Morgunblaðið - 15.08.2002, Síða 28
ERLENT
28 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALEJANDRO Toledo, forseti Perú,
kom fram í sjónvarpi á mánudags-
kvöld og varði það, að kona sín þægi
næstum eina milljón íslenskra
króna í laun á mánuði sem ráðgjafi
einkabanka. Hefur það vakið
hneykslan margra og meðal annars
vegna þess, að bankinn er grunaður
um að tengjast spillingunni í kring-
um fyrrverandi ráðamenn í landinu.
Í ávarpinu sagði Toledo, að
fréttaflutningurinn um konu hans,
Eliane Karp, og ásakanir um „ósið-
legt athæfi“ væru til þess gerðar að
„valda ókyrrð í landinu“. Sagði
hann, að hún hefði sinn rétt til að
vinna úti og við það væri ekkert að
athuga.
Fréttin um rausnarleg laun for-
setafrúarinnar birtist í blaðinu La
Razon en útgefandi þess var áður
þingmaður og stuðningsmaður Al-
bertos Fujimoris, fyrrverandi for-
seta. Er hann nú til rannsóknar
vegna spillingar. Í fréttinni sagði
einnig, að Bankinn, Wiese Sudam-
eris Bank, hefði ráðið Karp í þjón-
ustu sína í janúar 2001 „til að
tryggja sig“ ef svo skyldi fara, að
Toledo, eiginmaður hennar, sigraði í
forsetakosningunum í júlí það ár.
Mikilhæf kona
Eliane Karp er fædd í Belgíu,
mannfræðingur og hagfræðingur að
mennt og talar fimm tungumál.
Starfaði hún um hríð hjá Alþjóða-
bankanum og Evrópska endurreisn-
arbankanum og var einnig um skeið
aðstoðarbankastjóri ísraelsks
banka. Hjá bankanum í Perú er hún
ráðgjafi í landbúnaðarmálum. Eiga
þau Toledo saman eina dóttur.
Þau hjónin bjuggu ekki saman í
allmörg ár en þegar Toledo bauð sig
fram til forseta tók hún aftur saman
við hann. Vakti hún mikla hrifningu
margra í kosningabaráttunni, ekki
síst indíána í Andesfjöllum, en hún
talar tungumál þeirra, quechua,
reiprennandi.
Perúski dálkahöfundurinn Mirko
Lauer segir, að störf Karp fyrir
bankann séu að sjálfsögðu ekki
ólögleg en launagreiðslurnar séu
hins vegar siðlausar í landi þar sem
almenningur á varla til hnífs og
skeiðar.
Á myndbandi Montesinos
Perúþing er nú að hefja rannsókn
á tengslum bankans eða öllu heldur
bankastjórans, Eugenios Bertinis,
við spillinguna í tíð fyrrverandi
ráðamanna en á einu af fjölmörgum
myndböndum, sem Vladimiro Mon-
tesinos, fyrrverandi yfirmaður
leyniþjónustunnar, lét gera, sést
Bertini segja honum hvernig best
sé að flytja mikið fé frá bankanum
og inn á reikninga erlendis. Montes-
inos, sem nú er í fangelsi og bíður
réttarhalda, er sakaður um að hafa
dregið sér og flutt tugmilljarða
króna á leynireikninga erlendis.
Toledo, sem er indíáni að ætt og
uppruna, naut mikilla vinsælda
fyrst eftir forsetakjörið en síðan
hafa þær hrapað dag frá degi. Kem-
ur margt til en útslagið gerðu þó
upplýsingar um, að hann hefði
meira en hálfa aðra milljón króna í
laun á mánuði, næstum hæstu for-
setalaun í Rómönsku Ameríku. Lof-
aði hann að lækka þau um þriðjung
en það hefur engu breytt.
Naprir vindar leika um Perúforseta
Hafnar ásökun-
um um „siðleysi“
eiginkonunnar
Lima. AP, AFP.
AP
Forsetahjónin í Perú, Eliane Karp og Alejandro Toledo. Myndin var tekin í síðasta mánuði.
