Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 20
LISTIR
20 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNING á tíu minningarmörkum
eftir tólf listamenn, verður opnuð í
Fossvogskirkjugarði í dag. Forsaga
sýningarinnar er sú, að á árinu 2000
stóð Kirkjugarðasamband Íslands, í
samvinnu við skipulagsnefnd kirkju-
garða, fyrir samkeppni meðal lista-
manna um gerð minningarmarka.
Áhugi listamanna á þátttöku var
mikill og voru 12 listamenn valdir til
að skila inn tillögum í keppnina.
Dómnefnd skipuð af útboðsaðila og
Sambandi íslenskra myndlistar-
manna gaf svo umsagnir um tillög-
urnar með tilliti til frekari útfærslu
og og framkvæmda. Tillögurnar
voru kynntar á kirkjudögum í júní á
síðasta ári og frá þeim tíma hefur
undirbúningur við gerð sýningar-
svæðis og frummynda verið í deigl-
unni.
Um þessar mundir eru liðin 70 ár
frá vígslu Fossvogskirkjugarðs og er
sýningarreiturinn opnaður af því til-
efni. Listamennirnir sem eiga verk í
sýningarreitnum eru Helgi Gíslason,
Inga Elín Kristinsdóttir, Jónína
Guðnadóttir, Magdalena M. Kjart-
ansdóttir og Þór Sigmundsson, Ólöf
Nordal, Ragnhildur Stefánsdóttir,
Rósa Gísladóttir, Soffía Árnadóttir,
Þórður Hall og Örn Þorsteinsson.
Sýningarsvæðið er kostað af
Kirkjugörðum Reykjavíkurprófasts-
dæma og hannað af Guðmundi Rafni
Sigurðssyni landslagsarkitekt í sam-
vinnu við garðyrkjudeild Kirkju-
garðanna. Við opnun sýningarinnar í
Fossvogskirkjugarði í dag flytja
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, Jóhannes Pálmason, formað-
ur stjórnar Kirkjugarða Reykjavík-
urprófastsdæma, Ólafur Jónsson,
trúnaðarmaður listamanna, og Þór-
steinn Ragnarsson, formaður
Kirkjugarðasambands Íslands,
ávörp og kvartett Björns Thorodd-
sen leikur við athöfnina. Sýningin
verður opnuð almenningi á morgun.
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæma, segir að almenningi muni gef-
ast kostur á að panta eftirmyndir
listaverkanna til að koma fyrir á leið-
um látinna aðstandenda. „Við köllum
þetta minningarmörk, en það er
samheiti yfir krossa, legsteina og
aðra þá minnisvarða sem settir eru
yfir leiði. Verkin sem nú verða til
sýnis eru tíu talsins og úr ýmsu efni.
Ætlun Kirkjugarðasambandsins
með þessu er að auðga listaverka-
flóruna í kirkjugörðunum; bjóða upp
á meiri fjölbreytni og hleypa nýju lífi
í garðana í þessu tilliti. Það er meg-
intilgangurinn.“
Alls bárust fimmtán tillögur í sam-
keppnina, frá tólf listamönnum, tíu
verkanna verða sýnd nú, en hugs-
anlegt er að tvö bætist við. Þórsteinn
segir að í framtíðinni sé ætlunin að
listamenn geti átt möguleika á því að
koma hugmyndum sínum á framfæri
við Kirkjugarðana og að ný listaverk
komi inn á sýningarsvæðið. „Þau
listaverk sem við setjum upp núna
verða þar ekki til frambúðar, og við
reiknum með að geta skipt þeim út
fyrir ný verk. Þannig viljum við
halda áfram á þessari braut.“
Mikil þörf fyrir nýjungar
Þórsteinn segir að sú flóra minn-
ingarmarka sem þegar sé í kirkju-
görðunum hafi verið einsleit um ára-
bil, og að ljóst hafi verið að mikil þörf
væri fyrir nýjungar á þessu sviði.
„Það er mjög mikill áhugi úti í
þjóðfélaginu fyrir því að fá eitthvað
nýtt í garðana og við vitum að margir
bíða eftir því að geta skoðað þau
listaverk sem komu út úr samkeppn-
inni. Tillögurnar voru sýndar á
Kirkjudögum í júní í fyrra og þær
vöktu töluverða athygli þeirra sem
sáu þær.“
Styrktaraðilar þessa framtaks eru
Reykjavíkurborg, SPRON, mennta-
málaráðuneytið, Kirkjugarðasjóður
og KGRP.
Kirkjugarðasamband Íslands opnar sýningu á minningarmörkum
„Er ætlað að auðga listaverka-
flóru kirkjugarðanna“
Fjögur minningarmarkanna sem eru á sýningunni í Fossvogskirkju-
garði. Þessi verk eru eftir Rósu Gísladóttur, Soffíu Árnadóttur, Ragn-
hildi Stefánsdóttur og Jónínu Guðnadóttur.
