Morgunblaðið - 15.08.2002, Síða 40
MENNTUN
40 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
H
insegin dagar náðu
hámarki á laug-
ardaginn í fjöl-
skylduhátíðinni
Gay pride í mið-
borg Reykjavíkur. Þar mættust
flestallar tegundir af fjölskyldum
og skemmtu sér vel saman.
Hátíðin er afar snjöll hugmynd
því hún felur í sér að fólk mætist
og geri eitthvað saman. Vonandi
hafa í kjölfarið skapast umræður
á heimilum um kynhneigð, og
einhverjir foreldrar gert tilraun
til að svara spurningum sem
vissulega hafa vaknað með börn-
um.
Umræðan þyrfti þó einnig að
flytjast inn í skólastofurnar, en
ég held að barnafræðsla um kyn-
hneigð eigi
sér langa
ósagða sögu.
Alltént má
telja kennslu-
stundir helg-
aðar þessu
efni svo fátíðar að þær teljast
viðburður. Hefð er að kenna um
þetta efni í nafni líf- eða heil-
brigðisfræði. En kynhneigð er
ekki bara líffræði, heldur einnig
menningarfræði; hún er óafmá-
anlegur hluti sjálfsmyndar sér-
hverrar persónu.
Í háskólum, í nokkrum löndum,
eru stundaðar rannsóknir á birt-
ingarmyndum samkynhneigðar í
gagnkynhneigðum samfélögum.
Innan og utan slíkra deilda rúm-
ast einnig hinsegin fræði (queer
theory). Markmiðið þeirra er
m.a. „að afhjúpa þá gagnkyn-
hneigðu hugmyndafræði sem
gegnsýrir öll svið menningar og
fellir allt að sínu normi en úti-
lokar það sem er öðruvísi“ (Geir
Svansson. 1999. Skírnir, bls. 480).
Skörð hafa nú komið í múrinn
um samkynhneigð á Laugaveg-
inum og Ingólfstorgi í Reykjavík,
einnig í fjölmiðlum, og eitthvað í
þjóðkirkjunni. En ég held að
þagnarmúrinn í grunnskólum um
samkynhneigð hafi enn ekki verið
rofinn, nemendur þurfa að geta í
eyðurnar upp á eigin spýtur.
Kynin eru ef til vill tvö, en
kyngervin (gender) eru fleiri;
lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir,
kynskiptingar… og þöggunin
gagnvart hinum ýmsu birting-
armyndum kynhneigðar, og bæl-
ingin í samfélaginu, er áberandi.
Ósagða krafan er að heillavæn-
legast sé að blómstra í gagnkyn-
hneigðarnormi vestrænnar
menningar. Þetta norm útilokar
samkynhneigða og þurfa þeir því
þindarlaust að glíma við fordóma;
augljósa og dulda. Fordómar eru
erfitt fyrirbæri og þeir skjótast
alltaf aftur úr skúmaskotum hug-
ans ef hik kemur á umræðuna;
normið harðnar í þögninni, en lin-
ast í umræðunni.
Fjölskylduform ættu að vera
gefandi umræðuefni í skólum. Nú
þegar er kennt er um fjölskyldu
fyrri alda, stórfjölskylduna og
föst hlutverk einstaklinga. Einnig
ætti að vera sjálfsagt mál að
kenna um nútímafjölskylduna. Þá
leysist myndin upp og óljóst fjör
færist í leikinn; kynin, hlutverkin,
kynhneigðin, kyngervin ruglast.
Aðeins upplýsingar, leiðsögn, og
feimnislaus umræða getur af-
ruglað hana. Líkleg niðurstaða er
að enginn mælikvarði finnist sem
sýni að eitthvert fjölskylduform
sé öðru æðra eða æskilegra.
Skólabörn koma úr öllum teg-
undum af fjölskyldum; í sér-
hverjum árgangi og ef til vill í
sérhverjum bekk eru börn sem
eiga samkynhneigða foreldra.
Mér finnst því að í skólum sé
brýnt að efla fræðslu og umræðu
um þessi efni. Horfast í augu við
stöðuna, glíma við fordómana og
öll ljótu orðin sem af þeim
spretta. Ljótu orðin heyrast í frí-
mínútum, og eru kjörin dæmi til
að hefja umræðuna inni í skóla-
stofunni. Ef það yrði gert er ég
viss um að þau yrðu fátíðari utan
hennar, og einnig yrði auðveldara
fyrir þá sem verða fyrir þeim að
bregðast við þeim.
