Morgunblaðið - 02.10.2002, Page 17

Morgunblaðið - 02.10.2002, Page 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 17 26. sept.-3. okt. „YKKAR ÆFING - ALLRA ÖRYGGI“ Ráðstefna um öryggismál sjófarenda verður á morgun! Ráðstefnan er í Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni 6 kl. 9:00-17:00. Aðgangur er ókeypis. Haustdagar 15-30% afsláttur af úrum og skartgripum dagana 2.-5. október Laugavegi 5 og Spönginni símar: 551 3383 - 577 1660 SALA gos- og vatnsdrykkja hér á landi hefur aukist um 8,8% und- anfarið ár. Sala drykkja Ölgerð- arinnar Egils Skallagrímssonar hefur aukist um 28% en sala drykkja frá Vífilfelli stendur í stað í lítrum talið. Hlutdeild Ölgerð- arinnar er nú um 37% en var um 31% fyrir ári. Markaðshlutdeild Vífilfells er 63% og hefur dregist saman um tæp 5%. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Öl- gerðinni. Þessar tölur byggjast á upplýs- ingum um sölu í stórmörkuðum frá ágúst 2001 til ágúst 2002, og á sama tímabili árið árið. Segir í til- kynningu Ölgerðarinnar að sölu- tölurnar séu fengnar af strika- merkingum og teknar saman af Markaðsgreiningu, umboðsaðila bandaríska fyrirtækins AC Niel- sen. Alls hafi selst um 20,2 milljónir lítra af gos- og vatnsdrykkjum í stórmörkuðum hér á landi síðasta árið en salan hafi numið um 18,5 milljónum lítra árið áður. Samkvæmt tilkynningunni jókst sala á drykkjum frá Egils um 38,9% á síðasta ári en sala á drykkjum Vífilfells dróst saman um 1% í lítrum talið. Þá segir að hlutdeild Vífilfells í sölu sykraðra kóladrykkja (Coca-Cola) hafi num- ið 80%, dregist saman um 4%. Hlutdeild Egils á sama markaði (Pepsi) hafi numið um 20% og auk- ist um 5% frá fyrra ári. Sala á sykurlausum kóladrykkj- um hér á landi jókst um 18% á síð- asta ári, í lítrum talið, samkvæmt tilkynningu Ölgerðarinnar. Þar kemur fram að aukning í sölu drykkja frá Egils (Diet Pepsi, Pepsi Max) hafi numið 58,2% en aukning í sölu drykkja Vífilfells (Diet Coca-Cola, Tab, Tab X-tra) hafi numið 4,6%. Alls hafi hlutdeild Egils á markaði með sykurlausa kóladrykki aukist um 10,1% og sé hún nú 39,8%. Hlutdeild Vífilfells á þessum markaði hafi hins vegar dregist saman um 7,7% og sé nú 60%. Fram kemur í tilkynningu Öl- gerðarinnar að markaðshlutdeild Egils í appelsínudrykkjum sé 83,3% og Vífilfells 16,3%. Þá sé markaðshlutdeild Egils á vatns- drykkjamarkaði 79,2% en Vífilfells 20,6% og hlutdeild Vífilfells á markaði með límonaði-drykki sé 73,6% en Ölgerðarinnar 25,5%. Aukin sala á gosdrykkjum BURÐARÁS, dótturfyrirtæki Eim- skips, er stærsti hluthafi í SÍF hf. með 14,04% hlutafjár og Mundill, dótturfélag Samskipa, er annar stærsti hluthafinn með 6,68% hluta- fjár. Vátryggingafélag Íslands á 6,1% í SÍF og Sjóvá-Almennar eiga 5,9%. Framleiðendur ehf. eru þriðji stærsti hluthafi í SÍF með 6,59% en Framleiðendur ehf. var hluthafi í Ís- lenskum sjávarafurðum sem sam- einuðust SÍF árið 1999. Meðal eig- enda Framleiðenda ehf. eru Ker hf. og VÍS. Ker hf. er einnig meðal