Morgunblaðið - 23.08.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.08.2002, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ólafur B. Stein-sen var fæddur 4. nóvember 1927. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík fimmtudaginn 15. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Benedikt V. M. Steinsen frá Kross- bæ í Hornafirði, f. 3.2. 1898, d. 26.6. 1977, og Þórdís Ei- ríksdóttir frá Hval- nesi í Lóni, f. 3.3. 1887, d. 18.10. 1984. Ólafur var fæddur og uppalinn á Höfn. Fjölskyldan bjó í fyrstu á Bjargi en síðar á Knerri á Leiðarhöfðalóðinni þar til þau fluttu til Reykjavíkur ár- ið 1952. Þau bjuggu fyrstu árin á Hallveigarstíg en flytja síðan á Rauðarárstíg 7 og bjó Ólafur þar allt þar til hann flutti að Hátúni 12 1984. Ólafur gekk í barnaskólann á Höfn. Eftir ferm- ingu vann hann m.a. við olíuaf- greiðslu í Álaug- arey og við af- greiðslu hjá móður- bróður sínum Ein- ari Eiríkssyni í verslun hans. Ólafur útskrifað- ist úr Verzlunar- skóla Íslands árið 1956. Með námi og eftir útskrift vann hann hjá Nathan & Olsen. Hann vann um árabil hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga og þar á eftir stofnaði hann heildsölu- verslunina Eskifell ásamt Einari Bjarnasyni sem þeir starfræktu í nokkur ár. Útför Ólafs verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þegar við kvöddum þig í gær, 15. ágúst, vissum við að það var okkar hinsta kveðja til þín. Lífsþrótturinn búinn en eins og stundum bráði af þér og augun leituðu til okkar, spegill sál- arinnar. Ferðalag lífsins var á enda og lauk með friðsælu andláti um kvöldið. Við vorum svo þakklátar því að pabbi og mamma voru hjá þér. Þegar við horfum út um gluggann leika blómin litasinfóníu í garðinum okkar. Við minnumst þess er við sögðum þér frá því að eitt tréð í garðinum væri orðið hærra en húsið og þú brostir. Minningarnar leita enn lengra aft- ur er fimm litlar stelpur eru í sinni fyrstu Reykjavíkurferð með foreldr- um sínum og það er gist á Rauðarár- stígnum. Minning um lofthæðina þeg- ar horft er niður í garð. Trén svo stór í garðinum, líka þá. Hávaðinn frá um- ferðinni þegar kvölda tók og farið var að hátta. Það var nær óskiljanlegt að hægt væri að sofna við slíkan skark- ala en við sofnuðum samt. Og sofnum enn. Elsku Óli, þú ert sofnaður svefn- inum langa. Megi ljós og friður fylgja þér í móðurfaðminn hlýja. Við höldum áfram að rækta garð- inn okkar. Þínar frænkur, Eva og Erna. Hugurinn hvarflar til fortíðar þeg- ar einhver kveður sem búið er að þekkja lengi. Fyrst þegar ég sá Óla, eins og hann var alltaf nefndur, var það á Rauðarárstígnum. Ég kom að heimsækja bróður minn og mágkonu sem voru stuttan tíma hjá foreldrum hans en alltaf var pláss hjá þeim ef einhver að austan þurfti á samastað að halda. Í framhaldi af þeim heim- sóknum kynntist ég frænda Óla, Sig- urði sem varð síðan maðurinn minn. Oft var hann að stríða okkur á þeim tíma en allt var það í góðu. Á þeim árum átti hann bíl. Þrátt fyrir mikla líkamlega fötlun þá keyrði hann sjálfur en oft fékk hann líka frænda sinn til að keyra og ekki stóð á að lána bílinn ef þess var óskað. Svo fluttum við til Hornafjarðar og þá varð nú lengra