Morgunblaðið - 15.08.2002, Side 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLANDSSÍMI ætlar að byggja
upp ADSL-kerfi með nauðsynleg-
um tæknibúnaði í Reykjanesbæ. Í
frétt frá fyrirtækinu segir að með
því sé tryggð samkeppni á svæðinu
á þessum ört vaxandi markaði fjar-
skipta. „Ætla má að 16 þúsund
heimili og fyrirtæki séu með DSL-
háhraðatengingar við Netið í dag
og hefur þeim fjölgað gríðarlega á
síðustu mánuðum,“ segir í frétta-
tilkynningunni. Þar segir ennfrem-
ur að fyrsta áskrift Íslandssíma í
Reykjanesbæ hafi verið seld Árna
Sigfússyni bæjarstjóra. „Það hefur
sýnt sig að aukin samkeppni, þar
sem hún þrífst, hefur lækkað fjar-
skiptaverð og bætt þjónustu. Slíkt
myndi án efa koma fyrirtækjum í
Reykjanesbæ til góða ekki síður en
íbúum á svæðinu,“ segir í fréttinni.
Fyrstu notendur tengdir
innan viku
Íslandssími hyggst byrja að
markaðssetja og selja ADSL-teng-
ingar í Reykjanesbæ þegar í stað.
Mega fyrstu notendur vænta þess
að verða tengdir innan viku. Kerfi
Íslandssíma mun ná til allra þétt-
býliskjarna í bænum. Nauðsynleg-
ur undirbúningur er þegar hafinn
og hefst uppsetning á tækjabúnaði
innan skamms. Íbúar og fyrirtæki í
Innri-Njarðvík og Fitjum, sem
ekki hafa átt kost á ADSL-teng-
ingum til þessa, geta tengst kerfi
Íslandssíma frá byrjun október.
Íslandssími hyggst bjóða heim-
ilum í Reykjanesbæ annars vegar
ADSL II sem er 512 Kb/s tenging
og hins vegar 256 Kb/s ADSL-
tengingu. Ókeypis er að hlaða nið-
ur gögnum innanlands og veittur
er 20% afsláttur af erlendum
gagnaflutningum um kvöld og
helgar af ADSL II. Auk ADSL-
þjónustu veitir Íslandssími heim-
ilum hefðbundna símaþjónustu og
farsímaþjónustu af eigin neti á
Reykjanesi. Fyrirtækjum bjóðast
margvíslegir möguleikar á gagna-
flutningum og annarri fjarskipta-
þjónustu.
Í frétt frá Íslandssíma segir að
fyrirtækið hafi boðið ADSL-þjón-
ustu á heimilismarkaði frá því í
nóvember 2001.
Íslandssími býður
ADSL-þjónustu
Reykjanesbær
UNGIR sem aldnir spreyta sig
sumarlangt við veiðar. Veiðimenn
dvelja margir hverjir í lengri tíma
við ár og vötn þvers og kruss um
landið og freista gæfunnar með
stöng og jafnvel orma að vopni.
Það þarf ekki að leita langt út
fyrir höfuðborgarsvæðið til að
finna ágætis veiðilendur. Ung
stúlka, Ríkey Konráðsdóttir að
nafni, stóð sallaróleg á steini við
Seltjörn á Reykjanesi og renndi
fyrir fiski er ljósmyndari Morg-
unblaðsins átti þar leið um á dög-
unum. Engum sögum fer af veið-
inni, en þó má vænta að einn
silungur eða svo hafi í það minnsta
nartað í beituna.
Seltjörn er allstór tjörn í sigdæld
sunnan í Kvíguvogastapa, rétt við
Grindavíkurafleggjara. Þar er
vænum regnbogasilungi sleppt
reglulega og veiðileyfi seld á
staðnum. Á veturna er stunduð
dorgveiði gegnum ís á vatninu sem
er ekki síður spennandi tóm-
stundagaman en silungaveiði að
sumri til.
Morgunblaðið/Þorkell
Silungaveiði í Seltjörn
Grindavík
SAMNINGUR Sorpeyðingar-
stöðvar Suðurnesja sf. og Héðins
hf. vegna nýrrar sorpmóttöku- og
sorpbrennslustöðvar í Helguvík
var kynntur sveitarstjórnarmönn-
um í veitingahúsinu Jenný í
Grindavík á þriðjudagskvöld.
