Morgunblaðið - 19.07.2002, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.07.2002, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. FYRSTI rannsóknarleið-angurinn á vegum al-þjóðlegu umhverfissam-takanna Earthwatch hingað til lands var farinn árið 1998, tveimur árum eftir stórt jök- ulhlaup á Skeiðarársandi sem kom í kjölfar eldgoss í Gjálp sama ár. Fimm jarðfræðingar hafa yfirum- sjón með rannsóknunum og er einn Íslendingur þeirra á meðal, Óskar Knudsen. Hann segir að síðustu fimm sumur hafi þrír rannsóknarleiðangrar verið farnir á ári hverju, hver í tvær vikur. Upphaf rannsóknanna má rekja til Skeiðarárhlaupsins 1996. Óskar og félagi hans, dr. Andy Russell, ákváðu þegar gosið í Gjálp hófst, að kasta öðrum verkefnum frá sér og hefja rannsóknir við jaðar Skeiðarárjökuls. „Við vorum þarna í 2–3 vikur fyrir hlaupið og skoðuðum alla árfarvegi á þessu svæði, mældum hvað þeir voru stórir og gátu flutt mikið vatn. Þegar hlaupið hófst fórum við þangað strax aftur og mældum farvegina og gátum skoðað hvaða breytingar höfðu orðið. Hvað hafði bæst við af setlögum, hvar hafði orðið rof og hversu breiðir farveg- irnir voru eftir hlaupið. Þetta er það sem við höfum verið að byggja á síðan, endurmæla alla farvegi og sjá hvernig þeir breytast, hvernig þeir breyttust í þessu hlaupi og hvernig þeir breytast á nokkrum árum eftir hlaupið.“ Sjálfboðaliðarnir borga með sér Árið 1997 sendu Óskar, Russell og dr. Fiona Tweed rannsóknar- áætlun til umhverfissamtakanna Earthwatch sem samþykktu að styrkja rannsóknirnar. Hver sjálf- boðaliði borgar tæpa 2000 Banda- ríkjadali með sér, eða tæpar 170 þúsund krónur, auk þess sem sjálfboðaliðarnir koma sér sjálfir til landsins. Óskar segir að Eart- hwatch fái helming þeirrar upp- hæðar sem sjálfboðaliðarnir reiða af hendi en rannsóknin hinn helm- inginn. Þessi upphæð sé notuð til að borga uppihald og kostnað sem hlýst af rannsókninni. Samtökin borgi vísindamönnunum þó ekki laun. Óskar hefur fengið styrk frá Vegagerðinni til að taka þátt í þessum rannsóknum og starfar einn þeirra, dr. Matthew J. Ro- berts, hjá Veðurstofu Íslands. Hinir eru háskólakennarar og þiggja laun sín þaðan. Óskar segir að 10–15 sjálfboða- liðar taki þátt í hverjum leiðangri. Þó sé hámarkið 10 sjálfboðaliðar í leiðöngrum sem gerðir hafa verið að Kverkfjöllum. „Þetta er alls konar fólk, t.d. menntaskólakrakk- ar sem vilja bæta við sig jarð- fræðiþekkingu, einnig hafa þó nokkrir kennarar í Bretlandi feng- ið styrk til að fara í svona leið- angur sem endurmenntun. Margir Bandaríkjamenn koma á vegum fyrirtækjanna sem þeir vinna fyr- ir. Jafnvel heilu hóparnir sem á að hrista saman. Einnig kemur tölu- vert af kennurum í húmanískum greinum, sem vilja fá nasasjón af því hvað er að gerast í jarðfræði og öðrum raunvísindagreinum,“ segir Óskar. Tjöldin hafa alltaf eyðilagst í Kverkfjöllum Aðspurður segir hann að fólkið sé yfirleitt mjög vel upplýst við komuna til Íslands um hvað það eigi í vændum. „Það er auðvitað mikið að borga tvö þúsund dollara og búa í tjaldi. Þó við reynum að elda góðan mat stenst hann ekki samanburð við