á milli, en hann kom nokkrum sinnum til okkar þangað. Svo flytjum við til Reykjavíkur 1989 og nálægðin eykst. Ég held að sein- asta ferðin okkar saman hafi verið á Nesjavelli og þar var drukkið kaffi og allir voru ánægðir. Óli ferðaðist mikið í gegnum árin bæði innanlands og ut- an. Ein af minnisstæðustu ferðum hans var með Skaftfellingakórnum 1981 til Finnlands. Óli var mikill námsmaður og lærði m.a á tölvu eftir að hann kom í Hátún. Oft minntist hann þess að hafa lært Esperanto hjá Hallgrími Sæmunds- syni á Hornafirði sem hann hafði mikla ánægju af. Nú að leiðarlokum þökkum við Sig- urður fyrir allar liðnar stundir. Hvíldu í guðsfriði. Guðný Egilsdóttir. ÓLAFUR B. STEINSEN ✝ Vilhjálmur Guð-mundsson fædd- ist á Húsavík 27. nóvember 1932. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 17. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónas- son útibússtjóri KÞ í Flatey á Skjálfanda og kona hans Þuríð- ur Elísa Pálsdóttir frá Brettingsstöðum á Flateyjardal. Þau eignuðust 17 börn. Af þeim komust 13 til fullorðinsára og var Vilhjálmur þeirra yngstur. Hin eru: Gunnar, f. 1912, d. 1989, Emilía, f. 1913, d. 1999, Sigurbjörg, f. 1914 , Ólöf, f. 1918, Páll Bernharð, f. 1919, Hall- grímur, f. 1921, Júlíana, f. 1923, Örn Björn, f. 1924, Jónas, f. 1926, Þorsteinn, f. 1927, Elísabet, f. 1929, og Gísli, f. 1930. Vilhjálmur kvæntist 26. desember 1953 Stellu L. Gunnlaugsdóttur, frá Látrum í Aðalvík, f. 20 janúar 1935. Þau eiga sex börn: 1) Gunnlaugur sál- fræðingur, f. 29. júlí 1954, maki Ane Marie Olsen húsmóðir, f. 19. ágúst 1956. Börn þeirra eru Vilhjámur ólst upp í Flatey á Skjálfanda, varð gagnfræðingur á Húsavík 1948, nam í Samvinnu- skólanum í Reykjavík 1951–1952. Vann við ýmis störf, þ.á m. sjó- sókn á unglingsárum sínum, en hóf störf á söluskrifstofu Flug- félags Íslands í Rvík árið 1954, var skrifstofustjóri þar 1959–1960, fulltrúi félagsins í Ósló 1960–1964, forstjóri umboðsskrifstofu Flug- félags Íslands fyrir Danmörku, Svíþjóð og Finnland með aðsetri í Kaupmannahöfn frá 1964. Varð eftir sameiningu Flugfélags Ís- lands og Loftleiða forstöðumaður söluskrifstofu Flugleiða í Kaup- mannahöfn allt til ársins 1986, er hann flutti aftur til Íslands og vann ýmis störf á aðalskrifstofu Flugleiða í Reykjavík til starfs- loka árið 1999. Vilhjálmur var sæmdur riddarakrossi hinnar Ís- lensku fálkaorðu árið 1983 fyrir störf að ferðamálum. Hann var formaður Íslendingafélagsins í Ósló frá endurstofnun þess 1960– 1964 og meðstjórnandi í Íslend- ingafélaginu í Kaupmannahöfn 1964–1973 auk þess sem hann sat í ýmsum nefndum og stjórnum sem viðkomu málefnum Íslands og hinna Norðurlandanna. Útför Vilhjálms verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Hann verður síðar jarðsettur við hlið dóttur sinnar í Hørsholm-kirkjugarði í Danmörku. Cherina, f. 1984, Thor Tobías, f. 1985, Sissi Malu, f. 1988 og Nat- alí, f. 1990. 2) Guð- mundur Elís, auglýs- ingahönnuður, f. 16. júlí 1955 maki Mar- ianne Guðmundsson skrifstofumaður, f. 24. ágúst 1955. Börn þeirra eru Bjarke Peter, f. 1985, Katr- ine, f. 1988 og Freja Lise, f. 1993. 3) Bern- harður Páll verka- maður, f. 4. febrúar 1957, sonur hans er Frej Vilhjálmur, f. 1989. Móðir hans er Dorte Rosdahl. 