Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 64
DAGBÓK 64 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Svar frá Lögreglu- stjóraembættinu í Reykjavík VEGNA greinar í Velvak- anda 14. ágúst undir heitinu „Brotalöm hjá lögreglu“ eru eftirfarandi viðbrögð frá Lögreglustjóraembætt- inu í Reykjavík. Vísað er til viðtals við undirritaðan aðstoðaryfir- lögregluþjón þar sem greint hafði verið frá þeirri jákvæðu þróun að ofbeldis- verkum hefði fækkað um- talsvert fyrstu 6 mánuði ársins í samanburði við árið 2001. Síðan er vikið að því að skýring þess gæti verið sú að lögreglan taki ekki á móti kærum um ofbeldis- verk og rakin frásögn ein- staklings sem tengist bréf- ritara. Af þessu tilefni er rétt að komi fram að lög- reglu ber að taka á móti kærum einstaklinga eftir því sem lög kveða á um. Á því eru einkum þær tak- markanir þegar málefnið telst einkaréttarlegs eðlis og því ekki háð rannsókn eða aðgerðum lögreglu. Lögreglan í Reykjavík hef- ur markvisst reynt að vinna að rannsóknum ofbeldis- brota en ljóst er þó að ekki tekst að upplýsa öll þau brot sem kærð eru. Lög- reglu ber að taka niður kæru einstaklings í ofbeld- ismálum og hafa lögreglu- menn skýr fyrirmæli um það. Önnur viðbrögð eða svör lögreglumanna eru ekki í samræmi við fyrir- mæli embættisins. Lögregl- an óskar hins vegar eftir því að eiga samstarf við máls- aðila og fá frá þeim eins miklar upplýsingar og kost- ur er hverju sinni því þeir eru jú líklegastir til að geta aðstoðað við að upplýsa mál. Þess vegna er oft ósk- að eftir því við málsaðila að hann komi til lögreglu þeim upplýsingum sem hann býr yfir og þá er hugsanlegt að beðið sé með að taka niður formlega kæru þar til þau gögn liggja fyrir. Almenna reglan er hins vegar sú að taka strax niður kæru við- komandi. Vegna þessa máls hvet ég bréfritara að hafa samband við mig í síma 569 9000 eða netfangið karlsteinar@lr.is svo hægt sé að leiðrétta ef viðkom- andi einstaklingur hefur fengið önnur svör hjá emb- ættinu en hér hafa verið rakin. Virðingarfyllst, Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn. Endurreisn síldar- og loðnustofnsins MEÐ því að veiða hval og skjóta bjargfuglinn mætti stækka bæði síldar- og loðnustofninn töluvert. Bjargfuglinn étur nokkra tugi milljóna af seiðum á ári hverju og er þar skarð fyrir skildi. Ef fuglinum yrði fækkað allt í kringum land- ið – og eftir yrðu tíu til tutt- ugu þúsund stykki myndu stofnar síldar og loðnu styrkjast töluvert. Gísli Hallgrímsson. Dýrahald Depill er týndur FRESSKÖTTUR, svartur og hvítur að lit, týndist frá heimili sínu í Safamýri 36 2. ágúst sl. Kötturinn er ólar- laus og heitir Depill. Finn- andi er vinsamlegast beð- inn um að hringja í Huld í síma 869 7790. Dísa er horfin DÍSA hvarf 8. ágúst. Hún er þrílit snotur læða. Hún er til heimilis í Eyrarholti 2 í Hafnarfirði. Hún er eyrna- og ólarmerkt. S. 555 3742. Fundarlaun í boði. Kettlingur fæst gefins LEITAÐ er að góðu heimili fyrir 7-8 vikna fress. Hann er svartur og hvítur. Áhugasamir hafi samband í síma 691 9166. Karlkyns loð- naggrís óskast SIGFÚS Már óskar eftir gefins loðnaggrís. Setur þau skilyrði að dýrið sé karlkyns. Sigfús er í síma 567 0992. Evítu vantar heimili HÚN Evíta er þriggja ára köttur sem vantar nýtt heimili. Hún er þrifin með afbrigðum og hvers manns hugljúfi. Svört að lit með hvítan blett á bringu. Áhugasamir hafi samband í síma 565 5935 eða 691 1826. Köttur fæst gefins vegna ofnæmis BRÖNDÓTTUR fjögurra mánaða gamall högni er nú í leit að nýju heimili. Lok- aður sandkassi og matar- skálar munu fylgja þessum góða ketti. Upplýsingar í síma 565 9017. Kettlingur fæst gefins ÞESSI kettlingur er ekki bara fjörugur og gælinn heldur er hann líka kassa- vanur. Hann er nú í leit að góðu heimili. Upplýsingar í síma 860 6827. Kassavanur kettlingur 7 VIKNA bröndóttur kett- lingur óskar eftir góðu heimili. Hann er kassavan- ur og til fyrirmyndar að öllu leyti. Áhugasamir hringi í síma 863 1001 eða 554 6789. