Morgunblaðið - 02.10.2002, Side 8

Morgunblaðið - 02.10.2002, Side 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Flís Almonia. 2.495 kr./m2 Rykmottur 60x90. 1.390 kr. Amadeus. 2.990 kr./m2 Lamella parket Eik Country Verð 2.890 kr./m2 Beyki Standard Verð 2.990 kr./m2 Merbau Classic Verð 3.995 kr./m2 Mottur 25 til 50% afsláttur, mikið úrval, margar stærðir. Alloc Smelluparket. Verð frá 1.390 kr./m2 Heimilisdúkar Verð frá 1.150 kr./m2 Barnamottur 30% afsláttur ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 18 79 0 0 9/ 20 02 Gólfefnadagar 25-40% afsláttur Þú átt þetta nú reglulega skilið, Finnur litli. Þú hefur verið svo góður starfskraftur, svo duglegur að naga. Málþing Rannsóknarstofnunar KHÍ Fjölbreytt mál- efni til umræðu Næstkomandi föstu-dag og laugardag,4. og 5. október, verður haldið málþing í húsnæði Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð. Í boði er fjölbreytt dagskrá um rannsóknir, nýbreytni og þróun í menntamálum sem Félag um mennta- rannsóknir og Rannsókn- arstofnun KHÍ, sem Ally- son Macdonald veitir báðum forstöðu, hefur um- sjón með. Dagskráin er öll- um opin, kennurum, for- eldrum, nemendum og almenningi. Allyson svar- aði nokkrum spurningum. – Hvað er Félag um menntarannsóknir? „Félag um menntarann- sóknir, FUM, var stofnað sl. vor á stofnfundi sem fór fram samtímis í Reykjavík og á Akur- eyri. Markmið félagsins er að efla rannsóknir og þróunarstarf á sviði menntunar á Íslandi, m.a. með því að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um rannsóknir og þróun- arstarf og stuðla að samvinnu við samtök og stofnanir sem sinna uppeldis- og menntamálum hér á landi og erlendis. Aðild að félag- inu geta átt einstaklingar sem áhuga hafa á rannsóknum og þró- unarstarfi í menntamálum. Um þessar mundir eru félagar um 180 talsins. Nánari upplýsingar um FUM er að finna á slóðinni http:// rannsokn.khi.is/fum. Föstudaginn 4. október stendur Félag um menntarannsóknir fyrir opinni málstofu í aðalsal KHÍ þar sem fjallað verður um tengsl rannsókna og stefnumótunar í menntamálum.“ – Hvers vegna þetta umræðu- efni? „Mikil gróska er í rannsóknum í menntamálum á Íslandi sem m.a. má rekja til öflugs framhaldsnáms sem Kennaraháskóli Íslands, Há- skóli Íslands og Háskólinn á Ak- ureyri bjóða upp á. Hátt í hundrað manns hafa lokið rannsóknar- tengdu meistaranámi á sl. sex ár- um. Viðfangsefni rannsóknar- verkefna hafa verið mjög fjölbreytileg og má segja að þekk- ingarundirstaða til ákvarðana- töku í menntamálum hafi gjör- breyst á stuttum tíma. Þrátt fyrir þetta er ekki vitað hvort eða hvernig stjórnvöld, sveitarstjórn- armenn og skólastjórnendur taka mið af rannsóknum þegar stefnu- mótun fer fram. Sveitarstjórnar- menn fengu ný verkefni þegar grunnskólar voru fluttir undir stjórn þeirra um miðjan síðasta áratug. Auk þess litu margar nýj- ungar dagsins ljós í nýjum lögum og aðalnámsskrá sem gefin var út á árunum 1995–2000. Þá voru samþykkt ný lög um háskóla þar sem kveðið er á um matskerfi til launa sem gerir auknar rannsókn- arkröfur til háskólakennara. Þá má bæta því við að árið 1998 var starfsemi Fósturskóla Íslands, Þroskaþjálfaskólans og Íþróttaskólans færð á háskólastig og þeir sameinaðir Kenn- araháskóla Íslands, þar sem allir kennarar hafa rannsóknarskyldu. Á málstofu á vegum FUM verða tengsl rannsókna og stefnu- mótunar skoðuð frá mismunandi sjónarhornum. Meðal framsögu- manna verða Júlíus Björnsson, forstöðumaður Námsmatsstofn- unar, Jónína Bjartmarz, formaður Samtaka heimilis og skóla, Anna Kristín Sigurðardóttir, ráðgjafi við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, og Vilhjálmur Lúðvíksson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknarráðs Íslands. Málstofan verður frá klukkan 13–15.“ – Hvenær hefst svo 6. málþing Rannsóknarstofnunar KHÍ? „Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra mun setja það klukkan 15.45 í aðalsal Kenn- araháskólans. Í beinu framhaldi verður haldin málstofa um lífs- leikni, námsgrein sem var nýjung í aðalnámsskrá skólanna sem kom út árið 1999. Til máls taka Krist- ján Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, Sigrún Að- albjarnardóttir, prófessor við Há- skóla Íslands, og Aldís Yngvadótt- ir, ritstjóri hjá Námsgagna- stofnun, sem öll hafa komið að lífsleikni, en með ólíkum hætti.“ – Hvernig er skipulagið á laug- ardeginum? „Á laugardaginn 5. október tek- ur við röð 19 málstofa í sjö lotum frá klukkan 9 til 15 þar sem 67 er- indi verða flutt. Mjög fjölbreytt málefni verða til umræðu, allt frá lestri ungra barna til kennara- menntunar. Markmið málþingsins er að skapa vettvang til kynningar á rannsóknar- og þróunarverkefn- um. Í lok dagsins frá kl. 15 til 16 fara fram umræður í svokölluðum „kaffistofum“ um fimm þemu tengd efni dagsins. Auk þess verða um 20 veggspjöld til kynn- ingar. Málþingið er öll- um opið og er þátttöku- gjald 1000 krónur þar sem innifalið er ráð- stefnurit og kaffi. Nán- ari upplýsingar um dagskrána er að finna á slóðinni http://rannsókn.khi.is/malthing.“ Verður upplýsingatækni í skólastarfi til sérstakrar umfjöll- unar? „Já, í nokkrum málstofum. Má nefna íslenskukennslu fyrir nem- endur erlendis, talmálsbanka, bókmenntalestur og bókaorma. Einnig verður m.a. rætt um færni kennara í upplýsingatækni.“ Allyson Macdonald  Allyson Macdonald er fædd í Suður-Afríku 1952. Eðlisfræð- ingur frá Witwatersrand háskól- ann í Jóhannesarborg 1976 og doktor í kennslufræði raun- greina frá Oregon State 1981. Kennari í S-Afríku til 1983, er hún flutti til Hóla í Hjaltadal og starfaði þar við Bændaskólann og Fræðsluskrifstofu Norður- lands V. 1992–96 var hún við þróunarstörf í Malaví. Næstu tvö ár rak hún Skólaskrifstofu Skag- firðinga en hefur síðan verið hjá KHÍ, nú sem forstöðumaður Rannsóknarstofnunar KHÍ og formaður FUM. Maki er Tumi Tómasson og eiga þau 3 börn. ...fjölbreytt málefni verða til umræðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.