Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 26
ERLENT 26 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ PERVES Musharraf, forseti Pakistans, fordæmdi herskáa múslíma í gær harkalega í ræðu sem hann hélt í tilefni þess að 55 ár eru liðin frá því að Pakistan hlaut sjálfstæði frá Bretum. For- setinn sagði lítilsigldan minni- hluta halda Pakistönum í gíslingu með mistúlkunum sínum á íslam. „Nýlegar árásir á bræður okkar, kristna menn, eru skammarleg, fyrirlitleg hryðjuverk,“ sagði hann. Ummæli Musharrafs í gær eru þau hörðustu sem hann hefur lát- ið frá sér fara um árásir á kristna menn og útlenda í Pakistan und- anfarna mánuði. Alls hafa 59 manns farist í þessum árásum en í liðinni viku biðu fjórir bana þeg- ar nokkrir menn köstuðu hand- sprengjum að kapellu sjúkrahúss sem rekið er af kristnum mönn- um í Taxila, nálægt Islamabad. Talið er að róttækir múslímar hafi staðið fyrir þessum ódæð- isverkum en þeir eru æfir vegna stuðnings pakistanskra stjórn- valda við hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna í Afganistan, þar sem ráðist var á vígi al- Qaeda hryðjuverkasamtakanna og stjórn talibana komið frá. Ekki í samræmi við reglur íslams „Árásirnar hafa menn drýgt í nafni íslam. Þessir afvegaleiddu glæpamenn og hryðjuverkamenn, að ekki sé talað um þá sem fá þá til þessara verka, eru jafnvel svo ófyrirleitnir að telja verk sín tryggja þeim inngöngu í para- dís,“ sagði Musharraf. Sagði hann árásir á útlenda og kristna menn í landinu skaða ímynd Pakistana á alþjóðavett- vangi og hann fór fram á það við alla landsmenn að hjálpa til við að „uppræta þá sem valda því að skuggi fellur á trú okkar og sem skaða ímynd Pakistans“. Forset- inn sagði ódæðismennina hafa gerst svo ómerkilega að bíða í leyni til þess að geta myrt konur og börn. „Er það í samræmi við reglur íslams? Er þetta trúin sem við erum öll svo stolt af? Hvar er umburðarlyndið, göfuglyndið, drenglyndið og hjartahlýjan sem einkennir sanna múslíma?“ Sagði Musharraf að Pakistan myndi gjalda fyrir verk hryðju- verkamannanna. Bættur hagur fátækra byggðist á því að laða mætti erlent fjármagn til lands- ins en útséð væri um það ef árás- ir gegn útlendingum héldu áfram. Musharraf notaði ræðu sína í gær einnig til að gagnrýna fyr- irhugaðar kosningar í indverska hluta Kasmírs-héraðs. Sagði hann þær hlægilegar þar sem íbúum héraðsins væri ekki veitt neitt raunverulegt val. Sagði hann kosningarnar hafa það eina hlutverk að reyna að réttlæta ólöglegt hernám Indverja í Jammu og Kasmír. Musharraf harðorður í garð herskárra múslima Reuters Pervez Musharraf, forseti Pak- istans, ávarpar þjóð sína í gær. Forseti Pakistans segir árásir gegn kristnum mönnum „skammarleg hryðjuverk“ Islamabad. AFP. LEITIN að bresku stúlkunum tveim- ur, sem saknað hefur verið í ellefu daga, heldur enn áfram, en uppgröft- ur í fyrrinótt leiddi í ljós að svæði nokkuð, þar sem jörð hafði verið rask- að, tengdist hvarfi stúlknanna á eng- an hátt. Leggur lögreglan því enn áherslu á að finna grænleita bifreið, sem sást kvöldið sem stúlkurnar hurfu og talið er að tengist hvarfinu. Þær Jessica Chapman og Holly Wells, báðar tíu ára gamlar, hurfu frá heimilum sínum fjórða þessa mánað- ar og hefur leit staðið yfir síðan. Skokkari nokkur hafði bent lög- reglu á tvö svæði í skóglendi nærri heimili stúlknanna þar sem jörð virt- ist nýlega hafa verið raskað. Rann- sókn lögreglunnar á svæðunum hefur hins vegar leitt í ljós að líklega sé um verk villtra dýra, en ekki manna, að ræða. Ástæðan fyrir því að uppgröfturinn tók jafnlangan tíma og raun varð er sú að lögreglumennirnir þurftu að gæta þess að spilla ekki hugsanlegum sönnunargögnum. Fjölskyldum stúlknanna hafði ver- ið sagt að búa sig undir slæmar fréttir og létti þeim því skiljanlega þegar niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar. „Þetta var löng og sérstaklega erfið nótt fyrir foreldra stúlknanna og eiga þau samúð mína alla,“ sagði Hebb. „Nú þurfum við að einbeita okkur að því að finna þær Jessicu og Holly og koma þeim heilum á húfi heim til sín.