Morgunblaðið - 06.07.2002, Síða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞREMENNINGARNIR Björgólfur
Thor Björgólfsson, Magnús Þor-
steinsson og Björgólfur Guðmunds-
son hafa ákveðið að draga til baka, að
svo stöddu, ósk sína um viðræður við
ríkissjóð um kaup á umtalsverðum
hlut þess í Landsbanka Íslands hf.
Fréttatilkynning þessa efnis var
send út í gær eftir að tilkynnt var að
einkavæðingarnefnd hefði verið falið
að leita tilboða frá öðrum aðilum í
eignarhlut ríkisins.
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og starfandi viðskiptaráð-
herra, sagðist í samtali við Morgun-
blaðið í gær fagna þeim áhuga sem
þremenningarnir sýndu á Lands-
bankanum, enda sýndi það að um
áhugaverðan fjárfestingarkost væri
að ræða. Engu að síður hefði verið
ákveðið að auglýsa eftir kauptilboð-
um og opna fyrir að aðrir aðilar
kæmu að málinu, að því er varðar
Landsbankann og hugsanlega einnig
Búnaðarbankann.
„Við teljum mikilvægt að það skuli
vera vaxandi áhugi á því að fjárfesta
í bönkunum, enda hefur það verið
stefnan að selja hlut ríkisins í þeim
fyrir lok kjörtímabilsins.
Stjórnarflokkarnir settu verklags-
reglur um útboð og sölu ríkisfyrir-
tækja 1996 og þar kemur skýrt fram
að fyrirtæki sem stendur til að selja
skuli ávallt auglýst almenningi til
kaups, þannig að öllum sem áhuga
hafa sé tryggður jafn réttur til að
bjóða í þau.
Síðan var ákveðið að leita eftir
kjölfestufjárfesti í Landsbankann á
ákveðnum forsendum sem gengu
fyrst og fremst út það að fá þar til
liðs erlendan banka eða fjármála-
stofnun. Þetta tilboð sem nú hefur
borist er ekki þess eðlis og þess
vegna er nauðsynlegt, til þess að
gæta jafnræðis, að opna fyrir það að
aðrir aðilar komi til sögunnar hafi
þeir áhuga á því.“
Viðbrögð þeirra
eðlileg
Halldór segir að þremenningun-
um hafi verið boðið upp á könnunar-
viðræður um málið enda sé áhugi á
að ræða þessi mál af alvöru við þá.
Hins vegar hafi þeim verið gert ljóst
að ríkisstjórnin sé bundin af fyrr-
nefndum reglum og muni fara eftir
þeim.
Hann segir að ríkisstjórnin sé
sammála um þessa niðurstöðu og nú
verði hafist handa við að semja aug-
lýsingu þar sem ákveðin skilyrði
verða sett og opnað fyrir það að allir
áhugasamir aðilar geti komið að mál-
inu.
Um tilkynningu þremenninganna
þess efnis að þeir muni draga sig
tímabundið í hlé segir Halldór:
„Mér finnst viðbrögð þeirra á
margan hátt eðlileg vegna þess að
það ferli sem framundan er skapar
ákveðna óvissu og eðlilegt er þegar
svo miklir fjármunir eru í húfi að
þeir vilji hafa fast land undir fótum.
Ég á hins vegar von á að áhugi þeirra
sé enn fyrir hendi. Ríkisstjórnin gat
ekki annað gert og við gerðum okkur
alveg grein fyrir að svona gæti farið.
Ég held að allt annað hefði orðið
klúður. Við settum okkur ákveðnar
leikreglur og verðum auðvitað einnig
að fara eftir þeim.“
Eignarhlutur ríkissjóðs í Landsbanka Íslands
Ákveðið að leita til-
boða frá fleiri aðilum
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfs-
son, Magnús Þorsteinsson og
Björgólfur Guðmundsson sendu í
gær frá sér eftirfarandi yfirlýs-
ingu vegna svars framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu við ósk
þeirra um viðræður um kaup á
kjölfestuhlut í Landsbanka Ís-
lands hf.:
„Eins og kunnugt er hefur
HSBC-bankinn í London fyrir
hönd ríkisstjórnar Íslands verið
með til sölumeðferðar kjölfestu-
hlut í Landsbanka Íslands hf. frá
því í júní á síðasta ári. Sú vinna
bar ekki árangur.