Sorpeyðingarstöðin hefur ósk-
að eftir því að sveitarstjórnir stað-
festi samninginn og tilkynni nið-
urstöðu sína til stöðvarinnar eigi
síðar en 20. ágúst nk.
Guðjón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum sem reka
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja,
segir að ákveðið hafi verið á
stjórnarfundi að ræða ekki ein-
staka efnisþætti samningsins fyrr
en hann hefur verið staðfestur.
Guðjón segir viðbrögð sveitar-
stjórnarmanna sem sátu fundinn
hafa verið mjög jákvæð. Talsvert
hafi verið um fyrirspurnir. Sagði
Guðjón að komið hefði fram
ánægja með vandaðan undirbún-
ing og vinnu í málinu.
Í apríl sl. var tekið tilboði lægst-
bjóðanda, Heklu og Járnbending-
ar, eftir útboðsferli vegna nýrrar
sorpmóttöku- og sorpbrennslu-
stöðvar. Eftir að tilboðinu hafði
verið tekið kom í ljós að Hekla/
Járnbending taldi sig ekki geta
staðið við tilboðið og því rift.
Framkvæmdum
seinkar ekki
Sjö fyrirtæki lögðu inn tilboð að
nýju og ákvað stjórn Sorpeyðing-
arstöðvarinnar að ganga til samn-
inga við fyrirtækið Héðin hf. en
tilboð þess hafði hlotið hæstu ein-
kunn í stigagjöf matsnefndar.
Guðjón segir að framkvæmdir
við sorpbrennslustöðina tefjist
ekki þrátt fyrir að tilboði Heklu/
Járnbendingar hafi verið rift. Enn
er stefnt að því að stöðin verði
fullbúin og prófuð í lok næsta árs.
Samningur um sorpbrennslustöð
Sveitar-
stjórnarmenn
jákvæðir
Helguvík
FARÞEGAR á hvalaskoðunarskip-
inu Moby Dick frá Keflavík upp-
lifðu einstaka ferð í fyrradag er
hnúfubakur gerði sér lítið fyrir og
stökk 45 sinnum upp úr sjónum fyr-
ir þá. Moby Dick fann
hnúfubakinn í Garðsjó,
en það er helsta hvala-
skoðunarsvæði skips-
ins.
Farþegarnir, sem
voru ítalskir ferða-
menn, voru yfir sig
ánægðir með ferðina,
að sögn Helgu Ingi-
mundardóttur, leið-
sögumanns á Moby
Dick. „Við höfðum
frétt af hnúfubakn-
um,“ segir Helga.
„Maður sem var að
keyra Garðveginn
hringdi í mig og sagð-
ist hafa séð hval
stökkva upp úr sjón-
um. Þegar við fórum út
í gær [fyrrdag] leit-
uðum við hann uppi og
fundum hann.“
Helga segir að ein-
stakt sé að sjá hnúfu-
bak stökkva jafnoft og
sá sem þau fundu
gerði, það sé toppurinn
í hvalaskoðunarferð-
um. „Við sjáum oft
smáhveli stökkva 45
sinnum og miklu oftar,
t.d. höfrunga. En að sjá
hnúfubak stökkva
svona oft er einstakt.“
Fylgjast með hrefnum
í gegnum gervitungl
Það viðraði vel á farþega Moby
Dick daginn sem hnúfubakurinn
lék listir sínar, en Helga segir að
veðrið skipti hvalina engu máli,
þeir láti sjá sig í slæmu veðri líka.
Hafrannsóknastofnun hefur nú
tekið Moby Dick á leigu í nokkra
daga í þeim tilgangi að merkja
hrefnur. Með merkingunum verður
hægt að fylgjast með og skrá ferðir
hrefnanna í gegnum gervitungl.
Hvalskoðunarskipið Moby Dick
fer eina ferð á dag með ferðamenn
út í Garðsjó og víðar að skoða hvali.
Í hverri ferð sést til hvala, að sögn
Helgu. Hún segir farþega aðallega
vera erlenda ferðamenn en að þó sé
Íslendingum í hvalaskoðunarferð-
unum stöðugt að fjölga. Skipið er
160 tonn og tekur 90 farþega. Moby
Dick er eina hvalaskoðunarskipið á
Reykjanesi og mun Helga fara með
farþega í skoðunarferðir út októ-
ber.
Hnúfubakur lék listir fyrir farþega
hvalaskoðunarskipsins Moby Dick
Stökk 45 sinnum
upp úr sjónum
Garðsjór
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Helga Ingimundardóttir um borð í Moby Dick.