Morgunblaðið - 16.07.2002, Side 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 23
DÓMSTÓLL í Pakistan dæmdi í
gær hryðjuverkamanninn Sheikh
Omar, sem fæddist í Bretlandi, til
dauða fyrir ránið og morðið á banda-
ríska blaðamanninum Daniel Pearl.
Þrír samverkamenn Omars hlutu
lífstíðarfangelsi. Í dómsúrskurðin-
um sagði að Omar, sem heitir fullu
nafni Ahmed Omar Saeed Sheikh,
skyldi hengdur.
Dómari við pakistanskan hryðju-
verkadómstól, Ashraf Ali Shah, til-
kynnti um úrskurðinn á örstuttum
fréttamannafundi í fangelsi sem var
vandlega gætt af vopnuðum vörðum
í Hyderabad, sem er um 160 km
norðaustur af Karachi, þaðan sem
Pearl hvarf 23. janúar sl. Hann var
blaðamaður Wall Street Journal og
vann að upplýsingaöflun um herskáa
múslíma þegar honum var rænt. Lík
hans hefur ekki fundist en mynd-
band sem sýnir aftöku hans var sent
til bandarískra stjórnarerindreka.
Verjendur sakborninganna til-
kynntu um leið og dómarnir voru
lesnir upp í gær að þeim yrði áfrýjað
og sakamennirnir fjórir gáfu út
harðorðar yfirlýsingar í gegnum lög-
fræðinga sína. Omar hótaði hefndum
gegn pakistönsku ríkisstjórninni.
„Við skulum sjá til hvort okkar deyr
fyrst,“ sagði í yfirlýsingu Omars í
gær, „ég eða stjórnin sem hefur
ákveðið að ég skuli dæmdur til
dauða.“
Gagnrýni á Musharraf
Omar sagði ennfremur: „Stríðið á
milli islams og kafíranna [þeirra sem
ekki eru múslimir] stendur yfir og
það ættu allir að sýna hvort þeir
fylgja islam að málum eða kafírum.“
Verjendur sakborninganna sökuðu
dómstólinn, sem stofnaður var fyrir
fimm árum, um að láta undan þrýst-
ingi pakistanskra stjórnvalda til að
hafa Bandaríkjamenn góða og var
Pervez Musharraf Pakistansforseti
gagnrýndur sérstaklega.
„Musharraf forseti hafði þegar til-
kynnt að hann vænti þess að Omar
hlyti dauðarefsingu,“ sagði Rai
Bashir, sem var verjandi, við frétta-
menn. „Í ljósi slíkrar yfirlýsingar,
var við því að búast að réttlætið
næði fram að ganga?“ Bróðir eins
samverkamanna Omars sagði:
„Þetta var ekki ákvörðun dómarans,
þetta var ákvörðun Pervez Mushar-
rafs og meistara hans í Ameríku.“
Bandaríkjamenn höfðu krafist
þess að Omar yrði framseldur
skömmu eftir að hann var handtek-
inn í febrúar, bæði fyrir morðið á
Pearl og fyrir að ræna bandarískum
ferðamanni á Indlandi 1994. Þrátt
fyrir þrýsting frá bandarískum
stjórnvöldum neitaði pakistanska
stjórnin að framselja Omar áður en
réttað yrði í máli hans í Pakistan.
Þarlendir embættismenn vildu sem
minnst segja um dóminn í gær og
vildu heldur ekki tjá sig um það
hvort þeir væru tilbúnir til frekari
viðræðna um framsalskröfuna.
Verjendur munu áfrýja málinu til
hæstaréttarins í Sindh-héraði í Pak-
istan í dag og hafa heitið því að fara
með málið alla leið fyrir hæstarétt
Pakistans ef nauðsyn krefji. Lög-
spekingar segja að málið kunni að
verða til meðferðar í dómskerfinu í
mörg ár. Flytja átti Omar í dauða-
deild fangelsisins í Hyderabad í
gær, þar sem 75 dauðamenn eru fyr-
ir.
