Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 39
Kyrrðar- og fyrirbænastund í Kapellu von-
arinnar. Umsjón Ólafur Oddur Jónsson.
Léttur hádegisverður í Kirkjulundi kl.
12.25 á vægu verði. Allir velkomnir. Æfing
Kórs Keflavíkurkirkju frá kl. 19–22.30.
Stjórnandi Hákon Leifsson.
Njarðvíkurkirkja. Kór kirkjunnar, æfing
fimmtudaginn 3. okt. kl. 19.30. Sóknar-
prestur.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stoð og styrking.
Fimmtudaginn 3. okt. frá kl. 13–16 í
umsjá Jónasar Helga Eyjólfssonar, Guð-
mundar Jens Guðmundssonar, Þóreyjar
Brynju Jónsdóttur og sr. Baldurs Rafns Sig-
urðssonar. Fyrsta skiptið í vetur. Allir hjart-
anlega velkomnir á þennan fyrsta fund.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, hugleiðingar, fróðleiks-
molar og vitnisburðir. Allt ungt fólk velkom-
ið.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í
safnaðarheimili. Opið hús, kaffi og spjall.
Fundur í Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju,
yngri deild, kl. 20 í Safnaðarheimili.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma kl. 20.30. „Páll í Aþenu“. Frið-
rik Hilmarsson talar. Kaffi og meðlæti selt
eftir samkomu. Allir hjartanlega velkomnir.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega
velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í
kirkjunni í síma 567 0110. Æskulýðsfund-
ur fyrir unglinga 14–15 ára kl. 20.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í
sumar í safnaðarheimili Kirkjuhvoli kl. 10–
12. Við hittumst og spjöllum. Heitt á könn-
unni og djús fyrir börnin. Öll foreldri vel-
komin með eða án barnanna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu og
brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Hægt er
að koma fyrirbænarefnum til sóknarprests
eða kirkjuvarðar.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í
dag kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11
helgistund á Hraunbúðum. Prestarnir taka
fúslega við fyrirbænarefnum. Allir vel-
komnir. Kl. 16.20 TTT-yngri hópur. Kirkju-
starf 9–10 ára. Kl. 17.30 TTT-eldri hópur.
Kirkjustarf 11–12 ára. Sr. Þorvaldur og
leiðtogarnir. Kl. 20 Anglow-fundur í safn-
aðarheimilinu. Kl. 20 opið hús í KFUM & K
heimilinu við Vestmannabraut.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 39
Forsætisráðuneytið, menntamálaráðuneytið og iðnaðarráðu-
neytið halda sameiginlegan kynningarfund á Grand Hóteli,
Hvammi, fimmtudaginn 3. október kl. 16.00. Þar mun for-
sætisráðuneytið kynna frumvarp til laga um Vísinda- og
tækniráð. Menntamálaráðuneytið og iðnaðarráðuneytið
kynna frumvörp til laga um opinberan stuðning við vísinda-
rannsóknir og frumvarp til laga um opinberan stuðning við
tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins. Sérstaklega
verður fjallað um endurskoðun frumvarpanna á síðustu mán-
uðum.
Dagskrá:
Frumvarp til laga um Vísinda- og tækniráð.
Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri, forsætisráðuneyti.
Ávarp: Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra.
Frumvarp til laga um opinberan stuðning
við vísindarannsóknir.
Hafliði P. Gíslason, prófessor, Háskóla Íslands.
Ávarp: Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra.
Frumvarp til laga um opinberan stuðning
við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins.
Sveinn Þorgrímsson, skrifstofustjóri, iðnaðarráðuneyti.
Umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri: Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri, mennta-
málaráðuneyti.
Menntamálaráðuneytið, 1. október 2002.
menntamalaraduneyti.is
Kynningarfundur
á Grand Hóteli, Hvammi,
fimmtudaginn 3. október 2002
kl. 16.00-17.00
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag
kl. 13.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl.
14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og
spjall.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12. Fræðsla: Hreyfi-
þroski barna. Unnur Gottormsdóttir,
sjúkraþjálfari. Samverustund fyrir 6–8 ára
börn kl. 15 í kórkjallara. 910-klúbburinn
kl. 16. 112-klúbburinn kl. 17.30.
