Morgunblaðið - 15.08.2002, Qupperneq 58
MINNINGAR
58 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STYRKIR Styrkur til reiðkennara
Hestamiðstöð Íslands hefur ákveðið að veita
einum reiðkennara styrk allt að kr. 300 þús.
til náms í reiðkennslu fyrir fatlaða. Styrknum
fylgir sú kvöð, að viðkomandi tekur að sér að
miðla öðrum reiðkennurum af reynslu sinni
þegar heim er komið. Ljóst er að notkun hesta
til þjálfunar fatlaðra einstaklinga hefur gefist
mjög vel og þess vegna hefur HMÍ ákveðið að
veita þennan styrk.
Áhugasamir reiðkennarar skulu skila umsókn-
um til Hestamiðstöðvar Íslands, Aðalgötu 21,
550 Sauðárkróki, fyrir 20. ágúst nk.
Nánari upplýsingar gefur Þorsteinn Broddason,
framkvæmdastjóri HMÍ, í síma 455 7140 eða
steinib@krokur.is .
Auglýsing
um úthlutun styrkja
Frímerkja- og póstsögusjóður var stofnaður
með reglum nr. 449, 29. október 1986. Gildandi
reglur eru nr. 453, 18. maí 2001.
Tilgangur sjóðsins er að efla og styrkja störf
og rannsóknir á sviði frímerkjafræða og póst-
sögu og hvers konar kynningar- og fræðslu-
starfsemi til örvunar á frímerkjasöfnun, svo
sem með bóka- og blaðaútgáfu. Eins skal
sjóðurinn styrkja sýningar og minjasöfn, sem
tengjast frímerkjum og póstsögu.
Styrki má veita félagasamtökum, einstakling-
um og stofnunum.
Næsta úthlutun styrkja fer fram á degi frímerk-
isins 9. október 2002. Umsóknir um styrki skal
senda til stjórnar sjóðsins, b.t. Halldórs S.
Kristjánssonar, samgönguráðuneytinu, Hafnar-
húsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík.
Umsóknum skal fylgja ítarleg greinargerð um
í hvaða skyni sótt er um styrk.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2002
Reykjavík, 15. júlí 2002.
Stjórn Frímerkja- og póstsögusjóðs.
ÝMISLEGT
Sauðfjárkvóti til sölu
Vorum að fá í sölu 120 ærgilda greiðslu-
mark í sauðfé, er gildir frá næstu ára-
mótum.
Tilboð óskast send til Lögmanna Suður-
landi, Austurvegi 3, 800 Selfossi, eða á
netfang oli@log.is.
Lögmenn Suðurlandi,
sími 480 2900.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Í kvöld kl. 20.00:
Lofgjörðarsamkoma í umsjón
Pálínu og Hilmars.
Sr. Gunnar Sigurjónsson talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Bænastund kl. 19:30.
Samkoma kl. 20:00. Barnastarf
fyrir 4 til 10 ára á sama tíma. Lof-
gjörð, fyrirbænir og Högni Vals-
son predikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Athugið að þetta er síðasta
fimmtudagssamkoman. Næsta
samkoma er sunnudaginn
18. ágúst kl. 16.30, ath. breyttan
samkomutíma.
„Guð er oss hæli og styrkur, ör-
ugg hjálp í nauðum.“
17. ágúst, laugard.: Fossinn
Dynkur/Búðarhálsfoss í
Þjórsá. Sjaldfarnar slóðir. 2—
3 klst. ganga. Fararstjóri Sveinn
Tyrfingsson, bóndi. Brottför frá
BSÍ kl. 8, komið við í Mörkinni 6.
Verð kr. 3.700/4.000.
18. ágúst, sunnud.: Svína-
skarð — Hrafnhólar, milli
Skálafells og Móskarðs-
hnjúka. Afmælisferð, munið
stimplana. 5—6 klst ganga,
hæst um 400 m y.s. Fararstjóri
Sigurður Kristjánsson. Brottför
frá BSÍ kl. 10:30, komið við í
Mörkinni 6. Verð kr. 1.500/1.800.
Laugavegur 16.—19. ágúst
(hraðganga). Farangur fluttur
með bíl milli skála. Tvær máltíðir
innifaldar í fargjaldi. Verð kr.
19.900/22.900. Síðasta Lauga-
vegsganga F.Í. 2002.
Fimmvörðuháls 23.—25. ágúst.
Síðasta Fimmvörðuhálsferð F.Í. í
sumar.
Óvissuferð 7.—8. sept. Farið
út í óvissuna eina helgi. Rúta,
gönguferðir og ýmislegt fleira.
