Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 54
MINNINGAR
54 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ María StellaReyndal fæddist í
Reykjavík 15. júlí
1942. Hún lést á
heimili sínu 7. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Jo-
han Reyndal bakara-
meistari, f. í
Holsterbro á Jótlandi
í Danmörku 4. maí
1878, d. 9. september
1971, og kona hans,
Guðrún Theodóra
Benediktsdóttir, f. í
Gljúfurholti í Ölfus-
hreppi 18. ágúst
1903, d. 27. sept. 1987. Eldri börn
þeirra eru Erlingur Reyndal, f. 22.
apríl 1931, og Dóra Reyndal, f. 27.
september 1937. Stella giftist hinn
16. janúar 1965 Haraldi Henrýs-
syni hæstaréttardómara, f. 17.
febrúar 1938. Þau skildu. 31. des-
ember 1978 giftist Stella Heiðari
Magnússyni endur-
skoðanda, f. 16. sept-
ember 1941.
Stella stundaði
nám í Verzlunar-
skólanum og Tónlist-
arskólanum. Ung að
árum lærði hún á pí-
anó en síðar á fiðlu.
Hún spilaði með Sin-
fóníuhljómsveitinni
árin 1964-1971. Hún
var við fiðlunám í
Noregi 1971-1974.
Aðalkennari hennar
þar var Örnulv Boye
Hansen. Eftir að
Stella kom heim frá námi kenndi
hún við ýmsa skóla, m.a. Tónlist-
arskólann í Garðabæ og Tónlist-
arskólann í Hafnarfirði og víðar.
Einnig kenndi hún í einkatímum.
Útför Stellu verður gerð frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Öllu lífi er markaður ákveðinn
tími. Sú staðreynd verður aldrei eins
ljós og þegar við missum einhvern
okkur nákominn. Á það erum við
áþreifanlega minnt nú, er við kveðj-
um okkar elskulegu stjúp- og
tengdamóður, hana Stellu. Viljum
við minnast hennar með örfáum orð-
um.
Þau eru orðin átta árin frá því að
við stigum í óvissu í fyrsta sinn fæti
inn á heimili þeirra Stellu og pabba.
Við vissum ekki við hverju var að bú-
ast, enda mál skipast þannig, að
samskipti höfðu nær engin verið
milli okkar fram til þess tíma og
reyndar engin við hana Stellu. Er
skemmst frá því að segja, að okkur
var tekið opnum örmum og hefur
svo verið æ síðan. Átti Stella hvað
drýgstan þátt í því að regluleg sam-
skipti okkar urðu að veruleika.
Halldór Kiljan segir í Heimsljósi,
að fegursta blómið lifi á huldum
stað, fæstir fái nokkurn tíma að sjá
það, mörgum sjáist yfir það og
nokkrir kunni ekki skil á gildi þess.
Þessi lýsing skáldsins finnst okkur
geta átt við um Stellu.
Þann tíma sem við þekktum Stellu
glímdi hún við erfið veikindi og var
víst búin að gera nokkuð langan tíma
áður. Munu þau veikindi, ásamt öðr-
um ytri atvikum, hafa gert að verk-
um að hún varð að miklu leyti að
draga sig í hlé frá lífsstarfi sínu, tón-
listinni, þar sem hún hafði ótvírætt
hæfileika og háleit markmið til sam-
ræmis við þá. Var hún því mestan
partinn innan veggja heimilis síns,
fjarri iðu og eyrum hins daglega lífs.
Enda þótt veikindi Stellu hafi á tíð-
um, einkum hin síðari ár, gert henni
samskipti við okkur erfið og án efa
oft erfiðari en hún vildi vera láta, þá
stóð hún alltaf við sitt og vel það.
