Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HELGI Kristbjarnar-
son, læknir og stofn-
andi Flögu hf., lést í
fyrradag, 55 ára að
aldri. Helgi fæddist 25.
júní árið 1947 í Reykja-
vík. Foreldrar hans
voru Kristbjörn
Tryggvason barna-
læknir og prófessor og
Guðbjörg Helgadóttir
Bergs.
Helgi lauk stúdents-
prófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík árið
1967 og embættisprófi
frá læknadeild Háskóla
Íslands árið 1975. Hann lauk dokt-
orsnámi í taugalífeðlisfræði frá Kar-
olinska Institutet í Stokkhólmi árið
1983 og varð sérfræðingur í geðlækn-
ingum árið 1986. Helgi starfaði sem
læknir á geðdeild Landspítalans frá
1981 til 1996 og einnig sem stunda-
kennari við Háskóla Íslands.
Helgi átti stóran þátt í uppbygg-
ingu svefnrannsókna á Íslandi og
veitti forstöðu rannsóknarstofu á því
sviði á geðdeild Landspítalans. Árið
1994 stofnaði Helgi fyr-
irtækið Flögu hf. til að
þróa nýja gerð svefn-
rannsóknatækja og var
forstjóri fyrirtækisins
til ársins 2001. Vísinda-
greinar eftir Helga hafa
birst í innlendum og er-
lendum fagtímaritum
auk þess sem hann
hlaut ýmsar viðurkenn-
ingar fyrir frumkvöðla-
störf, m.a. frá Rann-
sóknarráði Íslands og
Samtökum iðnaðarins.
Með verkum sínum á
sviði svefnrannsókna og
upplýsingatækni stuðlaði Helgi að
vexti og framþróun íslensks heil-
brigðistækniiðnaðar. Sem læknir fór
hann ótroðnar slóðir og með starfi
sínu innan fyrirtækisins lagði hann
grunn að mikilvægum framförum í
heilbrigðismálum á alþjóðavettvangi.
Eftirlifandi eiginkona Helga er
Sigríður Sigurðardóttir kennari. Þau
eignuðust fjögur börn, Birnu,
Tryggva, Höllu og Kristbjörn, og
fjögur barnabörn.
ANDLÁT
HELGI
KRISTBJARNARSON
RANNSÓKNARNEFND flugslysa
í Danmörku hefur skilað bráða-
birgðaskýrslu vegna flugatviksins
við austurströnd Grænlands í ágúst
sl. en þá lenti flugvél Jórvíkur í mikl-
um vandræðum vegna gangtruflana
eftir að vélin flaug inn í ísingarsvæði.
Skýrsla dönsku nefndarinnar er
aðeins um ein blaðsíða. Þar er at-
burðarásin rakin en ekki er greint
frá líklegum ástæðum fyrir atvikinu.
Skýrslan er ekki endanleg og getur
breyst eftir því sem rannsókn nefnd-
arinnar miðar áfram.
Í skýrslunni kemur fram að flugvél
Jórvíkur af gerðinni Cessna 404 var
á leiðinni frá Reykjavík til Nuuk 1.
ágúst sl. þegar áhöfnin varð vör við
ísingu í lofti og óskaði eftir leyfi til að
hækka flugið upp fyrir ský. Nokkru
síðar urðu gangtruflanir í vinstri
hreyfli. Vélin sveigði til vinstri af
stefnu og lækkaði flugið og í kjölfarið
óskaði áhöfnin eftir leyfi til að lenda í
Kulusuk. Stuttu síðar urðu gang-
truflanir í hægri hreyflinum.
Flugvélin sveigði nú ýmist til
hægri eða vinstri. Átti áhöfnin í
vandræðum með að halda stjórn á
henni og lýsti yfir neyðarástandi.
Vélin hallaði þá skyndilega til vinstri
og féll stjórnlaust í átt til jarðar.
Áhöfn vélarinnar náði aftur stjórn á
henni í um 2.000 feta (700 metra) hæð
yfir sjávarmáli en flugvélin var þá
stödd yfir haffletinum vestur af
Kulusuk. Ekki bar fleira til tíðinda
og lenti vélin heilu og höldnu á flug-
vellinum í Kulusuk. Níu farþega og
tveggja manna áhöfn vélarinnar sak-
aði ekki.
Í skýrslunni kemur fram að flugvél
sem fór um þessar slóðir um einum
og hálfum klukkutíma síðar tilkynnti
um ísingu í 5.000-11.000 feta hæð.
