Morgunblaðið - 23.08.2002, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2002 41
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
FRÁ KÓPAVOGSSKÓLA
• Okkur vantar stuðningsfulltrúa til
starfa nú þegar. Um er að ræða 100%
starf sem felst einkum í aðstoð við til-
tekna nemendur.
Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélags
Kópavogs og Launanefndar sveitarfélaga.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um
starfið.
Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Ólafur Guð-
mundsson, í síma 554 0475.
Starfsmannastjóri
KÓPAVOGSBÆR
FRÁ HJALLASKÓLA
•Hjallaskóli auglýsir eftir aðstoðarskóla-
stjóra. Aðstoðarskólastjóri gegnir jafn-
framt daglegum störfum deildarstjóra á
einu stigi skólans.
Laun skv. kjarasamningum KÍ og Launanefndar
sveitarfélaga.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um
starfið.
Umsóknarfrestur framlengist til 2. september.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Sigrún Bjarnadóttir,
í síma 554 2033.
Starfsmannastjóri
KÓPAVOGSBÆR
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin
á Akranesi
Yfirlæknir
Staða yfirlæknis kvensjúkdómaeiningar
Fæðinga- og kvensjúkdómadeildar Sjúkrahúss
og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi er laus
til umsóknar. Um er að ræða fullt starf.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 7. september.
Laun skv. kjarasamningi Læknafélags Íslands
og fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórir Berg-
mundsson, lækningaforstjóri SHA, í síma
430 6000. Umsóknir, ásamt upplýsingum um
náms- og starfsferil, skulu sendar framkvæmda-
stjóra, Guðjóni Brjánssyni, á póstfang stofnun-
arinnar í Merkigerði 9, 300 Akranesi.
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) skiptist í sjúkra-
svið og heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkra-
hús með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring.
Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum sérhæfða sjúkra-
húsþjónustu á lyflækningadeild, handlækningadeild, fæðinga- og
kvensjúkdómadeild, hjúkrunar- og endurhæfingadeild og á vel bún-
um stoðdeildum, þar sem höfuð áhersla er lögð á þjónustu við íbúa
Vestur- og Suðvesturlands. Jafnframt er vaxandi árhersla lögð á þjón-
ustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslusviði er veitt
almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akra-
ness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarn-
arstarf. SHA tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við
Háskóla Íslands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunarinn-
ar eru um 240 talsins. SHA er reyklaus stofnun.
Háskóli Íslands
Rannsóknastofa
í lyfja- og eiturefna-
fræði
Lyfjafræðingur, lífefnafræðingur, efnafræðingur,
líffræðingur eða einstaklingur með hliðstæða
háskólamenntun óskast til starfa á Rannsókna-
stofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla
Íslands við rannsóknir í réttar-
efnafræði. Um er að ræða vinnu við rannsóknir
á sýnum úr lifandi og látnum einstaklingum,
efnissýnum o.fl.
Ráðið verður í starfið sem fyrst og er æskilegt
að umsækjandi geti hafið störf strax.
Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði er vís-
indaleg rannsóknastofnun í lyfja- og eiturefna-
fræði, auk þess að vera vísindaleg kennslustofn-
un, sem veitir leiðsögn við rannsóknatengt nám,
svo sem BS-, MS-, og doktorsnám. Þá eru á
Rannsóknastofunni stundaðar þjónusturann-
sóknir á ýmsum sviðum lyfjafræði og eiturefna-
fræði.
Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra
og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 6. september 2002 og
skal umsóknum skilað til starfsmannasviðs Há-
skóla Íslands, Aðalbyggingu, við Suðurgötu,
101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjend-
um tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörð-
un hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veitir Jakob Kristinsson, dós-
ent, í síma 525 5143 eða 895 2366, netfang jak-
obk@hi.is .
