiga við að
etja. Loks er hægt að skrá sig í fé-
lagið á síðunni og fá ýmsar upplýs-
ingar um sögu þess og starfsemi.“
– Félagsmenn hittast einnig,
ekki satt?
„Jú, við höfum hist nokkrum
sinnum í vetur, en á okkar sam-
komum reynum við að skemmta
okkur á öðrum forsendum en þeim
sem samkynhneigðum á Íslandi
bjóðast almennt, svo sem í nætur-
lífinu. Þannig mætti í raun frekar
líkja félaginu við mjög stóran vina-
hóp sem hittist, gerir sér glaðan
dag og ræðir málin.“
– Var þörfin orðin brýn fyrir
nýja heimasíðu?
„Já, heimasíðan er mjög mikil-
vægt haldreipi fyrir þá sem eiga í
einhverjum vandræðum varðandi
kynhneigð. Slík vandamál geta
leitt til mikils einmanaleika og van-
líðunar og það er mikilvægt að
geta frætt og aðstoðað fólk á jafn
þægilegan máta og Netið gerir
kleift að gera. Síðan verkar einnig
til að vekja almenning til umhugs-
unar um réttindi þeirra sem eiga
undir högg að sækja í samfélaginu,
en á síðunni er virk umræða um
sigra sem og vandamál samkyn-
hneigðra bæði hérlendis og erlend-
is. Þannig er síðan ekki aðeins ætl-
uð sam- og tvíkynhneigðum og
aðstandendum þeirra heldur einn-
ig þeim sem vilja vera vel að sér
um fjölbreytileika þess litrófs sem
mannlífið er.“
– Finna aðstandendur síðunnar
fyrir mikilli umferð um hana?
„Já, mikil ósköp. Nýja síðan hef-
ur verið vel auglýst í háskólum og
framhaldsskólum vítt og breitt um
landið og hefur umferð verið tölu-
verð. Á hverjum degi kemur fjöldi
gesta á síðuna og margir koma
daglega til að lesa nýjustu fréttir
og fylgjast með umræðunni. Um
leið hefur nýskráning-
um í félagið fjölgað til
muna og einnig skrifa
okkur margir með fyr-
irspurnir og hjálpar-
beiðnir af ýmsum toga.“
– Hvað eru félagsmenn margir?
„Í félaginu eru núna á að giska
250 manns. Þar af má áætla að
flestir séu sam- og tvíkynhneigðir,
en röskur helmingur skráðra fé-
laga eru starfandi nemendur við
Háskóla Íslands. Félagsaðild er
fjarri því bundin við kynhneigð, og
er öllum frjálst að skrá sig í félagið
sem sýna málstaðnum áhuga. Þá
gildir einu hvort viðkomandi er í
framhalds- eða háskóla eða á
vinnumarkaðnum og hvort við-
komandi er af hinni eða þessari
kynhneigðinni.“
– Er mikið um fordóma innan
háskólasamfélagsins?
„Nei, fordómar eru ekki áber-
andi, enda haldast fordómar oftast
í hendur við vanþekkingu, en
þekkingarskortur er nokkuð sem
háskólanemendur verða seint
þekktir fyrir. Raunar er nauðsyn-
legt að háskólasamfélagið leggi sig
fram við að forðast fordóma og
greina rót þeirra, því fordómar
eiga ekki erindi í vísindi enda geta
þeir byrgt manni sýn á ný sjón-
arhorn á þau viðfangsefni sem
maður fæst við í náminu eða á lífs-
leiðinni. Í þessu samhengi er vert
að taka fram að ekki er nóg að
þykjast ætla að afneita og úthýsa
fordómum með öllu – það eru for-
dómar gegn fordómum. Betra er
að gera sér grein fyrir eigin for-
dómum, viðurkenna þá fyrir sjálf-
um sér og þá kryfja orsök þeirra til
mergjar og vinna þannig bug á
þeim.
Háskólanemendur, og raunar
Íslendingar almennt,
eru vel upplýstir og um-
burðarlyndir í garð
þeirra sem á einhvern
hátt skera sig úr fjöld-
anum. Það er enda svo
að andúð einstaklingsins á öðrum á
sér títt rót í óánægju hans með
sjálfan sig, en eins og alkunna er
eru Íslendingar upp til hópa sáttir
og sælir, og í réttu hlutfalli um-
burðarlyndir og tillitssamir. Loks
hefur barátta þeirra sem á undan
gengu áorkað því að almenningur
gerir sér betur grein fyrir hvað
kynhneigð er lélegur mælikvarði á
mannkosti einstaklingsins.“
Ásgeir Þórarinn Ingvarsson
Ásgeir Þórarinn Ingvarsson
er fæddur í Reykjavík, 10. ágúst
1981. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR árið 2001. Hann hefur
lært stjórnmálafræði við HÍ en
mun nema við lagadeild í haust.
Ásgeir hefur einnig numið við
Beijing Language and Culture
Uni. 1998, London School of
Economics 1999 og Jordan Uni.
2000. Ásgeir var kjörinn með-
stjórnandi málfundafélags Fram-
tíðarinnar við MR 1998, gjald-
keri (Quaestor) Skólaf. MR 1999,
formaður Fél. sam- og tvíkyn-
hneigðra stúdenta 2001 og hefur
einnig setið í nefnd Stúdentaráðs
og Jafnréttisnefndar HÍ um vit-
undarvakningu gegn fordómum
auk þess að sitja í stjórn Gay
pride/Hinsegin daga í Reykjavík
2002. Undanfarin tvö ár hefur
Ásgeir starfað með námi hjá
Morgunblaðinu við skrif og önn-
ur störf.
Mikilvægt að
veita hjálp og
ráð á síðunni