Þann 27. júní sl. sendu Björg-
ólfur Thor Björgólfsson, Magnús
Þorsteinsson og Björgólfur Guð-
mundsson, f.h. íslensks eignar-
haldsfélags, framkvæmdanefnd
um einkavæðingu bréf, þar sem
óskað var eftir viðræðum um við-
skipti með kjölfestuhlut í Lands-
banka Íslands hf. Svar hefur nú
borist og þar segir meðal annars:
Í framhaldi af bréfi yðar hefur
ráðherranefnd um einkavæðingu
ákveðið að fela framkvæmda-
nefnd um einkavæðingu að taka
upp könnunarviðræður við yður
um hugmyndir yðar í framan-
greindu bréfi.
Jafnframt hefur verið ákveðið
að birta auglýsingu og gefa öðrum
sem áhuga kynnu að hafa á kaup-
um á umtalsverðum hlut í Lands-
banka Íslands kost á að gefa slíkt
til kynna innan tiltekins tíma.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
Magnús Þorsteinsson og Björg-
ólfur Guðmundsson hafa ákveðið
að draga ósk sína um viðræður til
baka að svo stöddu. Ekki er hægt
að setjast að samningaborði við
einn aðila á meðan auglýst er eftir
tilboðum frá öðrum í sama hlut.
Eðlilegt er að bíða með viðræður
þar til tilboðsfrestur rennur út.
Rétt er að geta þess að fyrir al-
þjóðlega fjárfesta geta forsendur
viðskipta breyst dag frá degi.
Vegna þeirra miklu lækkana sem
orðið hafa á verðbréfamörkuðum
heimsins síðustu daga geta ný
kauptækifæri sífellt skotið upp
kollinum. Bankavísitala Bretlands
hefur til dæmis lækkað um 16% í
íslenskum krónum talið frá því að
auglýst var um sölu á fimmtungs-
hlut í Landsbanka Íslands til al-
mennings þann 28. maí sl. og
gengi hlutabréfa í stærsta banka á
Norðurlöndum, Nordea, hefur
lækkað um 22% í íslenskum krón-
um, en á sama tíma hefur gengi
hlutabréfa í Landsbankanum
hækkað um rúm 2%.
Staða mála verður endurmetin
þegar auglýstur tilboðsfrestur í
hlut ríkisins í Landsbanka Íslands
hf. rennur út. Þangað til hafa
Björgólfur Thor Björgólfsson,
Magnús Þorsteinsson og Björg-
ólfur Guðmundsson ekkert frekar
um málið að segja.“
Tilkynning þremenninganna
Draga tilboð
sitt til baka
FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu sendi í gær frá sér
yfirlýsingu vegna hugsanlegrar
sölu á hlutabréfum í Landsbank-
anum til stofnfjárfesta.
„Undanfarin misseri hefur ver-
ið unnið að því markmiði ríkis-
stjórnarinnar að selja hlut ríkisins
í Landsbanka Íslands hf. og Bún-
aðarbanka Íslands hf. Stefnt hef-
ur verið að því að sölu þeirra ljúki
á yfirstandandi kjörtímabili. Í júní
2001 var ákveðið í samráði við
HSBC-bankann í London að leita
að kjölfestufjárfesti í Landsbank-
anum á grundvelli tiltekinna við-
miðana. Í þessum áfanga var eink-
um leitað að erlendu fjármála-
fyrirtæki sem áhuga hefði á að
gerast kjölfestufjárfestir í Lands-
bankanum. Sú leit bar ekki árang-
ur og því var í desember 2001 til-
kynnt um frestun á sölukynningu
til kjölfestufjárfestis í bankanum.
Að mati sérfræðinga hafa mark-
aðsaðstæður erlendis ekki breyst
frá þeim tíma.
Eignarhlutur ríkisins í bönkun-
um tveimur hefur lækkað í mark-
vissum skrefum að undanförnu,
nú síðast með sameiningu Búnað-
arbankans og Gildingar hf. og sölu
á 20% hlut í Landsbankanum í
gegnum viðskiptakerfi Verðbréfa-
þings Íslands. Eignarhlutur ríkis-
ins í Búnaðarbankanum er nú um
55% en í Landsbankanum rúm
48%.
