Morgunblaðið - 16.07.2002, Page 12

Morgunblaðið - 16.07.2002, Page 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ú T S A L A 15-70% afsláttur Stærðir 36–54 (S-3XL) Opið virka daga frá kl. 10-18, lokað á laugardögum í sumar Sími 567 3718 SKIPULAGS- og byggingarnefnd Reykjavíkur hefur samþykkt for- sögn að nýju hesthúsahverfi á Hólmsheiði fyrir hestamannafélagið Fák. Er gert ráð fyrir að þar verði framtíðarathafnasvæði hestamanna í Reykjavík til viðbótar við núver- andi aðstöðu í Víðidal. Svæðið afmarkast af núverandi hesthúsabyggð í Fjárborgum í austri og af reiðleið við hitaveitulögn í norðri. Vestur af svæðinu er Rauðavatnsskógur og suður af því er Suðurlandsvegur. Um mitt svæðið liggur Almannadalur frá undirgöng- um við Suðurlandsveg til norðurs upp á austurheiðar. Segir í forsögninni að um sé að ræða 66 hektara lands, sem sé álíka stórt og allt athafnasvæði hesta- manna í Víðidal. Uppbygging svæð- isins á að verða í nokkrum áföngum frá austri til vesturs, frá hesthúsa- byggð í Fjárborgum í átt að skóg- ræktarsvæðinu við Rauðavatn. Skipulagið á að miða að því að svæðið skiptist í tvö hverfi og verður fyrri áfangi svæðisins útbygging á Fjárborgarsvæðinu en byggðin á að þróast til vesturs að Almannadal. Nokkrum metrum þar fyrir ofan er síðan flati þar sem gera á ráð fyrir sameiginlegu vallarsvæði og reið- skemmu. Annar áfangi svæðisins verður uppbygging á svæðinu utan um Trippadal þar sem sömuleiðis er gert ráð fyrir sameiginlegu svæði. Dempað litaval og góðar kaffistofur Í forsögninni eru einnig nánari lýsingar á því sem hafa ber í huga við gerð skipulagsins. Gert er ráð fyrir hesthúsalengjum, með góðri kaffiaðstöðu fyrir hverja einingu. Kemur fram að mikið hlöðupláss þyki ekki lengur mikilvægt þar sem hey er afgreitt eftir pöntun og ekki þarf að taka inn birgðir fyrir allan veturinn. Þá segir að minnstu húsa- lengjurnar yrðu fyrir 6–8 hesta en sömuleiðis yrðu millistærðir fyrir 12–20 hross og mest 30–40 hross í húsi. Þá kemur fram að litaval á hús- um þurfi að vera dempað þannig að þau falli vel inn í landið. Þá segir að hestalóðum þurfi að fylgja „skapleg stærð af gerði sem hesthúsaeigendur skipti með sér eða eigi óskipt“. Þá sé nauðsynlegt að gera ráð fyrir sameiginlegu beitar- hólfi í byggðinni eða næsta ná- grenni. Í forsögninni er einnig tekið á snjósöfnun sem er mikil í Al- mannadal og er lagt til að trjágróð- ur, sem fellur til á svæðinu, verði nýttur markvisst sem skjólbelti um- hverfis hesthúsabyggðina til að stöðva snjó. Þá er talið nauðsynlegt að „hífa helstu reiðleiðir upp á brún- irnar fremur en að láta þær liggja í lægðunum“, eins og segir í forsögn- inni. Hestamenn og fjárbændur með sameiginlega aðstöðu Þar kemur einnig fram að á svæð- inu þurfi að gera ráð fyrir lítilli reið- skemmu til æfinga og sömuleiðis nokkrum hringgerðum og minnst tveimur tamningagerðum. Gert er ráð fyrir félagsheimili í tengslum við reiðskemmuna. Reiknað er með tveimur völlum, gæðinga- og íþrótta- velli, því gera má ráð fyrir að innan- félagsmót verði haldin á svæðinu. Fjáreigendafélagið er fyrir á svæðinu en það var í upphafi hópur sauðfjárbænda sem hélt sauðfé í Fjárborgum. Í dag eru flest húsin orðin að hesthúsum. Í skipulagi svæðisins er áfram gert ráð fyrir að félagið verði aðgreint frá Fáki, sem nokkurs konar húsfélag, en að öll að- staða verði