Sími F.Í. 568 2533, www.fi.is,
textavarp RUV bls. 619.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Prédikun: Vörður Traustason.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is
Áskirkja. Opið hús er á fimmtudögum
milli kl. 14 og 17 í neðri safnaðarsal
kirkjunnar fyrir unga sem aldna. Í
tengslum við opna húsið hefur mynd-
ast sönghópur sem syngur létt lög sér
til skemmtunar og ánægju en organisti
Áskirkju, Kári Þormar, leiðbeinir og stýr-
ir hópnum. Eftir sönginn er boðið upp á
kaffi og með því. Allir eru hjartanlega
velkomnir, laglausir sem lagvísir, til að
eiga samveru og hafa gaman af.
Hallgrímskirkja: Hádegistónleikar kl.
12. Kári Þormar leikur á orgel.
Háteigskirkja: Taizé-messa kl. 20.
Fella- og Hólakirkja: kl. 10.30–12.
Biblíulestur, helgistund og samvera í
Gerðubergi í umsjón Lilju G. Hallgríms-
dóttur djákna.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund
kl. 22. Ath. breyttan tíma. Gott er að
ljúka deginum í kyrrð kirkjunnar og bera
þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bæn-
arefnum má koma til presta kirkjunnar
og djákna. Hressing í safnaðarheim-
ilinu eftir stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn,
safnaðarheimili Strandbergs, kl. 10–
12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safn-
aðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn,
frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13–
15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman
og eiga skemmtilega samveru í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld
kl. 20.
Keflavíkurkirkja. Morgunsöngur og
morgunbænir í Kapellu vonarinnar
kl. 10 árd.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir
velkomnir.
Vegurinn. Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Bænastund kl. 19.30, Samkoma kl.
20, Högni Valsson predikar, lofgjörð,
fyrirbænir og barnastarf fyrir fjögurra til
tíu ára á sama tíma. Allir hjartanlega
velkomnir.
Athugið að þetta er síðasta fimmtu-
dagssamkoman í sumar. Næsta sam-
koma verður sunnudaginn 18. ágúst kl.
16.30.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12. Léttur hádegisverð-
ur á vægu verði í safnaðarheimili á eftir.
Safnaðarstarf
FERMING og fermingarundirbún-
ingur eru mikilvægir þættir í lífi
flestra Íslendinga og fermingarund-
irbúningurinn þróast með breyttum
þjóðfélagsháttum. Nú tekur skóli yf-
ir æ meiri tíma í lífi barnanna og
tómstundir þeirra verða æ ásetnari
því margt er í boði sem vekur áhuga
barna og unglinga.
Þess vegna eru nú kirkjur farnar
að bjóða upp á námskeið áður en
skóli hefst á haustin þar sem
fræðsluþætti fermingarundirbún-
ingsins er að mestu gerð skil. Sam-
félag og guðsþjónustuþátttaka held-
ur hins vegar óbreyttri mynd og
tryggir tengslin við ferming-
arbörnin yfir veturinn.
Dómkirkjan og Hallgrímskirkja
bjóða eins og í fyrra upp á sameig-
inlegt námskeið dagana 18.–21.
ágúst. Sunnudaginn 18. ágúst kl. 13
verður farið í Viðey og þar verður
dagskrá um unglinginn og ábyrgð
hans á sjálfum sér.
Næstu þrjá daga verður nám-
skeiðinu framhaldið í Safnaðarheim-
ili Dómkirkjunnar og Tjarnarskóla
og farið verður yfir hefðbundið
fræðsluefni fermingarbarna. Einnig
verða unnin þemaverkefni um líf
kirkjunnar í sögu og samtíð.
Samvera fyrir foreldra verður í
Dómkirkjunni á miðvikudagskvöldið
21. ágúst kl. 20.30. Þar mun sr. Sig-
urður Pálsson flytja erindi sem hann
kallar Unglingurinn okkar, ferming-
arstörfin verða kynnt og boðið upp á
kaffisopa.
Innritun í fermingarundirbúning-
inn hefur farið fram en þeir sem
kynnu að eiga eftir að gera vart við
sig eru hvattir til þess að hafa sam-
band við kirkjurnar án tillits til þess
hvort börnin geta nýtt sér þetta
haustnámskeið eða óska eftir und-
irbúningi síðar á vetrinum.
Sími í Hallgrímskirkju er 510
1000 og Dómkirkju 520 9700.
Fermingar-
námskeið Dóm-
kirkju og Hall-
grímskirkju
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Dómkirkjan.
KIRKJUSTARF
Það er sérstök tilfinn-
ing að hugsa til þess að
Benni skuli ekki lengur
vera á meðal okkar á
þessari jörð. Rödd hans heyrist ekki
lengur í útvarpinu, t.d. á Lindinni þar
sem hann las upp úr kristilegum rit-
um, hann talar ekki lengur á kristi-
legum samkomum og hann er ekki
lengur í Kringlunni fyrir jólin að selja
fyrir kristniboðið.