4) Vil- hjálmur Hörður flugstjóri, f. 23. desember 1958, maki hans er Mar- grét Gunnarsdóttir skrifstofumað- ur, f. 25. mars 1961. Börn þeirra eru Kristján, f. 1988 og Ólöf Sól- rún, f. 1995. 5) Hugrún Björk hús- móðir, f. 30. september 1964, maki hennar er Peter Skieller fram- kvæmdastjóri, f. 22. apríl 1963. Börn þeirra eru Sebastian, f. 1994, Alexander, f. 1996, Jonathan, f. 1999 og Sarah Lilja, f. 2002. 6) Sólrún Lilja, f. 18. apríl 1966, d. 20. júní 1985. Elsku Villi minn. Þér kæra sendir kveðju með kvöldstjörnunni blá það hjarta, sem þú átt, en sem er svo langt þér frá. Þar mætast okkar augu, þótt ei oftar sjáumst hér. Ó, guð minn ávallt gæti þín, ég gleymi aldrei þér. (Söderberg, þýð. Þor. Guðmundsson.) Þín Stella. Elsku pabbi, tengdapabbi, og afi. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð geymi þig. Hvíl í friði. Þín börn, tengdabörn og barnabörn. Dýpsta sæla og sorgin þunga, svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra máli ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.) Látinn er kær vinur og mágur, Vil- hjálmur Guðmundsson, eftir ströng veikindi. Það rifjast upp minningar um heilsteyptan mann, með þægilega nærveru og gott skopskyn. Við hjónin áttum margar góðar samverustundir með honum og fjöl- skyldu hans, og sérstaklega eru eft- irminnileg aðventuboðin fyrir jólin. Þar hittust fjölskylda og vinir í glæstum og rausnarlegum boðum, þar sem blandað var saman íslensk- um og dönskum siðum. Vilhjálmur starfaði hjá Flugfélagi Íslands og Flugleiðum í um 45 ár, bæði innan- lands og utan, lengst af í Danmörku, þar sem hann bjó fjölskyldu sinni gott heimili í Hørsholm. Urðu þau fyrir miklum áhrifum frá danskri menn- ingu. Vilhjálmur ólst upp í stórri fjöl- skyldu í Flatey á Skjálfanda, þar sem stórbrotin náttúran mótaði persónu- leika hans og gerði hann að traustum íslendingi þó að seinna ætti hann eftir að dvelja lengi erlendis. Hann var lán- samur er hann kvæntist eiginkonu sinni, Stellu Gunnlaugsdóttur, og hjónaband þeirra varð einstaklega farsælt. Í Danmörku ólu þau upp sex efnileg börn. Með einlægri trú og sterkum vilja sá Vilhjálmur vonir sín- ar rætast í börnum sínum og barna- börnum. Vissulega mætti hann og þau hjónin þó miklu mótlæti í veik- indum og fráfalli dóttur sinnar, Sól- rúnar. Að lokum barðist hann sjálfur við erfið veikindi. Börnin hans sýndu honum mikla umhyggju í þeim veik- indum, en þó er hlutur Stellu eigin- konu hans mestur, og er sú umhyggja og ástúð er hún sýndi einstök. Það er með hlýhug og þakklæti sem við kveðjum Vilhjálm, þann mæta mann. Með þessum fáu orðum biðjum við al- góðan Guð að styrkja þig, Stella mín, börn þín, tengdabörn og barnabörn. Steinunn og Gunnlaugur Fjólar. Við fráfall okkar góða vinar, Vil- hjálms Guðmundssonar, setjast eft- irsjá og söknuður að í huganum. Það eru nú liðin rúmlega þrjátíu ár frá því að við kynntumst Vilhjálmi eða Villa, eins og hann var oftast nefndur, og fjölskyldu hans. Við vorum nýflutt til Kaupmannahafnar þegar fundum okkar bar fyrst saman. Við fyrstu kynni voru vináttubönd hnýtt, traust og góð, sem hafa haldist og eflst með árunum. Það