Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 42
UMRÆÐAN 42 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ UNDIR forystu for- sætisráðuneytisins hefur verið unnið að því um nokkurt skeið að flytja sem flest ráðuneyti saman ofan við Arnarhól. Til þess þarf að byggja mikið að skrifstofuhúsnæði á svokölluðum stjórnar- ráðsreit en það eru lóðir við Sölvhólsgötu 11 (kennt við Land- símann) og Sölvhóls- götu 13 (kennt við Landsmiðjuna) ásamt fleiri lóðum. Forsætis- ráðherra kynnti í sum- ar úrslit í samkeppni um hönnun skrifstofubygginga fyrir heilbrigðisráðuneytið, dóms- og kirkjumálaráðuneytið og umhverf- isráðuneytið. Alls er gert ráð fyrir byggingu 4.800 fermetra skrifstofu- byggingar fyrir rúmlega 700 m.kr. Að sumu leyti er það góður kostur fyrir ráðuneytin og ef til vill hag- kvæmur að safna ráðuneytunum saman á einn blett nálægt miðbæ Reykjavíkur. Í þessari grein er þessi stefna hins vegar gagnrýnd, annars vegar vegna kostnaðar og hins vegar vegna miðbæjarins. Stækkun ráðuneyta Gert er ráð fyrir verulegri stækk- un á húsnæði fyrir þessi ráðuneyti. Öllum sem þekkja til er ljóst að mjög þröngt er um starfsmenn ráðuneytanna og full þörf að bæta úr því. En það má gera með ýmsum öðrum hætti en að byggja yfir ráðuneytin. Þannig má hugsanlega rýmka um starfsmenn með því að fækka þeim en ekki verður farið út í þá sálma hér. Ríkið á mjög mikið af húsnæði vítt og breitt um Reykjavík og um land allt. Ef til vill er hægt að nota það með öðr- um hætti en nú er gert og slepppa þannig við að byggja nýjar skrif- stofubyggingar. Til stendur eftir því sem best er vitað að flytja Rafmagns- veitur ríkisins norður til Akureyrar. Við það losnar mikið húsnæði við Hlemm eða yfir 2.000 fermetrar, við hliðina á heilbrigðisráðuneytinu. Mun betra er að stækka heilbrigð- isráðuneytið við Hlemm í stað þess að færa það í heild sinni um nokkur hundruð metra innan miðbæjarins. Landlæknisembættið, sem einnig er við Hlemm, gæti eflaust einnig fengið hluta af húsnæði RR en frést hefur að embættið sé í húsnæðisleit. Við Hlemm yrðu þá áfram hlið við hlið allar helstu stofnanir heilbrigð- iskerfisins, heilbrigðisráðuneytið, landlæknir og Tryggingastofnun ríkisins. Mikil hagræðing er fólgin í því að hafa þær í námunda hver við aðra og mun meiri en að færa heil- brigðisráðuneytið nær öðrum ráðu- neytum. Samskipti þessara stofn- ana innbyrðis eru eflaust meiri en samskipti heilbrigðisráðuneytis við önnur ráðuneyti. Með því að hætta við 700 m.kr. stjórnarráðsbygging- ar á Sölvhólsgötu má spara veru- legt fé, bæði sjálfan byggingar- kostnaðinn auk mikils kostnaðar við flutning og aukinn rekstur vegna stærra húsnæðis. Veitingastaðir Gagnrýna má ýmislegt í forsend- um hönnunarsamkeppninnar út frá kostnaði. Til dæmis er gert ráð fyr- ir fjölgun starfsmanna ráðuneyt- anna. Benda má á að gert er ráð fyrir að langflestir starfsmenn hafi einkaskrifstofur í stað þess að vinna í opnu skrifstofurými sem mjög al- gengt er hjá einkafyrirtækjum en slíkt sparar pláss og þar með fé. Þá er áætlað að mötuneyti upp á um 300 fermetra verði í skrifstofubygg- ingunni og má áætla byggingar- kostnað vegna þess upp á 45–50 m.kr. Í raun má segja að ríkið ætli að byggja enn einn „veitingastað- inn“ fyrir sína starfsmenn en eins og allir vita eru fjölmargir veitinga- staðir í næsta nágrenni við