Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 65 DAGBÓK Mörkinni 6, sími 588 5518 Stórútsala Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10-15 Glæsilegar stuttkápur 50% afsláttur Ullarkápur 50% afsláttur Síðustu dagar - Yfirhafnir í úrvali Allir víniljakkar og kápur á 2.000 kr. Gallabuxur 20% afsl. Peysur áður 4.990 nú 3.490 Bolir áður 2.490 nú 1.490 Skólabyrjun Laugavegi 54, sími 552 5201 í Flash Afsláttur af öllum nýjum vörum Ótrúlegt úrval Nýtt kortatímabil Haustvörurnar komnar! Árnað heilla Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 29. júní sl., af sr. Hirti Magna Jóhannssyni, í Fríkirkjunni í Reykjavík þau Björg Guðmundsdóttir og Jóhannes Guðmundsson. Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 13. júlí sl. í Lágafells- kirkju af sr. Jóni Þorsteins- syni þau Rakel Reynisdóttir og Guðbrandur Benedikts- son. LJÓÐABROT Liðsinni Blöð og útvarp flytja okkur fregnir af þjóðamorðunum og nú ber öllum skylda til hluttekníngar: svo við rífum úr okkur hjörtun, heingjum þau utaná okkur einsog heiðursmerki og reikum úti góða stund áðuren við leggjumst til svefns á afglöpum okkar og snúum okkur heilir og óskiptir að draumlífinu. Þorsteinn frá Hamri 1. e4 e5 2. Rf3 d6 3. d4 exd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Be7 6. Bc4 O-O 7. f3 c6 8. a4 d5 9. exd5 cxd5 10. Bb3 Bc5 11. O-O Rc6 12. Rce2 Ra5 13. c3 He8 14. Kh1 Rc4 15. Rf4 He7 Staðan kom upp í Valoz- flokknum á skákhátíðinni í Olomouc. Ilmars Starostits (2442) hafði hvítt gegn Christian Seel (2350). 16. Bxc4! dxc4 17. Rc6! Hvítur verð- ur nú skipta- muni yfir og var hann ekki í vand- ræðum með að færa sér liðsmuninn í nyt. 17...Dxd1 18. Rxe7+ Bxe7 19. Hxd1 Bf5 20. Be3 Bc2 21. Hd2 Bb3 22. Rd5 Rxd5 23. Hxd5 b6 24. a5 Hb8 25. Hd7 Bf6 26. Hxa7 b5 27. a6 b4 28. Hb7 He8 29. Hxb4 og svartur gafst upp Lokastaða flokks- ins varð þessi: 1.–2. Ramil Hasangatin (2517) og Viktor Laznicka (2219) 7½ v. 3.–4. Arnar Gunnarsson (2282) og Ilmars Starostits (2442) 7 v. 5. Sergei Reutsky (2220) 6 v. 6.–8. Sergio Estremera (2368), Lukas Cernousek (2294) og Erik Hedman (2340) 5½ v. 9.–10. Christian Seel (2350) og Beata Kadz- iolka (2290) 4½ v. 11. Stan- islav Galicek (2163) 4 v. 12. Monica Calzetta (2256) 1½ v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Afmælisbarn dagsins er ákveðið og drottnunar- gjarnt. Það veit hvað það vill og nær sínu fram, en hefur einnig á sér hliðar gjafmildis. Því er annt um stolt sitt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er eins og þú skynjir sjálfkrafa tilfinningar og hugsanir fólksins í kringum þig í dag, og kemur ríkur skilningur og umhyggju- semi sér þá vel. Naut (20. apríl - 20. maí)  Spenna gærdagsins líður hjá í dag og aukinn sam- starfsvilji við samstarfs- menn eykur þér bjartsýni í vinnu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Gömul vandamál leysast vegna skapandi lausna sem þú dettur niður á. Hug- myndaauðgi þín er mikil í dag og það skaltu notfæra þér meðan er. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ást þín á fjölskyldumeðlimi leiðir til örlætis af þinni hálfu, þú vilt gefa einhverj- um eitthvað sem gerir við- komandi dagamun. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Færni þín til að heilla aðra í dag er einstök. Af glöggu innsæi munt þú ávallt hitta naglann á höfuðið. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það mun borga sig að verja fjármunum í dag til að bæta vellíðan þína. Þú hefur ríka þrá fyrir að vera í toppformi. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Dagurinn er upplagður til að blanda geði við aðra í dag og fara út á lífið, t.d. að fara í bíó, samkvæmi eða á kaffihús til að spjalla við fólk. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Samband sem stofnað er til í dag getur átt eftir að verða mjög djúpt og andlegt. Rómantíkin nær tökum á þér og þú dregst að þeim sem eru skilningsríkir og umhyggjusamir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þig langar að kaupa eitthvað í dag er eykur íburðinn á heimili þínu. Svo kanntu að taka að láni eða fá eitthvað að gjöf frá vini. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Útlitið tekurðu alvarlega, til þess er dagurinn upplagður og aðrir munu hrífast að þér. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þér finnst þú áorka litlu í dag, enda kýstu frekar dag- drauma en að vinna að ein- hverju óskemmtilegu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þér er umhugað um þarfir og þrár annarra og vilt helst hjálpa öðrum í dag. