Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Hjálmar Björns-son fæddist í Reykjavík 8. febrúar 1986. Hann lést af slysförum í Rotter- dam 27. júní síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Björn Hjálmars- son barnalæknir, f. 16.2. 1963, sonur Nönnu Björnsdóttur, f. 2.3. 1931, d. 13.5. 2000, og Hjálmars Ólafssonar, f. 25.8. 1924, d. 27.6. 1984, og Herdís Haraldsdóttir kennari, f. 25.3. 1963, dóttir Pálínu Kjartansdóttur, f. 12.3. 1931, og Haraldar Her- mannssonar, f. 16.7. 1928, d. 5.10. 1999. Bræður Hjálmars eru Gísli, f. 25.5. 1991, og Freyr, f. 4.7. 1995. Fyrstu níu æviárin bjó Hjálmar með foreldrum sínum í Kópavogi. Hann dvaldist á dag- vistarheimilinu Kópasteini og hóf skólagöngu í Hjalla- skóla í Kópavogi. Fjölskyldan fluttist búferlum til Hol- lands í júlí 1995. Þar settist Hjálmar í hol- lenskan barnaskóla, De Plevier í Rotter- dam. 1998 lauk Hjálmar barnaskóla- prófi og við tók gagnfræðaskólinn Einstein Lyceum í Rotterdam. Þar lauk Hjálmar fjórum námsárum og hefði hafið göngu á fimmta og síð- asta námsári þessa skóla næsta vetur hefði hann lifað. Útför Hjálmars fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Ungur maður, hraustur á sál og líkama, hverfur eftir skóla. Finnst tveimur dögum síðar, látinn. Dánar- orsök óljós, líklega slys. Allt spurn- ingaflóðið sem steypist fram í hug- ann við atburðarás af þessu tagi felur í sér efann um að þetta fái almennt staðist, að þetta hafi ekki gerst í raun og veru, að martröðinni hljóti að ljúka þá og þegar. Og nú er ekki bara almættið krafið svara heldur allir þeir sem varpað geta einhverju ljósi á þetta hræðilega dauðsfall drengs í blóma lífsins. Ég hafði séð allt of lítið af ljúf- lingnum Hjálmari Björnssyni í seinni tíð. Víxlflakk okkar bræðra til náms í útlöndum gerði að verkum að mér brá oftast nær þegar leiðir lágu saman um jól eða í sumarfríum. Elstu börnin okkar Bjössa voru farin að vaxa okkur yfir höfuð og maður áttaði sig á því, aðeins of seint vita- skuld, að kannski hefði maður keypt heldur barnalegar jólagjafir eða of smáar flíkur handa þeim smærri. Á þessum strjálu fundum okkar nú í seinni tíð var alltaf ljóst hvern mann hann Hjálmar, stóri strák- urinn Bjössa og Herdísar, hafði að geyma. Hraustlegur og djarfleitur, glettinn í fasi en hlýr svo fáum var betur treystandi til að hafa auga með eða ofan af fyrir yngri börnunum meðan við foreldrarnir vorum að hlýða hvert öðru yfir hvað á dagana hafði drifið frá síðustu heimsókn. Ég held einmitt að það hafi fyrst og fremst verið hlýtt hugarþel þessa unga manns, sem gerði hann svo þægilegan í samskiptum hvort sem það var við háværa og fyrirferðar- mikla föðurbræður sína eða börnin þeirra stór og smá. Hvort sem rifjaðar eru upp háska- legu brunferðirnar á nýja stýrisleð- anum á annan í jólum, hjólreiðatúr um Elliðaárdalinn eða fjölskyldufót- bolti þar sem hinn rólyndi bróður- sonur þurfti að sætta sig við ævin- týralegt keppnisskap sér þrefalt eldri frænda – alltaf eru minningarn- ar um hann Hjálmar ljúfar. Hann var – eins og sagt var um prinsana í ævintýrunum – hvers manns hug- ljúfi. Þess óskar maður heitast að upp- lýst verði hvað gerðist þennan ör- lagaríka sumardag í Rotterdam. Guð veit að knúið er á um svör og þess bið ég heitast að fyrir okkur muni upp lokið verða. Þú augasteinn móður þinnar og stolt þíns föður, fyrirmynd bræðra þinna og vinur. Allar minningarnar um þig geymi ég í brjósti mér, en núna eru þær sárar. Skarðið í fjöl- skyldunni er skarð í hjartanu og minningarnar, sem þar eru geymd- ar, auka á kvölina. Tíminn á að lækna öll sár, hjartasár sem önnur en myndirnar af þér lifa. Ef fagrar minningar hafa einhvern lækninga- mátt er ég viss um að minningin um þig vinnur kraftaverk. Eiríkur Hjálmarsson. Elsku Hjálmar, minn besti vinur og frændi, það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um þig og ævintýri okkar saman. Ég trúi því varla að þú sért farinn, mér finnst