Morgunblaðið - 06.07.2002, Page 43
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 43
ÞRÁTT fyrir mikinn fjölda gesta á
Landsmóti hestamanna á Vind-
heimamelum hefur það farið vel
fram, að sögn Hilmars Frímanns-
sonar, yfirmanns gæslu á svæðinu.
Hann sagði að þrátt fyrir að fólk
hefði verið farið að skemmta sér
svolítið á fimmtudagskvöldið hefðu
engin vandræði orðið. Einhverjir
kvörtuðu þó yfir hávaða á tjald-
stæðinu í fyrrinótt, en fólkið hafði
tjaldað á „órólega“ tjaldstæðinu. Í
gær hafði gestum fjölgað mikið og
voru þeir orðnir hátt í 6.000. Í gær-
kvöldi voru 37 björgunarsveita-
menn á vakt en um helgina, þegar
búist er við mestum mannfjölda,
verða þeir um 50.
Dagskrá fór verulega úr skorðum
í gær og byrjaði það með því að taf-
ir urðu í milliriðli í A-flokki gæð-
inga. Dagskráin er mjög þétt og var
aðeins gert eitt hlé frá klukkan átta
um morguninn og þar til dag-
skránni lauk. Þá fór keppni fram á
tveimur völlum í einu frá kl. níu um
morguninn til hádegis. Fyrstu þrjá
dagana skiptust greinarnar á þrjá
velli og er því ljóst að þeir sem vilja
fylgjast vel með þurfa að leggja
mikið á sig en geta samt ekki fylgst
með öllu eins og skipulagi móta sem
þessara er háttað nú.
Í dag verður yfirlitssýning bestu
hrossa í hverjum flokki og hefst hún
kl. 8.30 með sýningu á fimm vetra
stóðhestum. Inn á milli verða B-úr-
slit í B-flokki gæðinga kl. 13.15–
13.45 og A-flokki kl. 15–15.30.
Kvölddagskrá hefst kl. 20 með hóp-
reið hestamannafélaga sem Anna
Bretaprinsessa, herra Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands, Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra,
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra, Árni M. Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra og Tómas Ingi
Olrich menntamálaráðherra taka
þátt í. Gert er ráð fyrir að Anna
Bretaprinsessa fylgist með dagskrá
mótsins síðdegis.
Dagskránni lýkur á dansleik með
hljómsveitinni Pöpum.
Veðrið í gær var ágætt en aðeins
byrjaði að blása á mótsgesti þegar
líða tók á daginn. Í dag er spáð
norðaustan 3–8 metrum á sekúndu,
skýjuðu með köflum og þokulofti á
annesjum. Hiti verður 8 til 15 stig,
hlýjast inn til landsins.
Morgunblaðið/Þorkell
Yfir 6 þúsund manns voru mættir á Landsmót hestamanna á Vindheimamelum í gær.
Löng seta yfir
þéttri dagskrá
landsmótsins
MILLIRIÐILL í B-flokki bauð upp
á spennu og sviptingar þar sem Sig-
urður Sigurðarson reið Bruna frá
Hafsteinsstöðum af miklum krafti í
fyrsta sætið og hlutu þeir 8,72.
Kjarkur frá Egilsstöðum og Sigurð-
ur Matthíasson komu þar næstir
með 8,68. Dynur frá Hvammi og
Þórður Þórðarson voru ekki langt
undan með 8,63 og þótti mörgum
naumt gefið og lét brekkan vel í sér
heyra bæði eftir að Þórður og Dynur
höfðu lokið keppni og eins eftir að
dómarar höfðu gefið upp einkunnir
og mátti á brekkunni skilja að þar
hefði mátt leggja meira í. Markús frá
Langholtsparti og Sigurbjörn Bárð-
arson höfnuðu í fjórða sæti. Vignir
Jónasson og Sólon frá Stykkishólmi
eru í fimmta sæti með 8,56, jafnir
Hreimi frá Hofsstöðum og Guðmari
Þór Péturssyni. Krummi frá Geld-
ingalæk og Jón Olsen tryggðu sér
naumlega sjöunda sætið og þar með
tryggt A-úrslitasæti með 8,48.
Í B-úrslit sem fara fram í dag
klukkan 13.15 mæta:
Dimmbrá frá Sauðárkróki
og Bergur Gunnarsson, 8,47
Skundi frá Krithóli
og Sigurður Sigurðarson, 8,47
Kormákur frá Kvíarhóli
og Vignir Siggeirsson, 8,47
Sveinn Hervar frá Þúfu
og Atli Guðmundsson, 8,46
Silfurtoppur frá Lækjamóti
og Sölvi Sigurðarson, 8,44
Drottning frá Efri-Rauðalæk
og Baldvin Ari Guðlaugsson, 8,42
Oddur frá Blönduósi
og Sigurbjörn Bárðarson, 8,41
Röst frá Voðmúlastöðum
og Páll Bragi Hólmarsson, 8,40
Margar góðar sýningar gat að líta
í milliriðli B-flokks en sömuleiðis
voru gerð mörg mistök og greinilegt
að spennan setti sitt mark á sumar
sýninganna. Voru hestar að fara á
kýrstökki sem sumir knapanna
skynjuðu og leiðréttu og aðrir ekki.