Fram í hugann koma heimsóknir í
tilefni af afmælum barna okkar og
með pakka fyrir bæði börnin í hvert
sinn, enda þótt einungis annað ætti
afmæli, því ekki mátti skilja hitt eftir
út undan; alltaf var mætt með stór
páskaegg um páska; heimsóknir fyr-
ir jól með veglega jólapakka; haldin
eða mætt í jólaboð; mætt við braut-
skráningar úr skólum og önnur há-
tíðleg tækifæri. Þá reyndist Stella
ómetanleg stoð þegar erfiðleikar
steðjuðu að og aldrei verður henni
fullþökkuð sú aðstoð og hjálp er hún
veitti á þeim stundum.
Blessuð sé minning Stellu.
Heiðrún og Garðar.
Stella, fyrrverandi mágkona mín
hefur nú verið kölluð heim. Elsku
Stella mín, við höfum verið sam-
ferðamenn í hálfan fjórða áratug og
þú hefur ávallt verið mér sannur vin-
ur og mörg síðustu árin hefur verið
nær daglegt samband með okkur.
Ég minnist eingöngu góðra stunda í
návist þinni og við hlógum oft dátt
saman og gerðum að gamni okkar.
Hæst held ég að beri minninguna
um hringferðina með ástvinum okk-
ar um landið á löngu liðnum árum
eða stuttu eftir að vegurinn var opn-
aður. Við gáfum okkur svo góðan
tíma og skoðuðum hvern krók og
kima og fórum í skemmtilega úti-
leiki. Þetta var okkur báðum
ógleymanleg ferð.
Elsku Stella, þú varst að mörgu
leyti mjög lánsöm í lífinu, áttir góða
fjölskyldu. Þú ólst upp hjá foreldr-
um þínum, því sómafólki Guðrúnu
Benediktsdóttur og Jóhanni P.
Reyndal, sem bæði eru látin, ásamt
eftirlifandi eldri systkinum Erlingi
og Dóru Reyndal.
Í vöggugjöf voru þér góðar gáfur
gefnar og á yngri árum blómstraðir
þú með tónlistargyðjunni. Þú út-
skrifaðist frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík í fiðluleik og lékst síðar
með Sinfóníuhljómsveit Íslands um
árabil og stundaðir jafnframt
kennslu.
Það átti fyrir þér að liggja að
verða tvígift. Fyrri eiginmaður þinn
var Haraldur Henrýsson hæstarétt-
arlögmaður, en þið slituð samvist-
um. Eftirlifandi eiginmaður er Heið-
ar Magnússon endurskoðandi. Það
er trú mín að þessir tveir heiðurs-
menn séu meðal umhyggjusömustu
og fremstu öðlinga þessa lands.
Elsku Stella mín, af æðruleysi
tókst þú því sem síðar að höndum
bar. Þú hefur nú gengið í gegnum
langvarandi veikindi. Hjartað var
svo veilt, en ef og þegar þú gafst
grænt ljós, þá voruð þið Heiðar kom-
in út í bíl og á leið í sveitasæluna og
oft í bændagistingu. Heiðar, þinn
elskulegi eiginmaður var alltaf tilbú-
inn að létta þér lífið.
Elsku Stella mín, ég sakna þín
sárt og það er huggun harmi gegn að
trúa því að þú sért nú í faðmi kær-
leikans í nýjum störfum á grænni
grundu.
Ég bið góðan Guð að varðveita og
styrkja Heiðar þinn, svo og aðra
ættingja og vini.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því.
Þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Elsku Stella. Ég minnist þín með
virðingu og þökk.
Sjöfn.
MARÍA STELLA
REYNDAL
Af öllum þeim gæðum
sem okkur veitir
viturleg forsjá
til ánægjuauka,
er vináttan dýrmætust.
(Epikuros.)
Þessar línur koma upp í hugann
þegar við í dag kveðjum kæra vin-
konu, Ingu Lárusdóttur, sem lést á
heimili sínu 1. ágúst svo langt um
aldur fram.
Kynni okkar við þau hjónin, Ingu
og Bubba, hófust, þegar við öll ung
að árum með lítil börn fluttum í sama
fjölbýlishúsið. Eiginlega má segja að
börnin okkar hafi upphaflega leitt
okkur saman. En eitthvað höfum við
fundið í fari hvert annars sem okkur
hugnaðist því fljótlega tókst á með
okkur einlæg vinátta sem við bárum
gæfu til að hlúa að. Góðir og traustir
vinir eru gulli dýrmætari.