Bráðabirgðaskýrsla vegna flugatviks yfir Grænlandi
Hallaðist til vinstri
og féll stjórnlaust
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi tilkynning frá starfs-
mönnum í hagsmunaráði Íslenskrar
erfðagreiningar:
„Í tilefni af hópuppsögnum s.l.
föstudag vilja fulltrúar starfsmanna
í Hagsmunaráði Íslenskrar erfða-
greiningar taka fram eftirfarandi:
Við, fulltrúar starfsmanna í Hags-
munaráði, hörmum að til hópupp-
sagna skuli hafa komið. Íslensk
erfðagreining hefur frá upphafi ver-
ið framsækinn og lifandi vinnustað-
ur. Fyrirtækið hefur vaxið mjög
hratt og náð miklum árangri, bæði á
sviði uppgötvana og upplýsinga-
tækni og er það ekki síst að þakka
úrvals starfsfólki og samhentu átaki
allra starfsmanna. Ákvörðunin um
hópuppsagnir kom skyndilega en
miðað við stuttan frest var vandað
eins vel til þeirra og unnt var.
Við höfum skilning á að erfið
staða fyrirtækisins á hlutabréfa-
markaði og breyttar rekstrarað-
stæður hafi valdið því að yfirstjórn
fyrirtækisins taldi nauðsynlegt að
fækka starfsmönnum verulega. Það
er mat okkar að miðað við aðstæður
og þann fjölda sem segja þurfti upp
störfum hafi verið rétt að láta upp-
sagnirnar koma til framkvæmda
strax frekar en að draga þær á
langinn. Okkur var tilkynnt um upp-
sagnirnar með fyrirvara og tók
framkvæmd þeirra mið af tillögum
sem höfðu komið frá okkur á fund-
um ráðsins.
Það er nú höggvið stórt skarð í
raðir starfsmanna þegar svo margir
vinnufélagar hverfa á brott. Fyrir
hönd starfsmanna ÍE óskum við
þeim öllum velfarnaðar og vonum að
þeir finni sem fyrst störf við hæfi.
Það er von okkar allra að þessar
erfiðu aðgerðir verði til að tryggja
traustan rekstrargrundvöll fyrir Ís-
lenska erfðagreiningu og að fyrir-
tækið geti haldið áfram að vera
skapandi og frjór vinnustaður.“
Tilkynning frá hagsmunaráði ÍE
Skilningur á
erfiðri stöðu
EINBÝLISHÚSIÐ á Syðri-
Kárastöðum á Vatnsnesi er talið
ónýtt eftir eldsvoða í gær. Enginn
var heima þegar eldurinn kviknaði
en þegar ung kona, tengdadóttir
húsfreyjunnar, sneri þangað aftur
upp úr klukkan 14 mætti henni
þykkur svartur reykur. Henni tókst
ekki að komast að síma í húsinu og
varð að aka stuttan spöl til
Hvammstanga til að tilkynna eldinn.
Fimm manns voru í heimili að
Syðri-Kárastöðum og hafði lög-
reglan á Blönduósi fengið fregnir af
því að fólkinu hefði tekist að útvega
sér íbúð til bráðabirgða. Húsfreyjan
sem er á sextugsaldri, missti eig-
inmann sinn fyrr á þessu ári.
Að sögn Höskuldar Birkis Er-
lingssonar, varðstjóra lögreglunnar
á Blönduósi, eru eldsupptök ókunn
en von var á sérfræðingum frá Lög-
gildingarstofu í gærkvöldi. Eld-
urinn var mestur í einu svefn-
herbergjanna og er talið líklegt að
hann hafi kviknað þar. Mestar urðu
skemmdirnar í svefnherbergisálm-
unni en reykur og sót barst um allt
hús.
Brunavarnir Húnaþings vestra
fengu tilkynningu um eldinn klukk-
an 14.20 og voru komnar á vettvang
um 10 mínútum síðar. Að sögn
slökkviliðsstjóra, Skúla H. Guð-
björnssonar, tók um eina klukku-
stund að ráða niðurlögum eldsins,
en þá var komið varalið frá Blöndu-
ósi til aðstoðar.
Húsið er stórskemmt, og trúlega
ónýtt af eldi, hita og vatni. Þykir
ljóst að allt innbú hússins sé ónýtt.
Tveir hundar á bænum fóru inn í
brennandi húsið og drápust.
Húsið er steinsteypt einingahús á
einni hæð og var reist árið 1978.
Einbýlishúsið á Kárastöðum stórskemmt eftir eldsvoða
Morgunblaðið/Karl Ásgeir
Íbúðarhúsið á Syðri-Kárastöðum í Húnaþingi er mikið skemmt eftir eldsvoða í gær.
Komst ekki að símanum
til að tilkynna um eldinn
MARKÚS Örn Antonsson, útvarps-
stjóri, hefur ráðið Boga Ágústsson í
starf forstöðumanns fréttasviðs Rík-
isútvarpsins en áður hafði útvarpsráð
mælt með ráðningu Boga í stöðuna.
Bogi fékk þrjú atkvæði fulltrúa sjálf-
stæðismanna á fundi útvarpsráðs í
gær en fulltrúi Framsóknarflokks,
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs og tveir fulltrúar Samfylk-
ingarinnar sátu hjá eða greiddu ekki
atkvæði.
