Morgunblaðið - 09.08.2002, Page 43

Morgunblaðið - 09.08.2002, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2002 43 DAGBÓK Í S L A N D S Æ K J U M fi A ‹ H E I M Ferðamálaráð Íslands býður til samstarfs um auglýsingar á íslenskri ferðaþjónustu Ferðamálaráð Íslands hefur ákveðið að bjóða íslenskum fyrirtækjum til samstarfs um gerð og birtingar auglýsinga sem hvetja landsmenn til ferðalaga innanlands. Um er að ræða framhald af herferðinni „Ísland – sækjum það heim“ og er gert ráð fyrir að útlit og efnistök auglýsinga taki mið af því sem gert hefur verið til þessa. Ferðamálaráð hyggst verja tíu milljónum króna til verkefnisins á tímabilinu 1. sept. 2002 til 15. maí 2003. Hér með er auglýst eftir fyrirtækjum sem hafa áhuga á að leggja fram fé á móti Ferðamálaráði og auglýsa þjónustu sína á framangreindu tímabili. Skilyrði er að viðkomandi fyrirtæki sé starfandi í ferðaþjónustugeiranum og reiðubúið til að auglýsa í fjölmiðlum sem ná til allra landsmanna. Fjármunum Ferðamálaráðs er skipt í 16 hluta, fjóra að fjárhæð 1.000.000 króna og tólf að fjárhæð 500.000 krónur. Lágmarksframlag þeirra sem vilja taka þátt er jafnhá upphæð í hverjum hluta. Hver aðili getur einungis boðið í einn hlut. Samstarfsaðilar verða valdir með hliðsjón af fjárframlögum og fyrirhugðum kynningarverkefnum hvers og eins. Tekið er við skriflegum umsóknum um samstarf til 20. ágúst nk., á skrifstofu Ferðamálaráðs Íslands, Strandgötu 29, 600 Akureyri.  Ég vil þakka innilega öllum þeim, sem glöddu mig í tilefni af áttræðisafmæli mínu þann 22. júlí síðastliðinn. Ebba Biering, Bláhömrum 2, Reykjavík. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Nákvæmni og vandvirkni eru eiginleikar sem þú hefur haft að leiðarljósi. Þú ert einnig sagður mannvinur og vilt bæta samfélagið. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ástin blómstrar og þér hefur sjaldan liðið eins vel og nú. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hagnýtir hlutir skipta þig máli nú. Þú ert staðráð- in/n í að takast á við mál- efni sem eru óleyst. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Nú er tækifærið að ná til þeirra, sem hingað til hafa ekki viljað hlusta á skoðanir þínar. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þig langar til þess að gera breytingar á heimili þínu, en slíkt kann að vera kostnaðarsamt. Reyndu samt að lífga upp á það með einhverjum hætti. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Nú er tækifærið til þess að láta þann sem þú elsk- ar vita hvaða tilfinningar bærast í brjósti þínu. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Keyptu listaverk til þess að fegra heimilið eða eitt- hvað fallegt handa sjálf- um þér, hvort sem það eru skartgripir eða skór. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Gríptu tækifærið, taktu þér frí í vinnunni og eyddu deginum með vin- um þínum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Deilur við vinnufélaga gætu komist á hættulegt stig, ekki síst ef þeim finnst sér ógnað vegna metnaðar sem þú sýnir í starfi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Dagurinn hentar vel til þess að skemmta sér með vinum eða til fundahalda með vinnufélögum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú kemst í slæmt skap vegna deilna við aðra. Hættu að tuða því það veldur enn meiri leiðind- um. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú hefur sérstaklega mik- inn áhuga á að þéna pen- inga og eyða þeim í hluti sem þig langar í. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Margir í þessu stjörnu- merki hafa orðið fyrir skakkaföllum í sambönd- um sínum á síðustu tveimur árum. Látið ekki hugfallast því nú getið þið farið ykkar eigin leiðir í lífinu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 80 ÁRA afmæli. Þriðju-daginn 13. ágúst er áttræð Ingibjörg Björns- dóttir húsmóðir, Hólmgarði 4, Reykjavík. Hún tekur á móti gestum í safnaðarheim- ili Bústaðakirkju laugardag- inn 10. ágúst kl. 14–18. 