eig- enda Masturs ehf. sem á 2,01% í SÍF. Í viðtali við Morgunblaðið um helgina sagði Finnur Ingólfsson, verðandi forstjóri Vátryggingafélags Ísland, að gott dæmi um samstarf Eimskips og Samskipa og tengdra félaga væri í gegnum SÍF hf. og hann væri ekki frá því að þar væru mögu- leikar til aukins samstarfs. Þriðja tryggingafélagið, TM, á einnig hlut í SÍF, sem og margir líf- eyrissjóðir, auk bankanna Íslands- banka og Búnaðarbanka. Þá á Skelj- ungur 3,94% hlut í SÍF en Ker hf., áður Olíufélagið, á 1,22%. &' (' )' *' +' ,' -' .' /' &0' &&' &(' &)' &*' &+' &,' &-' &.' &/' (0' 2 *% 2   +,-       2 %3  4%  1   # ' 8  # ' !"   # '    2B   # '  "   # ' 45      "  " 5     !     2 " # '   # ' 45     "  8  # ' B   @  # ' "  5       "  # ' 1A  @  B   # '   ?# ' 7# ' EF  >?' B1# ;   9 @2  '  # '   # 8 4 (0/;* //;+ /.;) /&;0 --;* -,;- -,;( -*;) +.;. )(;- )0;0 (.;/ (.;( (-;) (+;* ();) &.;) &+;0 &);+ &(;) )-*;, &'*/&;0 &*;0* ,;,. ,;+/ ,;&0 +;&/ +;&* +;&& *;/. );/* (;&/ (;0& &;/* &;./ &;.) &;-0 &;+- &;(( &;0& 0;/& 0;.( (+;&) &00;00 Dótturfélög skipa- félaganna stærstu hluthafar í SÍF ERLENT RÁÐAMENN í Malasíu sökuðu í gær Bandaríkin um að sýna „and- múslimska móðursýki“ eftir að það fréttist að malasíska varaforsætis- ráðherranum hefði verið gert að fara úr skónum í nafni öryggiseftirlits við komu hans til Bandaríkjanna nýlega. „Auðvitað er ég í uppnámi. Ég er hvorki þjófur né hryðjuverkamaður,“ tjáði forsætisráðherrann Mahathir Mohamad fréttamönnum er hann var spurður hvað honum þætti um þá ákvörðun bandarískra stjórnvalda að setja Malasíu á lista yfir 15 lönd sem álitin væru líkleg til að vera upp- spretta hryðjuverka. Á listanum eru fyrst og fremst ríki í Miðausturlönd- um. Safna myndum og fingraförum ferðafólks Innflytjendayfirvöld í Bandaríkj- unum hafa ákveðið að fólk frá þess- um löndum sem til Bandaríkjanna kemur skuli ljósmyndað og tekin af því fingraför áður en það fær að ferðast frjálst um „land frelsisins“. Allir ríkisborgarar Írans, Íraks, Sýr- lands, Líbýu og Súdans verða látnir ganga í gegn um þetta ferli komi þeir til Bandaríkjanna. Þessar nýju regl- ur tóku gildi í gær. „Það er nú þeg- ar útbreidd and- múslimsk móður- sýki í gangi. Vegna athafna fáeinna manna virðist sem allur músl- imaheimurinn hafi verið stimplaður, þannig að allir múslimar séu látnir sæta sérstöku eftirliti til að ganga úr skugga um að þeir séu ekki hryðju- verkamann,“ sagði Mahathir, sem farið hefur fyrir ríkisstjórn Malasíu sl. 21 ár. Lét Mahathir þessi ummæli falla daginn eftir að hneykslaður malas- ískur þingmaður hafði upplýst að Abdullah Ahmad Badawi varafor- sætisráðherra hefði verið látinn fara úr skónum og taka af sér beltið við öryggiseftirlit á flugvelli í Los Angel- es, þar sem ráðherrann millilenti á leið á allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna í New York í síðasta mánuði. Zulhasnan Rafique, þingmaður stjórnarflokks Malasíu, mæltist til þess í þingræðu að bandarískir ráða- menn fengju