Unnið hefur verið að því að
selja það sem ríkið á eftir í Lands-
bankanum og Búnaðarbankanum
um viðskiptakerfi Kauphallar Ís-
lands. Jafnframt hefur þeirri leið
verið haldið opinni í báðum bönk-
unum að selja umtalsverðan hlut
til eins aðila eða kjölfestufjárfest-
is, hvorutveggja með það að
markmiði að hagsmunir bankans,
starfsmanna hans og viðskipta-
manna verði sem best tryggðir.
Framkvæmdanefnd um einka-
væðingu hefur svo sem kunnugt
er borist bréf frá Björgólfi Thor
Björgólfssyni, Magnúsi Þor-
steinssyni og Björgólfi Guð-
mundssyni, þar sem óskað er eftir
viðræðum við ríkissjóð um kaup á
umtalsverðum hlut þess í Lands-
banka Íslands hf. Um formlegt
kauptilboð af þeirra hálfu er ekki
að ræða.
Ráðherranefnd um einkavæð-
ingu hefur ákveðið að fela fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu
að taka upp könnunarviðræður
við þremenningana um hugmynd-
ir þeirra í framangreindu efni.
Í beinum viðræðum við fjár-
festa um kaup á eignarhlut rík-
isins í bönkunum verður að gæta
að jafnræði aðila. Slíkar viðræður
verða því ekki teknar upp án þess
að öðrum fjárfestum verði jafn-
framt gefinn kostur á þátttöku í
þess háttar ferli. Þetta hefur þre-
menningunum verið kynnt með
bréfi framkvæmdanefndar um
einkavæðingu í dag. Því hefur ver-
ið ákveðið að birta auglýsingu þar
sem öðrum sem áhuga kynnu að
hafa á kaupum verður gefinn
kostur á að gefa slíkt til kynna
innan tiltekins tíma.
Með því að taka upp könnunar-
viðræður við ofangreinda aðila er
ríkisstjórnin að framfylgja þeirri
stefnu að leita að kjölfestufjár-
festum í bönkunum, það er fjár-
festum sem vilja eiga umtalsverð-
an hlut í bönkunum til lengri tíma
og hafa möguleika á að veita bönk-
unum framtíðar sóknarfæri og
góða arðsemi.
Reykjavík, 5. júlí 2002.
Framkvæmdanefnd um einka-
væðingu“
Tilkynning einkavæðingarnefndar
um tilboð þremenninganna
Auglýst eftir
áhuga annarra
MARGIR eru á faraldsfæti um
helgina en fyrsta helgin í júlí er ein
af helstu ferðahelgum sumarsins og
fara ýmsar hátíðir fram víða um
landið.
Í Árnesi í Gnúpverjahreppi verð-
ur í þriðja sinn haldin tónlistarhá-
tíðin Undir bláhimni. Að sögn að-
standenda hefst hátíðin um miðjan
dag í dag og stendur fram á rauða-
nótt. Fyrirkomulagið er þannig að
hátíðargestir mæta með eigin hljóð-
færi og svo fer fram samspil, en á
staðnum verða hljómsveitir sem
spila með fólki til að fá grunn að
spilamennskunni. Um kvöldið verða
svo haldnir útgáfutónleikar hljóm-
sveitarinnar South River Band.
Á Höfn í Hornafirði er í níunda
sinn haldin svonefnd Humarhátíð,
en hátíðin hefur með árunum fest
sig vel í sessi og er búist við fjölda
manns á Höfn nú um helgina. Í til-
efni hátíðarinnar mun hafnarsvæð-
ið iða af lífi alla helgina, þar verða
útidansleikir, sölubásar og leiktæki
fyrir börnin. Mikið verður sungið
og spilað og þá fer fram fastur liður
á Humarhátíð, heimsmeistaramótið
í Hornafjarðarmanna.