góða veitingastaði,“ segir Óskar og kímir. Hópurinn dvelur í tjaldbúðum í Skaftafelli. Þegar hópar á vegum Earthwatch hafa dvalið í Kverkfjöllum er tjaldbúðum slegið upp við Sigurð- arskála en eldað inni í skálanum. Óskar segir að í bæði skiptin farið hafi verið í Kverkfjöll hafi öll tjöldin eyðilagst í rokinu. Dr. Matthew J. Roberts, einn vísindamannanna, segir að fyrstu tveir dagarnir, þegar nýr hópur kemur fari yfirleitt í að kynna vís- indin að baki rannsóknanna. „Við förum með þau að Skaftafellsjökli og skýrum fyrir þeim hvað jöklar eru og hvernig set myndast. Hér við Skeiðarárjökul höfum við fund- ið stórar setmyndanir sem hafa varðveist í sandinum og síðustu daga höfum við unnið að því,“ seg- ir Roberts. Óskar segir að Íslendingar hafi ekki tekið þátt í þessum rannsókn- um til þessa, íslenskir jarðfræði- nemar vilji fá launaða vinnu á sumrin. Þó sé ekkert því til fyr- irstöðu að áhugasamir Íslendingar skrái sig til þátttöku, en þeir þyrftu að borga þátttökugjaldið eins og aðrir. Einnig geti Íslend- ingar farið sem sjálfboðaliðar í önnur verkefni á vegum Earth- watch en t.d. er hægt að taka þátt í fornleifauppgreftri og vinna að verndun ákveðinna dýrastofna. Mikið púl að rogast með 30 kg bor upp á jökul Óskar segir að þó flestir sjálf- boðaliðanna hafi lítinn sem engan grunn í jarðfræði geti þeir gert mikið gagn í rannsóknum. Til dæmis hafi sjálfboðaliðarnir verið notaðir til að telja stóra steina á yfirborði nýrra setmyndana á sandinum. „Það gefur okkur hug- myndir um hversu mikið afl var í flóðinu þegar setið lagðist til. Einnig getur fólkið gert landmæl- ingar af ýmsu tagi, með landmæl- ingatækjum eða málmbandi. Þá hafa þau teiknað upp setlög, margir eru mjög góðir í því og uppgötva jafnvel hæfileika sem þeir höfðu ekki gert sér grein fyr- ir að þeir hefðu. Síðan þarf að bera tæki og tól, ranns fara fram á svæði sem er komast að og þarf því mikið af búnaði. Mörgu t.d. spennandi að bora í en það er verulegt púl a með 30 kg bor upp á Einnig höfum við gert ta því að mæla hitastig í þar sem vatnið kemur un inum. Þá þarf að brúa yfi Erlendir sjálfboðaliðar leggja leið sína til Ísl Gott að hafa bl an hóp vísindam og sjálfboða Síðustu fimm sumur hafa erlendir sjálf- boðaliðar og vísindamenn rannsakað jök- ulhlaup úr íslenskum jöklum á vegum um- hverfissamtakanna Earthwatch. Nína Björk Jónsdóttir blaðamaður og Jim Smart ljósmyndari slógust í hópinn með sjálfboðaliðunum á Skeiðarársandi. Skeiðarársandur er víð jökulröndinni þurfti vís blautum sandi og sti ÞRETTÁN sjálfboðaliðar hópnum sem nú vinnur að sóknum á Skeiðarársandi Bandaríkjamenn, fjórir Br einn Nýsjálendingur og ei Kanada. „Ég vil gjarnan l meðan ég er í fríi. Ég myn brjálaður ef ég færi í skem ingu í sjö daga og hefði ek gera,“ segir Walter Recto frá Seattle í Bandaríkjunu Hann er forritari hjá Nint hefur þrisvar sinnum áður sem sjálfboðaliði á vegum watch. „Ég vildi koma til Ísland skráði mig því í þennan hó ar voru ekki sérstakt áhug mitt á þeim tíma, en eftir byrjaði að lesa mér til um fékk ég áhuga og frá því é hingað hef ég verið heilla segir