Háteigskirkja. Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð
með orgelleik og sálmasöng. Allir vel-
komnir. Kl. 12.30 súpa og brauð í safn-
aðarheimilinu (300 kr.). Kl. 13–16 opið
hús fyrir eldri borgara. Söngur, spjall, fönd-
ur og tekið í spil. Kaffiveitingar. Kl. 17–
18.30 Ævintýraklúbburinn, 7–9 ára starf.
Kl. 18–18.15 kvöldbænir í kirkjunni. Kl.
18.15–19 Trú og líf. Prestar kirkjunnar
bjóða upp á umræður og fræðslu um ýmis
trúaratriði sem vakna hjá þátttakendum
og hafa einnig stutt innlegg um trúmál. All-
ir velkomnir.
Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.–4.
bekkur) kl. 14.10. Leikir, söngvar, biblíu-
saga, bænir, djús og kex. TTT-fundur (10–
12 ára) kl. 16.15. Menntaskólanemarnir
Andri og Þorkell leiða starfið ásamt hópi
sjálfboðaliða. Unglingakvöld Laugarnes-
kirkju og Þróttheima kl. 20 (8. bekkur).
(Sjá síðu 650 í Textavarpi.)
Neskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdótt-
ir. Kirkjustarf fyrir 7 ára börn kl. 14.30.
Sögur, leikir, föndur og fleira. Fyrirbæna-
messa kl. 18. Sr. Örn Bárður Jónsson.
Óháði söfnuðurinn. Fræðslukvöld kl.
20.30. Skilnaður – endir eða upphaf?
Arna Schram blaðamaður.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur hádegisverður eftir stundina.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9
ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12
ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum
KFUM & K og kirkjunnar kl. 20.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er
upp á léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Allir velkomnir. Kirkju-
krakkar fyrir börn 7–9 ára í Rimaskóla kl.
17.30–18.30 KFUM fyrir drengi 9–12 ára í
Grafarvogskirkju kl. 17.30–18.30. TTT fyr-
ir börn 10–12 ára í Rimaskóla kl. 18.30–
19.30. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.
bekk í Engjaskóla kl. 20–22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–
12. Opið hús kl. 12. TTT-starf fyrir 10–12
ára kl. 17. 12 spora námskeið kl. 20.
Safnaðarstarf
Kirkjustarf
FIMMTUDAGINN 3. október kl.
13. verða stofnuð í Ytri-
Njarðvíkurkirkju samtökin Stoð
og styrking, skammstafað SOS.
Er hér um að ræða samtök fólks
sem þjáðst hefur af langvarandi
verkjum eða veikindum. Hlut-
verk samtakanna verður að:
a) efla sjálfsímynd og fram-
taksemi einstaklinga, eftir lang-
varandi dvöl á sjúkrastofnunum,
eða eftir langvarandi verki og
/eða veikindi. b) Fá lækna og
annað fagfólk til fyrirlestra-
halds og stuðnings eftir þörfum.
c) Veita samhjálp og samkennd
á almennum fundum samtak-
anna. Allir geta orðið félagar
sem telja sig þurfa andlegan eða
líkamlegan stuðning. Á almenn-
um fundum verður m.a. reynt að
efla tengsl milli félaga, gefa fé-
lagsmönnum kost á að ræða mál-
efni sín opinskátt, eða við sér-
fræðing, fá lækna og annað
fagfólk til fyrirlestrahalds um
hina ýmsu sjúkdóma og krón-
íska verki, veita ráðgjöf um leið-
ir til úrbóta t.d. gagnvart
Tryggingastofnun ríkisins og fé-
lagslegri þjónustu, veita ein-
staklingum stuðningsviðtöl eftir
ósk hvers og eins.
Vert er og að geta þess sér-
staklega að allir félagar eru
bundnir fullum trúnaði um þau
málefni sem fram koma á fund-
um samtakanna. Þagnarskyldan
er algjör. Fundir verða síðan eft-
irleiðis í Ytri-Njarðvíkurkirkju á
fimmtudögum frá kl. 13–16.
Undirbúningsnefnd.
Kyrrðarstund í
Grafarvogskirkju
KYRRÐARSTUND í hádegi kl.
12:00 alla miðvikudaga með altr-
isgangöngu og fyrirbænum.
Prestar safnaðarins séra Vigfús
Þór Árnason, séra Anna Sigríð-
ur Pálsdóttir og séra Bjarni Þór
Bjarnson sjá um stundina. Org-
anisti er Hörður Bragason. Boð-
ið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði. Allir velkomnir.
