Morgunblaðið - 19.07.2002, Side 44

Morgunblaðið - 19.07.2002, Side 44
FÓLK Í FRÉTTUM 44 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Spjallþáttastjórnandanum Jerry Springer var á dögunum stefnt fyr- ir hugsanlega ábyrgð á morði á gesti sem fram kom í þætti hans. Forsaga málsins er sú að Nancy Campell-Panitz var beðin að koma fram í þætti sem hún hélt að bæri yfirskriftina „Hjákonan“. Þar sem hún og fyrrverandi maður hennar, Ralf, höfðu verið að hittast á laun síðustu mánuði bjóst hún við að í þættinum myndi hann stinga uppá því að þau myndu endurnýja hjú- skaparheit sitt. Svo fór þó ekki og Ralf mætti í sjónvarpssal með ný- bakaða eiginkonu sína, Elenor, upp á arminn og bað Nancy vinsamleg- ast að láta þau vera í framtíðinni. Eins og venja er í þáttum Sprin- gers hljóp Nancy upp til handa og fóta og tók að lumbra á Elenor. Nokkrum máuðum síðar var Ralf staddur ofurölvi á knæpu einni þegar þátturinn umræddi var frumsýndur. Hann var ævareiður þar sem fyrr um daginn hafði Nancy unnið mál fyrir rétti sem tryggði henni allar eignir hjónanna fyrrverandi. Síðar um kvöldið barði Ralf fyrrverandi eig- inkonu sína til bana á heimili henn- ar. Hann var dæmdur til ævilangrar fangelsisvistar fyrir morðið en hef- ur alla tíð neitað sök og borið fyrir sig minnisleysi sökum ölvunar. Nú hefur sonur Nancy, Jeffrey Campell, lögsótt Jerry Springer fyrir að stjórna þætti sem hvetur til ofbeldisfullrar hegðunar og heldur því fram að umræddur þátt- ur hafi leitt til dauða móður sinnar. Framleiðendur þáttanna vísa ásökununum þó algerlega á bug og segja þáttastjórnandann ekki geta borið ábyrgð á því sem gerist utan veggja sjónvarpssalarins. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem lögsóknir af þessu tagi eiga sér stað. Árið 1995 var þáttastjórnand- inn Jenny Jones ákærð vegna at- burða sem áttu sér stað eftir einn þátta hennar. Þá myrti ungur mað- ur samkynhneigðan karlmann sem hafði áður komið fram í umrædd- um þætti til að játa ást sína á hon- um. Springer ákærður fyrir aðild að morði Reuters Þáttastjórnandinn Jerry Springer ypptir öxlum fyrir rétti og kannast ekkert við að eiga aðild að málinu. Hið óþekkta (The Unknown/Det okända) Hryllingsmynd Svíþjóð, 2000. Góðar stundir VHS. (90 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn: Michael Hjorth. Aðalhlutverk: Jacob Er- icksson, Marcus Palm, Inger Sigvards- dotter og Tomas Tivemark. ÞAÐ eru ekki nema nokkur ár lið- in frá því að bandaríska hryllings- myndin Blair Witch Project varð óvænt metsölumynd og er enn ein- hver arðbærasta mynd sem gerð hefur verið. Í kjölfarið fylgdu bæði eftirhermur og paródíur en þar til ég sá Hið óþekkta hafði ég ekki orðið vör við neina mynd sem komst með tærnar þar sem sú upprunalega hafði hælana (þrátt fyrir marga galla var Blair Witch nokkuð góð), hvað þá að einhver þeirra hafi tekið henni fram en það gerir þessi litla sænska mynd sem dúkkar hér upp á myndbandaleigum tveimur árum eftir að hún var sýnd í heimalandinu. Segir hér frá fimm líffræðingum sem sendir eru til afskekkts héraðs til að rannsaka skóglendi sem orðið hafði eldi að bráð. Þeir koma sér fyrir í tjaldbúðum en eitthvað ógnvænlegt liggur í loftinu og innan skamms hafa líffræðingarnir fundið vísbendingar um að á svæðinu hafi verið undarleg vera af ójarðneskum ættum. Grunn- hugmyndin og aðferðafræðin (haldið á myndavélinni o.s.frv.) er ættuð beint úr Blair Witch en allt er unnið mun betur en gert var í bandarísku myndinni. Andrúmsloftið verður brátt gríðarlega þrúgandi og óhugn- aðurinn verður sífellt áþreifanlegri og þar af leiðandi ekki jafn „hyster- ískur“ og fjarlægur og í Blair Witch. Auk þess eru samræður og persónu- sköpun afar trúverðug og sænsku leikararnir standa sig afburða vel. Hið óþekkta er besta hryllingsmynd sem komið hefur á myndband um langt skeið. Heiða Jóhannsdóttir Myndbönd Sænsk Blair Witch Kverkatak (Kept) Spennuerótík Bandaríkin 2001. Myndform VHS. (98 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Fred Olen Ray. Aðalhlutverk Ice-T, Christian Oliver og Michelle Von Flotow. KEPT er ein þessara vita losta- lausu léttbláu sakamálamynda