Morgunblaðið - 06.07.2002, Blaðsíða 17
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 17
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
N
M
0
6
8
0
3
•
s
ia
.i
s
Öflugra dreifikerfi
Sekúndumæling
Persónuleg rá›gjöf og fljónusta
fijónustuver 800 7000 – opi› allan sólarhringinn
Hagstæ›ir grei›sluskilmálar
NOKIA 3310
tilboðsverð:
15.001 kr.
Léttkaup
1.250 kr. á mánu›i í 12 mánu›i
1 kr. út
Kaupir flú gsm-síma
fær›u veglega gjöf í kaupbæti.
Ekkert
stofngjald
í GSM fram á sunnudag.
fiú átt leikinn
Glæsileg tilbo›
í verslunum Símans
Tilbo›in gilda fram á sunnudag
og á me›an birg›ir endast.
BERGLIND Hafsteinsdóttir á Sel-
fossi er nýútskrifaður sjóntækja-
fræðingur frá Randers Tekniske
Skole í Danmörku. Hún fór nýja og
sjálfstæða leið ásamt skólasystur
sinni, Susanne Enemark, og skrifaði
lokaritgerð um gerviauga og virkni
þess. Þær stölur hlutu hæstu ein-
kunn sem gefin hefur verið við skól-
ann fyrir lokaritgerð, einkunnina
13 fyrir mjög sjálfstæða vinnu og
góða ástundun. Notaður er annar
einkunnaskalli og er 13 hæsta ein-
kunn og mjög sjaldan notuð.
Ritgerðin ber heitið: „Það sem
sjóntækjafræðingar ættu að vita um
gerviauga.“ Ritgerðin var að því
leyti sérstök að ekki hafði áður ver-
ið skrifað um þetta efni og ekki
heldur verið kennt um það í skól-
anum. „Það má segja að við höfum
farið inn á nýja braut í þessari rit-
gerð. Það var mikið til af efni um
þetta viðfangsefni okkar en því
hafði hvergi verið þjappað saman í
handbók en ritgerð okkar er hand-
bók um gerviauga,“ sagði Berglind.
Ritgerðin er nú notuð sem kennslu-
gagn við skólann.
Bergling var fjögur og hálft ár í
sjóntækjafræðináminu í Danmörku
en námið er að hálfu bóklegt og
hálfuverklegt. Þar sem hún var
flokkuð sem útlendingur í Dan-
mörku reyndist erfitt að fá vinnu og
lengdist því dvölin ytra vegna þess.
Susanna, skólasystir Berglindar, er
finnsk að uppruna en hefur búið í
Svíþjóð og það var eins með hennar
aðstæður, hún átti erfitt með að fá
vinnu. Hún er lærður tannsmiður en
fékk bor í augað, missti það og fékk
gerviauga í staðinn.
Þær stöllur nýttu sér því persónu-
lega reynslu Súsönnu við ritgerð-
arsmíðina en hún lenti meðal ann-
ars í því að fá ekki þjónustu hjá
sjóntækjafræðingi við að taka úr
sér gerviaugað og setja það í aftur
og það var helsta kveikja Súsönnu
að því að ráðast í ritgerðina með
Berglindi. Ritgerðin er mynd-
skreytt og sýna myndirnar meðal
annars aðferðir við að taka gervi-
auga úr og setja í aftur og það var
að sjálfsögðu gerviaugað hennar
Súsönnu sem var notað.
„Við brutum í raun allar hefðir
með ritgerðinni, að taka ekki efni
sem var kennt við skólann og svo
fórum við nýjar leiðir til dæmis með
því að skila ritgerðinni á geisladiski
með hreyfimyndum. Kennararnir
höfðu á orði að þeir hefðu farið á
fyrirlesturinn og lært heilmikið á
þeim hálftíma sem það tók okkur að
fara yfir efnið. Við sendum síðan
ritgerðina í samkeppni hjá glerfyr-
irtæki en það geta þeir gert sem fá
yfir 9 í einkunn. Við fengum þriðju
verðlaun fyrir ritgerðina en fyr-
irtækið verðlaunaði tvær ritgerðir,
okkar ritgerð og aðra sem fékk 2.
verðlaun en engin 1. verðlaun voru
veitt en það tengist mati fyrirtæk-
isins á efninu.“
Svo skemmtilega vildi til að
vinnufélagi Berglindar í Danmörku
fékk 2. verðlaunin og varð vinnu-
veitandi þeirra að vonum mjög
glaður og stoltur og fólk í Randers
gerði sér ferð í sjóntækjaverslunina
til þess að heilsa upp á þær stöllur
og óska þeim til hamingju með
verðlaunin en sagt var frá verð-
launaveitingunni í blöðum þar.
„Ég vona svo sannarlega að þessi
reynsla frá ritgerðarsmíðinni muni
nýtast mér í starfinu, maður veit
aldrei hvað getur komið upp. Starf-
ið gengur út á það að þjónusta fólk
og það geta komið viðskiptavinir
sem fengið hafa gerviauga, eru í
þann mund að fá slíkt, nú eða að
einhver úr fjölskyldunni á von á að
fá gerviauga. Þá er gott að geta
orðið að liði og hafa þessa reynslu
og kunnáttu,“ sagði Berglind.
Berglind kom heim frá námi í
byrjun júní og vinnur nú í Gler-
augnaversluninni í Mjódd og líkar
vel að vera komin heim og byrjuð að
vinna í faginu. „Ég hef gaman af því
að vinna með höndunum og svo var
þetta spennandi fag. Ég er alin upp
við verslun, hjá móður minni í versl-
uninni Lindinni á Selfossi. Mér
fannst svolítið spennandi að læra
þetta og kanna möguleikana sem
væru í kringum svona starfsemi.
Svo gengur þetta út á samskipti við
fólk og að geta hjálpað fólki því það
eru allir ósjálfbjarga ef eitthvað er
að sjóninni eða ef gleraugun eru í
ólagi,“ sagði Berglind Hafsteins-
dóttir.
Fékk hæstu ein-
kunn fyrir ritgerð
um gerviauga
Selfoss
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Berglind Hafsteinsdóttir, nýút-
skrifaður sjóntækjafræðingur.
BLÓMABÍLTÚRINN eða sunnu-
dagsbíltúr í blómlegar byggðir er
heiti á verkefni sem Blómaval og
Blómakaffi í Húsasmiðjunni á Sel-
fossi eru að hleypa af stokkunum og
standa mun yfir í sumar.
„Fólk verður boðið velkomið með
alls kyns uppákomum, næstkomandi
sunnudag fá konurnar til dæmis af-
henta rauða rós, körlunum verður
boðið upp á kaffi og börnin fá ís,“
sagði Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir í
Blómakaffi.
Snorri Sigurfinnsson, verslunar-
stjóri í Blómavali sagði mikið að gera
í kringum blómin og það sem þyrfti í
garðinn og það sannaðist að það væri
endalaust hægt að bæta umhverfið.
„Ætli páfagaukarnir verði ekki með
samsöng og einsöng hérna hjá okkur
og auðvitað verðum við með alls kon-
ar tilboð í kringum blómin. Það
verða blóm og kræsingar hérna hjá
okkur um helgar í sumar. Við erum
að virkja sunnudagsbíltúrinn hjá
fólki,“ sagði Snorri.
Konur fá
rós og karl-
ar kaffi
Selfoss
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Snorri Sigurfinnsson, verslun-
arstjóri í Blómavali, og Lóa
Dagbjört í Blómakaffi á Selfossi.