Stoð og styrking
í Ytri-Njarð-
víkurkirkju
ENDASPRETTURINN á Iðu var
líflegur, t.d. voru þrjár stangir í síð-
ustu viku með 17 laxa á einum og
hálfum degi. Jón Þorsteinn Jónsson
veiddi þá 19 punda hæng á svarta
Snældu og í sama holli veiddist ann-
ar stórhængur sem var 18 pund. Sá
var illa skaddaður á sporði, líklega
eftir net, að mati Jóns.
„Ég er himinlifandi. Á þessu smá-
laxasumri er ég búinn að fá bæði
rúmlega 20 punda lax fyrr í sumar og
svo 19 punda hæng núna. Þetta var
mjög flottur fiskur, 98 Sm, og hefði
verið eitthvað yfir 20 pundum ný-
genginn, en hann var mjög leginn.
Báðir stóru fiskarnir veiddust neð-
arlega á veiðisvæðinu,“ sagði Jón
Þorsteinn í samtali við Morgunblað-
ið.
Fleiri lokatölur
Hér eru nokkrar lokatölur í við-
bót, Laxá í Leirársveit endaði með
1.104 laxa sem er talsverður bati frá
síðasta ári er 930 laxar veiddust.
Veiði var nokkuð góð framundir það
síðasta, að jafnaði um tíu laxar á dag.
Grímsá endaði með 1.111 laxa, en
hún gaf 1.005 laxa í fyrra. Grímsá
byrjaði mjög illa eins og flestar ár,
en hún var síðan seinni í gang en aðr-
ar ár og virtist hreinlega vera að
sitja eitthvað eftir. En er á sumarið
leið glæddist og síðsumars- og haust-
veiðin var bara nokkuð lífleg. Land-
eigendur við Grímsá hefðu eigi að
síður viljað sjá meira af laxi og betri
veiði.
163 laxar veiddust í Hrútafjarð-
ará, 40 löxum meira en í fyrra, sem
er allnokkuð og kannski ekki ósvipuð
aukning og í öðrum ám á svæðinu
miðað við stangarfjölda. 227 bleikjur
veiddust í ánni, margar vel vænar, 3
til 4 pund. 22 punda lax var stærstur,
hann var grútleginn 108 sentimetra
risi sem hefur verið a.m.k. 24–26
pund nýgenginn.
Reykjan endaði með hvelli
og þriggja stafa tala í Skógá
Síðasta hollið í Reykjadalsá veiddi
16 laxa og alls veiddust því í ánni 76
laxar. Ekki ýkja mikill afli það, en
næstum helmingi meira en í fyrra og
var miklu meira af laxi í sumar en í
fyrra. Nokkrir hyljir beinlínis fullir
af fiski.
Rúmlega 100 laxar hafa nú veiðst í
Skógá og algengt að hollin hafi verið
að fá 12–14 laxa. Eftir að laxinn skil-
aði sér loksins er bara talsvert af
honum og veiði góð. Dregið hefur úr
silungsveiðinni eftir að laxinn kom,
en urmull af silungi er þó í ánni.
Jón Þorsteinn Jónsson með 19 punda hænginn sem hann veiddi á Iðu.
18 og 19 punda
laxar á Iðu
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Kosningastjórn Samfylkingar
skipuð Á flokksstjórnarfundi I
Samfylkingarinnar sl. laugardag var
skipuð kosningastjórn flokksins fyr-
ir alþingiskosningar í vor.
Stjórnina skipa: Lúðvík Geirsson
bæjarstjóri, formaður, Svanfríður
Jónasdóttir alþingismaður og Flosi
Eiríksson bæjarfulltrúi.
Í DAG STJÓRNMÁL
Tilkynnir um framboð í Suður-
kjördæmi Unnur G. Kristjáns-
dóttir gefur kost á sér í 4. sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar í Suð-
urkjördæmi. Unnur er 47 ára,
grunnskólakennari í Sandgerði og
gift Sturlu Þórðarsyni tannlækni.