Arn- arhvol. Fyrir um 10 árum voru uppi hugmyndir um að ríkið hætti að starfrækja mötuneyti en tæki þess í stað upp „matarkort“ sem hægt væri að framvísa í veitingahúsum miðbæjarins. Með matarkortum er starfsmönnum frjálst að versla við þau veitingahús sem samningar hafa verið gerðir við. Ekki þarf að fjölyrða um að starfsmenn ættu með því móti val á mjög fjölbreytt- um matseðli á hverjum einasta degi. Ríkið og veitingahúsin ættu að geta náð góðum samningum en mál- tíð í mötuneytum ríkisins í Arn- arhvoli kostar um 700 kr. í dag. Auk þess að spara kostnað vegna mötu- neytisbygginga þá myndu fjölmarg- ir ríkisstarfsmenn að snæða hádeg- isverð í matartíma sínum lífga verulega upp á miðbæinn allt árið um kring, ekki síst yfir vetrartím- ann. Stjórnarráðsreitur Hagstofan er í húsnæðisleit eftir að Þjóðhagsstofnun var lögð niður og hefur verið nefnt í fréttum að hún sé jafnvel á leiðinni inn í Borg- artún. Ef Hagstofan flytur úr Skuggasundi (sem er milli Lindar- götu og Sölvhólsgötu) losnar mikið af tilbúnu skrifstofuhúsnæði rétt við hliðina á dómsmálaráðuneytinu. Þangað mætti hæglega flytja dóms- málaráðuneytið og/eða umhverfis- ráðuneytið, að hluta til eða í heild. Annars getur Hagstofan verið nán- ast hvar sem er á landinu m.t.t. þeirra verkefna sem hún sinnir. Þannig mætti hugsanlega flytja hana til Akureyrar og gæti það bæði styrkt Akureyri og Háskólann á Akureyri því mikill fjöldi háskóla- manna vinnur á Hagstofunni sem gætu til að mynda sinnt kennslu, rannsóknum eða öðrum störfum í samvinnu við háskólann. Mikið hefur verið talað um að styrkja miðbæ Reykjavíkur, sér- staklega var það áberandi í aðdrag- anda borgarstjórnarkosninganna í vor. Skrifstofubyggingar fyrir ráðu- neytin á einu stóru svæði munu ekki styrkja né fegra miðborgina. Nær lagi væri að skipuleggja íbúð- arbyggð á stjórnarráðsreitnum og gæti hún verið mjög hentug fyrir ungt fólk. Þannig gætu risið þarna í bland hefðbundnar íbúðir og litlar námsmannaíbúðir fyrir Iðnskólann í Reykjavík, Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands (allir skólarnir eru í um 5 mínútna göngu- eða strætófæri). Miklu meira líf fylgir íbúðarbyggð, sérstaklega ungs fólks og námsfólks heldur en skrif- stofubyggingum sem standa tómar eftir klukkan fimm á daginn og um allar helgar. Íbúar myndu sækja skóla og ef til vill vinnu í nágrennið, börn væru á leikskólum og jafnvel litlum grunnskóla auk þess að íbú- arnir myndu kaupa flestar nauð- synjar í miðbænum. Það munar um nokkur hundruð eða þúsund íbúa í miðbæinn en tilfærsla ráðuneyta milli gatna í miðbænum skiptir engu máli fyrir lífið í miðbænum. Lifandi íbúðabyggð í stað dauðra skrifstofubygginga rétt við hjarta miðbæjarins er spennandi framtíð- arsýn, of spennandi til að gefa henni ekki gaum. Fyrir utan að miðbærinn myndi eflast við þetta gæti ríkið hagnast töluvert, annars vegar með því að spara sér bygg- ingarframkvæmdir og hins vegar með því að selja þessar dýrmætu lóðir. Vonandi er ekki orðið of seint að vekja athygli á þessum málum. „Ráðuneytisþorp“ eða líflegri miðbær Sólmundur Már Jónsson Miðbærinn Skrifstofubyggingar fyrir ráðuneytin á einu stóru svæði, segir Sólmundur Már Jóns- son, munu ekki styrkja né fegra miðborgina. Höfundur er viðskiptafræðingur. UNDANFARIÐ hefur Lands- samband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) gert harðar atlögur að smá- bátamönnum, og reynt að telja þjóðinni trú um að þeir taki af öðr- um. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er nú kominn á kreik í Morgunblaðinu. Afli smábáta hefur aukist á und- anförnum árum. Þessi gleðilega þróun hefur átt sér stað vegna þess að fólk í fjölda strandbyggða um- hverfis landið hefur byrjað útgerð, oftar en ekki eftir að fyrirtæki á borð við Samherja höfðu stungið af með veiðiheimildirnar í fullkomnu ábyrgðarleysi gagnvart þeim sið- ferðislegu en óskrifuðu skyldum sem fylgja því að þjóðin láni mönn- um aflaheimildir sínar, þeim til af- nota. Smábátar sem veiddu á hand- færi og línu voru á góðri leið með að skapa heimatilbúið ævintýri, bæði í efnahags- og byggðamálum á Vest- fjörðum í fyrra. Málið er að svokallaður um- framafli smábáta er ekki tekinn frá neinum. Lög segja að þjóðin í þessu landi eigi fiskinn í sjónum. Ekki út- gerðarmenn verksmiðjutogara. Ekki einu sinni Samherji þó að fyr- irtæki undir stjórn Samherja hafi fengið umboð frá þjóðinni til að nýta ríflega tíu prósent af þeim aflaheim- ildum landsmanna sem eru njörv- aðar í fjötra kvótakerfisins. Þetta er kerfi sem flestum á að vera ljóst í dag að hvílir á algerum brauðfótum þegar kemur að stofnstærðarmæl- ingum og ákvörðunum um kvóta. Skömmtunarkerfi sem í upphafi byggðist á vitlausri og vafasamri forgjöf. Áleitnar spurningar Sýnu alvarlegra er svo að menn á borð við Þorstein hafa um árabil notað vægast sagt vafasamar Hafrótölur um meira eða minna ímyndaðan fjölda fiska í sjó sem gjaldeyri í lánafyrirgreiðslum, brask með hlutabréf og það sem þeir kalla hagræðingu. Lokaniðurstaða slíkra æfinga er yfirleitt að sjávarbyggðir eru meira eða minna drepn- ar til dýrðar braski með kvóta og verðbréf sem aftur byggist á ímynd- uðum fjölda fiska í sjón- um. Hver tók af hverjum? Hver var það sem sagði að Guggan yrði áfram gul og hún yrði gerð út frá Ísafirði? Hverjir voru það sem hirtu Básafellskvótann af Vestfirðingum? Hverjir hirtu lungann af kvóta Sandgerðinga og fluttu upp á Akra- nes? Hver er það sem nú heldur Stöðfirðingum í heljargreipum ótta eftir að hafa selt ísfisktogara þeirra til 25 ára til Afríku, og um leið keypt verksmiðjutogara sem efalítið verð- ur gerður út frá Akureyri? Þor- steinn ætti að svara þessum spurn- ingum. Hvað með skipstjórakvótann? Síðan má minna á skipstjórakvót- ann, sem setti lappirnar undir sam- herja Þessi úthlutun, sem Arthúr Bogason, formaður Landssam- bands smábátaeigenda, gerði ágæt- lega skil í Morgunblaðinu 23. júlí síðastliðinn, rennur enn heil og óskipt til Samherja. Þrátt fyrir þá staðreynd að allar forsendur og rök sem réttlættu þessa upphaflegu út- hlutun séu á engan hátt til staðar lengur. Samherji ekki lengur viðkvæm smá- útgerð ungra útgerð- armanna og sjó- manna, heldur alþjóðlegt stórfyrir- tæki sem þarf ekki lengur stuðning ann- arra útgerða. Fyrir- tækið þarf sem sagt ekki lengur að taka af öðrum. Bæði skip- stjóri og áhöfn, sem þessum kvóta var út- hlutað, eru löngu horfnir frá Samherja. Upphafleg afla- reynsla Samherja sem átti að mynda grunn fyrir kvótaúthlutun togarans Guðsteins var 673 tonn. Eftir að skipstjórakvótanum hafði verið út- hlutað var kvótinn kominn í 4.445 tonn. Frá hverjum hefur þetta verið tekið nú bráðum í 20 ár? Reikni nú hver sem vill verðmæti þessarar gjafar á þessu