Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.08.2002, Blaðsíða 24
NEYTENDUR 24 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ RÚMLEGA 60% munur reyndist vera á hæsta og lægsta verði á sæl- gæti í lausasölu eða svokölluðu „blandi í poka“, samkvæmt nýrri könnun Neytendasamtakanna sem gerð var á nokkrum sölustöðum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Lægst var verðið í Bónus þar sem kílóið kostaði 950 krónur en dýrast var kílóið, 1.550 krónur, á þremur stöðum, í Bónusvídeói í Hafnarfirði, Bónusvídeói í Garðabæ og Vídeóhöll- inni í Lágmúla. Verðmerkingum var í mörgum tilvikum ábótavant en þar sem sælgæti er selt í lausasölu ber kaupmönnum að gefa upp kílóverð samkvæmt reglum Samkeppnis- stofnunar. Þá voru vogir sem notaðar eru til að vigta sælgætið ekki alltaf aðgengilegar viðskiptavinum. Afgreiðslufólk tók ábendingum frá starfsmönnum Neytendasamtak- anna vel og þar sem þess var þörf var vigtin færð og verðmerkingar bættar, að því er fram kemur í frétt frá samtökunum. Verðkönnun Neytendasamtakanna Um 60% verðmunur á „blandi í poka“                      !  "#   $$ %&!  '  ( ! %'  $ ##      &  )     &  !    *  $ ! +! #)    ! )                       , (#         !       BÓNUS Gildir 15.–18. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Frosin svið ............................................ 299 499 299 kg Frosin lambahjörtu ................................ 99 nýtt 99 kg Ferskt svínagúllas .................................. 599 799 599 kg Ferskt svínasnitsel ................................. 699 899 699 kg Nýja kartöflur, 2 kg ................................ 179 nýtt 89 kg Colgate tannkrem, 75 ml ....................... 129 159 129 kg Skólajógúrt, 150 g................................. 45 52 300 l ESSÓ-stöðvarnar Tilboð í ágúst nú kr. áður kr. mælie. Yankie Giant, 75 g ................................. 89 105 1.186 kg Nóakropp, 150 g................................... 199 239 1.327 kg Stjörnupopp, 90 g ................................. 109 125 1.211 kg Stjörnuostapopp, 100 g......................... 115 130 1.150 kg Paprikustjörnur, 90 g ............................. 179 195 1.989 kg Ostastjörnur, 90 g.................................. 179 195 1.989 kg Homeblest, 200 g ................................. 169 185 845 kg Kók ½ l í dós og Kit Kat.......................... 179 200 11-11 búðirnar og Kjarval Gildir 15.–21. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Vienetta ístertur, vanillu, súkkulaði, ......... mintu og karamellu, 600 ml ................... 549 669 910 l KS skúffukökumuffins, 400 g.................. 289 349 720 kg FJARÐARKAUP Gildir 15.–17. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Lambahryggur frosinn ............................ 799 898 799 kg Ódýrt súpukjöt....................................... 248 348 248 kg Sauðahangilæri úrb. .............................. 1.278 1.598 1.278 kg Brauðskinka.......................................... 599 998 599 kg Coke, 2 l............................................... 175 198 88 l Cheerios, 567 g .................................... 309 396 548 kg Pillsbury hveiti, 2,26 kg.......................... 149 209 66 kg Merrild kaffi nr.103................................ 298 359 596 kg HAGKAUP Gildir frá 15.–21. ágúst nú kr. áður kr. KS Grand Crue lúxussteik ....................... 899 1.199 899 kg Oetker pizzur, 3 tegundir......................... 389 449 1.110 kg Ýsuflök frosin, roðlaus og beinlaus .......... 764 899 764 kg Svínakótilettur með beini........................ 799 1.398 799 kg Kelloggs bakpoki + morgunkorn .............. 999 nýtt Betty Cr. amerískar pönnukökur, 500 g.... 189 259 378 kg Kuchen Meister kökur, 11 tegundir.......... 134 179 330 kg Kexsmiðjan, ostaslaufur, 280 g............... 219 259 780 kg Kexsmiðjan, pizzasnúðar, 250 g.............. 219 259 876 kg KRÓNAN Gildir 15.–21. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Óskajógúrt, 180 g ................................. 47 54 260 l SS Grand Orange helgarsteik.................. 996 1.328 996 kg SS koníaksl. svínasteik .......................... 974 1.298 974 kg Hob Nobs kex venjul., 250 g................... 89 128 250 kg Hunt’s tómatsósa, 1,1 kg ....................... 199 212 180 kg Blucare þvottaefni Color og Ultra, 1 kg .... 229 259 229 kg NETTÓ-verslanir Gildir á meðan birgðir endast nú kr. áður kr. mælie. Kjötbankinn kótilettur, frosnar ................. 