sams konar meðferð við komu þeirra til Malasíu, en þar eru flestir íbúar íslamstrúar. Abdullah reyndi hins vegar að gera lítið úr atvikinu. „Ég var að ganga í gegnum málmleitarhlið þeg- ar aðvörunarsónninn fór skyndilega í gang og mér var gert að fara úr skón- um. En annars staðar þar sem ég fór um [í Bandaríkjunum] fór enginn sónn í gang og ég þurfti ekki að fara úr skónum,“ tjáði varaforsætisráð- herrann fréttamönnum í gær. Kuala Lumpur. AFP, AP. Mahathir Mohamad Sakaðir um „and- múslimska móðursýki“ Bandaríkjamenn herða reglur um öryggiseftirlit með ferðamönnum frá vissum múslimaríkjum DANSKA stjórnin heldur áfram tilraunum sínum til að fækka nefndum og ráðum þrátt fyrir nokkra gagn- rýni og hefur nú að þessu sinni ákveðið að leggja niður eða sameina 63 nefndir. Í þessari hrinu beinast spjótin að nefndum á veg- um matvæla-, menningar- og efnahags- og at- vinnumálaráðuneytanna og verða 26 nefndir lagðar alveg niður. Kom þetta fram í Jyllands-Posten í gær. Í byrjun þessa árs ákvað stjórn- in að leggja niður 99 nefndir og var þá harðlega gagnrýnd fyrir að losa sig við gagnrýna sérfræðinga án nokkurrar umræðu. Hún hélt samt ótrauð áfram en aftur á móti þykir sparnaðurinn við fækkunina hingað til heldur lítilfjörlegur eða aðeins rúmar þrjár milljónir ísl. kr. Engar tölur hafa verið nefnd- ar um sparnað við þá fækkun, sem nú stendur fyrir dyrum, og stjórn- in heldur því fram, að þetta snúist ekki um peninga, heldur ný og betri vinnubrögð. Uppgjör við hugsunarhátt 68-kynslóðarinnar? Stjórnarandstaðan fullyrðir, að nefndafækkunin sé fyrst og fremst af pólitískum rótum runnin og vísar í því efni beint til orða Anders Fogh Rasmussens forsætisráðherra, sem viður- kenndi fyrir þremur vikum, að fækkunin væri hluti af uppgjöri við hugsunarhátt 68-kynslóðar- innar. Mesta breytingin með nefnd- afækkuninni verður í menning- arráðuneytinu en með stofnun listráðs hverfa tónlistarráðið, leikhúsráðið, bókmenntaráðið, listmálararáðið og alþjóðlega menningarráðið. Í fjármálaráðu- neytinu verða lagðar niður ýms- ar nefndir, sumar, sem hafa ekki starfað lengi, jafnvel í áratug, og það sama á við um vísindaráðu- neytið. Anders Fogh Rasmussen Opinberum nefndum í Danmörku fækkað enn ÞRIÐJU umferð kosninganna til löggjafasamkomu indverska hluta Kasmír-héraðs á Indlandi lauk í gær og einkenndist dagurinn af ofbeldi og óeirðum. Að minnsta kosti átta voru myrtir þegar menn, sem taldir eru vera herskáir íslamskir öfga- menn, réðust á rútu er flutti hind- úapílagríma. Sjónarvottar sögðu að mennirnir hefðu verið klæddir eins og lögreglumenn, hefðu stöðvað rút- una og er hún nam staðar hefðu þeir kastað inn í hana handsprengjum og síðan hafið skothríð. Að minnsta kosti 19 manns særðust í fyrrinótt og gærdag er herskáir menn gerðu árásir á kjörstaði. Síðasta umferð kosninganna fer fram á þriðjudaginn og talning hefst tveim dögum síðar. Átta hind- úar myrtir í Kasmír Srinagar. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.