Í tilkynningu segir: „Hún hefur
reynslu af stjórnmálum, var vara-
þingmaður á Norðurlandi vestra
1987–91, gjaldkeri Alþýðu-
bandalagsins, í bæjarstjórn á
Blönduósi og hefur víðtæka fé-
lagslega reynslu. Ástæðan fyrir
þátttöku hennar í prófkjörinu er
hvatning frá félögum, óskir um að
fleiri konur verði með í prófkjör-
inu og einlægur áhugi á að Sam-
fylkingin og þau málefni sem fólk-
ið í henni berst fyrir, fái verðuga
umfjöllum og fylgi í þjóðfélaginu.“
Meistara-
fyrirlestur um
náttúruvá
HALLGRÍMUR Már Hallgrímsson
heldur fyrirlestur um meistararitgerð
sína, sem heitir Náttúruvá í nýrri
gerð svæðisskipulags, í dag, miðviku-
dag 2. október, kl. 16.30 í stofu 157 í
VR-II, húsi verkfræði- og raunvís-
indadeilda Háskóla Íslands, við
Hjarðarhaga 2–6. Allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
Verkefnið var unnið undir leiðsögn
Trausta Valssonar prófessors og
Birgis Jónssonar dósents við um-
hverfis- og byggingarverkfræðiskor
Háskóla Íslands. Prófdómari er Stef-
án Thors, skipulagsstjóri ríkisins.
Ný heimasíða BÍ
BLAÐAMANNAFÉLAG Íslands
hefur breytt heimasíðu sinni veru-
lega, endurhannað hana og gert ráð-
stafanir til að hún verði virkari og að-
gengilegri og eftirsóknarverðari
félagsmönnum og raunar öllum al-
menningi.
Hugmyndin er að síðan geti orðið
lifandi vettvangur faglegrar um-
ræðu. Birgir Guðmundsson fyrrver-
andi aðstoðarritstjóri og fréttastjóri
á Tímanum, Degi og DV hefur verið
fenginn til að ritstýra vefnum ásamt
Hjálmari Jónssyni formanni félags-
ins. Birgir starfar nú við Háskólann
á Akureyri þar sem hann er m.a. að
vinna að stofnun félagsvísindadeild-
ar og eru hugmyndir uppi um að
bjóða upp á einhvers konar fjölmiðla-
nám við þá deild þegar þar að kemur,
segir í fréttatilkynningu. Hönnuður
vefjarins er Páll Svansson hönnuður.
Slóðin er press.is
Fræðsla um ís-
lenskt samfélag
í Alþjóðahúsi
FRÆÐSLUFUNDUR um íslenskt
samfélag fyrir fólk af erlendum upp-
runa verður haldinn fimmtudaginn
3. október kl. 20 í Alþjóðahúsinu
Hverfisgötu 18.
Sérfræðingur frá Landlæknis-
embættinu fjallar um íslenska heil-
brigðiskerfið. Fræðslan fer fram á
íslensku og verður túlkuð á pólsku.
Þessir fyrirlestrar verða endurtekn-
ir næstu tvo fimmtudaga þar sem
túlkað verður á ensku og síðar á
rússnesku, segir í fréttatilkynningu.
Þátttaka er ókeypis og allir vel-
komnir.
Söfnun vegna
bruna á
Stokkseyri
STOFNAÐUR hefur verið söfnun-
arreikningur í Búnaðarbankanum á
Selfossi nr. 0325-13277 fyrir Pétur
Karlsson, vegna bruna sem varð 6.
september sl. er húsið Skálavík á
Stokkseyri brann til kaldra kola.
Húsið var reist 1915 og var friðað.
Þrjár íbúðir voru í húsinu en aðeins
einn af eigendunum, Pétur Karlsson,
var búsettur þar og nýlega hafði ver-
ið lokið við að gera risíbúð hans upp.
Pétur stendur nú uppi eignalaus því
allt brann sem brunnið gat og hann
hafði ekki innbústryggingu.
Í ljósi þess hafa vinir hans og syst-
ir, Petrína Rós Karlsdóttir, opnað
söfnunarreikning í Búnaðarbankan-
um á Selfossi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Sameiginlegt val fyrir Reykjavík-
urkjördæmi Fulltrúaráð Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík hefur sam-
þykkt að fram skuli fara
sameiginlegt flokksval fyrir bæði
Reykjavíkurkjördæmin vegna al-
þingiskosninganna í vor.
Valið fer fram á kjörfundi 9. nóv-
ember og kosið verður í átta sæti.
Kosningarétt hafa félagsmenn í
Samfylkingunni í Reykjavík og þeir
sem ganga í flokkinn fyrir lok kjör-
fundar 9. nóvember.