ennþá eins og þú sért að koma heim í fríið eins og til stóð. Þú varst svo góður vinur, það var sama hvað við urðum ósammála, við náðum alltaf að komast að sam- komulagi með góðum hætti. Þú varst efnilegur í skóla og áttir alla framtíð- ina fyrir þér. Þú varst fyrirmynd Gísla bróður þíns, það var sama hvað þið urðuð ósammála um, alltaf leit hann upp til þín. Ég hefði ekki getað valið mér betri vin, hvert sem þú fórst var þér tekið vel og fólki leist vel á þig. Ási föðurafi og Turid föð- uramma mín þekktu þig svo vel frá því þú varst pínulítill, þú varst eins og eitt af barnabörnum þeirra. Þú varst mjög gjafmildur og það skipti ekki máli hvort þú eða ég átti að splæsa. Þér fannst alltaf gaman að fara í tívolítæki þar sem þú þorðir að fara í tæki sem ég var hræddur við en lét mig hafa það að fara líka þar sem ég vildi ekki vera minni maður. Á línuskautum varstu mjög fær, í pallastökki og góður í íþróttum sem þú lagðir fullan metnað í, sama hvað þú tókst þér fyrir hendur varstu fylginn þér og metnaðarfullur og góð fyrirmynd okkar hinna. Þegar ég fletti í gegnum mynda- albúmin okkar er varla til sú mynd sem þú ert ekki á, þú varst stór hluti af lífi okkar og ert það ennþá. Manstu þegar þú áttir heima á Höfn í Hornafirði og ég kom að heimsækja þig? Þá þurftir þú að kenna mér að segja „r“ en ég að kenna þér að taka til. Eða þegar við unnum á grímu- ballinu klæddir sem Karíus og Bak- tus? Eða þegar þú áttir heima í Kópavoginum við hliðina á stórri brekku þar sem við renndum okkur á hjólabretti þó svo að mamma þín væri búin að banna okkur það? Síðan kom sá tími sem þú fluttir til Hol- lands og ekki leið á löngu þangað til við heimsóttum þig þangað, þar fór- um við á froskaveiðar, ég, þú, Sander og stundum Gísli, og skemmtum okkur vel þar. Síðan skruppum við auðvitað í tívolí þar sem þú varst sá allra kaldasti, ég man eftir fyrstu rússíbanaferðinni minni þar sem við fórum öll saman, ég var dauðhrædd- ur og meira að segja pabbi líka, og mamma gargandi í allar áttir á með- an þú lyftir höndunum skellihlæj- andi og þig langaði aftur. Síðan fór- um við í stóra víkingaskipið þar sem ég hélt mér dauðahaldi en þú bara slepptir höndum út í loftið og hlóst að þessu. Já, ég gæti skrifað heila bók um ævintýri okkar saman en mig langar að rifja upp þegar þú varst hér á Íslandi síðastliðin jól, þá var sko gaman. Það var ekkert heilsu- fæði þá, nei, við lifðum nánast bara á pizzum, snakki, gosi og nammi og eftir svona nokkra daga báðum við nánast um að fá einhvern almenni- legan mat. Þá vorum við alltaf að gera eitthvað, vinir mínir heyrðu varla í mér því ég var of upptekinn með frænda mínum, ýmist var það sund, fótbolti, Championship Mana- ger sem okkur fannst svo gaman í eða bara eitthvað annað. Við töluðum oft um framtíðina og barst það nokkrum sinnum í tal hvað þig langaði að koma til Íslands og fara að læra hér, gista kannski hjá okkur og vera nánast sem skiptinemi en mest hlakkaðirðu til að koma til Íslands 14. júlí og fara að vinna í bæj- arvinnunni í Kópavoginum enda við búnir að ákveða fyrir löngu hvað við ætluðum að bralla saman meðan þú værir hér. Mig langar að þakka fyrir þær stundir sem við fengum saman, þær eru mér ógleymanlegur fjár- sjóður. Elsku Herdís, Bjössi, Gísli og Freyr, amma og fjölskylda, megi Guð gefa ykkur styrk og lýsa okkur fram á veginn. Þinn vinur og frændi, Ólafur Jónsson. Ekki átti ég von á að þurfa nokk- urn tíma að skrifa minningargrein um Hjálmar, frænda minn sem var alltaf svo klár og var sífellt að fræða mig um einhverja hluti sem ég hafði ekki hugmynd um. Hjálmar var næstur mér í aldri af öllum frænd- systkinum mínum og okkur kom yf- irleitt mjög vel saman þegar við hitt- umst, sem var reyndar allt of sjaldan, sérstaklega meðan ég bjó í Svíþjóð og svo þegar Hjálmar bjó í Hollandi. Við vorum bæði miklir „heimspek- ingar“ þegar við vorum lítil og velt- um fyrir okkur alls konar hlutum. Oft vorum við ekki