NOKKUR umræða hefur að undan-
förnu verið um svokallaða vildar-
punkta og um það er deilt hvort op-
inberir embættismenn, þegar um þá
er að ræða, eigi að njóta þeirra eða
ríkið, sem kostar ferðir þeirra. Í
Þýskalandi neyddust tveir stjórn-
málamenn til að segja af sér þegar
upp komst, að þeir hefðu notað
punktana í eigin þágu en það, sem
stendur kannski upp úr í þessari um-
ræðu, er, að það er mjög óvenjulegt,
að nokkurt veður sé út af þessu gert.
Um þetta mál eru mjög skiptar
skoðanir og sem dæmi má taka Lutz
Tack, aðstoðarbankastjóra hjá
Commerzbank í Frankfurt. Vegna
starfa síns flýgur hann um 48.000 km
á ári hverju og honum finnst það ekki
nema sanngjörn sárabót fyrir fjar-
vistirnar frá fjölskyldunni að fá að
nota vildarpunktana. „Annaðhvort
það eða hærri laun,“ sagði hann í við-
tali við The Wall Street Journal.
Reglur um vildarpunktana eru
ákaflega mismunandi frá einu landi
og einu fyrirtæki til annars. Í sumum
ríkjum og sumum fyrirtækjum mega
menn ekki nota í eigin þágu þá
punkta, sem þeir fá fyrir ferðir, sem
greiddar eru fyrir þá, en annars stað-
ar er það leyft eða kannski öllu held-
ur, að engar reglur gildi um það.
Samkvæmt The Wall Street
Journal er opinberum embættis-
mönnum í Bretlandi bannað að nota
punktana en á hinn bóginn er lítið
með því fylgst hvort þeir geri það. Í
Frakklandi hefur engin umræða ver-
ið um þessi mál og talsmaður forsæt-
isráðuneytisins segist ekki vita til, að
neinar reglur gildi um notkun vild-
arpunkta. Það sama virðist vera uppi
á teningnum hjá frönskum fyrir-
tækjum.
Eftirlitið þótti ekki
svara kostnaði
Ætla mætti, að Evrópusambandið,
ESB, sem lætur sér fátt óviðkom-
andi, hefði einhverja ákveðna stefnu
í þessu sambandi en svo er ekki að
því undanskildu, að fyrir nokkrum
árum var ákveðið að gera ekkert í
málinu og leyfa embættismönnum að
nýta sér punktana. Það var ekki talið
svara kostnaði að koma upp eftirlits-
kerfi með notkuninni.
Það sama á við um stjórnvöld í
Bandaríkjunum. Þar var reynt að
koma einhverjum böndum á þetta en
síðan horfið frá því. Opinberlega
heitir það að vísu, að punktarnir séu
ríkiseign en eins og hjá ESB þótti
það of dýrt að hafa eftirlit með öllum
þeim aragrúa ferðaskrifstofa og flug-
félaga, sem koma við sögu í punkta-
gjöfinni. Randy Petersen, ritstjóri
tímaritsins Inside Flyer, segir, að
bandarísk fyrirtæki hafi lært þá
lexíu fyrir löngu. „Langt innan við
1% fyrirtækjanna krefst þess að fá
punktana. Hinum finnst ekki taka
því.“
Þýsku stórfyrirtækin hafa ýmsan
hátt á. Deutsche Bank og BASF láta
starfsmönnum eftir punktana en
Bayer ráðleggur þeim að nota þá í
þágu fyrirtækisins án þess að fylgj-
ast með framkvæmdinni. Það sama á
við um Deutsche Telekom en hjá
Bayerische Motoren Werke, BMW,
má aðeins nota punktana í viðskipta-
ferðum á vegum fyrirtækisins og því
er aðeins skipt við eina ferðaskrif-
stofu.
Afsagnir í Þýskalandi
„Vildarpunktahneykslið“ í Þýska-
landi kom upp þegar dagblaðið Bild
skýrði frá því, að nokkrir kunnir
stjórnmálamenn hefðu notað opin-
bera punkta í eigin þágu. Einn þeirra
var Cem Özdemir, þingmaður Græn-
ingja, sem brást við með því að láta af
embætti innan flokksins og lýsa jafn-
framt yfir, að hann yrði ekki í fram-
boði í kosningunum í næsta mánuði.
Annar var Gregor Gysi, kunnasti
maðurinn í hópi fyrrverandi komm-
únista. Hann notaði opinbera punkta
til að fara með fjölskylduna til Kúbu.
Hann baðst afsökunar á „þessum
mistökum“ og sagði af sér sem borg-
arstjórnarmaður í Berlín.
