Morgunblaðið - 19.07.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.07.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Landsvirkjunar sam- þykkti á fundi sínum í gær að veita Friðriki Sophussyni forstjóra heim- ild til að undirrita samning við bandaríska álfyrirtækið Alcoa, sem hyggst reisa álver í Reyðarfirði, um skiptingu kostnaðar vegna undir- búningsframkvæmda við Kára- hnjúkavirkjun í sumar. Jafnframt var forstjóra veitt heimild til að undirrita viljayfirlýsingu, fyrir hönd Landsvirkjunar, við Alcoa og stjórnvöld vegna áframhaldandi ál- versviðræðna. Báðar þessar undir- ritanir fara fram í dag en viðræður hafa staðið yfir við fulltrúa Alcoa síðustu daga. Friðrik sagði við Morgunblaðið að samkvæmt samningnum vegna undirbúningsframkvæmdanna myndi Alcoa skuldbinda sig til að greiða 75% af kostnaðinum og Landsvirkjun afganginn. Áætlað er að framkvæmdirnar kosti rúmar 600 milljónir króna þannig að hlut- ur Alcoa er um 450 milljónir og hlutur Landsvirkjunar 150 milljón- ir. Að sögn Friðriks verður álfyr- irtækinu endurgreidd þessi upp- hæð þegar ákveðið verður endanlega að ráðast í virkjanafram- kvæmdir vegna álvers í Reyðar- firði. Framkvæmdirnar verða á Kára- hnjúkasvæðinu og felast í vegagerð frá Laugarfelli að Hálslóni á um 25 km löngum kafla, lagningu bráða- birgðabrúar yfir Jökulsá á Brú, öðru nafni Jökulsá á Dal, og lagn- ingu rafmagnskapals að vinnusvæði við Kárahnjúka. „Af okkar hálfu skiptir þetta samkomulag afar miklu máli. Í því felst talsverð skuldbinding Alcoa, sem ætti að vera merki um alvöru þeirra og áhuga á verkinu, þótt auð- vitað eigi eftir að semja um veiga- mikil atriði eins og orkuverð til ál- versins. Viðræður um það hafa staðið yfir,“ sagði Friðrik. Undirbúningsframkvæmdirnar verða auglýstar til útboðs á næstu dögum og að sögn Friðriks gerir Landsvirkjun sér vonir um að hefj- ast handa á Austurlandi strax í næsta mánuði. Hann sagði að með því að hefja framkvæmdirnar þetta fljótt myndi það stytta heildarverk- tímann töluvert. „Ef okkur hefði ekki tekist að vinna að þessu núna á sumar- og haustmánuðum hefði verkið tafist um tæpt ár. Verið er að flýta af- hendingu orkunnar frá virkjuninni. Af þeim sökum er eðlilegt að fyr- irhugaður raforkukaupandi taki þátt í þeirri áhættu sem felst í því að fara af stað áður en samningar eru undirritaðir,“ sagði Friðrik. Yfirlýsingu talsmanns Alcoa um verndarsvæði fagnað Jake Siewert, upplýsingafulltrúi Alcoa, sagði í Morgunblaðinu í gær að fyrirtækið væri reiðubúið til við- ræðna um þátttöku í uppbyggingu verndarsvæðis í tengslum við fjár- festingu þeirra en stjórnendur Al- coa hafa verið hrifnir af framkomn- um hugmyndum hér á landi um þjóðgarð norðan Vatnajökuls. Að- spurður um viðbrögð við þessari yf- irlýsingu sagðist Friðrik Sophusson fagna henni. Hún félli ágætlega saman við þá stefnu sem Lands- virkjun hefði uppi í málinu og vildi sjá gerast á Austurlandi. „Það skiptir máli að fyrirtæki sem nýta orku á þessu svæði, bæði orkuveitandi og -kaupandi, taki þátt í því að vernda umhverfið sem allra mest, og þá í takt við það sem stjórnvöld vilja,“ sagði Friðrik. Landsvirkjun og Alcoa gera samkomulag vegna undirbúningsframkvæmda við Kárahnjúkavirkjun Alcoa greiðir 450 millj- ónir króna í sumar                        !               "     FASTEIGNAMAT eigna Jóns Ólafssonar við Laugaveg, sem borg- arráð hefur samþykkt að kaupa nem- ur rúmum 111 milljónum króna og brunabótamatið rúmum 188 milljón- um króna. Samkvæmt samþykkt borgarráðs kaupir Skipulagssjóður Reykjavíkurborgar eignirnar á 140 milljónir króna en tilboðið nær til fasteignanna nr. 86, 86b, 92, og 94 við Laugaveg. Samkvæmt verðmati Eignamiðl- unarinnar ehf. dagsettu 22. febrúar 2001 er markaðsverð fasteignanna 142,5 milljónir króna að meðtöldum byggingarétti á Laugavegi 86 og 86b. Í matsskýrslunni kemur fram að ástand og útlit Stjörnubíós við Laugaveg 94 sé allgott og er áætlað markaðsverð 84,5 milljónir króna. Um Laugaveg 92 segir að ástand og útlit sé þokkalegt og áætlað mark- aðsverð 9,5 milljónir króna. Eigna- miðlunin segir í skýrslu sinni um Laugaveg 86 og 86b að húsin séu einskis virði ef byggja eigi á lóðunum, en áætlað markaðsverð byggingar- réttarins sé 48,5 milljónir króna. Auk þess segir í skýrslunni að áætlað markaðsverð byggingaréttar II sé 86,4 milljónir króna en ekki er til- greint nákvæmlega hvar sá reitur er. Metur húseignirnar á 124 milljónir Í verðmati Almennu verkfræði- stofunnar hf. dagsettu 24. maí 2002 er áætlað markaðsverð umræddra húseigna 124 milljónir króna. Fram fór lausleg skoðun á ástandi mann- virkjanna og umsögn um þau og mat á söluverðmæti þeirra miðað við óbreytt ástand. Einnig listaði verk- fræðistofan upp þau atriði sem Skipulagssjóður þarf að gera til að- skipulag á Stjörnubíóreitnum komist til framkvæmda og gerði grein fyrir þörf á niðurrifi. Loks var fram- kvæmdakostnaður áætlaður sem og söluandvirði byggingaréttar. Í skýrslunni segir að áætlað verð- mæti byggingaréttar á lóðunum þeg- ar búið sé að fjarlægja núverandi hús, sé 230–250 milljónir króna. Verkfræðistofan segir ástand Stjörnubíós allgott og metur hús- eignina á 64 milljónir króna. Um Laugaveg 92 segir að erfitt sé að meta húsið nema með nánari könnun en markaðsverðið nú er áætlað 14 milljónir króna. Laugavegur 86 er þá talinn vera orðinn lélegur en sölu- verðmætið þó talið vera 35 milljónir króna, eða tæpum 13 milljónum meira en brunabótamatið segir til um. Þá segir um Laugaveg 86b að ástand hússins sé líklega svipað og Laugavegur 86 og er söluverðmætið áætlað 11 milljónir króna. Samkvæmt gögnum frá FMR er brunabótamat Stjörnubíós 147,8 milljónir króna. Fasteignamatið er 56,4 milljónir króna. Brunabótamat Laugavegar 92 er 8,9 milljónir króna og fasteignamatið 11,9 milljónir. Þá er brunabótmat Laugavegar 86b 9,6 milljónir og fasteignamatið 12,2 millj- ónir. Loks er brunabótamat Lauga- vegar 86 22,3 milljónir og fasteigna- matið 30,9 milljónir. Borgin keypti fasteignir Jóns Ólafssonar við Laugaveg á 140 milljónir króna Brunabótamat 188 milljónir og fasteignamat 111 milljónir NÝJA lágvöruverðsverslunin Europris verður opnuð á Lyng- hálsi 4 á laugardaginn og var undirbúningur þar í fullum gangi þegar ljósmyndara Morgunblaðs- ins bar að garði í gær. Ráðgert er að opna aðra Europris-verslun í Skútuvogi innan fárra vikna, en verslanirnar munu bjóða upp á