Morgunblaðið - 15.08.2002, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 67
GAMLA góða Háskólabíó er nú í
hálfgerðum slipp, og er verið að
taka það í gegn hátt sem lágt. Unn-
ið er að því að bæta salina m.a. með
því að umturna öllu er snýr að
hljóði og mynd. Og loksins eru
komnir glasahaldarar í sætin!
Það eru þeir John Stephens og
Ingólfur Arnarson tæknifræðingar
sem hafa haft yfirumsjón með
breytingum og litu þeir við upp í
Morgunblað í kaffi ásamt Birni
Árnasyni, framkvæmdastjóra Sam-
bíóanna, sem nú sjá um rekstur
þessa fornfræga kvikmyndahúss.
Björn byrjar á að útskýra erf-
iðasta tæknimálið fyrir blaða-
manni: Þannig er að ljós í minni söl-
um hafa verið lækkuð, styrkur í
linsu aðalsalar hefur verið aukinn
til muna (sem þýðir betri og skýrari
myndgæði) og hljóðkerfi bætt til
muna þannig að nú er hljómur sam-
bærilegur við það besta sem gerist í
heimi hér.
„Nú er Dolby Digital í öllum söl-
um,“ segir Björn. „Skipt var um há-
talara og slíkt. Það er samt ekki
þannig að hávaðinn verði meiri og
hárin standi á endum á fólki (hlær).
Nei, öllu heldur er hljóðið nú mun
betra, hvað alla sali varðar. Það er
hljóðdreifingin sem slík, sem er nú
jafnari.“
Þetta er í þriðja skiptið sem
Stephens kemur til landsins í þess-
um tilgangi en hann starfar fyrir
Sound Associates í Bretlandi og allt
frá 1976 hefur hann ferðast vítt og
breitt um heiminn í þessum til-
gangi.
„Aðalmálið hér,“ segir Stephens,
„var að við bættum hljóðkerfið í sal
1 um helming ef svo skal segja.
„Umhverfishátalararnir“ eru nú
helmingi fleiri en áður. Hljómur er
því mun jafnari, um allan salinn, en
áður.“
Spurður um álit sitt á Há-
skólabíói, samanborið við önnur
kvikmyndahús sem hann hefur
unnið við, segir Stephens: „Þetta er
svolítið undarlegt hús viðurkenni
ég, þar sem það er líka notað sem
tónleikasalur.“
Stephens segir að þetta verkefni
hafi ekki verið það erfitt.
„Stundum þarf gersamlega að
snúa hverri fjöl við en það var ekki
svo í þessu tilfelli. Þetta var frekar
spurning um að bæta heldur en að
endurbyggja.“
Það verður án efa athyglisvert að
sjá hvernig þetta ríflega fjörutíu
ára gamla hús – sem í lögun sinni
minnir óneitanlega á fornfálega
ljósmyndavél – lagar sig að þessu
bætta og breytta innvolsi.
Hljóð og mynd
bætt til muna
Morgunblaðið/Jim Smart
Hér má sjá muninn á nýju hátölurunum og þeim gömlu.
Háskólabíó sett í yfirhalningu
KVIKMYNDIN Hringadróttinssaga sló öll
sölumet á DVD-diskum og myndbandsspól-
um í Bretlandi í síðustu viku. Seldar voru
1,27 milljónir DVD-diska og myndbands-
spólna með kvikmyndinni á einum degi, en
eldra metið var slegið þegar kvikmyndin
um Harry Potter og viskusteininn fór á
DVD og myndband. Þá seldust 1,25 millj-
ónir eintaka á einum degi í maí síðastliðn-
um, að sögn fréttavefjar BBC.
Helstu verslanir á Bretlandi hafa greint
frá umtalsverðri söluaukningu í DVD og á
myndböndum undanfarið. Talið er að ein
ástæða þess að Hringadróttinssaga seljist
vel sé sú að atriði úr öðrum hluta kvik-
myndabálksins, Turnarnir tveir, sem sýnd-
ur verður í kvikmyndahúsum í vetur, er að
finna á DVD. Þriðja kvikmyndin um
Hringadróttinssögu verður tekin til sýning-
ar 2003.
Hringadróttinssaga slær enn fleiri met
Hringurinn góði sem
allt snýst um.
Sýnd kl. 6 og 10. B.i. 10.
Sýnd kl. 6 og 10.
STÓRKOSTLEGAR TÆKNIBRELLUR
OG BRJÁLAÐUR HASAR.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
„Ein besta mynd þessa árs.
Fullkomlega ómissandi.“
SV Mbl
HK DV
YFIR
35.000.
MANNS!
www.laugarasbio.is
Radíó X
1/2
Kvikmyndir.com
„Besta mynd ársins til þessa“
1/2 HÖJ Kvikmyndir.com
„Ein besta mynd þessa árs.
Fullkomlega ómissandi.“
SV Mbl
Sýnd kl. 5.30, 8.30 og Powersýning kl. 10.30.
Hverfisgötu 551 9000
Powersýning
kl. 10.30.
Radíó X
1/2
Kvikmyndir.com
„Besta mynd ársins til þessa“
1/2 HÖJ Kvikmyndir.com
HK DV
Sexý og Single
Yfir 12.000 MANNS 2 FYRIR EINN - allra síðustu sýningar
Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30. Sýnd kl. 5.30. B.i. 10.
Sýnd kl. 8. B. i. 16.
SV.MBL
HK.DV
Yfir
35.000
MANNS
Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30.
www.regnboginn.is