40ÁRA afmæli. Á morg-un, laugardaginn 10. ágúst, er fertugur Þorgrím- ur Ármann Þórgrímsson sjómaður, Lísubergi 4, Þor- lákshöfn. Ármann tekur á móti gestum í Kívanishúsinu Þorlákshöfn laugardaginn 10. ágúst frá kl. 18–22. LJÓÐABROT Vikivaki Að ofan heiðkaldar stjörnur stara með strendu sjáaldri úr ís á funakoss milli kaldra vara, svo kaldra að andi manns frýs. En ég var feimin, með jörpum lokkum, og ég var saklaus og fróm, í brúnum upphlut, á bleikum sokkum og blásteinslituðum skóm. - - - Guðmundur Kamban 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Be7 4. Rgf3 Rf6 5. e5 Rfd7 6. Bd3 c5 7. c3 b6 8. De2 a5 9. c4 Bb7 10. cxd5 Bxd5 11. Be4 Bxe4 12. Dxe4 Ra6 13. d5 exd5 14. Dxd5 Rb4 15. De4 Rf8 16. a3 Rd3+ 17. Ke2 Re6 18. Rc4 Rxc1+ 19. Haxc1 0-0 20. Hhd1 Dc7 21. a4 Had8 22. g3 Kh8 23. Kf1 f5 24. exf6 Hxf6 25. Hxd8+ Dxd8 26. Rce5 c4 27. Dxc4 Bc5 Staðan kom upp í A-flokki skákhátíðarinnar í Biel í Sviss sem lauk fyrir skömmu. Ilya Smirin (2.676) hafði hvítt gegn Yannick Pelletier (2.571). 28. Dxe6! og svartur gafst upp enda verður hann manni undir eftir 28. ... Hxe6 29. Rf7+. Loka- staða mótsins varð þessi: 1. Ilya Smirin (2.676) 6 vinn- inga af 10 mögulegum 2.–3. Vladislav Tkachiev (2.625) og Alexey Dreev (2.676) 5½ v. 4. Viktor Kortsnoj (2.626) 5 v. 5.–6. Yannick Pelletier (2.571) og Francisco Vallejo Pons (2.648) 4½ v. Boðsmót Taflfélags Reykjavíkur fer fram dagana 9.–11. ágúst. Keppnin hefst í kvöld, 9. ágúst, í húsakynnum félags- ins, Faxafeni 12. Öllum er heimil þátttaka. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 9. ágúst, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Ársól M. Árnadóttir og Björn Sig- urðsson, Árskógum 6. Reykjavík. Þau eru að heiman. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. júlí sl. í Hall- grímskirkju af sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni þau Ingibjörg Stella Haralds- dóttir og Peter Jörgen Nils- son. Þau eru búsett í Sví- þjóð. SÚ hefð hefur myndast á Evrópumótum yngri spil- ara að veita sérstök verð- laun fyrir falleg spil – fyrir besta úrspilið, bestu vörn- ina og bestu sagnröðina. Í þætti gærdagsins sáum við verðlaunaspil Frakkans Bessis, þar sem hann vann fjóra spaða af öryggi. Í dag er það vörnin, en það var Tékkinn David Vorz- abal sem vann til verð- launa í þeim flokki. Vorz- abal var í vestur: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ KG104 ♥ G8 ♦ ÁG854 ♣G3 Vestur Austur ♠ 532 ♠ 986 ♥ K9 ♥ Á7653 ♦ KD109 ♦ 76 ♣K1082 ♣D97 Suður ♠ ÁD7 ♥ D1042 ♦ 32 ♣Á654 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 grand Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar Pass 2 grönd Pass Pass Pass Eftir 12–14 punkta grandopnun og Stayman- svar deyja sagnir réttilega í tveimur gröndum. Vorzabal hóf vörnina með tígulkóngi, sem sagn- hafi gaf. Vorzabal gerði sér grein fyrir því að hlut- laus vörn myndi engu skila og skipti yfir í lauf. Sem er í sjálfu sér engin snilld, en hitt var vel gert hjá Vorz- abal að velja laufkónginn! Eins og spilið var hefði lítið lauf dugað jafn vel, en Vorzabal var að glíma við þá stöðu að suður ætti laufníuna með ásnum, til dæmis Á9xx. Í því tilfelli getur skipt sköpum að makker taki laufgosann með drottningunni og spili síðan í gegnum níu sagn- hafa. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 9. ágúst, er fimmtugur Guðjón Reyn- ir Jóhannesson, Barða- strönd 19, Seltjarnarnesi. Guðjón Reynir og eiginkona hans Gyða Halldórsdóttir taka á móti ættingjum og vinum í Félagsheimili Þróttar við gervigrasvöllinn í Laugardal frá kl. 19 á af- mælisdaginn. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.