Morgunblaðið - 23.07.2002, Side 18

Morgunblaðið - 23.07.2002, Side 18
ERLENT 18 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ KOMIÐ hefur í ljós að George W. Bush Bandaríkjaforseti fékk trún- aðarupplýsingar um alvarlegan fjár- hagsvanda olíufyrirtækisins Harken Energy í Texas áður en hann seldi mestöll hlutabréf sín í fyrirtækinu. Að sögn bandaríska dagblaðsins Washington Post fékk Bush upplýs- ingarnar fjórum mánuðum áður en hann seldi hlutabréfin árið 1990. Á undanförnum vikum hafa fjöl- miðlar innt Bush eftir tildrögum söl- unnar á hlutabréfum hans í Harken þegar hann sat í stjórn fyrirtækis- ins. Forsetinn hefur svarað spurn- ingum fjölmiðla á þá leið að banda- ríska viðskiptaeftirlitið hafi komist að þeirri niðurstöðu að hann hafi ekki brotið af sér með hlutabréfa- viðskiptunum. Í skjölunum kemur fram að fjór- um mánuðum áður en Bush seldi mestöll hlutabréf sín í Harken fékk hann upplýsingar frá stjórnendum fyrirtækisins um að hagnaður þess árið áður hefði verið mun minni en vonast var til og rekstur fyrirtæk- isins yrði „áfram afar erfiður vegna skorts á lausafé“. Upplýsingarnar bárust Bush og samstarfsmönnum hans bréflega. Bush hefur gert lítið úr málinu og embættismenn Hvíta hússins hafa verið álíka tregir til að ræða við- skipti Dicks Cheneys varaforseta þegar hann rak fyrirtækið Halli- burton sem sérhæfir sig í þjónustu við olíufyrirtæki. Varaforsetinn hef- ur verið sakaður um bókhaldssvik. „Brugðust trúnaði bandarísku þjóðarinnar“ Hvert fjármálahneykslið hefur rekið annað í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að gengi hluta- bréfa lækkar stöðugt. Í vikulegu útvarpsávarpi sínu á laugardag hvatti Bush þingið til að samþykkja lagafrumvörp um hert viðurlög við fjármálasvikum og auk- ið eftirlit. Forsetinn sagði að laga- setningin væri mjög brýn vegna þess að stjórnendur fyrirtækja hefðu „brugðist trúnaði bandarísku þjóðarinnar“. Hann hvatti til þess að frumvörpin yrðu samþykkt áður en hlé verður gert á störfum þingsins í byrjun ágúst þar til í september. Nýjar upplýsingar um viðskipti George W. Bush Bandaríkjaforseta Vissi af vanda Harken fyrir hlutabréfasöluna ÞEGAR bandaríska miðlunarfyrir- tækið Enron var að fara á hausinn atyrti dagblaðið The New York Tim- es forráðamenn fyrirtækisins ítrekað í leiðurum sínum fyrir fjármála- óreiðu. En í ljós hefur komið, að fyrir fimm árum gerði útgáfufélag blaðsins viðskiptasamning við Enron sem fól ekki í sér neinar eignatilfærslur. Greint var frá þessum samningi í skýrslum útgáfufélagsins til við- skiptaeftirlitsnefndar Bandaríkjanna (SEC), en hvergi í leiðurum, þar sem Enron var húðskammað fyrir „bók- haldsbrellur“ og aðra óheiðarlega við- skiptahætti. En þetta á fráleitt bara við um New York Times. Útgáfufélög margra þeirra fjölmiðla sem birt hafa fregnir um – og oft gagnrýnt – bók- haldsaðferðir fyrirtækja og umfangs- miklar hlutabréfaívilnanir beita sjálf þessum aðferðum, að því er fram kemur í opinberum gögnum. Þannig sagði The Washington Post í leiðara í apríl að „núverandi reglur – sem heimila fyrirtækjum að veita fram- kvæmdastjórum og öðrum starfs- mönnum milljónir dollara í hlutabréfaívilnanir án þess að telja fram krónu í kostnað – hafa bókhald að háði og spotti“. En útgáfufélag Washington Post hefur gert þetta sama, aukið fram- taldar tekjur sínar um 3,6 milljarða dollara á síðasta ári með því að telja hlutabréfaívilnanir ekki með sem kostnaðarliði í rekstrinum. Fyrirtæk- ið tilkynnti í síðustu viku að það myndi framvegis telja hlutabréfa- ívilnanir til framkvæmdastjóra með sem kostnaðarliði. Samið um pappír Samningur milli útgáfufélags The New York Times og miðlunarfyrir- tækis á borð við Enron kveður á um fast verð á dagblaðapappír til nokk- urra ára. Ef pappírsverðið hækkaði á tímabilinu fengi útgáfufélagið endur- greiðslu frá miðlaranum, ef verðið lækkaði myndi útgefandinn endur- greiða. Tilgangurinn með þessu er að jafna kostnað blaðsins til lengri tíma. „Það hefði kannski ekki skaðað að tala meira um þessi tengsl – það er að segja ef blaðamennirnir okkar hafa þá yfirleitt vitað af þessu – en það er óhugsandi að einhver haldi að frétta- skrif okkar hefðu orðið fyrir áhrifum af því,“ sagði talsmaður blaðsins, Toby Usnik. Hann tók fram, að greint hafi verið frá viðskiptunum við Enron í frétt í desember sl. Hvað ritstjórn blaðsins varðaði væri veggur á milli ritstjórnardeildar fyrirtækisins og rekstrardeildarinnar. „Staðreyndin er sú, að við höfum í gegnum tíðina tekið ritstjórnarlegar ákvarðanir sem hafa stangast á við ákvarðanir teknar af rekstrardeildinni.