Við höfum brallað sitthvað saman
gegnum tíðina og síðustu daga hafa
streymt fram í hugann myndir og
minningar sem ylja sálinni og fylla
okkur þakklæti fyrir að hafa fengið
að njóta þessara samvista. Við minn-
umst gönguferða á björtum vor-
kvöldum í nágrenni Hafnarfjarðar,
sem gjarnan enduðu með kakóbolla
og tertustykki á kaffihúsi. Við minn-
umst útileguferða á sumrum, bæði á
INGA ÞÓRA
LÁRUSDÓTTIR
✝ Inga Þóra Lárus-dóttir fæddist á
Uppsölum í Miðfirði í
Vestur-Húnavatns-
sýslu 31. júlí 1949.
Hún lést á heimili
sínu 1. ágúst síðast-
liðinn og var útför
hennar gerð frá
Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði 13.
ágúst.
láglendi og öræfum. Í
einni slíkri ferð borðuð-
um við einhvern þann
albesta mat sem við
höfum smakkað. Þá
vorum við stödd á Snæ-
fellsnesi um verslunar-
mannahelgi og afmælið
hennar Ingu bar ein-
mitt upp á þessa helgi.
Þá bauð okkar kona
óvænt upp á grillaðar
nautalundir. Og maður
lifandi, þarna sátum við
úti í guðsgrænni nátt-
úrunni með diskana á
hnjánum og nutum
stundarinnar meðan maturinn bein-
línis bráðnaði í munni. Það þarf ekki
alltaf dúkað borð og postulín til að
skapa réttu stemminguna. Við minn-
umst notalegra kvöldstunda yfir
kaffibolla við kertaljós á dimmum
vetrarkvöldum. Þetta og margt
fleira eru perlur í sjóði minninganna
sem við munum varðveita á komandi
árum.
Inga var afar traust og hreinskipt-
in kona, forkur dugleg, glaðlynd og
hláturmild, orðheppin og fljót að
koma auga á spaugilegu hliðarnar.
Traustari og betri vini en þau hjónin,
Ingu og Bubba, er vart hægt að
hugsa sér.
Dýpsta sæla og sorgin þunga,
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra máli ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.)
Það var mikið áfall þegar Inga
greindist með alvarlegan sjúkdóm
síðastliðið haust. En það var ekki
henni líkt að leggja árar í bát. Hún
byrjaði strax að berjast og naut
stuðnings fjölskyldu sinnar sem stóð
við hlið hennar eins og klettur. Við
vissum alltaf að Inga vinkona okkar
var hörkukona og það sýndi hún best
með því hvernig hún tókst á við veik-
indi sín. Hugrekkið og æðruleysið
sem hún sýndi hlýtur að vekja að-
dáun. Við vitum að auðvitað átti hún
sínar erfiðu stundir, en hún bar þær
ekki á torg og bar höfuð hátt sem
fyrr. Inga var líka þeirrar gæfu að-
njótandi að eignast góðan og traust-
an eiginmann, góð og mannvænleg
börn og nú síðast dótturbörnin, tví-
burana, sem voru sólargeislar í lífi
hennar. Það er sárt til þess að hugsa
að þau fari á mis við ást og um-
hyggju ömmu sinnar í uppvextinum,
en við erum þess fullviss að Inga
mun vaka yfir þeim og fylgjast
áfram með, bara frá öðru sjónar-
horni.
Og nú er baráttunni lokið. Hún
kvaddi þetta jarðneska líf á einum af
fegurstu dögum sumarsins sem
kannski var táknrænn fyrir líf henn-
ar sjálfrar. Við kveðjum kæra vin-
konu að sinni og þökkum áratuga
vináttu sem aldrei bar skugga á.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Elsku Bubbi, Sólrún, Lárus,
Stína, Andrés, Björn Kristinn og
Ingibjörg. Við sendum ykkur og öðr-
um aðstandendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Megi guð vera með
ykkur öllum.