„BÆKUR Snorra Sturluson-
ar, Heimskringla, Snorra-
Edda og Egils saga, eru
grundvallarrit og meðal
þess allra besta, sem skrifað
hefur verið á íslenska
tungu,“ segir Halldór Blön-
dal, forseti Alþingis, í for-
mála að ritsafni Snorra
Sturlusonar, sem kemur út á
morgun í myndarlegri
þriggja binda útgáfu í fyrsta
sinn á Íslandi. Það er Mál og
menning, dótturfyrirtæki
Eddu – miðlunar og útgáfu,
sem gefur verkið út með
styrk frá Alþingi.
„Hugmyndin að þessari
útgáfu er komin frá Halldóri
Blöndal, forseta Alþingis, en
hann kom til okkar með
þessa tillögu í upphafi. Al-
þingi veitti síðan 5 milljóna
króna styrk til útgáfunnar
sem stóð undir kostnaði við
myndskreytingu hennar,“
segir Halldór Guðmundsson,
forstjóri Eddu.
Veglegar
myndlýsingar
Í ritstjórn hinnar nýju
heildarútgáfu eru Helgi Bernódus-
son, Jónas Kristjánsson og Örnólfur
Thorsson. Að sögn Örnólfs var fimm
íslenskum myndlistarmönnum falið
að myndskreyta verkið. „Lista-
mennirnir eru Jóhann L. Torfason,
Jón Axel Björnsson, Magdalena
Margrét Kjartansdóttir, Pétur Hall-
dórsson og Valgarður Gunnarsson.
Þetta er ögrandi og skemmtilegt
verkefni sem hver þessara ágætu
myndlistarmanna leysir með sínum
hætti í fimmtán myndum. Þetta
verða því allmargar myndir þegar
allt kemur saman og gaman að bera
saman ólíka túlkun listamannanna á
heillandi sagnaheimi Snorra Sturlu-
sonar. Margir muna eflaust eftir
veglegum útgáfum Helgafells frá
síðustu öld þar sem Halldór Kiljan
Laxness gekk frá texta en öndveg-
ismálarar myndskreyttu þannig að
áhrif hafði á margar kynslóðir les-
enda. Vonandi eiga þessar myndir
eftir að vekja viðlíka viðbrögð.“
Myndirnar verða til sýnis almenn-
ingi í nýjum þingskála Alþingis frá
morgundeginum.
Að sögn Örnólfs er það ekki von-
um seinna að ritsafn Snorra Sturlu-
sonar sé gefið út á Íslandi. „Það eru
vissulega nokkur tímamót og það
löngu tímabær tímamót að nafn
Snorra birtist á titilsíðu Egils sögu
en það er niðurstaða þeirra mætu
fræðimanna sem helst og best hafa
rannsakað verkið að eigna það
Snorra,“ segir Örnólfur. „Útgáfunni
fylgir Halldór Blöndal,
forseti Alþingis, úr hlaði
en Vésteinn Ólason, for-
stöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar, skrif-
ar ítarlegan inngang að
verkinu, fjallar um ævi
Snorra, hvert hinna
þriggja verka og samleik
þeirra. Þá fylgja útgáfunni
orðskýringar, kort og
skrár sem ættu að geta
greitt götu lesenda um
veröld Snorra Sturluson-
ar.“
Höfuðskáld
Íslendinga
Í bókarlok eru ítarlegar
orðskýringar, landakort
ásamt ýmsu aukaefni sem
á að geta greitt götu les-
enda og aukið þeim skiln-
ing á þessum merku rit-
verkum.
Í kynningu útgáfunnar
segir: „Snorri Sturluson er
höfuðskáld Íslands að
fornu og nýju. Auðmaður,
bóndi, stjórnmálamaður
og rithöfundur sem skrif-
aði einhverjar bestu mann-
lýsingar heimsbókmenntanna, sem
margir telja að skýrist af því hve
samsettur hann var sjálfur. Verk
Snorra eru kjölfestan í sjálfsmynd
norrænna manna og enginn höf-
undur hefur haft jafn mótandi áhrif
á sjálfsvitund íslensku þjóðarinnar.
Rit Snorra eru auk þess lykilverk í
fornri skáldskaparlist og um sögu
Noregskonunga væri lítið vitað
hefði hann ekki sett þær saman í
Heimskringlu. Eða eins og Vésteinn
Ólason segir í inngangi: „Snorri
fékk því áorkað sem var meira virði
en sigrar í erjum Sturlungaaldar
eða átökum við konungsvaldið.
Hann reisti sjálfum sér og þeirri
menningu sem ól hann óbrotgjarnan
minnisvarða með ritverkum sínum.“
Fyrsta heildarútgáfa á
ritum Snorra Sturlusonar
Ein af myndum Jóns Axels við Egils sögu.
