Morgunblaðið - 16.07.2002, Síða 33

Morgunblaðið - 16.07.2002, Síða 33
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 33 Er vi nnin gur í loki nu? fiú sér› strax ÁRNI Gunnar Vig- fússon viðurkennir í grein sinni í Morgun- blaðinu 11. þ.m. að fullyrðingar í viðtali forsvarsmanna Allianz við blaðamann hafi verið rangar. Að sjálf- sögðu bar þeim strax að leiðrétta þessar missagnir og ég tel einnig að Fjármála- eftirlitið hefði átt að gera athugasemdir við fullyrðingarnar. Ég tel rétt að gera tvær athugasemdir við skilgreiningar Árna Gunnars (og þá væntanlega Allianz) á hugtökum. Árni Gunnar skýrir hvað Allianz á við með orðinu loforð í greininni. Hann segir: „Þess vegna treystir fyrirtækið [Allianz] sér til að lofa ákveðnum árangri og gera jafnvel betur en það. Hér verður að hafa hugfast að loforðið tekur til liðins tíma [svo] og næsta tímabils en fyrirtækið áskilur sér rétt til að endurskoða áætlanir sínar eins og fyrr segir með eins til tveggja ára millibili.“ Hvurs lags loforð er þetta! Ég fullyrði að engir nema forsvarsmenn Allianz leggja þennan skilning í hug- takið „loforð“. Hugtakið „ríkis- ábyrgð“ er einnig skilgreint með sér- stæðum hætti. Árni Gunnar segir: „Rétt er að undirstrika að þó að talað hafi verið um „ríkisábyrgð“ að þessu leyti þá felst hún í virku eftirliti með því að laga- ákvæðum sé fylgt fremur en því að um sérstaka ábyrgðaryf- irlýsingu sé að ræða.“ Samkvæmt þessari notkun hugtaksins „ríkisábyrgð“ eru öll trygginga- félög og aðrar fjármálastofnanir á Íslandi með ríkisábyrgð eða hvað? Það verður að gera ríkar kröfur til þeirra sem hyggjast selja líf- og lífeyristryggingar, en þetta eru samningar sem gerðir eru til ára- tuga. Á þeim hvílir sú skylda að gefa réttar upplýsingar og fara rétt með hugtök. Kaupandi trygg- ingarinnar þarf að vita nákvæm- lega hver kjörin eru og hvaða skil- málar gilda um hana. Á þetta leggja góðir líftryggingamenn ríka áherzlu. Loforð hjá Allianz er með endurskoðunarrétti! Bjarni Þórðarson Tryggingar Á þeim, sem selja líf- og lífeyristryggingar, segir Bjarni Þórðarson, hvílir sú skylda að gefa réttar upplýsingar og fara rétt með hugtök. Höfundur er trygginga- stærðfræðingur. KVÓTAKERFIÐ í sjávarútvegi hafði í för með sér fádæma óréttlæti sem gjör- breytti samfélags- gerðinni. Örfáir ein- staklingar fengu yfirráð yfir sameigin- legri auðlind lands- manna og bröskuðu með hana að vild. Tjónið er ómetanlegt, byggðunum blæddi út og mesta eignatil- færsla Íslandssögunn- ar átti sér stað. Til varð nýr forréttinda- hópur sem auðgaðist gífurlega á takmörkuðum verðmætum þjóðarinnar. Tak- mörkuð auðæfi urðu braski að bráð. Hrikalegar afleiðingar Afleiðingar gjafakvótans eru hrikalegar. Fjöldi byggðarlaga um allt land hrundi, eignir fólksins urðu verðlausar og atvinnan fór. Byggðirnar hafa verið lagðar í eyði og fólkið, sem átti allt sitt undir fiskvinnslunni, stóð eftir allslaust á meðan sægreifarnir seldu kvótann í burtu. Manngerðar hamfarir skóku sjávarplássin. Á skömmum tíma varð fólksflóttinn á höfuðborgarsvæðið takmarkalítill og gjafakvótinn olli mestu byggða- röskun sem sögur fara af og sér alls ekki fyrir endann á enn þann dag í dag. Jafnræði í nýtingu Allar takmarkaðar auðlindir í sameign þjóðarinnar á að nýta á grundvelli jafnræðis. Í því felst að allir hafi jöfn tæki- færi til að afla heim- ilda til að nýta þær. Þá gildir einu hvort um er að ræða fiski- stofna, orkulindir, fjarskiptarásir eða heimildir til að losa gróðurhúsaloftteg- undir. Meginreglan á einfaldlega að vera sú að láta markaðinn sjá um að dreifa heimild- um til að nýta auð- lindirnar. Það tryggir ekki aðeins jafnræðið, heldur líka að eigendur auðlind- arinnar, íslenska þjóðin, fái greitt sanngjarnt gjald fyrir afnotin, eft- ir því sem viðkomandi atvinnu- grein þolir. Fyrning gjafa- kvótans Kjarninn í auðlindastefnu jafn- aðarmanna er stríðsyfirlýsing gagnvart gjafakvótanum. Við vilj- um innkalla veiðiheimildir í áföng- um og úthluta þeim upp á nýtt á grundvelli jafnræðis allra lands- manna. Með fyrningu veiðiheim- ilda komum við á réttlæti í sjávar- útvegi. Fyrningaleiðin tryggir ekki aðeins að allir standi jafnfætis gagnvart réttinum til að nýta mið- in, heldur líka að þeir sem fá að nýta auðlindina greiða fyrir það sanngjarnt gjald. Frá því að frjálst framsal veiðiheimilda var leyft undir lok níunda áratugarins hefur mjög há innbyrðis gjaldtaka átt sér stað innan greinarinnar. Fok- dýrt hefur verið að kaupa sig inn í greinina eða leigja heimildir af „eigendum þeirra“. Mikið eðlilegra er að hóflegt leigugjald sé greitt til réttra eigenda auðlindarinnar, heldur en það sem nú tíðkast og að allir hafi jöfn tækifæri til að afla þeirra. Réttlát auð- lindastefna Björgvin G. Sigurðsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar. Kvóti Tjónið er ómetanlegt, segir Björgvin G. Sig- urðsson, byggðunum blæddi út og mesta eignatilfærsla Íslands- sögunnar átti sér stað. ÉG VAR í Palestínu á dögunum, dvaldist í Jerúsalem en heim- sótti ýmsa staði, þ.