698 1.487 698 kg Norðlenska ½ skrokkar .......................... 499 596 499 kg Ísfugl ferskar, úrb. kjúklingabringur.......... 1.278 1.598 1.278 kg Honey Nut Cheerios, 765 g .................... 539 569 705 kg Sara Lee súkkulaðikaka, 340 g............... 349 399 1.026 kg Emmess skafís 2 l, 3 teg. ....................... 527 659 264 l Frón mjólkurkex ..................................... 99 135 248 kg SAMKAUP/ÚRVAL Gildir frá 15.–19. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Pågen kanelsnúðar, 260 g...................... 199 229 765 kg Pågen súkkul.snúðar, 260 g ................... 199 229 765 kg Pauly saltstangir, 250 g ......................... 99 119 396 kg Pauly saltkringlur, 175 g......................... 99 129 566 kg Tortelloni, 3 teg., 400 g.......................... 289 339 723 kg Pastasósa, tómat/basil, 250 ml ............. 149 179 596 l Pestósósa m/basil, 250 ml .................... 199 245 796 l Queens hvítlauksbrauð, 175 g................ 99 115 566 kg SELECT-verslanir Tilboð í ágúst nú kr. áður mælie. Lion Bar King Size.................................. 109 135 Kit kat Chunky King Size......................... 109 138 Rolo giant ............................................. 109 149 Bahlsen saltstengur, 150 g .................... 69 85 460 kg Bahlsen saltkringlur, 200 g..................... 129 158 650 kg Mónu krembrauð................................... 65 80 Maxi bón, 0,5 l...................................... 487 609 974 l Maryland kex ........................................ 116 145 Húsavíkurjógúrt, 0,5 l ............................ 129 149 258 l Pampers bleiur...................................... 1.085 1.198 Pampers þurrkur.................................... 15 195 SPARVERSLUN, Bæjarlind Gildir til 19. ágúst nú kr. áður mælie. Lambaskrokkur ½, frosinn...................... 538 nýtt 538 kg Lambalæri, snyrt og grillsagað ................ 888 1.299 888 kg Agúrkur ................................................. 98 219 98 kg Tómatar ................................................ 98 189 98 kg Súkkulaðisnúðar, 400 g, Kexsmiðj. ......... 199 255 497 kg Sælusnúðar, 400 g, Kexsmiðjan ............. 199 258 497 kg Sunlolly, 620 ml .................................... 179 239 288 l UPPGRIP – verslanir OLÍS Tilboð í ágúst nú kr. áður kr. mælie. BKI kaffi, 500 g ..................................... 349 489 698 kg Hersheys Cookie Bar/Cookies’n’Cream ... 79 119 Snúðar frá Frón, 400 g, allar tegundir...... 249 289 622 kg Pringles kartöfluflögur, 200 g.................. 199 275 995 kg ÞÍN VERSLUN Gildir 15.–21. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Heimiliskrydduð helgarsteik.................... 898 998 898 kg Sirloin-sneiðar ....................................... 798 988 798 kg Agúrkur................................................. 199 235 199 kg Tómatar ................................................ 199 249 199 kg Hvítkál.................................................. 159 205 159 kg Rófur .................................................... 199 234 199 kg Heimaís, 2 l .......................................... 499 598 249 l Crawfords vanillukremkex, 500 g............. 239 298 478 kg Helgartilboð Verðupplýsingar sendar frá verslunum Kjúklingabringur og svínakjöt á tilboðsverði VERÐLAGNING hjá þeim sem bjóða upp á eyðingu geitungabúa getur verið afar mismunandi og nokkuð hefur borið á óvönduðum vinnubrögðum hjá aðilum sem bjóða upp á slíka þjónustu, að sögn Erlings Ólafssonar skordýrafræð- ings hjá Náttúrufræðistofnun Ís- lands. „Full ástæða er til að hvetja fólk til að kynna sér verð og starfs- hætti áður en hafist er handa.“ Hann segist þekkja dæmi þess að fólk hafi ekki spurt um verð fyr- irfram, síðan fengið senda himinháa reikninga eftirá og að árangur hafi þá ekki endilega verið í samræmi við verðlagningu. Sumarið verið hagstætt geit- ungum og hunangsflugum Morgunblaðið hringdi til nokk- urra aðila sem taka að sér að eyða búum og kom í ljós að algengt verð er 3.000–4.500 kr. Það getur hins vegar verið nokkuð breytilegt og fer eftir stærð búa og hvort erfitt er að komast að þeim. Einnig er kunn- ugt um mun hærri verðlagningu. Erling telur að geitungar séu fleiri nú en í fyrrasumar og er ástæðan sennilega gott veður fyrri hluta sumars. Sama er að segja um hunangsflugur. „Veðrið fyrstu tvær vikurnar í júní skiptir höfuðmáli því þá eru drottningarnar einar um að koma sér upp búi og ala lirfur og ef þær lenda í slysi þá er úti um við- komandi bú. Ekki þarf nema einn hvassviðrisdag í júní og þá geta illa staðsett bú fokið og eyðilagst.