Morgunblaðið - 15.08.2002, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 69
Sýnd kl. 8 og 10.40.
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 417
SK Radíó X
SV MBL
HK DV
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Líkar þér illa
við köngulær
?
Þeim líkar ek
kert vel við þ
ig heldur!
Ný sérstök útgáfa!
Nú í fyrsta sinn í
kvikmyndahúsum
með íslensku tali
Í anda „God's must be
crazy“ myndana.DV
Mbl
RadíóX
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 14. Vit 417
Kvikmyndir.is
DV
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Vit 418
DV
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 406 Sýnd kl. 4 og 6.Vit 398
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 414
kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.20. Bi. 16. Vit 400 Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára Vit 408
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Vit nr. 410.
Sýnd kl. 8. Enskt tal. Vit nr. 407.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Vit 415
ÞriðjudagsTilboð kr. 400ÞriðjudagsTilboð kr. 400
Kvikmyndir.is
SK Radíó X
ÁSTRALSKA ofurfyrirsætan Elle
Macpherson á von á öðru barni
sínu, að því er segir í tilkynningu
frá talsmanni hennar.
Macpherson, sem er 39 ára, er
búsett í London og hefur meira
starfað við leik og viðskipti á síð-
ustu árum heldur en fyrirsætustörf.
Hún á von á barninu með sviss-
neskum unnusta sínum, Arpad Bus-
son. Fyrir eiga þau eitt barn saman,
hinn fjögurra ára Flynn.
„Elle Macpherson og Arpad
Busson eru ánægð með að staðfesta
að þau eigi von á
öðru barni sínu
snemma í febr-
úar,“ sagði í yf-
irlýsingunni.
Fyrir tveimur
árum fór Mac-
pherson með
hlutverk í banda-
rísku sjónvarps-
þáttunum Vinum
þar sem hún kom oft við sögu. Hún
á einnig eigin nærfatalínu.
Annað barn á leiðinni
Fyrirsætan Elle Macpherson
Lukkuleg verð-
andi móðir.
FRÆGASTA jómfrú skemmtana-
iðnaðarins, Britney Spears, ætlar
að taka sér frí frá tónlistarflutn-
ingi. Talsmaður Jive-útgáfufyrir-
tækisins segir hana ætla að taka sér
þriggja mánaða frí eftir erfiða
hljómleikaferð og enn lengra frí frá
tónlistarflutningi. „Hún hefur verið
á erfiðu hljómleikaferðalagi og
þarf skiljanlega á fríi að halda,“
sagði talsmaðurinn. „Hún mun síð-
an hefja vinnu við gerð næstu kvik-
myndar sinnar.“ Þetta kemur fram
á fréttavef BBC.
Talsmaðurinn vísar hins vegar á
bug sögusögnum um að Spears ætli
að halda sig frá sviðsljósinu í tvö ár.
„Hún mun taka sér frí frá tónlist-
inni um tíma en hún mun örugglega
snúa aftur,“ segir hann.
Spears, sem er 21 árs, er sögð
uppgefin eftir mikla vinnu, auk
þess sem hún hefur verið undir
álagi vegna sambandsslitanna við
Justin Timberlake og skilnaðar for-
eldra sinna. Þá hafa fyrsta kvik-
mynd hennar, Crossroads, og veit-
ingastaður hennar, Nyla í New
York, hlotið blendnar viðtökur.
Britney
fer í frí
Reuters
Hin úttaugaða Britney Spears
þarf á fríi að halda.
DJÚPAVÍKURDAGAR verða
haldnir um næstu helgi, 16.–18.
ágúst, norður á Ströndum. Djúpa-
vík, sem er í sunnanverðum Reykj-
arfirði, var blómlegur síldar-
útgerðarstaður á fyrri hluta 20.
aldar. Mikil umsvif voru þar í mörg
ár, reist voru verslunarhús, íbúðar-
hús og verksmiðjuhús.
Síldin hvarf úr Húnaflóa í upphafi
6. áratugarins og grundvöllur
vinnslunnar brast. Reynt var að
hefja annars konar fiskvinnslu til
þess að tryggja starfsmönnum at-
vinnu en það gekk ekki til lang-
frama og árið 1958 lagðist rekst-
urinn af og fólkið fluttist í burtu.
Staðurinn var næstum í eyði í nokk-
ur ár, allt þar til gamli kvenna-
bragginn var gerður upp árið 1985
og rekstur Hótels Djúpavíkur hófst.
Eva Sigurbjörnsdóttir hótelstýra
segir Djúpavíkurdagana verða sér-
staklega tileinkaða fyrrverandi íbú-
um og velunnurum staðarins. Hún
fluttist ásamt fjölskyldu sinni í
Djúpavík árið 1986 og hóf uppbygg-
ingu staðarins að nýju. Nú eru þar
32 rúm og góð aðstaða. Flest húsin
eru gömul uppgerð hús frá fyrri ár-
um.
Von á fjölda gesta
„Við vonumst eftir fjölda gesta,
og búumst við þeim fyrstu á föstu-
daginn. Farið verður í gönguferðir
um svæðið á laugardaginn, og þá
um kvöldið verður hátíðarkvöld-
verður og kveikt í varðeldi með
fjöldasöng,“ segir Eva. „Vegurinn
norður í Djúpavík er öllum bílum
fær en kannski ekki öllum bílstjór-
um,“ bætir Eva við þegar spurt er
um vegamálin. Einkanlega þarf að
fara gætilega og gefa sér tíma til
ferðarinnar. Þeir sem áhuga hafa á
að koma á Djúpavíkurdagana geta
kynnt sér starfsemina á www.djupa-
vik.com eða haft samband við hót-
elið í síma.
Gleði í Djúpavík
á Ströndum