“ Holly og Jessica enn ófundnar Jarðraskið líklega eft- ir villt dýr London. AFP. FLÓÐIN í Prag, höfuðborg Tékk- lands, voru í rénun í gær en þau náðu hámarki um hádegisbilið. Meira en tvö hundruð þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Tékk- landi vegna veðursins, flestir í Prag og suðurhluta Bæheims, en elstu menn muna ekki vatnsflaum í líkingu við þann sem fylgt hefur miklum rigningum undanfarna viku. Vaclav Baca, vatnafræðingur í Prag, sagði að vatnsmagn í Mold- ánni, sem rennur í gegnum borgina, ætti að haldast nokkuð stöðugt, en um miðjan dag í gær var það þrefalt meira en á venjulegum degi. Níu manns hafa dáið í flóðunum í Tékk- landi en heildartala látinna vegna flóðanna, sem leikið hafa mörg lönd í Mið- og Austur-Evrópu grátt, er 88. Flestir hafa dáið í Rússlandi, 62, en miklir vatnavextir voru á nokkrum svæðum við Svartahafið. Flóðin í Tékklandi hafa haft alvar- leg áhrif á ferðamannaþjónustu í landinu og valdið skemmdum á sögu- frægum byggingum í miðborg Prag. M.a. flæddi vatn inn í tékkneska þjóðleikhúsið í gær en rýma hefur þurft flest hús í gamla bænum og í gyðingahverfinu svokallaða, sem er eitt fallegasta hverfi borgarinnar. Símasamband var víða mjög erfitt og einungis í nokkrum hverfum var hægt að fá gas til upphitunar. Sam- göngur gengu erfiðlega, eða alls ekki og aðeins ein brú yfir Moldá var opin fyrir umferð. Nokkrir íbúar dýragarðsins í Prag höfðu drukknað í vatnavöxtunum, þ.á m. fíll, sem leikið hefur í bíó- myndum, skógarbjörn, nashyrning- ur og ljón en ekki tókst að koma dýr- unum í öruggt húsaskjól í tæka tíð. Schröder til Saxlands Í Þýskalandi hafa alls tólf manns látist af völdum veðursins, þar af átta í Saxlandi í austurhluta lands- ins. Mældist yfirborð árinnar Sax- elfar, sem rennur í gegnum höfuð- staðinn Dresden, sex metrum hærra í gær en eðlilegt getur talist. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sótti í gær heim þau svæði sem verst höfðu orðið úti. Hann hefur tilkynnt að 100 milljón- um evra, eða um 8.500 milljónum ísl. króna, verði varið til að veita því fólki bráðahjálp sem misst hefur heimili sín eða orðið fyrir öðrum skaða. Hættuástand í Slóvakíu Rigning og miklir vatnavextir undanfarna daga hafa einnig leikið hluta Austurríkis og Slóvakíu grátt. Hættuástandi var í gær lýst yfir í Bratislava, höfuðborg Slóvakíu, en hinn gamli miðbær Vínar var ekki talinn í hættu þótt bæir og þorp á milli hennar og slóvakísku landa- mæranna yrðu mörg illa úti. ReutersSkiltið segir, að Vín sé skammt undan. Víða í Austurríki hefur ekki rignt meira í rúma öld. Tékkar vongóðir um að það versta sé yfirstaðið Prag, Dresden. AFP. TÉKKINN Ari Liebermann, sem um árabil bjó á Íslandi, segir borg- arsamfélagið í Prag lamað vegna náttúruhamfaranna sem leikið hafa borgarbúa grátt undanfarna daga. Hann sagði hins vegar að flóðin hefðu nú náð hámarki og ekki væri gert ráð fyrir að yfirborð vatns í Moldá, sem rennur um Prag, hækk- aði frekar. Ari bjó um árabil á Íslandi, fyrst á Grundarfirði en síðan í Reykjavík. Starfaði hann þá m.a. á Dagblaðinu og sem fréttaritari Morgunblaðsins. Meira en tíu ár eru hins vegar liðin síðan hann sneri aftur heim til Prag. „Veðurspáin er góð. Það rignir ekki lengur og það er ekki gert ráð fyrir rigningu næstu daga,“ sagði Ari í samtali við Morgunblaðið, en hann er nú aðstoðarborgarstjóri í sjöunda hverfi Prag. Giskaði hann á að það gætu liðið tvær til þrjár vikur þar til yfirborð vatns í Moldá væri komið í fyrra horf. Hefði getað farið verr Ari sagðist ekki hafa átt í erfið- leikum með að komast í og úr vinnu en hann starfar miðsvæðis í Prag, ekki ýkja fjarri gamla miðbænum. Hann sagði að nokkur þúsund manns hefðu þó þurft að yfirgefa heimili sín í sjöunda hverfinu. „Umferð er engin í borginni, enda er aðeins ein brú opin yfir ána,“ sagði Ari um það hvernig hamfarirnar snertu venjulega borgara. „Það er skortur á mjólk og brauði því bílar komast ekki að búðum með vörur. Það er ekkert rafmagn að hafa og fólk fer ekki í vinnuna.“ Ari sagði hins vegar að menn hefðu undirbúið sig vel fyrir flóðin, enda var búið að spá miklum vatna- vöxtum. „Þannig að ástandið er ekki eins slæmt og það ella hefði getað orðið,“ sagði Ari Liebermann. Ari Liebermann býr í Prag Samfélag- ið lamað ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.