sem Sýn á örugglega eftir að bjóða áskrifendum sínum upp á einn „góð- an“ laugardag og endursýna svo á mánaðarfresti. Hér er sögu- þráðurinn auka- atriði, einungis til þess ætlaður að tengja eina bólsen- una við aðra en satt að segja hef ég aldrei skilið slíka framleiðslu og á æði bágt með að sjá fyrir mér til hverra hún höfðar annarra en sjón- varpsstöðva sem vilja sýna alvöru djarfar myndir en mega það ekki yf- irvalda vegna. Til að útlista í fáum orðum „sögu- þráðinn“ er auðveldast að segja hann lapþunna blöndu af Basic Instinct og Fatal Attraction. Eins og maður kunni nú vel að meta þær á sínum tíma getur maður varla hætt að bölva þeim í dag vegna allra skríp- anna sem þær hafa getið af sér. ½ Skarphéðinn Guðmundsson Undir yfir- manninum HLJÓMSVEITIN Botnleðja hefur lengi vel verið með fremstu sveitum í íslensku rokki. Fyrst sá landinn hana sigra í Músíktilraun- um árið 1995 og hefur hún verið starfandi síðan, misvirk að vísu. Listrænar dýfur hafa vissulega átt sér stað en alltaf koma þeir félagar niður á lappirnar aftur og fremja sitt rokk og ról, ótrauðir með glað- lyndið að vopni. Við og við hafa þeir leitað á erlend mið og þá not- ast við nafnið Silt, sem er bein þýð- ing á íslenska nafninu. Silt á það sameiginlegt með baráttubræðrum sínum í Maus, að útlendingar hafa hingað til sýnt starfsemi þeirra fremur lítinn áhuga – þ.e.a.s. þeir sem hafa tögl og hagldir í útgáfu- málum. Sem er synd því þessar gæðasveitir hafa ýmislegt upp á að bjóða. Stuttskífan In Line er á boðstól- um í völdum löndum og þjónar sem ágætis kynning. Þremur lögum af síðustu stóru plötu, Douglas Dak- ota, hefur hér verið snúið á ensku, þ.e. textunum. Á umræddri breið- skífu færði sveitin sig í átt að bandarísku síðrokki og blandaði því við heimatilbúna botnleðjuna. Árangurinn var með miklum ágæt- um, þó að persónulega hafi mér fundist vanta visst neistaflug. Það eru lögin „Í röð“, „Biðstöð“ og „Gangan“ sem fá hér netta yfir- halningu. Meginástæða þessa dóms liggur þó í lögunum tveimur sem tekin eru upp á tónleikum, en þau eru ný af nálinni og hafa ekki verið þrykkt á plast áður. Upptakan var gerð á síðustu Airwaves-hátíð, þar sem Botnleðjan gerði allt vitlaust með glimrandi tónleikum. Lögin „Throat“ og „Lay your body down“ búa yfir eilítið harðari áferð en fyrrnefnd lög, án þess að hið einstaka melódíuinnsæi Botn- leðju vanti. Flutningurinn er inn- blásinn og vel rokkaður en þess má geta að bandaríska sveitin Sparta bauð Botnleðju að fara hljómleika- ferð með sér, eftir að hafa séð þá á þessum tónleikum. Á heildina litið góður vitnisburð- ur um rokknálgun Botnleðju sem jafnframt býr yfir vísbendingum um hvert göngunni verður heitið í framtíðinni. Tónlist Gangan mikla Silt In Line Spik In Line, stuttskífa Silt, sem Íslendingar þekkja sem Botnleðju. Sveitina skipa Heidar (gítar), Halli (trommur) og Raggi (bassi). Öll lög eftir meðlimi. Fyrstu þrjú lögin hljóðritaði Paul Narthcote, sem jafnframt stýrir upptökum. Síðustu tvö lögin hljóðritaði Rás 2 á hljómleikum hinn 19. október 2001 (á Air- waves-tónleikahátíðinni). Arnar Eggert Thoroddsen Ljósmynd/Brian Sweeney Við og við hefur hljómsveitin leitað á erlend mið og þá notast við nafnið Silt, sem er bein þýðing á íslenska nafninu. VÖÐVATRÖLLIÐ Arnold Schwarzenegger er ekki ánægt með lífið þessa dagana en tök- um á þriðju myndinni um Tor- tímandann hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ástæðan fyrir því er fjármagnsleysi en myndin er fyrir löngu komin langt fram úr öllum kostnaðar- áætlunum. Þegar hér er komið sögu hafa fokið tæpir 17 millj- arðar íslenskra króna í endur- komu Tortímandans. Schwarzenegger ku afar ósáttur með þessa ákvörðun framleiðenda en verði myndin gerð fær hann litla 2,6 milljarða íslenskra króna. Enda ekki nema furða því ekkert verður úr vasalónni fyrir vöðvatröllið verði myndin ekki kláruð. Endurkomu Tortímand- ans frestað „Ég kem aftur…þegar við eign- umst aðeins meiri peninga.“ Brúðargjafir Mörkinni 3, s: 588 0640 Opið mánudag-föstudags 11-18. Lokað á laugardögum í sumar Salsaskálar frá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.