Morgunblaðið - 16.07.2002, Side 36

Morgunblaðið - 16.07.2002, Side 36
MINNINGAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Vignir Þórssonfæddist í Reykjavík 20. maí 1967. Hann lést á heimili sínu mið- vikudaginn 10. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans eru Þór Ástþórsson, f. 3.3. 1932, d. 8.6. 2002, og Marlaug Einars- dóttir, f. 18.7. 1933. Systkini Vignis eru: 1) Sigríður, f. 25.5. 1955. Synir Sigríðar eru Ingvar Þór og Eyvar Örn Geirs- synir. Sambýlismaður Sigríðar er Björgvin J. Jóhannsson. 2) Rósa Guðný, f. 30.9. 1958. Dóttir Rósu er Þórunn Þórsdóttir. Sambýlismaður Rósu er Örn Viðar Erlendsson. Bróðir Vignis samfeðra er Arnþór Þórsson, f. 16.5. 1951. Börn Arnþórs eru Kári Þór, Ívar, og Sig- ríður Rut. Sam- býliskona Arnþórs er Brynja Baldurs- dóttir. Vignir ólst upp í Hafnarfirði hjá for- eldrum sínum og systrum. 22ja ára gamall flutti hann á sambýlið að Eini- bergi 29 í Hafnar- firði þar sem hann bjó til dauðadags. Vignir var í Þjálf- unarskóla ríkisins á Kópavogs- hæli og frá 18 ára aldri í Hæfingarstöðinni Bæjarhrauni Hafnarfirði. Útför Vignis fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin 16. júlí klukkan 13.30. Ég horfi í himininn sé stjörnu skína það er stjarnan þín. Ég hugsa til þín man brosið þitt hlátur og allt það góða sem þú gafst. Og þegar sólin kemur upp vaxa blóm af tárum okkar kærleiksblóm (S.Ó.) Hjá okkur í Einibergi er höggvið stórt skarð sem seint verður fyllt. Vignir eða Viggi, eins og við köll- uðum hann, bjó í Einibergi frá því að heimilið var stofnað og setti hann mark sitt á það. Hann heillaði alla með skemmtilegri framkomu sinni, hlátri og stríðni. Þegar við sitjum hér og minnumst Vigga sjáum við hann fyrir okkur hlæj- andi í svarta stólnum sínum snú- andi sér í hringi, í heita pottinum og úti, sama hvernig viðraði. Viggi var mjög félagslyndur og naut sín vel í fjölmenni og þar sem hann var, var alltaf gleði. Við teljum að það þurfi mjög sterka og þroskaða sál til að fæð- ast í svo fatlaðan líkama og takast á við þær hömlur sem því fylgir. Þrátt fyrir þær hélt Viggi alltaf lífsgleði sinni og jákvæði. Það var ekki síst því að þakka að hann átti yndislega fjölskyldu og var stór- kostlegt að fylgjast með hvernig hún umvafði Vigga ástúð og vænt- umþykju. Viggi gaf okkur meira en við gátum nokkurn tímann gefið hon- um. Gleðin og þrautseigjan, brosið á erfiðum stundum sagði meira en nokkur orð. Viggi elskaði lífið og kenndi okkur að gera slíkt hið sama. Við hin ófötluðu erum alltaf að læra. Fatlaðir kenna okkur að meta lífið og gæði þess. Mallý, Sísí, Rósa og fjölskylda, megi Guð veita ykkur styrk á þess- um erfiðu tímum. Vinir, Einibergi 29. Við viljum minnast vinar okkar og félaga til margra ára Vignis Þórssonar og þakka honum sam- fylgdina. Vignir var gæddur gleði og lífs- krafti sem kom okkur stöðugt á óvart. Kraftur hans við að takast það sem hann ætlaði sér, nú síðustu ár meira af vilja en mætti, fyllti okkur aðdáun. Hann átti mjög auðvelt með að hrífa okkur með sér í glettni sinni og kátínu. Næmi Vignis á umhverfið hjálpaði honum við að taka skjótar ákvarðanir og vera góður mannþekkjari. Vignir átti yndislega foreldra sem komu og sýndu því áhuga sem hér fór fram. Faðir Vignis sem lést þann 8. júní síðastliðinn hannaði og smíðaði fyrir okkur þjálfunargögn sem njóta mikilla vinsælda hér og munu minna okkur notalega á þá feðga í framtíðinni. Í okkar samheldna hópi er nú stórt skarð, guð blessi minningu Vignis. Við sjáum, að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festing færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blakti síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláan voginn. (Davíð Stef.) Samúðarkveðjur sendum við móður Vignis, fjölskyldu, sambýlis- fólki og starfsfólki Einibergi 29. Þjónustunotendur og starfsfólk Hæfingarstöðv- arinnar Bæjarhrauni 2. Það er erfitt að skrifa um Vigni. Þeir sem ekki þekktu hann verða engu nær um hversu frábær mann- eskja hann var og