Dómarar þykja nokkuð sparir á
hærri tölurnar og ekki sé gerður
nógur greinarmunur á því sem er
mjög gott og því sem síðra er. Í úr-
slitum verður aðeins riðið á hægu,
tölti, brokki og greiðu tölti en einnig
var riðið fet og stökk í milliriðli.
Morgunblaðið/Vakri
Sigurður Sigurðarson var með
kröftuga sýningu á Bruna frá
Hafsteinsstöðum sem gaf þeim
efsta sætið.
Milliriðill í
B-flokki gæðinga
Bruni og Sig-
urður á topp-
inn eftir
kraftmikla
sýningu
LOGI Laxdal og Adam frá Ásmund-
arstöðum láta engan bilbug á sér
finna og mættu þeir ákveðnir til
leiks í milliriðlinum með afar góða
sýningu og náðu toppsætinu af Sól-
dögg frá Hvoli og Þorvaldi Þorvalds-
syni. Stefnir nú í hörkukeppni milli
þessara tveggja para en Logi og
Adam fengu 8,72 í einkunn og Sól-
dögg og Þorvaldur 8,66.
En Logi lét ekki þar við sitja því
hann reið Kjarki frá Ásmúla í þriðja
sætið og geta menn nú velt fyrir sér
hvaða knapi fær þann heiður að
hlaupa í skarðið fyrir hann á sunnu-
dag. Olil Amble var einnig með
kraftmikla sýningu á Loga frá
Brennihóli, svo kraftmikla að við lá
um tíma að Logi tæki völdin og
stykki með hana út úr braut. Með
kröftum og smáheppni tókst henni
þó að afstýra því og enduðu þau sýn-
inguna með mjög góðum skeið-
spretti sem tryggði þeim fjórða sæt-
ið og hver veit nema þau blandi sér í
baráttuna um toppsætið.
Páll Bjarki Pálsson stýrði Sif frá
Flugumýri í fimmta sætið með 8,58
og Sigurbjörn Bárðarson og Huginn
frá Haga fylgdu á hæla þeirra með
8,57. Síðust til að tryggja sér öruggt
sæti í A-úrslitum voru Christine
Lund og Fjalar frá Glóru, einnig
með 8,57. Í B-úrslit fara Leikur frá
Sigmundarstöðum og Reynir Aðal-
steinsson með 8,54, Bylur frá Skán-
ey og Sigurbjörn Bárðarson með
8,53, Þytur frá Kálfhóli og Elsa
Magnúsdóttir með 8,53, Fálki frá
Sauðárkróki og Sigurður V.
Matthíasson með 8,51, Stjarni frá
Búlandi og Trausti Þór Guðmunds-
son með 8,49, Geysir frá Gerðum og
Björg Ólafsdóttir með 8,48, Þór frá
Prestbakka og Þorvaldur Árni Þor-
valdsson með 8,47 og Vikar frá
Torfastöðum og Tómas Ragnarsson
með 8,42.
Lánið lék ekki við þá félaga Ridd-
ara frá Fyrirbarði og Viðar Ingólfs-
son því að Riddari missti framfót-
anna undir lok skeiðsprettsins. Var
þetta sárgrætilegt fyrir þá þar sem
þeir voru að því er virtist svo gott
sem búnir að tryggja sér sæti í B-
úrslitum, ef ekki A-úrslitum. Virtist
sem Riddari hefði hreinlega misst
framfæturna undan sér á feikna-
hröðum spretti og rann hann á
hnjánum eina ellefu metra. Skrap-
aðist skinnið af hnjám hans en hann
var þó óhaltur eftir byltuna og síðar
var tilkynnt að hann væri ekki alvar-
lega slasaður. Viðar slapp að því er
virtist ómeiddur úr byltunni. Nokkr-
ar tafir urðu af þessum sökum og
einnig tveimur dómarafundum þar
sem að öðrum þeirra loknum var
Vikari og Tómasi Ragnarssyni vikið
úr keppni fyrir að ljúka ekki keppni
á réttum stað en síðar var það dregið
til baka og honum gefin einkunn sem
dugði í B-úrslit. Milliriðillinn var
mjög spennandi og má búast við
spennandi keppni í dag þegar B-úr-
slit hefjast klukkan 15.
Morgunblaðið/Vakri
Logi Laxdal á Adam frá Ás-
mundarstöðum náði forystu í
milliriðli A-flokks í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
Viðar Ingólfsson féll af baki og hugar að meiðslum Riddara um leið og
hann jafnar sig eftir byltuna.
Jöfn keppni í milliriðli í A-flokki gæðinga
Stefnir í einvígi milli Adams
og Sóldaggar í úrslitum