var okkur mikils virði er við komum til Kaupmannahafnar með fjögur börn, svo að segja ókunn öllum staðháttum, að kynnast Villa, Stellu konu hans og börnunum þeirra, sem voru sex að tölu. Við áttum það sam- eiginlegt að vera með stóran barna- hóp. Ég tala nú ekki um á danskan mælikvarða. Þær voru margar ánægjustundirn- ar sem við áttum saman með þeim hjónum á þeirra fallega heimili í Hørsholm. Gestrisni þeirra Stellu og Villa voru engin takmörk sett. Mót- tökurnar voru svo einlægar og blátt áfram. Viðmót allt einkenndist af alúð og vinsemd og var með þeim hætti, að manni fannst maður vera heima, þeg- ar komið var í heimsókn til þeirra. Já, þær eru margar og góðar minn- ingarnar sem í hugann koma þegar þeirra stunda er minnst. Gönguferð- irnar allar um skóginn þar í grennd með barnahópinn og ökuferðir í Dan- mörku, að ógleymdum samveru- stundum á heimili þeirra hjóna. Og ekki má gleyma veitingum húsfreyj- unnar. Af hálfu þeirra Stellu og Villa var allt látið í té af stórhug og mynd- arskap, en þó fyrst og fremst af ein- lægni og hlýju. Þegar við rifjum upp samveru- stundirnar með Villa er okkur efst í huga hve skemmtilegur hann var. Hann var fljúgandi mælskur og með afbrigðum orðheppinn maður, ramm- íslenskur þrátt fyrir áratuga dvöl á erlendri grund. Frásagnarlistin var honum í blóð borin. Glettnin og fyndnin var svo mikil, að maður gat velst um af hlátri í langan tíma. Allt sem hann sagði var honum eigi að síð- ur svo eðlislægt og svo blátt áfram, að maður hafði það á tilfinningunni, að hann væri ekki einu sinni að reyna að vera skemmtilegur. Hann bara var það, líklega oft án þess að taka eftir því sjálfur. Villi var vel að sér um allt er laut að flugi og flugmálum. Þá var hann einnig vel heima í sögu lands og þjóðar. Hann átti það til að þylja heilu kvæðin fyrirvaralaust og fara orðrétt með tilvitnanir úr Íslendingasögun- um í tíma og ótíma. Er fram liðu stundir fórum við að spila brids við þau hjónin. Það var alltaf mikið tilhlökkunarefni að fara til þeirra eða fá þau í heimsókn og taka í spil. Áttum við mörg eftirminni- leg spilakvöld. Það brást ekki, að í hvert skipti hrutu gullkorn af vörum Villa, svo hnyttin og skemmtileg, að gera varð hlé á spilamennskunni um stund. Þess má geta að hann átti það til að fara ekki troðnar slóðir í sögn- unum. Enda gat hann verið nokkuð fjarskasamur á köflum. Eftir að við vorum öll flutt til Ís- lands ferðuðumst við mikið saman bæði innan lands og utan. Og eigum við margar ánægjulegar minningar frá þeim ferðum. Betri ferðafélaga en þau hjón er varla hægt að hugsa sér. Við minnumst þess ekki að Villi hafi nokkru sinni skipt skapi, þótt eitthvað hafi bjátað á eða farið úrskeiðis. Hann hafði lag á að færa allt til betri vegar. Villi var afar greiðvikinn og hjálp- samur maður. Hann lagði sig fram um að leysa úr málum allra þeirra er til hans leituðu í vandræðum sínum. Er okkur kunnugt um marga sem nutu hjálpar hans og aðstoðar. Hann greiddi veg margra Íslendinga sem gengu á hans fund í Kaupmannahöfn öll þau mörgu ár sem hann var for- stöðumaður skrifstofu Flugfélags Ís- lands þar í borg og seinna Flugleiða. Vilhjálmur var mikill náttúruunn- andi. Eftir