Minningarnar einar sitja eftir sem
eru margar og hlýjar.
BENEDIKT
ARNKELSSON
✝ Benedikt Ingi-mundur Arnkels-
son guðfræðingur
fæddist á Gríms-
staðaholtinu í
Reykjavík 7. febrúar
1926. Hann lést á
Landspítalanum 20.
júlí síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Fossvogskirkju
29. júlí.
Ég kynntist Benna
þegar ég réð mig við
sumarstörf í Kaldárseli
ungur að árum. Þegar
ég vissi að Benni væri
yfirmaður minn kom
kvíði upp í hugann. Ég
hafði oft séð hann í
KFUM og heyrt hann
tala á samkomum.
Hann var svo formlegur
og virðulegur.
Þegar ég fór að starfa
með honum var kvíðinn
fljótur að hverfa. Benni
átti til mikla glettni og
var hrókur alls fagnað-
ar við eldhúsborðið í Kaldárseli, þar
sem við sátum við kertaljós, því þá var
rafmagnið ekki komið í Kaldársel.
Þegar við unga fólkið slettum úr
klaufunum, fórum t.d. í vatnsslag, var
Benni þátttakandi í því af lífi og sál.
Þar var oft glatt á hjalla.
Eftir erfiðan vinnudag var ávallt
endað með lestri úr Guðs orði og bæn.
Þetta sá Benni yfirleitt um og gerði
það af mikilli einlægni og virðingu.
Á hverju kvöldi tók Benni Nýja
testamentið og vasaljósið með sér í
rúmið til að geta átt persónulegt sam-
félag við Drottin sinn og frelsara.
Margar voru gönguferðirnar sem
við fórum út í hraunið í kringum Kald-
ársel með drengina þar sem Benni
sagði þeim sögur eða sló á létta
strengi, sem allir höfðu gaman af.
Áður en farið var í þessar göngu-
ferðir fór hann alltaf út til að horfa til
veðurs. Ef von var á rigningu var
aldrei farið í lengri göngur.
Ég gæti lengi haldið áfram en
minningarnar eru svo margar sem
sitja eftir.
Benni var mjög góður fræðari og
þau börn sem nutu þess að umgang-
ast hann fóru margs fróðari úr Kald-
árseli en þau voru þegar þau komu
þangað.
Hann kenndi þeim vers úr Biblí-
unni og ýmis heilræðavers sem voru
þeim gott veganesti út í lífið. Sumir
sögðu að dvöl barna í Kaldárseli undir
hans stjórn væri á við góðan ferming-
arundirbúning og tel ég það engum
orðum ofaukið.
Langar mig að enda þessi orð mín
með versi eftir Hallgrím Pétursson
sem Benna voru kær og fengu oft að
hljóma af vörum barnanna í Kaldár-
seli:
Ég lifi’ í Jesú nafni,
í Jesú nafni’ eg dey,
þó heilsa’ og líf mér hafni
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti’ eg segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgr. Pét.)
Þessi orð áttu svo sannarlega við
um Benna. Hann var tilbúinn að
mæta Drottni sínum á himnum og átti
þar vísan stað.
Ég náði að heimsækja Benna á
spítalann og sú stund var mér lær-
dómsrík, þótt hún hefði ekki verið
löng. Hann talaði um þann hjálpræð-
isgrunn sem Jesús lagði fyrir okkur
mennina með dauða sínum á kross-
inum. Líf Benna snerist um að benda
fólki á Jesú, hér á landi og á kristni-
boðsakrinum. Þetta var vitnisburður
Benna fram að síðasta andartaki. Er
nokkuð til yndislegra.
Við fjölskyldan kveðjum góðan vin
með söknuði og sendum Sverri, tví-
burabróður hans og systkinum ásamt
fóstursystur hlýjar samúðarkveðjur.
Sveinn, Valdís og börn.
Í dagsins önnum dreymdi
mig
þinn djúpa frið, og svo varð
nótt.
Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt,
ÁSLAUG HELGA
PÉTURSDÓTTIR
✝ Áslaug HelgaPétursdóttir
fæddist í Strassborg
3. desember 1957.
Hún lést á Durán i
Reynals-sjúkrahús-
inu í Barcelóna 28.
júlí síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Kópavogs-
kirkju 8. ágúst.
þeim svefni enginn rænir þig.
En samt var nafn þitt nálægt
mér
og nóttin full af söngvaklið
svo oft, og þetta auða svið
bar ætíð svip af þér.
Og þungur gnýr sem hrynji
höf
mitt hjarta lýstur enn eitt
sinn:
Mín hljóða sorg og hlátur þinn,
sem hlutu sömu gröf.
(Steinn Steinarr.)
Þín vinkona,
Helga Ægisdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.