Ég veit að kennarar leggja
stund á umræður í skólastofunni
út af margvíslegum málum sem
skjóta upp kollinum. Hinsegin
efni eru mjög líklega á dagskrá
hjá einhverjum nú þegar. En ég
held að ef leggja á út frá kyn-
hneigð þurfi að undirbúa það vel,
t.d. með því að fara í gegnum
eldri kennslugögn þar sem gagn-
kynhneigða normið er yfirþyrm-
andi, og að semja ný kennslu-
gögn þar sem jafnvægi og
jafnréttis er gætt. Ég held að
þetta sé eitt af stóru verkefn-
unum á næstu árum; að endur-
skoða námsefni út frá hinum
sjónarhornunum. Eða út frá
fleiru en einu sjónarhorni líkt og
kappkostað er í flestöllum náms-
greinum.
Sum börn eiga einfaldlega
tvær mömmur, önnur tvo pabba,
og enn önnur samkynhneigt ein-
stætt foreldri, eða hvaðeina ann-
að. Þá eru í hverjum skóla kenn-
arar sem ekki eru gagnkyn-
hneigðir, og unglingar sem eru
að uppgötva óvænta kynhneigð
sína. Misrétti og kæruleysi gagn-
vart fordómum í garð þeirra hef-
ur aldrei verið réttlætanlegt, en
er aukinheldur hlálegt á þriðja
árþúsundinu e.Kr.
Ef umræðan er engin í skólum
og jafnvel frumfræðsla um kyn-
færin feimnismál, þá er jarð-
vegurinn fyrir fordóma og sárs-
auka góður, og líkur á brotinni
eða veikri sjálfsmynd of miklar.
Samt er eitt af aðalmarkmiðum
skóla að byggja upp sjálfstæða
einstaklinga með sterka sjálfs-
mynd.
Vissulega munu einhverjir for-
eldrar bregðast ókvæða við góðri
fræðslu og umræðu í skólum um
kynhneigð, og jafnvel hringja
hneykslaðir í skólana og gera til-
raun til að banna að börnum
þeirra verði veitt þessi sam-
félagslega fræðsla. Þeir sem það
gera eru aftur á móti komnir út
fyrir endimörk valda sinna, því
þeir væru að hindra miðlun þekk-
ingar og auka líkur á kvalafullum
fordómum. Einnig er efi um að
börnin geti eftir fræðslu myndað
sér sjálfstæða skoðun. Nemendur
ættu að vera betur færir um að
lesa samfélagið og valdabarátt-
una í því eftir fræðslu um alla
þessa hornsteina. Og að sjá
útlínur hins risavaxna norms og
áráttu til að steypa alla í sama
mót.
Hinsegin-
fræðsla
Einnig ætti að vera sjálfsagt mál að
kenna um nútímafjölskylduna. Þá
leysist myndin upp og óljóst fjör færist
í leikinn; kynin, hlutverkin, kyn-
hneigðin, og kyngervin ruglast.
VIÐHORF
Eftir Gunnar
Hersvein
guhe@mbl.is
UNDANFARIN ár hefurverið unnið að því aðtryggja stöðu íslenskunn-ar í tækniheiminum, og
ýmsar tillögur verið settar fram eins
og að meðferð texta í tölvum verði
góð, og að hægt verði að tala við tölv-
ur á íslensku.
Tungutækni er aðferðin, hún felur í
sér samþættingu tungumála og mál-
vísinda annars vegar og tölvu- og
upplýsingatækni hins vegar. Þessi
samvinna hefur hagnýtan tilgang,
beinist að því að hanna eða útbúa ein-
hvern hugbúnað eða tæki sem nýtast
mönnum í starfi eða leik. Þetta svið er
nú í örum vexti víða um heim og
margvísleg spennandi þróun í gangi,
en fram til þessa hefur ekkert nám af
þessu tagi verið í boði á Íslandi og það
hefur staðið íslenskri tungutækni fyr-
ir þrifum. Nú hefur verið ráðin bót á
því.