sammála um hver rétt niðurstaða væri og þá var yf- irleitt einhver fullorðinn spurður til þess að vita hvort hefði haft rétt fyrir sér. Hjálmar var frekar þroskaður og áhugasamur sem barn enda fannst mér hann aldrei vera „litli“ frændi þó að hann hafi verið tveim árum yngri heldur leit ég á hann sem jafningja þegar við vorum að leika okkur. Ég á aldrei eftir að gleyma þegar öll fjölskyldan hittist heima hjá hon- um þegar þau bjuggu í Hlíðarhjall- anum og við fórum út á sleða. Hjálm- ar átti svo flottan stýrisleða sem allir vildu prófa. Hann tók síðan upp á því að renna sér alla leið niður brekkuna og framfyrir blokkina fyrir neðan, en sú beygja var svakalega kröpp. Hjálmar fór það eins og ekkert væri, á fleygiferð. Ég vildi ólm fá að prófa líka og fékk að hafa Orra bróður aft- an á sem var þá bara fjögurra ára. En ég lenti í vandræðum og náði ekki beygjunni og flaug fram af brún sem hefur verið rúmur metri niður á bíla- plan. Við lentum ofan í snjóskafli svo enginn meiddist sem betur fer, en þessu gátum við Hjálmar hlegið að lengi. Síðasta skiptið sem ég fékk að hitta Hjálmar var í jólaboðinu hjá Óla og Settu um síðustu jól. Ég hafði ekki séð hann í svolítinn tíma þá, svo mér brá svolítið að sjá hann fyrst, Hjálmar litli frændi var orðinn stærri en ég! Hann var ekki lengur strákur heldur ungur, myndarlegur maður. Það kvöld spiluðum við Hjálmar spurningaleik með Orra, Gísla, Val og Hrefnu. Kvöldið var svolítið sérstakt í mínum huga, þar sem mér fannst eins og við hefðum farið aftur í tímann þegar við vorum að leika okkur í svona spurninga- leikjum sem börn. Um kvöldið fengu Hjálmar og Gísli far með mér þegar ég fór heim. Á leiðinni áttum við gott spjall og við töluðum um hvernig það yrði þegar þau flyttu heim. Hann var greinilega farinn að hlakka svolítið til að koma aftur til Íslands. Það kvöld var svakaleg hálka og ég á lé- legum dekkjum svo ég var frekar smeyk. Þeim bræðrum þótti það frekar sniðugt. Okkur kom jafnvel saman þetta kvöld og þegar við vor- um krakkar og við skildum með bros á vör. Ég man eftir hvað ég hlakkaði til að þau kæmu öll heim. Þetta kvöld verð ég ævinlega þakklát fyrir og samtalið við þig geymi ég sem gull. Það er sárt að þurfa að kveðja þig svona snemma, Hjálmar minn. Þú áttir svo sannarlega framtíðina fyrir þér. En ég trúi að þú sért á góðum stað núna og að við munum hittast aftur seinna. Þín frænka, Birna Kristín. Ungur drengur heldur á vit æv- intýranna með vinum sínum. Enn einu afrekinu var að ljúka, góður námsárangur og próflok í nánd. Fögnuður tekur við en drengurinn snýr ekki heim aftur. Maður fyllist reiði og spyr ótal spurninga en fær ekki svör við öllu og erfitt er að sætta sig við þegar ungur og efnilegur drengur í blóma lífsins er hrifinn á brott til himna og við sitjum eftir með minningarnar einar sem gera þó það sem hægt er að gera fyrir inn- antóm hjörtu okkar sem eftir sitjum, því að minningarnar um góðan dreng, fallega brosið þitt og hlátur- inn eiga eftir að ylja okkur um ókomna tíð. Elsku Hjálmar minn, allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Á undanförnum dögum hef ég séð þig fyrir mér í huga mínum á öllum aldri síðan þú varst pínulítill á Skjólbraut- inni, heyrt röddina þína og hlátur þinn. Þegar ég passaði þig á Hlíð- arveginum og þú vaknaðir upp og komst til mín og sagðir að þú mættir alveg vaka og fá popp og kók. Þér fannst dýrin í Hálsaskógi svo skemmtileg að þú gast hlustað á þau aftur og aftur en það þurfti alltaf að spóla yfir Mikka ref, þú varst soldið smeykur við hann. Manstu eftir inni- skónum sem þú fékkst í jólagjöf. Mamma þín kallaði þá guttaskó og þú þorðir aldrei að fara í þá, þú hélst að þeir mundu bíta. Playmodýra- garðurinn sem þú fékkst frá pabba þínum þegar Gísli fæddist. Í samein- ingu tókst okkur að byggja glæsileg- an dýragarð. Jón Oddur og Jón Bjarni. Já, manstu þegar þú komst til mín sex ára gamall og sagðir að ég væri sko komin með unglingaveikina eins og Anna Jóna systir þeirra bræðra. Vá, hvað ég varð móðguð. Við rifjuðum þetta allt upp þegar þú komst til mín fyrir síðustu jól með opinn faðm, fallegt bros og koss á kinn og segir: „Ég er orðinn stærri en þú.