fyrir þá sem kynntust honum verða svona línur ekki annað en andlaust pár út í loftið. Við skynjuðum það þegar hann var borinn út af heimili sínu í Einiberginu daginn sem hann dó. Það var eins og sterkur dragsúgur hefði farið þar um og maður fann að stór sál var horfin úr húsinu. Slíku verður ekki lýst með orðum en þannig var Vignir einmitt. Hann hafði ekki möguleika á að sjá eða tjá sig með orðum en Vignir var sterk persóna og hafði svo mikla nálægð að hann heillaði alla upp úr skónum sem báru gæfu til að kynnast honum. Það mætti eyða mörgum orðum í að lýsa fötlunum og erfiðleikum sem Vignir þurfti að glíma við, en það er ekki það sem maður kemur til með að muna heldur hversu ákveðinn, hugrakk- ur, duglegur og skemmtilegur Vignir var. Það eru ótrúleg forrétt- indi að hafa fengið að kynnast hon- um. Kynni okkar hófust árið 1987 þegar Ársæll byrjaði að vinna í sumarbúðum Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra í Reykjadal. Eftir sumardvölina bauðst okkur að fá Vigni í heimsókn upp á Akranes nokkrar helgar yfir veturinn og eftir það losnaði hann hreinlega ekki við okkur. Þar með hófust líka reglulegar ferðir Vignis með Akra- borginni sem hann tók af einstakri prúðmennsku. Eftir að Ársæll fór til Reykjavíkur í skóla tóku aðrir fjölskyldumeðlimir við helgarheim- sóknunum sem voru orðnar alger- lega óaðskiljanlegur hluti fjöl- skyldulífsins. Við héldum líka áfram að hitta hann í Reykjadal í nokkur sumur og ekki er nema ár síðan að Alda hætti að vinna hjá honum á Einiberginu. Að auki komst á ómetanlegur vinskapur við foreldra Vignis sem hefur haldist óslitið síðan. Hann átti frábæra mömmu og pabba sem gerðu allt sem þau gátu til að Vigni liði sem best og unnu um leið ómetanlegt starf í þágu fatlaðra á Íslandi. Vignir var alinn upp í því að vera sjálfstæður og bjarga sér sjálfur. Hann var ótrúlega næmur á um- hverfi sitt og hæfileiki hans til að geta fundið það sem hann langaði í gerði alla orðlausa. Þá ekki síður þvermóðskan og ákveðnin sem hann sýndi í hvert skipti sem hon- um þótti sér misboðið. Hann var mikill áhugamaður um sund og það hvernig hann gat tímunum saman svamlað og kafað í lauginni alger- lega óstuddur er betri vitnisburður um hugrekki og sjálfstæði en mörg orð. En Vignir lærði líka að ganga þvert á allar spár fagaðila. Vegna þess hversu Vignir var háður öðrum um daglegar athafnir var eins og maður væri stöðugt að gefa honum eitthvað af sér, en á endanum er það svo augljóst að við fengum miklu meira frá honum en hann frá okkur. Maður getur lært margt af því að hlusta á gott fólk en vinir eins og Vignir kenna manni samt langmest og það án þess að nokkur orð séu sögð. Pabbi Vignis, Þór Ástþórsson, lést fyrir mánuði eftir erfið veik- indi. Þeir feðgar voru miklir fé- lagar og ósjálfrátt finnst manni að nú sé Vignir búinn að finna sér sæti í eilífðinni undir handarjaðri pabba. Við skulum sól sömu báðir hinzta sinn við haf líta. Létt mun þá leið þeim, er ljósi móti vini studdur af veröld flýr. (Jónas Hallgr.) Ársæll, Alda, Áslaug, Guðný og aðrir vinir af Akranesi. VIGNIR ÞÓRSSON www.solsteinar.is sími 564 4566 Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning                      ! "# $           !   " % &'(& )* +,, &&  )* " $  &) -& "$%.&&  -& / ) $0* )* #1.&&  -& 2 &34 $& )* '(&.&&  -& & 2& )* -$+ & +&.            516  644 "  #, 7 -$ &        #    $     % ! &  " 8  & ."(')(& )* &".5* )*  &)8*& -& $.5* )* 5-# )5-# ) -& 9# 5.5* -& % &4. $  )* "(')(&:.5* -&  % 2(& )* " ' &&1.5* -& 5* /& )* ' ;-$ &$ ' +&.   '"         <6 6%=6 1 <*, $ 7 3,2 #,  ( )   * &  &  +&   *     ,- &   .  +  + && % &<, )* % &<, )* <,6&$ &  -& && 5*&&$2*& )* 8* &&&& % &  -& & 2 ,<, -& % & +<, )* $2*& <, -&. /         =6 4.=</ "'   ,3   % !     #-     00+ '(&&$ -& # &) &$ )* && 4  4 $  '&&  )* && 2 &&&  -&. 1    )       8/ "  #$->? 4- ' +9    ( )    * &    $    2 " '&)"  )* 2 &&&  -& #  *  -' )* 6&$4(&&  -&  "  )* -$+ & +&.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.