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... VÍKVERJI lætur vel af útvarpiSögu, þá einkum spjallinu, sem boðið er upp á í bland við íþróttir og fréttir. Þó fer heitið á þessari rás í taugarnar á Víkverja. Útvarp Saga er óþjált heiti og Víkverja finnst að það ætti að gefa rásinni nýtt nafn. Til er í málinu kvenkynsorðið útvarps- saga með fjórum atkvæðum með áherslu á fyrsta atkvæði eins og vera ber. Þegar menn eru að bögglast við að segja heitið á þessari útvarpsrás er eins og verið sé að segja orðið út- varpssaga með kolbrenglaðri áherslu. Svo er þetta sögunefni ótta- lega hátíðlegt, en það er önnur saga. Fyrir kemur að hlustendur sem hringja í þáttinn Þjóðfund í beinni útsendingu spyrja hvort þeir séu ekki örugglega að hringja í útvarps- sögu og meina þá auðvitað Útvarp Sögu. Víkverji er alveg til í að segja bara útvarpssaga. Hvernig hefði annars verið að nefna rásina Sagna- útvarp, Söguútvarp eða Útvarp Sagnir? Víkverji man að svona umræða kom upp þegar hið umdeilda nafn Saga bíó leit dagsins ljós. Þá vildu sumir kalla bíóið Sagnabíó eða Sögu- bíó. Kannski er Víkverji ósanngjarn að bera þessa hluti saman en það breytir ekki skoðun hans á málinu. x x x MEIRA um Þjóðfund í beinni út-sendingu. Sigurður G. Tómas- son, sá gamalreyndi útvarpsmaður, er fínn sem fundarstjóri í beinni, rétt eins og hann var í Þjóðarsálinni gömlu á Rás tvö. Víkverji hefur tekið eftir því að stundum hafa hlustendur engan áhuga á að ræða það mál sem Sigurður stingur upp á sem um- ræðuefni dagsins. Eitt sinn auglýsti hann eftir skoðunum fólks á málefn- um SPRON en flestir vildu segja sjúkrasögur og tala um heilbrigðis- kerfið, ef Víkverji man þetta rétt. Sama var uppi á teningnum þegar Sigurður auglýsti eftir skoðunum á dýrainnflutningi. Þetta var í kjölfar þess að félagið ÍSLAM vildi fá leyfi til að flytja inn lamadýr og nota þau sem burðardýr í trússferðum á há- lendinu. Góð hugmynd það að mati Víkverja. En enginn vildi ræða um lamadýrin, heldur segja sjúkrasögur og tala um heilbrigðiskerfið sem fyrr. Þetta er greinilega það sem brennur á fólki. Svo hringdi einn sem saknaði Sigurðar Péturs sem er víst hættur að vinna á stöðinni. Sá ætlaði að veiða upp úr Sigurði G. ástæður brotthvarfs hans og spurði eins og flinkasti saksóknari en fékk fá svör. x x x FÉLAGAR Sigurðar G., þeirIngvi Hrafn og Hallgrímur Thorsteinsson, eru ágætir líka. Hall- grímur stjórnaði Reykjavík síðdegis, gríðarvinsælum símaþætti á Bylgj- unni fyrir mörgum árum og hefur einhverja þá ágætustu útvarpsrödd sem Víkverji heyrir nú um stundir. Það fer nú að styttast í tvítugsafmæli Bylgjunnar. Víkverja finnst eins og stöðin hafi verið stofnuð í fyrrasum- ar en það var víst 1986. Hratt líður stund. x x x VÍKVERJI sunnudags gerði sérlítið fyrir þegar hann var að hrósa Máli og menningu fyrir að hafa leiðrétt ónákvæmni milli útgáfa af Íslandskortabók sinni og flutti þrjá bæi og heilt nes milli sýslna. Reykjanes og bæirnir Staður, Ár- bær og Barmar eru vitaskuld í Barðastrandarsýslu og er beðist vel- virðingar á mistökunum. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 helmingur, 4 greind, 7 víðan, 8 uppnámið, 9 skepna, 11 kropp, 13 gubbaði, 14 kjáni, 15 and- vari, 17 ójafna, 20 gruna, 22 eldiviðurinn, 23 svip- uðum, 24 ræktuð lönd, 25 hagnaður. LÓÐRÉTT: 1 kaupið, 2 ber, 3 gadd, 4 hár, 5 krók, 6 stílvopn, 10 gól, 12 dreitill, 13 sómi, 15 strita, 16 hyggur, 18 stormurinn, 19 sár, 20 ofnar, 21 bára. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hlédrægur, 8 vitur, 9 ildis, 10 kyn, 11 trana, 13 gerpi, 15 spors, 18 órögu, 21 ket, 22 kokka, 23 raust, 24 græðlings. Lóðrétt: 2 létta, 3 dýrka, 4 æsing, 5 undir, 6 hvöt, 7 usli, 12 nýr, 14 eir, 15 sekk, 16 orkar, 17 skarð, 18 ótrúi, 19 örugg, 20 urta. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Wiesbaden kemur og fer í dag. Mánafoss og Vechtborg koma í dag. Goðafoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Eld- borg kemur í dag. Brúar- foss fór frá Straumsvík í gær. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 og kl. 13 vinnustofa, bað. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9 leik- fimi, kl. 9.45–10 helgi- stund, kl. 11 boccia, kl. 13.30 gönguhópur, lengri ganga. Púttvöllurinn er opinn kl. 10–16 alla daga. Myndlist byrjar mánu- daginn 16. sept. kl. 16. Allar upplýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fóta- aðgerð. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 baðþjón- usta, hárgreiðslustofan opin kl. 9–17 alla daga nema mánudaga. Félagsstarfið, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9 fóta- aðgerð, kl. 10 hársnyrt- ing, kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Bingó kl. 13.30. Á morgun brids og frjáls spilamennska kl. 13.30, pútt á Hrafn- istuvelli kl. 14–16. Orlofs- ferð að Hrafnagili við Eyjafjörð 19.–23. ágúst. Rúta frá Hraunseli kl. 9 stundvíslega mánudag- inn 19. ágúst. Orlofsferð að Höfðabrekku 10.–13. sept. Skráning og upp- lýsingar í Haunseli kl. 13–17, sími 555 0142. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–17 hár- greiðsla, kl. 9–16 böðun. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan op- in virka daga frá kl. 10– 13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Miðviku- dagur: Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10. Fimmtudagur: Brids kl. 13. Hringferð um Norð- austurland 17.–24. ágúst. Fundur verður með leið- sögumanni 15. ágúst kl. 16 í Ásgarði. Þjórs- árdalur, Veiðivötn Fjalla- baksleið nyrðri, 27.–30. ágúst. Staðfestingargjald þarf að greiða fyrir 14. ágúst. Nokkur sæti laus. Fyrirhugaðar eru ferðir til Portúgals 10. sept- ember í 3 vikur og til Tyrklands 30. september í 12 daga fyrir fé- lagsmenn FEB, skráning er hafin, takmarkaður fjöldi. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum kl. 10–12. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12, s. 588 2111. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 10.30 helgistund, frá hádegi spilasalur opinn og vinnustofur. Miðviku- daginn 21. ágúst er ferðalag í Rangárþing, leiðsögn staðkunnugra, kaffihlaðborð í Hlíð- arenda, Hvolsvelli, skráning hafin.Allar upplýsingar á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9.30–16 Gullsmári, Gullsmára 13. Opið alla virka daga kl. 9–17 hádegismatur, kaffi og heimabakað meðlæti. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 bútasaumur, kl. 9– 11. Hjúkrunarfræðingur á staðnum. kl. 10 boccia, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 10 boccia, kl. 13 handavinna, kl. 14 félagsvist. Í dag, fimmtudaginn 15. ágúst, verður kynning á um- hverfisvænum klútum, Síon – ACT. Kynningin verður á milli kl. 14–16. Fótaaðgerð, hársnyrting. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.30 útskurður, ganga kl. 10. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–12 aðstoð við böðun, kl. 9.15–15.30 handavinna, handa- vinnustofan opin án leið- beinanda fram í miðjan ágúst. Ferð til Vest- mannaeyja miðvikudag- inn 21. ágúst. Lagt af stað frá Vest- urgötu kl. 10.30. Siglt með Herjólfi fram og til- baka. Skoðunarferð um eyjuna. 