Morgunblaðið - 16.07.2002, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 16.07.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 11 ÍSLANDSPÓSTUR hefur á undan- förnum fjórum árum fækkað póst- húsum um fjögur auk þess sem tekið hefur verið upp samstarf við spari- sjóði, banka og verslanir um rekstur 29 pósthúsa víðsvegar um landið. Að sögn Harðar Jónssonar, fram- kvæmdastjóra pósthúsasviðs Ís- landspósts, hefur hið breytta rekstr- arfyrirkomlag gengið vel fyrir sig og ráðgert er að fleiri slíkir samstarfs- samningar verði gerðir um rekstur annarra pósthúsa. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra segist aðspurður hafa fylgst náið með endurskipulagningu Ís- landspósts, sem hafi verið óhjá- kvæmileg að hans mati, og að ekki yrði dregið úr þjónustu við viðskipta- vini. Hinn 8. júlí síðastliðinn var póst- húsi Íslandspósts á Hofsvallagötu lokað og það sameinað pósthúsinu við Eiðistorg á Seltjarnarnesi. Hörður Jónsson hjá Íslandspósti segir að um sé að ræða viðbrögð við breyttu þjón- ustumynstri. Pósturinn sé í auknum mæli farinn að keyra út sendingar til viðskiptavina í stað þess að þeir komi á pósthúsin og sæki sendingar eins og tíðkaðist áður. Hann nefnir að pósthúsin, líkt og bankastofnanir, hafi fundið fyrir aukinni notkun heimabanka og bendir á að móttaka greiðsluseðla hafi minnkað um 30– 40% árlega. „Á heildina litið er fjöldi viðskipta- vina sem kemur á pósthúsin um það bil helmingi minni en hann var fyrir 2–3 árum,“ segir Hörður. Hann bend- ir á, eins og fram hefur komið, að rekstur Íslandspósts sé í járnum og nauðsynlegt sé að sporna við þeirri þróun. Hann segir að þegar farið hafi ver- ið yfir uppbyggingu á þjónustukerf- um Íslandspósts á höfuðborgarsvæð- inu hafi komið í ljós að þéttleiki pósthúsa var mestur vestur í bæ. Nærtækast hafi verið að loka póst- húsinu við Hofsvallagötu sem út frá svæðinu í heild sé ekki eins vel stað- sett og pósthúsið við Eiðistorg. Þrír starfsmenn unnu í útibúinu og var gerður starfslokasamningur við tvo þeirra en einn starfsmaður fluttur yf- ir á Eiðistorg. Hörður bendir á að heildarafgreiðslutími pósthússins hafi að sama skapi verið lengdur en framvegis verður opið milli 9 og 18 á Seltjarnarnesi. Um 100 starfslokasamningar gerðir frá árinu 1998 Hjá Íslandspósti starfa um 1.500 manns í 83 útibúum víðsvegar um landið, þar af 7–800 á höfuðborgar- svæðinu. Árið 1997 voru útibúin 87, að sögn Harðar, en á undanförnum fjórum árum hefur þeim verið fækk- að um fjögur og hafa útibú í Kringl- unni, við Kleppsveg, á Fagurhóls- mýri í Öræfum og nú síðast við Hofsvallagötu í Vesturbænum verið lögð niður. Á sama tíma hafa 29 útibú Íslands- pósts víðsvegar um landið hafið sam- starf við aðra aðila, í flestum tilfellum sparisjóði eða banka, en einnig versl- anir þar sem viðkomandi aðili sér um rekstur póstþjónustunnar sem verk- taki hjá Íslandspósti. Hinn 1. júní sl. var útibú Íslands- pósts í Mjóddinni flutt yfir í verslun Nettó í Mjódd. Hörður segir að starfsfólk Íslands- pósts muni tímabundið starfa í nýja útibúinu en líkt og annars staðar þar sem gerðir hafi verið samstarfssamn- ingar muni Nettó að lokum sjá um póstþjónustu í versluninni. Engum starfsmanni Íslandspósts