Morgunblaðið - 19.07.2002, Side 16

Morgunblaðið - 19.07.2002, Side 16
AKUREYRI 16 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Jurtaestrogen úr rauðsmára fyrir konur á breytingaskeiði. (ath. aðeins einn belgur á dag) www.islandia.is/~heilsuhorn Jurtaestrogen SENDUM Í PÓSTKRÖFU Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Árnesaptóteki Selfossi og Yggdrasil Kárastíg 1. FÖSTUDAGS- OG LAUGARDAGSKVÖLD Hljómarfrá Keflavíkl í Hinir einu og sönnu HRAFNHILDUR Hafberg kveðst afar ánægð með álit kærunefndar jafnréttismála þess efnis að Leik- félag Akureyrar hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla við ráðningu í stöðu leikhússtjóra. Hrafnhildur var einn umsækjenda um stöðuna, en alls bárust tólf um- sóknir, þar af ellefu frá körlum og var einn þeirra ráðinn til starfans. Óskaði Hrafnhildur eftir því að kærunefndin tæki afstöðu til þess hvort sú ráðning bryti gegn jafn- réttislögum og birti nefndin álit sitt í liðinni viku þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að svo hefði verið. Hrafnhildur mun í samráði við lögfræðing sinn setja fram kröfu um bætur á hendur Leikfélagi Ak- ureyrar, en hún segir fordæmi fyr- ir því að greidd séu laun leikhús- stjóra í hálft ár í tilfellum sem þessum. „Ég er ákaflega ánægð með þessa niðurstöðu, bæði fyrir mig persónulega og jafnréttisbaráttuna í leikhúsheiminum, en mér hefur sýnst sem konur eigi oft ekki auð- velt uppdráttar þar,“ sagði Hrafn- hildur. „Þetta hefði í raun ekki getað farið betur, því samkvæmt áliti kærunefndar var ég dæmd hæfari til að gegna stöðunni en sá sem ráðinn var. Tilgangur minn með kærunni var m.a. að fá aðra óháða aðila til að leggja mat á þann þátt,“ sagði Hrafnhildur. Hún sagði að við ráðningu í starf leikhússstjóra hefði menntun sín ekki verið metin að verðleikum. „Það eru slæm skilaboð, bæði til kvenna og ungs fólks almennt sem nú er að mennta sig. Menn gætu spurt sig til hvers þeir væru að afla sér menntunar ef hún svo ekki er metin.“ Hrafnhildur kvaðst leið yfir ýmsum ummælum formanns leikhúsráðs, Valgerðar H. Bjarna- dóttur, sem féllu í tilefni af áliti kærunefndar. Hefði hún farið með beinar rangfærslur og vegið mjög að starfsheiðri sínum og sum um- mælanna mætti flokka sem hrein- an atvinnuróg. Hrafnhildur Hafberg fagnar áliti kærunefndar Hyggst krefja Leikfélag Akureyrar um bætur MEGAS kemur fram á tónleikum í Deiglunni í Kaupvangsstræti á Ak- ureyri í kvöld, föstudagskvöldið 19. júlí kl. 21.30. Í Deiglunni stendur einnig yfir sýning á verkum Megasar undir yf- irskriftinni „Megas – margmiðl- unarsýning“. Þannig býðst gestum það einstæða tækifæri að fá að njóta mynd- og tónlistar á sama tíma. Þess skal einnig getið, að þetta er í fyrsta skipti í að minnsta kosti 15 ár sem hægt er að kaupa myndverk eftir Megas, en tuttugu og ein mis- munandi mynd er til sölu, sjálfs- myndir og gámamyndir frá árunum 1984–85. Einnig er bókin um Megas fáanleg á sýningunni og tónleik- unum á sérstöku tilboðsverði. Miðaverð á tónleikana er 2000 krónur og er forsala hjá Gilfélaginu í síma 466-2609. Morgunblaðið/Einar Falur Megas á tónleikum FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ fullveldisins verður haldin í sjötta sinn í Hrísey um helgina, en hún hefst í dag, föstudag, og stendur fram á sunnu- dag. Gestir fá afhent vegabréf ásamt dagskrá um borð í ferjunni, en siglingin tekur um 15 mínútur. Auðvelt er að taka með tjaldvagna og fellihýsi um borð. Tjaldstæði eru ókeypis. Ferðir frá bryggju að tjaldstæði eru í boði. Hátíðin verður formlega sett kl. 18 í dag. Leiktæki fyrir börn verða opin, boðið verður upp á ökuferð um þorpið og diskótek fyrir yngstu kynslóðina. Um kvöldið verður fuglaskoðunarferð með leiðsögn, sólarlagssigling, ljósmyndasýning verður opnuð í Brekku og hljóm- sveitir leika. Markaðstorg verður opið á laug- ardag og sunnudag og keppt verð- ur í akstursleikni á dráttarvélum. Af öðrum dagskrárliðum má nefna fótboltamót fyrir 12 ára og yngri, ökuferðir út í vita, söngvarakeppni barna, gönguferðir með leiðsögn, ratleik og Hríseyjarhreysti fyrir 12 til 15 ára. Kvöldvaka þar sem Karl Ágúst Úlfsson kemur fram verður um kvöldið auk fleiri atriða og að sjálfsögðu verður kveikt á útigrill- um á svæðinu. Þá verður varð- eldur, óvissuferð og dansleikur. Á sunnudag verður hið árlega Hrísyejarhlaup og eru tvær vega- lengdir í boði, 3,5 km og 10 km, en ræst verður kl. 14. Hlaupið er í lítt snortinni náttúru eyjarinnar og hefur þetta hlaup vakið æ meiri at- hygli hlaupara hér á