Sérstök grein í háskólum
Rögnvaldur Ólafsson eðlisfræðing-
ur og dósent við Háskóla Íslands, Ei-
ríkur Rögnvaldsson prófessor í ís-
lenskri málfræði við HÍ og Þorgeir
Sigurðsson rafmagnsverkfræðingur
og íslenskufræðingur sömdu fyrir
þremur árum skýrslu um tungutækni
fyrir menntamálaráðuneytið. Þeir
ræddu á sínum tíma saman um það
hvort og hvernig mætti hrinda í fram-
kvæmd þeim tillögum sem settar
voru fram. „Við áttuðum okkur fljót-
lega á því að eitt stærsta vandamál
sem Íslendingar standa frammi fyrir
ef þeir ætla að hefja öflugt og mark-
visst starf á sviði tungutækni,“ segir
Eiríkur, „er skortur á fólki með
menntun, reynslu og þekkingu á
þessu sviði.“
Hér ber að athuga að enda þótt
skammt sé síðan tungutækni varð að
iðnaði í grannlöndunum, styðst það
starf við margra ára rannsóknir og
kennslu á háskólastigi. Í enskumæl-
andi löndum er Computational
Linguistics víða sérstök grein í há-
skólum, en einnig sums staðar innan
málvísindadeilda eða tölvunarfræði-
deilda. Svipuðu máli gegnir um
Komputerlinguistik í þýskumælandi
löndum, datalingvistik á Norðurlönd-
um o.s.frv.
Í stað þess að þessi fræði séu fyrst
og fremst stunduð sem hefðbundin
akademísk grein hefur áherslan færst
yfir á hagnýtingu þeirra í ýmiss konar
tækjum og tólum; leiðréttingarforrit-
um, vélrænum þýðingum, hjálpar-
tækjum fyrir fatlaða o.s.frv.
Þessar breyttu áherslur endur-
speglast í þeim nöfnum sem greininni
eru nú gefin. Við hliðina á Comp-
utational Linguistics, datalingvistik
o.s.frv. er nú komið Language
Technology, sprogteknologi o.þ.h.
Þörfin vissulega fyrir hendi
Hér á landi hefur lítið sem ekkert
verið fengist við kennslu og rann-
sóknir á þessu sviði. Innan íslensku
og almennra málvísinda við Háskóla
Íslands hafa einstöku sinnum verið
haldin námskeið um tölvur og tungu-
mál. Enginn íslenskur málfræðingur
fæst nú svo að heitið geti við rann-
sóknir á sviði máltölvunar, og ekki er
heldur vitað til þess að íslenskir mál-
fræðingar sem hafa farið til fram-
haldsnáms erlendis hafi lagt stund á
nám af þessu tagi. „Þess eru líka fáein
dæmi að íslenskir stúdentar í tölvun-
arfræði og rafmagnsverkfræði hafi
unnið lokaverkefni sem falla undir
tungutækni,“ segir hann, „en ég veit
ekki til að neinn þeirra hafi haldið
áfram námi eða rannsóknum á því
sviði. Hér má þó ekki gleyma hinu
mikilvæga brautryðjandastarfi sem
Friðrik Skúlason hefur unnið með
Púka sínum og áframhaldandi þróun
hans.“
Starfshópur um tungutækni lagði
því til í skýrslu sinni að komið yrði
upp þverfaglegu meistaranámi á
þessu sviði við Háskóla Íslands. Sú til-
laga er nú að komast til framkvæmda,
í framhaldi af samstarfssamningi sem
menntamálaráðuneytið og Háskóli
Íslands gerðu í fyrra. Samkvæmt
þeim samningi leggur ráðuneytið
fram allt að 15 milljónir króna á
næstu þremur árum til að gera Há-
skólanum kleift að byggja upp rann-
sóknir og þekkingu á þessu sviði
Samvinna ólíkra fræðasviða
Íslenskuskor var falið að fram-
fylgja ákvæðum þessa samnings, en
nemendur munu einnig taka nám-
skeið í tölvunarfræði og e.t.v. fleiri
greinum. Það kom svo í hlut Eiríks að
stjórna undirbúningi námsins.