BÚAST má við að Gunnar Þórð-
arson, lagahöfundur og gítarleik-
ari, komi víða við á næstunni, en
tónleikaferð hans og föruneytis
um landið hefst á Hótel Stykkis-
hólmi á morgun. Þar verða haldn-
ir tónleikar undir yfirskriftinni
Söngbók Gunnars Þórðarsonar og
hefjast þeir kl. 21. Á föstudag
verður Gunnar með tónleika í Bíó-
höllinni á Akranesi sem hefjast kl.
21.
Á dagskrá tónleikanna eru lög
sem Gunnar hefur flutt ásamt
hópi tónlistarmanna m.a. í fæðing-
arbæ sínum Hólmavík og í Stap-
anum í Reykjanesbæ í tilefni af
Ljósanótt. Með Gunnari á tónleik-
unum verða hljóðfæraleikararnir
Haraldur Þorsteinsson á bassa,
Halli Gulli á trommur, Þórir Úlf-
arsson á píanó, Jón Kjell Selje-
seth á hljómborð og sjálfur leikur
Gunnar á gítar og syngur nokkur
lög. Aðrir söngvarar á tónleikun-
um verða þau Guðrún Árný Karls-
dóttir, Hjördís Elín Lárusdóttir
og Kristján Gíslason.
Gunnar segir dagskrána hafa
orðið til í kringum tónleika sem
hann hélt í Hólmavík, og var hug-
myndin að halda órafmagnaða
tónleika þar sem lögin sem Gunn-
ar hefur samið í gegnum tíðina
voru flutt í dálítið nýjum búningi.
„Við munum spila þessi lög sem
ég hef samið í gegnum árin, og
veljum þekktustu lögin, s.s. Bláu
augun þín, Himinn og jörð, Þú og
ég, Þitt fyrsta bros og Gaggó
Vest. Ég æfði dagskrána fyrst
fyrir tónleika í Bragganum í
Hólmavík í ágústmánuði. Tónleik-
arnir voru hugsaðir sem nokkurs
konar virðingarvottur við þennan
bæ sem ég er alinn upp í og hef
verið að gera upp hús í undanfar-
ið. Næst var röðin komin að Kefla-
vík og flutti ég dagskrána með
hópi tónlistarmanna í Stapanum á
Ljósanótt. Viðbrögðin hafa verið
það góð að ég er að hugsa um að
fara um landið með þessa dagskrá
á næstu mánuðum. Við verðum
sem sagt á Stykkishólmi og Sel-
fossi á morgun og föstudag, en
síðan býst ég við að verða á ferð-
inni á Akureyri um mánaðamótin
október/nóvember. Síðan ætla ég
að fara út um allt land,“ segir
Gunnar Þórðarson að lokum.
Gunnar Þórðarson hefur tónleika-
ferð á Stykkishólmi og Akranesi
Flytur sín
þekktustu lög
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gunnar Þórðarson hyggst
halda tónleika víða um landið
á næstunni.
Mannkostir eru
eftir Kristján Krist-
jánsson. Bókin fel-
ur í sér uppgjör við
margar siðferði-
legar spurningar,
s.s. Hefur mað-
urinn eðli? Á að
kenna dygðir í
skólum? Er til eitt-
hvert sammannlegt siðferði? Leið-
arljós Kristjáns er veraldarhyggja og
heilbrigð skynsemi og svörin velta á
því að kostir mannlífsins ráðist af eðli
okkar sem jarðarbarna – sem manna.
Fyrri tvö ritgerðarsöfn hafa komið út
eftir Kristján: Þroskakostir (1992) og
Af tvennu illu (1997), og var hið fyrra
tilnefnt til Íslensku bókmenntaverð-
launanna. Kristján er einnig kunnur á
alþjóðavettvangi heimspekinnar fyrir
bækur sínar Social Freedom og Justi-
fying Emotions. Hann hefur birt fjölda
greina um heimspekileg efni.
Útgefandi er Háskólaútgáfan. Bókin
er 300 bls. Verð 3.690 kr. innbundin
en 2.980 kr. í kilju.
Siðfræði
Vísnaverkefni er
eftir Ragnar Inga
Aðalsteinsson,
skáld og kennara.
Bókinni er ætlað
að æfa fólk í að
yrkja vísur. Í bók-
inni eru 38 verk-
efni sem felast í
því að raða saman
orðum þannig að úr verði rétt gerðar
vísur og er hægt að leysa hverja þraut
á marga vegu. Þá er til gamans skotið
inn neðanmáls á hverri síðu stuttum
fróðleiksmolum um bragfræði handa
þeim sem áhuga hafa á þeim fræðum.
Útgefandi er Bókaútgáfa Hólar. Bók-
in er 40 bls., prentuð í Ásprent á Ak-
ureyri. Verð: 890 kr.
Vísur