Rector. „Ég hef haft gaman af þessu, þetta er m gott fólk og blanda af erfi vinnu og skemmtun. Svo b við mikið,“ segir hann og Aðspurður hvernig hon ist að vinna í sumarfríinu hann starfið svo frábrugð uninni sem hann starfar v heima. „Þetta er í raun og ekki eins og vinna, þótt vi að vinna. Ef ég væri heim ég líka bara að taka til í h þetta er miklu skemmtileg ÚTIHÁTÍÐIR OG ALDURSMÖRK Tillögur nefndar, sem SólveigPétursdóttir dómsmálaráð-herra skipaði til að fara yfir reglur og lagaumgjörð varðandi útihátíðir, eru að flestu leyti afar þarfar og skynsamlegar. Lagt er til að samin verði heildstæð löggjöf um skemmtanahald, þar sem m.a. yrði kveðið á um þau skilyrði, sem móts- haldarar á útihátíðum yrðu að upp- fylla. Þau skilyrði, sem nefndin telur upp og sagt var frá í Morgunblaðinu í gær, eru flest til þess fallin að bæta öryggi mótsgesta og koma meiri aga, skipulagi og eftirliti á útihátíðahald, með svipuðum hætti og gerist víða erlendis þar sem löng reynsla er af útihátíðahaldi. Ábyrgð mótshaldara á því að skipulag og aðbúnaður sé í lagi er aukin en jafnframt lagt til að kröfur til samstarfs og upplýsinga- streymis milli mótshaldara, lög- gæzlu, heilsugæzlu, björgunarsveita og annarra skipuleggjenda verði hertar. Þá er lagt til að gerðar skuli skýrar kröfur til hreinsunar móts- svæðis, bæði meðan á útihátíð stend- ur og eftir að henni lýkur. Auðvitað eru ýmsar tillögur nefndarinnar – og jafnvel flestar – komnar til framkvæmda í raun á þeim hátíðum, sem lengst hefð er fyrir, t.d. á þjóðhátíð í Vestmanna- eyjum og á bindindismótinu í Galta- læk. Hins vegar er sjálfsagt að tryggja að jafnvel sé staðið að mál- um til að mynda í þeim tilvikum þeg- ar reynsluminni mótshaldarar efna til útihátíða, fyrst og fremst í hagn- aðarskyni eins og dæmi hafa verið um á undanförnum árum. Nefnd dómsmálaráðherra var skipuð eftir síðustu verzlunar- mannahelgi en þá keyrði um þver- bak að margra mati í kynferðisaf- brotum, ölvun, fíkniefnasölu og -neyzlu, líkamsmeiðingum og subbu- legri umgengni. Ástandið var sýnu verst á einni útihátíð, Eldborgarhá- tíðinni, þar sem aðallega komu sam- an unglingar, án eftirlits foreldra sinna. Svartasti bletturinn á hátíða- haldi um verzlunarmannahelgina í fyrra voru kynferðisafbrotamálin, en þá var tilkynnt um a.m.k. 21 slíkt af- brot, þar af 14 á Eldborgarhátíðinni. Tillögur útihátíðanefndar miðast flestar að því að fyrirbyggja að slíkt geti endurtekið sig. Það hefði senni- lega ekki verið raunhæft að gera ráð fyrir að ný löggjöf með strangari kröfum yrði samþykkt fyrir verzl- unarmannahelgina, sem brátt fer í hönd. Hins vegar er hægt að gera þá kröfu til mótshaldara að þessu sinni að þeir geri það, sem í þeirra valdi stendur, til að framfylgja þeim til- lögum, sem fram koma í áliti nefnd- arinnar, að eigin frumkvæði og leit- ist þannig við að fyrirbyggja neikvæðar afleiðingar útiskemmtana og skapa þeim jákvæðari ímynd. Miðað við ummæli mótshaldara í Morgunblaðinu í dag bendir flest til þess að svo verði. Jafnframt hlýtur þess að verða vænzt að dómsmálaráðuneytið sjái til þess að tillögur nefndarinnar