var sagt upp vegna flutnings útibúsins og nefnir Hörður að ekki sé óalgengt að starfsmenn fari yfir til samstarfsaðil- ans með slíku samstarfi. Komið hefur til uppsagna starfsfólks á liðnum ár- um og algengast er að gerðir séu starfslokasamningar en um 100 slíkir hafa verið gerðir frá árinu 1998. Að sögn Harðar hafa starfsmenn sem hófu störf fyrir 1997 og unnið hafa lengur en 15 ár hjá fyrirtækinu áunn- ið sér rétt til biðlauna sem miðast við 12 mánuði og 6 mánuði hjá þeim sem unnið hafa skemur en 15 ár. Meiri- hluti starfsfólks Íslandspósts sem gerður hefur verið starfslokasamn- ingur við hóf störf fyrir 1997 en hjá öðrum er miðað við þriggja mánaða uppsagnarfrest. Hörður bendir á að Íslandspóstur starfræki póstþjónustu á nærri öllum byggðum bólum landsins og mjög dýrt sé að halda þeirri þjónustu úti. Með hagræðingaraðgerðum einsetji Íslandspóstur sér því að tryggja sömu þjónustu og áður með minni til- kostnaði. Hann nefnir að meginþorri viðskiptavina Íslandspósts sé ánægð- ur með breyttar áherslur en segist skilja að sá hópur sem enn sæki póst- húsin að staðaldri sé óánægður með lokun þeirra. Hann bendir á að þróunin hafi ver- ið á svipaðan veg í nágrannalöndun- um þar sem pósthús séu í auknum mæli komin í samstarf við verslanir. Áhersla lögð á að þjónustan verði áfram tryggð Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra segist hafa fylgst náið með end- urskipulagningu Íslandspósts sem sé óhjákvæmileg. Hann segir að þótt það hafi verið umdeilt hafi fyrirtækið reynt að standa þannig að breyting- unum að þjónustan væri áfram til staðar og fullnægði þeim kröfum sem gerðar eru til hennar. „Ég tel að samstarf, eins og við bankana, sparisjóði og önnur fyrir- tæki, sé af hinu góða þar sem hægt er að koma því við þannig að þjónustan sé fullnægjandi eftir sem áður,“ segir Sturla. Ráðherra segist hafa lagt ríka áherslu á að Póst- og fjarskiptastofn- un, sem gert hefur úttekt á breyt- ingum hjá Íslandspósti, fylgist náið með að ekki sé dregið úr þjónustu við viðskiptavini. Hann bendir á að verið sé að ganga frá reglugerð sem lýtur að póstþjón- ustu í landinu á grundvelli nýrra laga þar um þar sem meðal annars sé kveðið á um þjónustustig í póstþjón- ustu. „Þjónustan hefur verið að aukast, sérstaklega í hinum dreifðari byggð- um þar sem borið er út fimm daga vikunnar en einungis hefur verið borið út þrjá daga vikunnar áður. Þannig að þrátt fyrir allar þessar breytingar hefur póstþjónustan verið að batna þegar á heildina er litið,“ segir Sturla. Aðspurður hvort ríkisstjórnin hafi haft þær hugmyndir að leiðarljósi við einkavæðingu Pósts og síma að útibú- um yrði fækkað og starfslokasamn- ingum fjölgað segir ráðherra að legið hafi ljóst fyrir að verulegar breyting- ar yrðu á fyrirtækinu. Ráðuneytið hafi aftur á móti lagt áherslu á að þjónustan yrði tryggð og faglega yrði fram gengið gagnvart starfsfólki. Íslandspóstur stefnir að auknu samstarfi við sparisjóði, banka og verslanir um rekstur pósthúsa Viðskiptavinum pósthúsa hefur fækkað um helming á 2–3 árum Morgunblaðið/Arnaldur Þann 1. júní síðastliðinn flutti útibú Íslandspósts í Mjódd starfsemi sína í verslun Nettó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.