“ Foreldrar vari börn sín við Nú fer sá tími í hönd þegar geit- ungarnir verða viðkvæmir og telur Erling ástæðu til að vara við þeim. „Fólk má alls ekki leika sér að því að styggja þá, það getur dregið dilk á eftir sér. Ég vil eindregið hvetja foreldra til að vara börn sín við, sér- staklega unga kokhrausta ofurhuga sem stundum vilja koma of nálægt búunum og pota í þau og grýta. Einnig tel ég mikilvægt að fólk hafi skotheld flugnanet á barnavögnum þar sem ungbörn eru látin sofa úti.“ Hann bendir á að í nágranna- löndunum sé talið að um 3% fólks séu með geitungaofnæmi sem geti verið afar hættulegt. Ekki sé ástæða til að ætla annað en hlut- fallið sé svipað hérlendis. „Einkenni bráðaofnæmis eru oftast heiftarleg, t.d. ofsakláði, bjúgur, blóðþrýst- ingsfall, hjartsláttartruflanir og andnauð. Í slíkum tilfellum er afar mikilvægt að komast með hraði á sjúkrahús, en þar geta mínútur skipt máli.“ Misjöfn vinnubrögð geitungabana Hvetur fólk til að kynna sér verð og gæði Morgunblaðið/Árni Sæberg Um þetta leyti fara geitungar að verða viðkvæmir fyrir áreiti. TÆPLEGA helmingur 14 ára stúlkna í Noregi fer í megrun og meirihluti þeirra heldur því áfram þegar þær eldast, að því er fram kemur í netútgáfu Aften- posten. Vísindamenn við fé- lagsvísindadeild háskólans í Tromsø fylgdu 250 stúlkum eftir frá 14 ára aldri og þar til þær voru orðnar 21 árs og kom þá í ljós að 40% höfðu farið í megrun 14 ára og tvær af hverjum þremur héldu áfram að fara í megrun til 21 árs aldurs. Svipaða sögu er að segja af ís- lenskum kynsystrum þeirra en í könnun Rannsókna og grein- ingar, Ungt fólk 2000, sem lögð var fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla, kom í ljós að rétt innan við helmingur stúlkna í 9. bekk hafði farið í megrun einu sinni eða oftar síðasta árið og rúmlega helmingur stúlkna í 10. bekk. Þess má geta að tíundi hver strákur í 9. bekk hafði farið í megrun. Megrunin heldur áfram þegar komið er í framhaldsskóla því samkvæmt upplýsingum frá land- læknisembættinu höfðu 51% sex- tán ára stúlkna farið í megrun einu sinni eða oftar á 12 mánaða tímabili í könnun Rannsókna og greiningar sem gerð var á fram- haldsskólanemum árið 2000. Hlut- fallið var 54% hjá 19 ára stúlkum. Langflestar í megrun að óþörfu Hjá landlæknisembættinu er nú unnið að skýrslu sem m.a. er tekið á þessu málefni en þar hafa menn áhyggjur af þróuninni, að sögn Sigurðar Guðmundssonar land- læknis. „Hér er um að ræða lækn- isfræðilegt og samfélagslegt vandamál sem verður að bregðast við. Rannsóknir sýna að megrun að óþörfu getur haft skaðleg áhrif á heilsufar og þarf hún ekki að ganga svo langt að um átröskun sé að ræða til að valda skaða. Dæmi um afleiðingar geta verið beinþynning og truflun á tíða- hring kvenna.“ Hann segir að sýnt hafi verið fram á að heilsu- farsleg áhrif þess að vera of hor- aður séu jafnslæm og þegar um of feita einstaklinga er að ræða t.d. hvað varðar langlífi. Hann bendir á að um 14 ára aldur sé fólk á við- kvæmu vaxtarskeiði og að ljóst sé að mikill meirihluti þeirra sem fara í megrun þurfi þess ekki. „Ís- lensk rannsókn á 9 ára skólabörn- um leiddi í ljós að 20% voru of þung en 5% voru yfir þeim mörk- um sem notuð eru til að skilgreina offitu. Við getum því dregið þá ályktun að langflestar unglings- stúlkur séu í megrun að óþörfu auk þess sem ekki er víst að þeir einstaklingar sem eru of feitir séu í þeim hópi sem megrar sig.“ Hann telur að vandamálið megi fyrst og fremst rekja til óraun- hæfra ímynda ungra stúlkna sem víða sé að finna t.d. íauglýsingum og nefnir hann þar sem dæmi snyrtivöru- og tískuiðnaðinn. „Þetta er í samræmi við þá þróun sem við erum að sjá í fegrunar- aðgerðum þar sem sífellt fleirum finnst þær þurfa að gangast undir til dæmis brjóstastækkun til að falla betur að þeim ímyndum sem eru í gangi. Ungt fólk er þarna að fá skilaboð sem einfaldlega eru röng og við þurfum að finna leiðir til að takast á við það.“ Helmingur 14 ára stúlkna í megrun Morgunblaðið/Arnaldur Þegar stúlkur byrja ungar að megra sig er líklegt að þær haldi því áfram þegar þær eldast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.