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík LÍKUR á því að fá hönd þar sem nían er hæsta spil eru 1 á móti 1.827. Slík spil eru nefnd „Yarborough“ eftir enskum jarli, sem hafði af því góðar tekjur að leggja þúsund pund á móti einu gegn því að spil- ari tæki upp slíka hönd. Jarl- inn kunni greinilega sitthvað fyrir sér í líkindafræðinni, en hann hefði þó tapað fyrir Ómari Olgeirssyni, sem fékk spil norðurs á OK-bridge ný- lega: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♠ 9 ♥ 98763 ♦ 93 ♣98632 Vestur Austur ♠ D106 ♠ 85432 ♥ ÁD5 ♥ KG1042 ♦ D108652 ♦ -- ♣10 ♣754 Suður ♠ ÁKG7 ♥ -- ♦ ÁKG74 ♣ÁKDG Ómar og Ísak Örn Sig- urðsson voru að æfa sig gegn bandarískum spilurum: Vestur Norður Austur Suður Ómar Ísak -- Pass Pass 2 lauf 2 tíglar Dobl Pass Pass Pass Suður á sérlega glæsileg spil og Ísak hóf leikinn á tveggja laufa alkröfu. Vestur ákvað að koma inn á tveimur tíglum og Ómar doblaði kerf- isbundið til að segja – „ég á ekki neitt!“. Hann hefði pass- að með 5–7 punkta, en sagt eðlilega með 8+. Doblið var veikasta sögnin og lýsti yfir 0–4 punktum. Ísak sá ekki ástæðu til að hreyfa við doblinu og vestur sat í súpunni. Ómar kom út með spaðaníu, sem Ísak tók með kóng og lagði niður kóng og ás í laufi. Vestur trompaði og spilaði hjartaás. Ísak trompaði, tók spaðaás og spilaði meiri spaða. Sagnhafi trompaði með tvisti og Ómar yfirtrompaði með þristi. Hann spilaði hjarta, sem Ísak trompaði og spilaði síð- asta spaðanum. Vestur reyndi trompáttuna, en Óm- ar gat yfirtrompað með níu og spilað hjarta sem Ísak stakk með gosa. ÁK í trompi voru enn í holu og niðurstað- an var 1.400 í NS, sem gaf 65% skor í tvímenningi. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Ég er farin að sjá eftir að hafa beðið Hannes um að passa hundana okkar í sumarfríinu.         Með morgunkaffinu Sumarbrids Mánudagskvöldið 12. ágúst var spilaður 18 para Mitchell. Efstu pör (meðalskor var 216): NS Þorvaldur Pálmason – Birgir Jónss. 253 Jón St. Kristinss. – Lárentsínus Kristj. 234 Guðni Ingvarsson – Björn Friðriksson 234 AV Guðlaug Márusdóttir – Birkir Jónsson 280 Soffía Guðmundsd. – Stefanía Sigurbj. 241 Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðars. 241 Daginn eftir, 13. ágúst, mættu 16 pör í Howell-tvímenning. Staða efstu para varð þessi (með- alskor var 210): Halldór Svanb. – Kristinn Kristinss. 250 Hermann Friðrikss. – Vilhjálmur Sig. jr. 247 Gylfi Baldursson – Ísak Örn Sigurðsson 241 Björn Friðrikss. – Guðlaugur Sveinss. 235 Bernódus Kristinss. – Valdimar Sveinss. 230 Heildarstaða bronsstiga í Sumar- brids er nú þessi (tíu efstu): Vilhjálmur Sigurðsson jr. 579 Hermann Friðriksson 444 Guðlaugur Sveinsson 392 Sigfús Þórðarson 387 Erla Sigurjónsdóttir 345 Baldur Bjartmarsson 313 Sigurður Steingrímsson 294 Ómar Olgeirsson 287 Hjá konunum er staðan nú svona: Erla Sigurjónsdóttir 345 María Haraldsdóttir 286 Harpa Fold Ingólfsdóttir 163 Soffía Daníelsdóttir 128 Arngunnur Jónsdóttir 110 Guðrún Jóhannesdóttir 103 Ljósbrá Baldursdóttir 103 Alda Guðnadóttir 94 Allar nauðsynlegar upplýsingar um sumarbrids 2002, lokastöðu spilakvölda, bronsstigastöðu og fleira má finna á heimasíðu Brids- sambands Íslands, www.bridge.is. Í Sumarbrids 2002 er spilað alla virka daga kl. 19 í Síðumúla 37. Á föstudögum er auk þess boðið upp á stutta sveitakeppni að loknum tví- menningi. Keppnisstjóri aðstoðar við að mynda pör, mæti spilarar stakir. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Tvær sveitir af Suðurnesjum í átta liða úrslit í bikarnum Tvær sveitir af Suðurnesjum eru komnar í átta liða úrslit í bikar- keppninni. Sveit Sparisjóðsins í Keflavík vann sveit Kristjáns B. Snorrasonar úr Borgarnesi sl. föstudag með 110 impum gegn 82. Áður hafði sveit Kristjáns Kristjánssonar unnið sveit Högna Friðþjófssonar. Nú er aðeins einum leik ólokið í þriðju umferð en það er leikur Sub- aru og Eskeyjar. Sveit Guðmundar Sv. Hermannssonar vann sveit Strengs í fyrra kvöld 100-91 og sveit Skeljungs vann sveit Júlíusar Snorrasonar 139-30. Væntanlega verður dregið í fjórðu umferð bikarsins nk. sunnudags- kvöld. Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 20 pör í tvímenninginn sl. föstudag og urðu úrslitin þessi í N/S: Sigurður Pálss. – Jón Lárusson 248 Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 233 Eysteinn Einarss. – Viggó Nordquist 226 Úrslitin í A/V urðu þessi: Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 290 Anna Lúðvíksd. – Kolbrún Ólafsd. 264 Helga Helgad. – Oddur Halldórss. 261 Meðalskor var 216. Spilað er alla föstudaga í sumar. Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.