Reuters
Dómarinn í máli Sheikh Omars kom til fangelsisins í Hyderabad í mikilli lögreglufylgd í gær.
Morðingi Pearls
dæmdur til dauða
Sheikh Omar hótar hefndum
Hyderabad í Pakistan. AFP.
CONCORDE-þotu breska flug-
félagsins British Airways á leið frá
London til New York var snúið við í
gær vegna vélarbilunar, að sögn
talsmanns flugfélagsins. Fimmtíu
farþegar voru um borð. Tvö ár eru
liðin síðan Concorde-þota Air
France fórst í flugtaki við París með
113 manns.
Þota British Airways var á um tvö
þúsund km hraða í 58 þúsund feta
hæð yfir Atlantshafi er henni var
snúið við í gær vegna þess að áhöfnin
varð vör við óeðlilegan gang eins af
fjórum hreyflum vélarinnar. Var
slökkt á hreyflinum og vélinni flogið
til baka undir hljóðhraða og lent á
Heathrow-flugvelli.
Talsmaður British Airways sagði
að engin hætta hefði verið á ferðum,
þotan gæti auðveldlega flogið á
þremur hreyflum, þótt hún kæmist
ekki eins hratt þannig. „Þetta var
ekki nauðlending,“ sagði talsmaður-
inn. Þetta er í þriðja sinn sem hreyf-
ilbilunar verður vart í Concorde síð-
an þessar þotur voru aftur teknar í
notkun í nóvember sl. eftir að breyt-
ingar höfðu verið gerðar á þeim í
kjölfar slyssins í París.
Concorde
snúið við
London. AFP.
LÖGMAÐUR bandaríska taliban-
ans Johns Walkers Lindhs sagði
fyrir rétti í gær að skjólstæðingur
sinn hefði ákveðið lýsa sig sekan
um ákæruatriði sem honum hafa
verið borin á brýn. Er þetta í sam-
ræmi við samkomulag sem Lindh
og saksóknarar gerðu með sér um
helgina en í gær átti að taka fyrir
hvort yfirlýsingar, sem Lindh gaf
í yfirheyrslum eftir að hann var
handtekinn í Afganistan, væru
gildar fyrir bandarískum rétti.
Lindh hafði áður lýst sig saklaus-
an.
Lindh játaði að hafa aðstoðað
fyrrum stjórnvöld í Afganistan og
brotið þannig gegn bandarískum
lögum og að í þeirri aðstoð hefði
falist að hann hefði meðhöndlað
sprengiefni. Viðurlög við þessu er
allt að 20 ára fangelsi. Á móti féllu
saksóknarar frá ákæru um að
Lindh hefði átt aðild að samsæri
um að myrða bandaríska ríkis-
borgara, aðstoða hryðjuverka-
samtökin al-Qaeda og talibana í
Afganistan og
beita skotvopn-
um. Viðurlög við
þessum ákæru-
atriðum væru
lífstíðar fang-
elsi.
Lögmenn
Lindhs hafa
ítrekað sagt að
skjólstæðingur
þeirra hafi gengið í raðir talibana
til að berjast gegn Norðurbanda-
laginu í Afganistan en ekki gegn
Bandaríkjamönnum. Lindh tók
múhameðstrú 16 ára gamall og fór
fyrst til Jemen og síðan til Pak-
istan til að læra íslamska trúar-
bragðafræði. Eftir að hann var
handtekinn í Afganistan ásamt
hópi talibana í nóvember sagðist
hann hafa farið til Afganistan í
maí 2001 og hlotið þjálfun í æf-
ingabúðum á vegum al-Qaeda,
hryðjuverkasamtakanna sem
stóðu fyrir árásunum á Bandarík-
in 11. september.
Lindh játar
sig sekan
Lindh