Hvíl í friði kæra vinkona.
Hulda, Garðar og fjölskylda.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku Inga, minningarnar um þig
hrannast upp og brosið yfir þeim er
aldrei langt undan. Við munum ylja
hjarta okkar við þær um ókomna
framtíð.
Ein af þeim minningum sem
standa þó upp úr er kvöldstundin
okkar sl. vor. Við vissum allar hvert
stefndi en samt þetta eina kvöld
tókst okkur að leggja það til hliðar
og nutum samverunnar.
Gömlum leyndarmálum var ljóstr-
að upp það kvöld og að sjálfsögðu
var enginn eins fullkomin og klár og
við. Sérstaklega munum við þegar
þú sagðir okkur frá fyrstu kynnum
þínum og Bubba og hvað Solla var
svekkt yfir því að foreldrar hennar
áttu engar gamlar ástir frá fyrri tíð.
Þið kynntust og voruð eins og sköp-
uð hvort fyrir annað frá fyrstu tíð.
Við þökkum allar stundirnar sem
við áttum saman, hvort sem það var
Bláfjallaferð eða stutt spjall í búð-
inni. Minningin um þig elsku vin-
kona mun lifa um ókomna framtíð í
hjarta okkar og huga.
Elsku Bubbi, Lalli, Stína, Solla,
Andrés, Björn og Ingibjörg, missir
ykkar er mikill og við getum aðeins
vonað að Guð einn veiti ykkur styrk
til að halda áfram. Minning um jarð-
bundna lífsglaða vinkonu, eiginkonu,
móður, ömmu og umfram allt sálu-
félaga lifir áfram í hjörtum okkar
allra. Guð blessi ykkur og veri með
ykkur.
Margrét, Guðrún, Anna
María og fjölskyldur.
Vinur er einhver
sem skilur þína fortíð,
trúir á þína framtíð,
og tekur þér í dag
bara eins og þú ert.
(Höf. ók.)
Þessi fáu orð segja svo miklu
meira en maður áttar sig á í fyrstu.
Þau segja manni að það er síður en
svo sjálfgefið að eiga vini og í raun er
það guðsgjöf að eignast sanna vini.
Vini sem eru tilbúnir að taka þér í
dag bara eins og þú ert með öllum
þínum kostum og göllum. Vini sem
skilja hvað þú hefur gengið í gegnum
og trúa statt og stöðugt á að þú getir
í framtíðinni gert hvað það sem þig
langar til.
Í dag er þó komið að kveðjustund,
komið að því að kveðja sannan vin. Á
tímum sem þessum er fátt annað
hægt að gera en að þakka Guði fyrir
að hafa eignast slíkan vin.
Elsku Inga, baráttu þinni við ill-
vígan sjúkdóm er lokið. Þú lést aldr-
ei á neinu bera og sýndir okkur
sannan baráttuvilja. Án efa varstu
veikari en maður gerði sér nokkurn
tíma grein fyrir. Það er svo margs að
minnast og erfitt að nefna eitthvað
eitt framar öðru. Samverustundirn-
ar hafa svo sannarlega verið margar
skemmilegar gegnum árin og þær
munu lifa áfram í hjarta okkar. Það
sem við komum þó mest til með að
minnast um ókomin ár er þó vinátta
þín og fjölskyldu þinnar. Það er ekki
á hverjum degi sem maður eignast
sanna vini.
Elsku Bubbi, Solla, Lalli, Stína,
Andrés, Ingibjörg og Björn Krist-
inn, megi góður Guð styrkja ykkur á
þessum erfiðu tímum. Minning um
ástkæra eiginkonu, móður, tengda-
móður og ömmu mun ljóma í hjarta
ykkar um ókomna framtíð.
Árni, Herdís og Hrönn.
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
www.solsteinar.is sími 564 4566
Legsteinar
í Lundi
við Nýbýlaveg, Kópavogi
Formáli
minning-
argreina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.