Að sögn The Wall Street Journal
gera flugfélögin oft eftirlit með
punktagjöfinni erfitt með því að skrá
þá ekki á nafn viðkomandi, opinberr-
ar stofnunar, heldur á nafn þess, sem
í ferðina fer. Hafa þau stundum neit-
að að gefa hinu opinbera upp punkta-
eign einstakra ríkisstarfsmanna og
sem dæmi um það má nefna þýska
flugfélagið Lufthansa.
„Í þessu förum við bara að dæmi
annarra flugfélaga,“ sagði Amelie
Lorenz, talsmaður félagsins. „Það
fer eftir nafninu á farseðlinum hvert
punktarnir fara.“
Mismunandi reglur og
eftirlitið almennt lítið
Tveir þýskir stjórnmálamenn máttu nýlega
segja af sér þegar upp komst, að þeir höfðu
notað vildarpunkta flugfélaganna, opinbera
ferðapunkta, í eigin þágu. Í Frakklandi eru
þessi mál hins vegar ekki í umræðunni enda
gilda um þau engar reglur og hjá Evrópu-
sambandinu og í Bandaríkjunum þótti ekki
svara kostnaði að fylgjast með notkuninni.
Reuters
Annríki í O’Hare-flughöfninni í Chicago. Skoðanir eru skiptar um það
hvort ríki og stórfyrirtæki eigi að fá vildarpunktana eða láta starfs-
mönnunum þá eftir sem sárabætur fyrir að vera sífellt á ferð og flugi.
Hver á vildarpunktana? Sá sem ferðast eða sá sem borgar brúsann?
’ Annaðhvortpunktana eða
hærri laun. ‘
ÞRÍR ættingjar palestínsks hryðju-
verkamanns hafa áfrýjað til hæsta-
réttar Ísraels úrskurði herdómstóls
um brottflutning þeirra frá Vestur-
bakkanum til Gaza að sögn lögfræð-
ings þeirra. Hæstiréttur veitti her-
dómstólnum tveggja vikna frest til að
réttlæta þessa ákvörðun.
Á mánudag úrskurðaði herdóm-
stóll í landnemabyggðinni Beit El, að
Intissar Adjuri, 34 ára gömul systir
manns sem talið er að hafi tekið þátt í
skotárás á strætisvagn þar sem níu
ísraelskir landnemar voru myrtir,
skyldi flutt nauðug til Gaza. Úrskurð-
urinn tekur einnig til bróður hennar,
Kifah Adjuri og þriðja manns, Abdel
Nasser Assidi, sem grunaður er um
að hafa tekið þátt í árásinni.
Er þetta í fyrsta skipti sem dóm-
stóll í Ísrael beitir lögum sem ætlað er
að draga úr árásum Palestínumanna
á ísraelska borgara með því að flytja á
brott ættingja hryðjuverkamanna.
Mannréttindasamtök hafa barist
gegn lögunum, sem þau segja fela í
sér heildarrefsingu sem brjóti gegn
alþjóðalögum og mannréttindum.
Lögfræðingurinn, Lea Tsemel,
segir ákvörðun dómstólsins aumkun-
arverða og að heimastjórn Palestínu-
manna á Gaza ætti að neita að taka við
því fólki sem Ísraelsstjórn reyni að
flytja þangað. Tsemel segir dómar-
ann hafa viðurkennt í úrskurðinum að
heimastjórninni sé ekki skylt að taka
við þremenningunum.
Hóta ættingjum
Ákvörðun dómstólsins hefur vakið
reiði palestínskra embættismanna,
sem segja hana stríðsglæp og hafa
hótað því að gera hvað sem í þeirra
valdi stendur til að koma í veg fyrir að
henni verði framfylgt. Vopnaðir hóp-
ar Palestínumanna hafa lofað hefnd-
araðgerðum verði fólkið flutt á brott
og Al-Aqsa herdeildin hefur hótað því
að ráðast gegn fjölskyldum ísraelskra
embættismanna. Bandarísk stjórn-
völd hafa látið í ljós óánægju sína með
þessa stefnu Ísraelsstjórnar og fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
Kofi Annan, sagðist hafa af málinu
miklar áhyggjur.
Áfrýja
skipun um
brott-
flutning
Jerúsalem. AFP.