Tungutækni (Language Techno-
logy) er m.ö.o. nýtt þverfaglegt meist-
aranám við Háskóla Íslands, einkum
ætlað stúdentum sem annaðhvort
hafa lokið BS-prófi í tölvunarfræði
eða BA-prófi í íslensku eða almennum
málvísindum. Þeir sem hafa lokið há-
skólaprófi í öðrum skyldum greinum
geta einnig sótt um inngöngu og þá
verður undirstaða þeirra metin sér-
staklega.
Markmið meistaranáms er að
skapa frjóa samvinnu ólíkra fræða-
sviða og mynda þannig öfluga sveit
fólks sem hefur þekkingu og færni til
að vinna innan íslenskrar tungutækni
og byggja upp gróskumikinn iðnað á
því sviði.
Eiríkur segir að stefnt sé að sam-
starfi um tungutækninám við erlenda
háskóla með það í huga að gera sam-
starfssamning við háskóla sem hafa
mikla reynslu á þessu sviði. Slíkur
samningur skal m.a. vera um kenn-
araskipti, nemendaskipti og ráðgjöf
við uppbyggingu náms og rannsókna.
Enn hægt að sækja um
Eiríkur segir að 12 umsóknir um
námið liggi nú þegar fyrir og að flestir
umsækjendur komi úr hugvísinda-
greinum – íslensku, málvísindum,
ensku o.fl. „Margir þeirra hafa þó
einnig einhvers konar tölvumenntun
að baki eða reynslu á því sviði,“ segir
hann. Enn er hægt að sækja um en
það er ákvörðun deildarinnar hvort
umsækjendur eru teknir inn utan
venjulegs umsóknarfrests. Oftast eru
slíkar beiðnir samþykktar.
Tungutækni til MA-prófs er lýst á
bls. 91–92 í kennsluskrá HÍ um meist-
ara- og doktorsnám 2002–2003, en
auk þess sem þar stendur er líklegt að
væntanlegir nemendur geti tekið ein-
stök námskeið eða heil misseri við er-
lenda háskóla, jafnvel í fjarnámi.
Nemendur sem koma úr tungu-
málagreinum verða að taka inngangs-
námskeið í tölvunarfræði, en nemend-
ur með undirstöðunám í tölvunar-
fræði taka inngangsnámskeið í
málfræði. Stærstur hluti námsins
felst þó í nýjum námskeiðum á sviði
tungutækni. Meðal þess sem tekið
verður fyrir í námskeiðunum er mál-
greining (natural language process-
ing), talgreining (speech technology),
gagnamálfræði (corpus linguistics),
vélrænar þýðingar (machine transla-
tion), tölvustudd orðabókagerð
(computer-assisted lexicography),
tölfræðileg málgreining (statistical
NLP) o.fl.
Unnið að brýnum verkefnum
Að auki geta nemendur valið nám-
skeið sem þegar eru kennd í ýmsum
greinum Háskólans, s.s. í íslenskri
málfræði, sálfræði, tölvunarfræði,
rafmagns- og tölvuverkfræði, o.fl.
„Í öllu náminu verður lögð áhersla
á að nemendur vinni að brýnum verk-
efnum á sviði íslenskrar tungutækni,“
segir hann. „Þar er að sjálfsögðu af
nógu að taka. Meðal brýnustu verk-
efna er að þróa ýmiss konar greining-
artækni, s.s. fyrir vélræna orðflokka-
greiningu og vélræna setningagrein-
ingu.“ Slík forrit nýtast í margvísleg-
um verkefnum og eru raunar for-
senda fyrir þróun ýmiss konar leið-
réttingaforrita, textaleitarforrita, vél-
rænna þýðinga o.s.frv. Eiríkur segir
upplagt að virkja nemendur í þróun-
arvinnu við slíka greiningartækni, og
að rannsóknarverkefni nemenda
verði unnin í samvinnu við fyrirtæki
eða stofnanir sem vinna að tungu-
tækniverkefnum.
Tungutækni/ Meistaranám í tungutækni hefst við HÍ í haust. Það
er einkum ætlað stúdentum sem annaðhvort hafa lokið BS-prófi í
tölvunarfræði eða BA-prófi í íslensku eða almennum málvísindum.
Tungutækni er
þverfaglegt nám
Morgunblaðið/Golli
Sigríður Sigurjónsdóttir og Eiríkur Rögnvaldsson kenna tungutækni til
MA-prófs við Háskóla Íslands.
TENGLAR
..............................................
www.hi.is