á m. borgirnar Gaza, Ra- mallah og Betlehem. Eftir að heim kom hef ég eðlilega verið spurð að því hvort þetta hafi ekki verið hryllilegt. Jú, vissulega horfði ég á hvernig óbreyttir borgarar eru niður- lægðir nánast við- stöðulaust af ísraelska hernum. Þeim er hald- ið innilokuðum og hleypt út í 4 klukku- tíma á 3–4 daga fresti til að sinna brýnustu nauðsynjum s.s. að afla vatns og matar. Ég fór líka daglega í gegnum varðstöðvar þar sem fólkið beið, tímunum sam- an, í biðröðum í sumarhitanum. Þegar „eftirlitsaðilunum“ hentaði tóku þeir sér kaffihlé og mauluðu kex úr appelsínugulum pökkum fyrir framan hópinn. Ég er örugg- lega ekki ein um að festa í minni mér tegundina og mun væntanlega aldrei fá lyst á slíkum kexbita verði mér boðið – þannig er tilfinningin. Vonin í vonlausu stöðunni Ég var hins vegar afskaplega ánægð með þessa ferð mína, því ég sá og fann að Ísraelsher hefur ekki tekið allt frá fólkinu – það heldur í lífsviljann og vonina. Ég fann, eins og ég hef fundið í vinnu með fólki sem átt hefur í miklum vanda, að það er betra að vera innan um að- stæðurnar en vera áhorfandi einungis af því illa. Nú sá ég ekki bara skriðdrekana og byssuskeftin. Ég spjallaði og hló með strákum sem voru að koma frá því að kasta steinum, hitti fólk sem átti von um frjálsa Palestínu og ætlaði að eiga eftir orku og bar- áttuþrek í þá upp- byggingu sem biði. Skýrt dæmi um að- skilnaðarstefnuna Á leið okkar frá Pal- estínu þurftum við að fara einu færu leiðina til Jórdaníu, en það er yfir Jórdandalinn og Jórdaná. Við Allenby-brúna hefur Ísraelsher sett upp varðstöð til að stjórna ferð fólks yfir landamærin. Ferð í bíl yfir einskismannslandið (bilið milli ísraelsku og jórdönsku varðstöðvanna) tekur um 5–10 mín. Þarna sá ég eitt skýrasta dæmið um aðskilnaðarstefnu Sharons. Pal- estínumönnum er ekki bara haldið frá hinum útvöldu heldur er þeim boðið upp á mannvonsku og niður- lægingu á meðan herraþjóðinni er hampað. Gyðingar sem fara auðveldlega í gegnum vegabréfaeftirlit sinna manna eru leiddir út í litla ferða- mannabíla og er öllum skutlað beint yfir til jórdönsku stöðvarinnar. Það virðist nægja að 2–3 séu komnir í bíl til að hann leggi af stað, enda sjá margir bílar um þessa flutninga. Fólk með önnur vegabréf er spurt í þaula um ferðir sínar og er síðan boðið að setjast í loftkældan biðsal þar til rútan kemur. Sú rúta kemur á um klukkustundar fresti og eru þá þeir sem bíða beðnir um að ganga um borð og fer rútan af stað með það sama, óháð fjölda farþega. Palestínumenn sem komast seint og illa gegnum vegabréfaeftirlitið eru hins vegar látnir fara í sérrútu sem er einungis fyrir Palestínu- menn. Við fengum ekki að fara inn í þá rútu þrátt fyrir að hafa óskað sérstaklega eftir því að fylgja þeim hópi yfir. Á meðan við biðum eftir okkar rútu var komið með konu úr palestínsku rútunni sem hafði misst meðvitund. Hún var ólétt, kominn 5 mánuði á leið, og var hún þarna á ferð ásamt 2 börnum sínum og eig- inmanni. Við athugun á ástandi hennar kom í ljós að hún hafði beðið í rútunni í 5 klukkutíma. Ástæðan er sú að rútan fer ekki af stað fyrr en hún er orðin full af fólki. Það er ekki verið að eyða bensíni í að ferja Palestínumenn yfir 5–10 mín. leið ef það eru einhver sæti laus. Rútan er þó ansi lengi að fyllast því umferðin er lítil þar sem flestir landsmenn eru innilokaðir vegna útgöngu- banns og þeir sem geta komið sér á milli staða veigra sér við það vegna þeirra niðurlægjandi meðferðar sem þeim er sýnd. Í vonleysinu vaknar vonin, því er von í Palestínu. Framkvæmd að- skilnaðarstefn- unnar í Palestínu Björk Vilhelmsdóttir Palestína Ég fann að það er betra að vera innan um aðstæðurnar, segir Björk Vilhelmsdóttir, en vera áhorfandi einungis af því illa. Höfundur er borgarfulltrúi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.