sérvöru og matvöru á lágu verði. Að sögn Matthíasar Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra Eu- ropris á Íslandi, er Europris- keðjan tíu ára gömul og norsk að uppruna. „Það eru um 115 svona versl- anir í Noregi en einingin hér er alveg sjálfstæð og ekki í eigu Norðmanna,“ bendir Matthías á. Svipuð uppbygging og í Noregi Matthías segir að verslanirnar hér á landi verði svipað byggðar upp og þær í Noregi, en þó verði talsvert meira af ferskvöru í ís- lensku verslununum en þeim norsku. „Vöruúrvalið í Europris er fjöl- breyttara en í hefðbundnum lág- vöruverðsverslunum hér á landi. Við erum með talsvert af bús- áhöldum, verkfærum og einnig fatnaði,“ segir hann. Matthías leggur áherslu á að verslunin verði opin frá ellefu fyrir hádegi og til átta á kvöldin alla daga vikunnar, líka sunnu- daga. Hann telur að það sé tví- mælalaust markaður fyrir svona verslun hér á landi og undir- strikar að stór hluti varanna komi frá Noregi, auk þess sem þau fái vörur frá heildsölum á Ís- landi. Hann segir að búið sé að manna þær stöður sem í boði séu á Lynghálsi en um tíu manns koma til með að starfa í þeirri verslun. Morgunblaðið/Arnaldur Undirbúningur fyrir opnun Europris-verslunarinnar á Lynghálsi stendur nú sem hæst. Europris opnuð á laug- ardag TÓMAS Ingi Olrich, menntamála- ráðherra, segir að mjög brýnt sé að tekið sé á húsnæðismálum Mennta- skólans í Reykjavík og ýmissa ann- arra skóla á höfuðborgarsvæðinu og þegar sé hafin vinna við það í menntamálaráðuneytinu. Ólafur Oddsson, kennari við MR, vakti athygli á húsnæðisvandræð- um skólans og þá hættu að menn- ingarsöguleg verðmæti glötuðust, í tveimur greinum í Morgunblaðinu í gær og fyrradag. Tómas Ingi Olrich, menntamála- ráðherra, segir að ekki sé tíma- bært að greina frá hvað til standi að gera, en tekur undir það álit að húsnæðismál Menntaskólans í Reykjavík séu algerlega óviðun- andi. Mjög brýnt sé að leysa úr þeim, sem og húsnæðismálum ým- issa annarra skóla á höfuðborgar- svæðinu og sé undirbúningsvinna hafin. Málefni MR til skoðunar STJÓRN SPRON, Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, fundaði síðdegis í gær og hefur verið boðuð til fundar að nýju í dag. Að sögn Jóns G. Tómassonar, stjórnarformanns SPRON, var ekki tekin ákvörðun um það á fundinum í gær hvenær boðað yrði til fundar með stofnfjáreigend- um, líkt og fimm þeirra hafa farið fram á. Jón sagði að yfirlýsing um það yrði gefin út að loknum stjórn- arfundi í dag. Enn væri beðið nið- urstöðu Fjármálaeftirlitsins. Stjórn SPRON fundar að nýju í dag ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ SVEITARSTJÓRN Þingeyjarsveit- ar, nýs sameinaðs sveitarfélags Ljósavatns-, Bárðdæla-, Háls- og Reykdælahrepps, hefur samþykkt að ráða Jóhann Guðna Reynisson, upplýsingastjóra Hafnarfjarðarbæj- ar, sem sveitarstjóra. Jóhann Guðni var valinn úr hópi 18 umsækjenda en umsóknarfrestur rann út 1. júlí síðastliðinn. Hann tek- ur til starfa í Þingeyjarsveit 15. ágúst næstkomandi. Aðsetur sveitarstjórnar er á Laugum en Jó- hann Guðni bjó þar og starfaði um skeið sem framhaldsskólakennari. Sveitarstjóri ráðinn í Þingeyjarsveit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.