3ja rétta kvöld- máltíð og gisting ásamt morgunverði á Hótel Þórshamri. Athugið, greiða þarf farmiða í síð- asta lagi fyrir 19. ágúst. Upplýsingar í síma 562 7077, allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 morgunstund og handmennt, kl. 10 leik- fimi, boccia kl. 10.45, kl. 13 brids, frjálst. Hrafnista í Reykjavík og félagsstarfið á Hrafnistu. Sumarferð fyrir heimilisfólk og að- standendur verður föstudaginn 16. ágúst, lagt af stað kl. 13 og komið heim um kl. 20.30. Farið verður í heimsókn á Sólheima og grillað að Hraunborgum. Skráning fyrir 15. ágúst í síma 585 9500. Hallgrímskirkja, eldri borgarar. Vestfjarða- ferð dagana 28.–31. ágúst, farið frá Hall- grímskirkju kl. 10, gist í Flókalundi, á Hótel Ísa- firði og Reykjanesi, heimferð um Steingríms- fjarðarheiði, í Hrútafjörð og þaðan yfir Holta- vörðuheiði og heim. Uppl. og skráning hjá Dagbjörtu í s. 693 6694, 510 1034 og 561 0408, all- ir velkomnir. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúklinga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Í Vest- mannaeyjum: hjá Axel Ó. Láruss. skóverslun, Vestmannabraut 23, s. 481 1826. Á Hellu: Mos- felli, Þrúðvangi 6, s. 487 5828. Á Flúðum: hjá Sólveigu Ólafsdóttur, Versl. Grund, s. 486 6633. Á Selfossi: í versluninni Írisi, Austurvegi 4, s. 482 1468, og á sjúkrahúsi Suðurlands og heilsu- gæslustöð, Árvegi, s. 482 1300. Í Þorlákshöfn: hjá Huldu I. Guðmunds- dóttur, Oddabraut 20, s. 483 3633. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúklinga fást á eftirtöldum stöðum á Reykjanesi. Í Grinda- vík: í Bókabúð Grinda- víkur, Víkurbraut 62, s. 426 8787. Í Garði: Ís- landspósti, Garðabraut 69, s. 422 7000. Í Kefla- vík: í Bókabúð Keflavík- ur Pennanum, Sól- vallagötu 2, s. 421 1102, og hjá Íslandspósti, Hafnargötu 89, s. 421 5000. Í Vogum: hjá Íslandspósti, b/t Ásu Árnadóttur, Tjarnargötu 26, s. 424 6500, í Hafn- arfirði: í Bókabúð Böðv- ars, Reykjavíkurvegi 64, s. 565 1630, og hjá Penn- anum – Eymundsson, Strandgötu 31, s. 555 0045. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúklinga fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu LHS, Suðurgötu 10, s. 552 5744, 562 5744, fax 562 5744, Laugavegs Apóteki, Laugavegi 16, s. 552 4045, hjá Hirti, Bón- ushúsinu, Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi, s. 561 4256. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúklinga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Á Akra- nesi: í Bókaskemmunni, Stillholti 18, s. 431 2840, Dalbrún ehf., Brák- arhrauni 3, Borgarnesi, og hjá Elínu Frímannsd., Höfðagrund 18, s. 431 4081. Í Grundarfirði: í Hrannarbúðinni, Hrannarstíg 5, s. 438 6725. Í Ólafsvík: hjá Ingibjörgu Pétursd., Hjarðartúni 1, s. 436 1177. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúklinga fást á eftirtöldum stöðum á Vestfjörðum: Á Suður- eyri: hjá Gesti Krist- inssyni, Hlíðavegi 4, s. 456 6143. Á Ísafirði: hjá Jóni Jóhanni Jónss., Hlíf II, s. 456 3380, hjá Jónínu Högnad., Esso-verslun- inni, s. 456 3990 og hjá Jóhanni Káras., Engja- vegi 8, s. 456 3538. Í Bol- ungarvík: hjá Kristínu Karvelsd., Miðstræti 14, s. 456 7358. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588 7555 og 588 7559 á skrifstofu- tíma. Gíró- og kred- itkortaþjónusta. Í dag er fimmtudagur 15. ágúst, 227. dagur ársins 2002. Maríumessa hin f. Orð dagsins: Ég vil lækna frá- hvarf þeirra, elska þá af frjálsum vilja, því að reiði mín hefur snúið sér frá þeim. (Hósea, 14 5.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.