rati inn í lög og reglugerðir fyrir næstu verzlunarmannahelgi til þess að um- ræðan koðni ekki niður og taka þurfi á málinu á nýjan leik, e.t.v. eftir aðra dýrkeypta skemmtanahelgi. Dóms- málaráðherra hefur gefið fyrirheit um að tillögurnar fái rækilega skoð- un og ber að fagna því. Útihátíðanefndin klofnaði í einu máli, varðandi lágmarksaldur þeirra sem sækja útihátíðir. Meirihluti nefndarinnar telur ekki raunhæft að meina unglingum á aldrinum 16–18 ára að sækja skipulagðar útihátíðir þótt þeir séu ekki orðnir sjálfráða; slíkt muni aðeins leiða til þess að þeir safnist saman á óskipulögðum samkomum án eftirlits. Fulltrúar Stígamóta og Neyðarmóttöku vegna nauðgana telja hins vegar að aldurs- markið eigi að vera við átján ár. M.a. er bent á að u.þ.b. helmingur þeirra kynferðisbrota, sem tilkynnt voru um síðustu verzlunarmannahelgi, hafi beinzt gegn stúlkum yngri en 18 ára. Flestir hljóta að vera sammála um að unglingar yngri en átján ára eiga ekkert erindi án eftirlits foreldra sinna á fjölmennar útisamkomur, þar sem áfengi er drukkið nætur- langt og fólk drekkur gjarnan frá sér ráð og rænu, eiturlyfjasalar reyna að pranga út vöru sinni og meiri hætta en ella er á að fólk verði fyrir ofbeldi, kynferðislegu eða af öðrum toga. Það er uppgjöf að segja það „óraunhæft“ að banna ólögráða unglingum að sækja slíkar samkom- ur án fylgdar foreldra, hvort sem þær eru skipulagðar eða óskipulagð- ar. Ástæða þess að lögræðisaldurinn var hækkaður var sú að full ástæða var talin til að ungt fólk lyti forsjá foreldra sinna til átján ára aldurs. Ákveðin vitundarvakning hefur átt sér stað meðal foreldra um að full þörf sé á að vernda óhörðnuð ung- menni fyrir þeim hættum, sem fylgja t.d. vaxandi fíkniefnaneyzlu og of- beldi í samfélaginu. Eins og fulltrúar Stígamóta og neyðarmóttökunnar benda á, hefur mikið starf verið unn- ið til að fá foreldra til að virða 18 ára mörkin og axla ábyrgð á börnum sín- um. Það starf hefur víða borið ávöxt, t.d. hefur það oft skilað árangri þeg- ar foreldrar barna í einstökum skól- um, bekkjardeildum eða hverfum hafa bundizt samtökum um að virða lög og reglur um útivistartíma. Það liggur líka fyrir að það er í valdi for- eldra að banna börnum sínum yngri en 18 ára að fara ein síns liðs að taka þátt í margra sólarhringa skemmt- anahaldi fjarri aðhaldi fjölskyldunn- ar. Margir myndu raunar kalla það skyldu foreldra að banna þeim það. Þeim foreldrum, sem vilja rækja þessar skyldur sínar, væri hins veg- ar ekki gert auðveldara fyrir með því að ríkisvaldið játaði uppgjöf sína í málinu. Æskilegast er auðvitað að reyna að stuðla að því að allar skemmtanir verzlunarmannahelgarinnar verði fjölskylduskemmtanir, þar sem breiður aldurshópur skemmtir sér saman, en unglingasamkomurnar heyri sögunni til. Þá gætu allir farið á útihátíð, hvort sem þeir væru sex- tán ára eða átján ára, yngri eða eldri, og gera mætti ráð fyrir að yf- irbragð hátíðahalda verzlunar- mannahelgarinnar breyttist talsvert á heildina litið frá því sem verið hef- ur. Að því eigum við að stefna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.