tímabili. Það hlýtur að vera sanngjörn krafa að þeir sem öfluðu þeirra heimilda sem kvóta- kerfið byggðist á, fái sinn upphaf- lega kvóta og hætt verði að úthluta skipstjórakvótanum. Mjög samkeppnishæfir Veiðiaukning smábátaflotans, og sérstaklega bátanna í sóknardaga- kerfinu, er mikið ánægjuefni. Það væri langtum ríkari ástæða til gleði ef þessir bátar hefðu verið látnir í friði fyrir LÍÚ og sjávarútvegsráð- herra. Hagkvæmnin er óumdeilan- leg. Fjárfestingin er lítil, olíueyðsla sömuleiðis. Á meðan eru verk- smiðjuskip stórútgerðanna tæki sem gleypa óhemju af olíu, glíma við gríðarlega skuldabagga. Útgerð smábátanna gefur af sér fjölmörg störf í strandhéruðum þessa lands. Smábátarnir krydda mannlífið því kringum þá er stöð- ugur erill. Reynsla okkar Vestfirð- inga hefur fært okkur heim sanninn um að rekstur þeirra getur gert kraftaverk fyrir byggð í sjávar- plássunum umhverfis landið. Eftir að hafa verið sjómaður í hálfa öld á smábátum og togurum, tel ég mig vita ýmislegt þegar kem- ur að veiðum og notkun veiðarfæra. Að krókaveiðar eru vistvænar er hafið yfir allan vafa. Það fer lítil olía í þessar veiðar og mengun er því óveruleg. Allur afli smábátanna berst á land þar sem hann er nýttur til hins ýtrasta. Ekki bara sjálft fiskholdið, heldur einnig hausar, hryggir og innvols. Áskorun Verksmiðjuskipin koma nánast einungis með flök í land. Öðru er hent í hafið. Ég skora hér með á Þorstein Má Baldvinsson að upp- lýsa þjóðina um hve miklu af haus- um, hryggjum, innvolsi og öðru fiskmeti skip Samherja henda í haf- ið árlega. Hér er um að ræða tölu sem hleypur á tugum þúsunda tonna og miklu hærri en það sem Þorsteinn sakar trillurnar um að hafa tekið af aflamarksskipunum. Þetta brottkast verksmiðjuskip- anna er gersamlega óverjandi. Verksmiðjuskipin og ísfisktogar- arnir nota flot- og botnvörpur við sínar veiðar. Allir sem notað hafa þessi veiðarfæri vita að þau geta gert mikinn skaða þegar skarkast er með þau í lífríkinu. Þó hafa engar rannsóknir verið stundaðar á þessu hér á landi. Hvar er nú ábyrgð Sam- herjaforstjórans í þessum efnum? Smábátasjómenn þurfa ekkert að skammast sín þótt verksmiðju- skipaforstjórinn á Akureyri kjósi að gera tilraun til að gera lifibrauð þeirra vafasamt. Þeir geta horfst hnarreistir í augu við þjóðina og sagt með sanni að þeir hafi stundað veiðar í sátt við náttúru og yfir- gnæfandi meirihluta þjóðar þessa lands. Þeir geta einnig horft björt- um augum framan í framtíðina vegna þeirra vistvænu veiða sem vinna með náttúrinni, en ekki á móti henni. Ég er ekki viss um að hið sama megi segja um Samherjafor- stjórann og marga af kollegum hans innan LÍÚ. Svar og áskorun til Samherjaforstjórans Guðmundur Halldórsson Kvótinn Brottkast verksmiðju- skipanna, segir Guð- mundur Halldórsson, er gersamlega óverjandi. Höfundur er formaður Eldingar, félags smábátaeigenda á norðanverðumVestfjörðum. Brúðargjafalistar Mörkinni 3, s: 588 0640 Opið mánudag-föstudags 11-18. Lokað á laugardögum í sumar Hnífapör og matarstell frá Trúlofunar- og giftingahringir 20% afsláttur www.gunnimagg.is Fullkomnaðu verkið með þakrennukerfi þakrennukerfi BLIKKÁS EHF. SKEMMUVEGUR 36 200 KÓPAVOGUR SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111 Fagm enns ka í fyrir rúmi Söluaðilar um land allt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.