“ Samningurinn við Enron var gerð- ur 1998 og átti að taka gildi í ár og gilda til 2008. En blaðið rifti samn- ingnum í janúar vegna gjaldþrots En- ron, sagði Usnik, og bætti við að áhrifin á afkomuna væru „hverfandi“. Flest fjölmiðlafyrirtæki haga sér eins og önnur stórfyrirtæki hvað varðar laun til framkvæmdastjóra, jafnvel þótt aðferðirnar stangist stundum á við stefnuna sem fram kemur í leiðurum. The Chicago Trib- une sagði í leiðara í mars: „Hlutabréfaívilnanir eiga að koma fram í bókhaldinu. Hlutabréfaívilnan- ir sem partur af launagreiðslum hafa stóraukist, að hluta til vegna reglu- gerðar frá 1993 sem takmarkaði skattafrádrátt fyrir framkvæmda- stjóra þegar laun þeirra fara yfir eina milljón dollara.“ Góð rök með og á móti En útgáfufélag blaðsins taldi ekki fram sem kostnað umtalsverðar hlutabréfaívilnanir sem veittar voru æðstu yfirmönnum þess, þ. á m. stjórnarformanninum og forstjóran- um, John Madigan, sem fékk 5,3 milljóna dollara virði af ívilnunum í fyrra. Madigan nýtti sér 1,8 milljónir dollara ívilnun í bréfum Tribune. Talsmaður fyrirtækisins, Gary Weit- man, sagði hlutabréfaívilnanir rétt- lætanlegar, en viðurkenndi að „það eru góð rök bæði með og á móti í þessari deilu“. Donald Graham, stjórnarformaður og aðalframkvæmdastjóri útgáfu- félags The Washington Post, sagði að stjórn fyrirtækisins hefði ákveðið að telja hlutabréfaívilnanir með sem kostnað fyrir nokkrum mánuðum vegna þess að „við töldum að það væri nákvæmasta aðferðin til að gefa hlut- höfum okkar upplýsingar um fjár- hagsstöðuna“. Graham sagði ennfremur: „Eins og allir vita skrifar leiðaradeildin það sem hún telur réttast og best og ef það er ekki í samræmi við stefnu blaðsins eða stefnu fyrirtækja þá er það allt í lagi.“ Misræmi milli leiðaraskrifa og reksturs dagblaða Margir þeirra fjölmiðla í Bandaríkj- unum sem gagnrýnt hafa bókhalds- brellur og hlutabréfaívilnanir beita sjálfir þessum aðferðum The Washington Post. ’ Veggur á milli rit-stjórnardeildar fyr- irtækisins og rekstr- ardeildarinnar. ‘ 200 kg risasmokkfisk rak á land á Tasmaníu um helgina. Vís- indamenn í Ástralíu telja að hugs- anlega sé um að ræða áður óþekkta tegund og var fiskurinn, sem var 15 m langur, fluttur á safn í Tasmaníu til skoðunar. Áströlsku vís- indamennirnir Brian Looker og Debbie Robertson skoða hér smokkfiskinn. Risa- smokk- fiskur AP Washington. AFP, AP. AFRÍKURÍKIN Rúanda og Lýð- veldið Kongó náðu friðarsamkomu- lagi í gær eftir fimm daga viðræður í Suður-Afríku. Markmiðið með samningnum er að binda enda á fjög- urra ára stríð í Lýðveldinu Kongó sem talið er að hafi kostað 2,5 millj- ónir manna lífið. Samkvæmt samningnum á stjórn- in í Rúanda að flytja herlið sitt frá Lýðveldinu Kongó og þarlend stjórnvöld eiga að reka rúandíska uppreisnarmenn frá austurhluta landsins. Jacob Zuma, varaforseti Suður- Afríku, sagði að stjórnvöld í Lýð- veldinu Kongó hefðu fallist á að „handtaka, afvopna og leysa upp“ sveitir uppreisnarmanna í austur- hlutanum. Sveitirnar eru meðal ann- ars skipaðar fyrrverandi hermönn- um frá Rúanda og talið er að þær hafi átt stóran þátt í fjöldamorðun- um í landinu árið 1994. Forsetar Rúanda og Lýðveldisins Kongó hafa ekki undirritað samning- inn en Zuma sagði enga ástæðu til að ætla að þeir myndu hafna honum. Hermenn frá fimm Afríkuríkjum hafa tekið þátt í stríðinu í Lýðveldinu Kongó. Talið er að um 20.000 her- menn frá Rúanda séu nú í landinu og Úgandamenn hafa stutt uppreisnar- sveitirnar. Zimbabwe og Angóla hafa hins vegar stutt stjórnarher Lýðveldisins Kongó. Friðar- samningur við Rúanda Pretoríu. AFP. Lýðveldið Kongó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.