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið
mið af jafnréttisáætlun háskólans.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Fundur vegna deiliskipulags
af Norðlingaholti
Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar
og formaður skipulags- og byggingarnefndar
boða til fundar um auglýsta deiliskipulagstillögu
af Norðlingaholti,
mánudaginn 26. ágúst kl. 20.00.
Fundurinn er öllum opinn og verður haldinn í sal
Selásskóla við Selásbraut.
Skipulags- og byggingarsvið
Reykjavíkurborgar.
KENNSLA
Fimleikar
— innritun
Innritun í fimleika hjá Gerplu verður mánudag-
inn 26. ágúst og þriðjudaginn 27. ágúst frá
kl. 14.00—19.00 í Gerpluhúsinu, Skemmu-
vegi 6, Kópavogi.
Aðeins verður innritað á staðnum, ekki í síma.
Almennir fimleikar, áhaldafimleikar, hópfim-
leikar og þolfimi fyrir börn og unglinga.
Stundaskrár verðar afhentar laugardaginn
31. ágúst frá kl. 11.00—16.00.
Æfingar hefjast mánudaginn 2. september
samkvæmt stundaskrá.
Ath. að ganga verður frá greiðslu æfingagjalda
við afhendingu stundaskrár.
Staðgreiðsla, mánaðarlegar greiðslur, Visa,
Euro.
Fimleikar fögur íþrótt.
ÞJÓNUSTA
Öll alhliða tölvuþjónusta
Uppsetning á stýri- og netkerfum, eldveggjum
og vírusvörnum. Eftirlit, öryggisafritanir, við-
gerðir, uppfærslur og fyrirbyggjandi viðhald.
Hagstætt verð á íhlutum og 2ja ára gömul verð-
skrá á vinnu.
Þjónustuaðili Hyundai í samvinnu við Tæknibæ
ehf., umboðsaðila Hyundai á Íslandi.
Þjónustusamningar fyrir heimili og minni fyrir-
tæki.
Litla tölvuþjónustan, þinn eigin kerfisstjóri,
sími 864 5647, vidgerdir@email.is.
TILKYNNINGAR
Auglýsing
um deiliskipulag frístundabyggðar
í landi Heyholts, Borgarbyggð.
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt-
ingum, er hér með lýst eftir athugasemdum
við ofangreint deiliskipulag.
Tillagan mun liggja frammi á Bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 23. ágúst 2002 til
20. september 2002.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna
fyrir 4. október 2002 og skulu þær vera skriflegar.
Borgarnesi, 2. júlí 2002.
Byggingarfulltrúinn í Borgarbyggð.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Donnie Swaggart predikar
á samkomu í kvöld kl. 20.30.
25. ágúst sunnud. GÖNGU-
DAGUR F.Í. OG SPRON.
Fyrri brottför kl. 10.30 Hval-
vatn - Hvalfjörður. Ekið upp
fyrir Botnsúlur, inn á Kaldadals-
leið, gengið með Hvalvatni og
niður í Botnsdal í Hvalfirði. Um 5
klst. ganga. Fararstjórar Leifur
Þorsteinsson og Sigurður Kristj-
ánsson. Veitingar í lok göngu.
EKKERT ÞÁTTTÖKUGJALD.
Seinni brottför kl. 13.00
Brynjudalur í Kjós - Botnsdal-
ur í Hvalfirði. Ekið í Brynjudal í
Kjós, gengið yfir Hrísháls niður í
Botnsdal í Hvalfirði. Um 3 klst.
ganga. Fararstjórar Vigfús Páls-
son og Þóroddur Þóroddsson.
Veitingar í lok göngu. EKKERT
ÞÁTTTÖKUGJALD.
Fimmvörðuháls 23.-25. ágúst.
Síðasta Fimmvörðuhálsganga
2002. Bókanir á skrifstofu.
Sími F.Í. 568 2533. www.fi.is,
textavarp RUV bls. 619.
upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar
ATVINNU- OG RAÐAUGLÝSINGAR
mbl.is
ATVINNA