sameiginleg og þar verði eitt hestamannafélag. Í forsögninni er gert ráð fyrir að akfært verði upp að húsunum, bæði með hey og aðrar nauðsynjar, og verður skoðað nánar hvort gera eigi ráð fyrir bílastæðum við húsin. Að sama skapi er stefnt að sem mestri aðgreiningu á akandi og ríðandi um- ferð, auk þess sem gert er ráð fyrir strætisvagnaumferð um svæðið í framtíðinni. Nýtt hesthúsa- hverfi Fáks rísi á Hólmsheiði Hólmsheiði                 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir forsögn að nýju hesthúsahverfi NÁTTÚRUVERND ríkisins hefur farið fram á það við borgaryfirvöld að lúpína verði slegin og upprætt í náttúruvættinu á Laugarási. Segir í bréfi sviðsstjóra Náttúruverndar til umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur að lúpínan hylji frið- aðar jökulminjar sem þar eru. Í bréfinu segir ennfremur að far- ið sé fram á þetta til að vernda þann gróður sem hefur einkennt svæðið sem og jarðfræðilega ásýnd þess. „Einn megintilgangur friðlýsingar Laugaráss var að vernda minjar eft- ir ísaldarjökul, svokallaðar jökul- rispur. Það er ekki gert með því að hylja svæðið með hávöxnum gróðri og gerir svæðið ekki eins aðlaðandi, t.d. til kennslu,“ segir í bréfinu. Er að breyta ásýnd Rauðhóla Þá er farið fram á að lúpína verði einnig slegin í fólkvanginum Rauð- hólum en í bréfinu segir að þar sé hún að breiðast út og breyta ásýnd svæðisins. Er á það bent að Rauð- hólar séu fyrst og fremst verndaðir vegna þeirrar jarðfræði sem ein- kennir þá. Bréfið var tekið fyrir á fundi um- hverfis- og heilbrigðisnefndar í síð- ustu viku þar sem ákveðið var að vísa því til Umhverfis- og heilbrigð- isstofu. Þá lögðu fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins fram þá tillögu að kannað yrði hvort ekki væri ástæða til að uppræta lúpínu á fleiri stöðum í Reykjavík, svo sem í Öskjuhlíð, „Litlu-Öskjuhlíð“, Elliðaárdal og ef til vill víðar. Tillögunni var vísað til umsagnar Umhverfis- og heilbrigð- isstofu. Hylur friðaðar jökul- minjar Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson Náttúruvernd ríkisins vill að lúpína verði slegin og upprætt Laugarás BORGARRÁÐ hafnaði á fundi sínum í síðustu viku beiðni Kolaportsins - Markaðstorgs ehf. um 5. m.kr. rekstr- arstyrk til að greiða niður vanskil vegna húsaleigu. Borgarráð fól Aflvaka hf. að gera úttekt á félaginu vegna styrkumsókn- arinnar. Samkvæmt ársreikningi fyr- ir árið 2000 námu skuldir félagsins 57 milljónum króna í árslok. Ársreikn- ingur fyrir 2001 liggur ekki fyrir. Markaðstorg ehf. leigir húsnæði af Þróunarfélagi miðborgarinnar, sem aftur leigir húsnæðið af fjármálaráðu- neytinu. Samkvæmt samningi Þróun- arfélagsins og fjármálaráðuneytisins er leigusala óheimilt að innheimta hærri leigu af framleigjanda en 11% umfram það sem hann greiðir leigu- sala. Fram kemur í úttekt Aflvaka að Markaðstorg ehf. greiði nú 15,2% hærra verð en Þróunarfélagið greiði fjármálaráðuneytinu. Í úttekt Aflvaka segir að greiðslu- erfiðleikar Markaðstorgsins ehf. séu mjög miklir og að ekki verði séð að 5 milljóna króna styrkur til félagsins skipti sköpum í rekstri þess auk þess sem stefna borgarinnar sé að mis- muna ekki fyrirtækjum með aðgerð- um sem séu markaðstruflandi. Ekki séð að styrkur- inn skipti sköpum Reykjavík Styrkumsókn Kolaportsins hafnað alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.