að hann flutti heim til Ís- lands keypti hann sér sumarbústað við Meðalfellsvatn. Hafði hann mikla gleði af að vera þar, sigla út á vatnið og veiða. Þrátt fyrir margra ára dvöl erlend- is var Ísland ávallt ofarlega í huga hans. Sérstaklega bar hann hlýjan hug til æskustöðvanna, Flateyjar á Skjálfanda þar sem hann ólst upp í stórum systkinahópi, þar lágu æsku- sporin. Hafði hann stundum orð á því, að færi hann til Flateyjar mundi hann aldrei þaðan aftur snúa. Nú hefur drengurinn frá Flatey, sem gerðist heimsmaður, ferðaðist víða um lönd og stórar borgir, lagt upp í þá ferð sem okkar allra bíður. Við erum þakklát fyrir að hafa átt Vilhjálm að vini í öll þessi ár. Og við biðjum Guð að blessa og styrkja eiginkonu hans og fjölskyldu nú og alla tíð. Megi fagrar og góðar minn- ingar um góðan dreng og sannan vin lifa með okkur öllum um ókomin ár. Sigrún og Hreinn. Vilhjálmur Guðmundsson, eða Villi eins og við vinir hans kölluðum hann, er fallinn frá langt um aldur fram. Hann fæddist í Flatey á Skjálfanda fyrir tæpum sjötíu árum. Í Flatey ólst hann upp, sleit barnsskónum og gekk í barnaskóla. Á þessum árum hefur það verið fjarlægt unga drengnum í Flatey að eiga eftir að vinna flugi og ferðamálum brautargengi – lengst af á erlendri grund. Að loknu námi við Samvinnuskólann fyrir rúmum 48 ár- um réðst hann til starfa hjá Flug- félagi Íslands sem afgreiðslumaður á söluskrifstofu félagsins í Lækjargötu 2. Hann gegndi fulltrúastarfi hjá fé- laginu í Osló um skeið en lengst af starfaði hann sem yfirmaður Flug- félags Íslands í Kaupmannahöfn og síðar Flugleiða. Síðustu starfsárin, eða frá 1992 til 1997, gegndi hann starfi forstöðumanns fargjaldadeildar félagsins. Villi var mikill áhugamaður um flug og vildi veg félagsins sem allra mest- an. Hann var ósérhlífinn, lagði sig ávallt allan fram í starfi og var trúr og dyggur starfsmaður. Eftir að hann lét af starfi hjá félaginu fyrir aldurs sakir fylgdist hann með félaginu fullur áhuga. Þetta breyttist ekki þrátt fyrir erfið veikindi undanfarna mánuði. Hann lét sig ekki vanta þegar við komum saman fyrr á árinu til þess að taka á móti fyrstu flugvél félagsins af gerðinni Boeing 757-300. Hann fagn- aði með okkur nýjum áfanga í sögu Flugleiða og í sögu flugsamgangna á Íslandi. Það var aldrei lognmolla í kringum Villa. Hann var sérdeilis skemmtileg- ur maður og átti létt með að koma fólki til að hlæja. Villi kunni margar góðar sögur og sagði þær af sérstakri snilld. Hann bjó yfir þeim hæfileika að geta gert góðlátlegt grín að sjálf- um sér og samferðarmönnum sínum, sem oftar en ekki tengdust ferðamál- um. Það var alltaf gott að vera í návist hans. Heiðarleiki og trúmennska voru aðalsmerki hans. Hann var traustur og góður yfirmaður, sem ávallt stóð við bakið á starfsfólki sínu. Það kunni vel að meta hann. Um áratugaskeið hefur Villi tekið virkan þátt í þróun flugsins og ís- lenskra ferðamála. Ötull starfaði hann við að efla og styrkja þessa ungu atvinnugrein. Árin í Kaupmannahöfn voru honum einkar hugleikin. Hann var ekki einungis yfirmaður félagsins í kóngsins Kaupmannahöfn áratugum VILHJÁLMUR GUÐMUNDSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.