“ Svo ́96 þegar þið komuð til Ís- lands og ég passaði ykkur bræðurna í síðasta skiptið hjá Þóru og Ómari og þið sunguð hollenska vögguvísu fyrir mig og svo söng ég „Dvel ég í draumahöll“ fyrir ykkur eins og ég gerði alltaf, þegar ég passaði ykkur. Elsku frændi, ég veit að þú ert á góð- um og fallegum stað með Halla afa og í huga mínum verður þú alltaf hjá mér þangað til við hittumst aftur. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku Herdís, Bjössi, Gísli, Freyr og fjölskylda mín öll. Leið okkar liggur um dimman dal þar sem við verðum að takast í hendur og feta okkur með Guði í átt að þeirri skímu sem við mynni dalsins verður að sól- arljósi þar sem við getum yljað okk- ur með hlýjum minningum um þig, elsku Hjálmar minn. Þín frænka Ína Hrund. Okkur systkinin langar til að minnast frænda okkar Hjálmars Björnssonar sem var tekinn svo skyndilega frá okkur. Engin orð fá lýst harmi okkar og söknuði og við eigum ennþá erfitt með að trúa því að hann sé farinn frá okkur. Hann sem átti alla framtíðina fyrir sér. Hjálmar var mjög metnaðargjarn og ákveðinn strákur og stundaði nám sitt af krafti eins og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Það var auðvelt og þægilegt að biðja hann um hjálp og hann var ávallt reiðubúinn að hjálpa öðrum. Við eigum margar góðar minning- ar um hann Hjálmar okkar og ein eftirminnilegasta minningin er hvernig hann borðaði bingókúlur. Honum fannst þær svo góðar og sást það langar leiðir að hann hafði verið að borða bingókúlur því hann varð alltaf svartur og kámugur kringum munninn af þeim og fyndnast af öllu var það að hann tók aldrei eftir því sjálfur. Við áttum margar yndislegar stundir með Hjálmari og er sárt að hugsa til þess að þær verða ekki fleiri. Við eigum erfitt með að sætta okkur við andlát hans því þetta er svo óréttlátt. Það sem getur hjálpað okkur í gegnum þennan erfiða tíma eru góðu minningarnar sem við höf- um um hann. Hann var svo yndisleg- ur frændi og hafði svo mikla útgeislun. Missirinn er mikill og HJÁLMAR BJÖRNSSON Elsku vinur. Það var mikið áfall fyrir okkar litlu fjölskyldu að frétta það fyrst að kvöldi 23. júní að þú hefðir yfirgefið þennan heim, og sárt er að hafa ekki getað fengið að fylgja þér og kveðja. En elsku Kristján, minningarnar eru yndislegar sem við eigum um þig en þær tekur enginn frá okkur, öll jólin okkar saman, gamlárs- kvöldin og hið daglega líf. Eða úti- legurnar, – þú gast nú aldeilis skammast yfir veginum í Húsafell og sparaðir ekki orðin þá frekar en fyrri daginn. Eða þegar þú komst heim með vídeóspólu, þá ruku allir krakkarnir niður til afa því þú tókst KRISTJÁN JÓHANN FINNBJÖRNSSON ✝ Kristján JóhannFinnbjörnsson fæddist 14. apríl 1921 á Látrum í Aðalvík. Hann lést á Landspítalanum 7. júní og var útför hans gerð frá Hafn- arfjarðarkirkju 14. júní. bara spennu- og has- armyndir. Þegar við fórum að versla saman þá týnd- ist þú alltaf í búðunum, svo hlóstu bara og sagðir: „Ég sá ykkur allan tímann.“ Eða að fara með þér í bíltúr – þá fór nú adrenalínið af stað, því þú hafðir nefnilega þínar eigin umferðarreglur og þrumuræðurnar sem þú hélst stundum um menn og málefni, – þá héldu allir að þú værir reiður … en nei, maður leit þá bara í augun þín sem dönsuðu af stríðni og gleði. Sagt er að augun séu spegill sál- arinnar og sál þín var svo sann- arlega fögur, elsku vinur. Við vitum að himneskur englaher hefur tekið á móti þér og sjálfsagt hefur gullinn voffi verið með í hópnum líka. Elsku Kristján afi, það voru for- réttindi að þekkja þig og minning þín mun alltaf lifa með okkur. Kristín Halla og fjölskylda. MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Birting afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.