Harmonikkuhátíð
á Ísafirði
Harmonikkuhátíð er haldin á Ísa-
firði um helgina, en hátíðin er hald-
in á mismunandi stöðum um landið
þriðja hvert ár. 14 af 19 harmon-
ikkufélögum á landinu taka þátt í
hátíðinni, að sögn Ásgeirs S. Sig-
urðsonar, formanns Harmonikku-
félags Vestfjarða. Hann segir að í
gær hafi verið opnað á Ísafirði
harmonikkusafn, og þar fari fram
sýning á merku hljómplötusafni
Sigurjóns Samúelssonar frá
Hrafnabjörgum og kynningar á
hljóðfærum verði haldnar á vegum
hljóðfærainnflytjenda. Tónleikar
og dansleikir og eru haldnir á há-
tíðinni og kl. 17 í dag verða tón-
leikar heiðursgesta hennar, þeirra
Anniku Anderson og Lars Carlsson
frá Svíþjóð. Í kvöld verður svo stór-
dansleikur í íþróttahúsinu á Ísa-
firði. Að sögn Ásgeirs er gert ráð
fyrir að á bilinu 600 til 800 gestir
verði á hátíðinni um helgina.
Á Ólafsvík fara fram færeyskir
dagar, fimmta árið í röð. Þorgrím-
ur Ólafsson, einn skipuleggjenda
daganna, segir að margt sé að ger-
ast í tengslum við hátíðina, haldinn
verði markaður með yfir 40 sölu-
básum, boðið upp á leiktæki fyrir
börn, Ómar Ragnarsson muni
skemmta, sterkustu menn landsins
sýna kraftlyftingar, danshópur frá
Borgarnesi, Akranesi og Hvanneyri
sýna þjóðdansa, og færeyskur
kántrísöngvari muni troða upp. Há-
punktur hátíðarinnar verði ball á
laugardagskvöldið þar sem fær-
eysk hljómsveit mun leika fyrir
dansi. Segir Þorgrímur að búist sé
við 7 til 8 þúsund manns til Ólafs-
víkur á hátíðina, aðgangur sé
ókeypis, nema á dansleikinn á laug-
ardaginn, og einnig sé frítt á tjald-
stæði bæjarins.
Fjölgar um 3.000 manns
á Akureyri um helgina
Á Akureyri fer fram Esso-mót í
knattspyrnu fyrir 5. flokk drengja
en mótinu, sem hófst á miðvikudag,
lýkur í kvöld. Það er íþróttafélag
KA sem skipuleggur drengjamótið.
Að sögn aðstandenda mótsins taka
um 1.200 drengir þátt í því og má
gera ráð fyrir að í bænum fjölgi um
3 þúsund manns um helgina vegna
mótsins. Samhliða drengjamótinu
stendur Þór á Akureyri fyrir knatt-
spyrnumóti fyrir fullorðna, svo-
nefndu Pollamóti, um helgina.
Fyrir utan skipulagðar hátíðir
víða um land halda margir í ferða-
lög á eigin vegum. Ferðafélag Ís-
lands bendir ferðalöngum á að í
Langadal í Þórsmörk verði fjöl-
skylduhelgi um þessa helgi og þeir
einir eigi þangað erindi sem hafi
hugsað sér að eiga notalega helgi
með gönguferðum og hollri útiveru
í faðmi fjölskyldunnar. Þá hóf
Slysavarnarfélagið Landsbjörg í
gær harðari áróðursherferð í um-
ferðaröryggismálum, í blöðum og
útvarpi, en félagið hefur hingað til
staðið fyrir. Í tilkynningu frá félag-
inu segir að markmið herferðar-
innar sé að vekja ökumenn til um-
hugsunar, nú þegar mestu ferða-
helgar ársins eru að hefjast. Ekki
síst á að reyna að ná til þeirra öku-
manna sem ekki hafa lent í óhöpp-
um og telja sig vera hina „ósnert-
anlegu“ í umferðinni. Félagið geri
sér grein fyrir því að herferðin
kunni að koma illa við þá sem lent
hafa í umferðarslysum eða misst
nákomna í slíkum slysum en félagið
telur tilganginn helga meðalið og
vonast til að herferðin verði til þess
að umferðarslysum fækki.
Herferðin stendur fram yfir
verslunarmannahelgi og er unnin í
samstarfi við Tryggingamiðstöð-
ina, Olís og fleiri.
Hin tryggingarfélögin, Sjóvá-
Almennar og VÍS, standa einnig að
umferðarátaki þessa dagana.
Margar hátíðir haldnar
víða um land um helgina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þetta hjólreiðafólk var að búa sig undir ferðalag helgarinnar.