landi. Nánari upplýsingar um fjöl- skylduhátíðina og Hríseyj- arhlaupið má finna á heimasíðunni www.hrisey.is eða á skrifstofu hreppsins. Fjölskyldu- hátíð fullveldis- ins í Hrísey BORINN Sleipnir hefur hafið bor- un eftir gufu norðanundir Bæj- arfjalli nokkur hundruð metra frá skála Aðaldælahrepps og eru menn komnir á um 120 metra dýpi. Gert er ráð fyrir að holan geti orðið 1.600 metra djúp áður en lýkur og er gerð sem vinnslu- hola ef gufa finnst. Á Þeistareykjum var búið fyrr á öldum og var talið gott undir bú en staðurinn mjög afskekktur. Ágætur skáli Aðaldælahrepps er hitaður með jarðhita. Sæmileg jeppaslóð er af Kísilvegi norður á Þeistareyki. Aðaldælahreppur og Reykdælir eiga landið en Orku- veiturnar á Húsavík og Akureyri eru einnig aðilar að borun sem gerð er til að afla fyllri upplýsinga um orkuvinnslugetu og eiginleika svæðisins. Frá Þeistareykjum eru um 25 km til Húsavíkur og fram- kvæmanlegt að flytja gufu þaðan til strandar. Þannig fengist vænt- anlega mest fyrir orkuna ef mark- aður fyndist þó raforkuver á Þeistareykjum gæti einnig komið til greina. Sleipnir við borun á Þeista- reykjum Mývatnssveit Morgunblaðið/BFH Borinn Sleipnir hefur hafið borun eftir gufu norðanundir Bæjarfjalli. ALLS hafa verið afhentir 20 styrkir úr Menningarsjóði KEA, en alls bár- ust 49 umsóknir um styrki úr sjóðn- um. Hver styrkur er að upphæð 100 þúsund krónur. Þeir sem hlutu styrki að þessu sinni eru: Dangotrío Hrafnaspark, Akureyri, styrkur vegna ferðar til Svíþjóðar, Skútustaðakirkja, Mý- vatnssveit, styrkur til kaupa á pípu- orgeli, Kvenfélagið Baldursbrá, Ak- ureyri, styrkur til söfnunar vegna kaupa á steindum glugga í Glerár- kirkju, Lára Sóley Jóhannsdóttir, Húsavík, styrkur til greiðslu skóla- gjalda vegna fiðlunáms, Mývatns- safn, styrkur til reksturs safnsins, Sólseturskórinn, Kór eldri borgara, Húsavík, styrkur vegna kóramóts eldri borgara og söngskemmtana- halds, „Músík í Mývatnssveit“, styrkur vegna páskatónleika 2002, Lúðrasveit Akureyrar, styrkur vegna ferðar til Svíþjóðar í tilefni af 60 ára afmæli sveitarinnar, Björn Þorláksson, Akureyri, styrkur vegna bókaútgáfu, Kór Glerárkirkju, Akur- eyri, styrkur vegna tónleikaferðar til Ungverjalands, Áhugafólk um Þjóð- lagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar, styrkur til uppbyggingar setursins á Siglufirði, Hlöðver Sigurðsson, Siglufirði, styrkur til söngnáms, Húsabakkakórinn „Góðir Hálsar“, Svarfaðardal, styrkur vegna útgáfu á geisladiski, Haraldur Ingi Har- aldsson, Hrísey, styrkur til rann- sókna á íslenskum sagnaarfi, Menn- ingarhátíð í Mývatnssveit, styrkur vegna hátíðartónleika 16. júní 2002, Flugsafnið á Akureyri, styrkjur til uppbyggingar safnsins, Arnarauga / Örn Ingi, Akureyri, styrkur vegna gerðar kvikmyndarinnar Gildrunn- ar, Jóhann Áreliuz, Hrísey, styrkur vegna skrifa á fyrra bindi „skáld- ævisögu“ umsækjanda, UMF Efl- ing, Reykjadal, styrkur vegna upp- setningar á „Fiðlaranum á þakinu“, Júlíus Björnsson / Sigrún Björns- dóttir, Akureyri, styrkur vegna komu hljómsveitarinnar Jazz in Dukes frá Svíþjóð til Akureyrar, Húsavíkur og Dalvíkur. Menningarsjóður KEA veitir 20 styrki Styrkir afhentir Styrkir úr Menningarsjóði KEA hafa verið afhentir. Á myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnarmönnum í Menningarsjóði KEA. MEISTARAMÓT Íslands í frjálsum íþróttum í flokki 12 til 14 ára fer fram um helgina á Dalvíkurvelli. Alls hafa 275 keppendur frá 18 héraðs- og ungmennafélögum skráð sig til þátt- töku. Mótið verður sett kl. 9.45 á morgun, laugardaginn 20. júlí. Keppt verður í ýmsum greinum s.s. hlaupi, langstökki, hástökki, kúluvarpi, spjótkasti og boðhlaupi í öllum aldursflokkum. Sigurvegari í hverri grein telst Íslandsmeistari í sínum aldursflokki. Í hverjum ald- ursflokki er einnig keppt um Ís- landsmeistaratitil félagsliða sem og heildarstigakeppni. Skráningar í greinar eru tæplega 900 sem þýðir að hver keppandi keppir að meðaltali í 3,3 greinum. Keppendum fylgja þjálfarar, farar- stjórar og foreldrar svo gera má ráð fyrir að margt verði um manninn á Dalvík um helgina. Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu mánuði. Mótið er tóbakslaust og af því tilefni gefa Tóbaksvarnar- ráð og Dalvíkurbyggð öllum þátttak- endum bol en einnig fá þeir brúsa og pylsuveislu í lok móts. Úrslit verða sett inn á heimasíðu UFA eftir hvern mótsdag. Keppt á Dalvík um helgina Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 12 til 14 ára

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.