Gissur Pétursson, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins, taldi nauðsynlegt að
forstöðumaður þyrfti að hafa reynslu
og hæfni á sviði rekstrar og fjármála-
umsýslu þar sem rekstur fréttastofu
útvarps og sjónvarps væri eitt kostn-
aðarsamasta verkefni stofnunarinn-
ar. Þeir sem sótt hafi um stöðuna
uppfylli ekki þær kröfur og því taldi
Gissur eðlilegt að staðan yrði auglýst
að nýju. Í bókun Marðar Árnasonar,
fulltrúa Samfylkingarinnar, segir að
hann telji Boga hæfan en þó ekki
endileg hæfastan. „Ég sit hjá í at-
kvæðagreiðslu en óska þess að Bogi
standi sig vel, og sérstaklega að sem
góður fagmaður bregðist hann þeim
væntingum sem Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur til hans í þessari nýju
stöðu.“
Þá hefur Markús Örn ráðið Arnar
Pál Hauksson, Katrínu Pálsdóttur og
Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur í fasta
stöður fréttamanna og Gest Einar
Jónasson í stöðu dagskrárgerðar-
manns. Að sögn útvarpsstjóra mun
Gestur koma að morgunþætti Rásar
tvö úr hljóðverinu fyrir norðan.
Bogi ráðinn
forstöðumaður
fréttasviðs RÚV
UM 20 til 30
hrafnar sem
þinguðu á kletti í
Búðahrauni á
Snæfellsnesi
fengu óvæntan
gest í þinghaldið
þegar haförn
kom þar fljúg-
andi að í lágflugi
og hlammaði sér
á miðjan þing-
klettinn. Kom fát á hrafnaþingið um
stund eins og gefur að skilja en síðan
var því fram haldið eins og ekkert
hefði í skorist með haförninn í
miðjum hóp.
Viktor Sveinsson, hótelhaldari á
Búðum, sonur hans Hjalti Sveinn og
starfstúlkurnar Anna og Guðveig
voru að fara erinda sinna í bíl upp
eftir Búðahrauni þegar þau urðu
vitni að þessum sérkennilega at-
burði.
„Það var um miðjan dag,“ segir
Viktor, „að við komum að hrafna-
þingi með á að giska 20 til 30 hröfn-
um. Sjáum við þá hvar annar Búða-
örninn kemur í lágflugi vestan frá
Búðaklett og stefnir beint að hrafna-
þinginu. Hröfnunum brá greinilega
við þessa heimsókn og tvístruðust
þeir þegar örninn lenti á klettinum
miðjum. Við vor-
um aðeins í um
hundrað metra
fjarlægð og gát-
um því fylgst vel
með þessu. Um
leið og örninn
var sestur komst
aftur kyrrð á
þingið og hrafn-
arnir hópuðust í
kringum örninn.
Þarna sátu þeir svo og krunkuðu
þangað til örninn hóf sig til flugs og
flaug inn í hraunið þar sem makinn
var á sveimi.“
Viktor segist aldrei hafa séð neitt
þessu líkt áður. Eitt arnarpar sé með
óðal á þessum slóðum og það haldi
oft til í hrauninu. „Við erum alltaf
með augun opin og höfum séð ým-
islegt skemmtilegt hjá fuglunum en
þetta höfum við aldrei séð áður enda
er haförninn engra fugla vinur. Það
furðulegasta er þeir skuli halda
áfram að þinga með örninn í miðju.
Það var eins og hann væri með ein-
hver mikilvæg skilaboð á þingið. Og
okkur datt í hug að þetta kynni að
vera fyrirboði um válynt veður.“
Viktor segist gjarna vilja heyra
hvort einhver kannist við að hafa
séð erni á hrafnaþingi.
Örn á hrafnaþingi
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
ENGAR skýringar hafa komið fram á
því hvers vegna Aron ÞH sökk undan
Grímsey á mánudagsmorgun. Í
Morgunblaðinu í gær segir skipstjór-
inn að hann hafi vaknað þegar drapst
á vélunum en þá var mikill sjór kom-
inn í vélarrúmið. Bátsverjar höfðu
engin ráð til að dæla sjónum frá borði
og aðrar dælur bárust ekki í tæka tíð.
Báturinn sökk um 1½ klukkutíma eft-
ir að bátsverjar urðu varir við lekann.
Fulltrúar rannsóknarnefndar sjó-
slysa hafa rætt við skipstjóra og vél-
stjóra Arons og munu kanna teikn-
ingar af bátnum.
Engar
skýringar
á lekanum
BENSÍNLÍTRINN hækkar um 80
aura í dag. Olíuverslun Íslands,
Skeljungur og Olíufélagið gáfu út til-
kynningu þess efnis í gær. Þá hækk-
ar verð á gasolíu, dísilolíu, skipaolíu
og svartolíu um eina krónu lítrinn.
Segja olíufélögin hækkunina vera
vegna hækkunar á heimsmarkaðs-
verði eldsneytis í september.
Bensín hækk-
ar um 80 aura
♦ ♦ ♦