Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                         ! "# $   %   %   % &'  %  BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í MORGUNBLAÐINU, þriðjudag- inn 17.9. 2002, birtist myndskreytt frétt af minnisvarða um þýska sjó- menn afhjúpuðum í Vík í Mýrdal þá um helgina, að við- stöddum fjölda gesta, bæði er- lendra og inn- lendra auk heima- manna. Í sama blaði var önnur frétt um snarpan jarðskjálfta norð- an Grímseyjar kvöldið áður. Hefði sá skjálfti orðið við rætur Kötlueldstöðvarinnar gat grunur vaknað, að móðir mín sáluga væri að bylta sér í gröf sinni ofan við Vík- urkirkju, sem gnæfir yfir kauptúnið. Móðir mín, Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona, var Skaftfellingur í húð og hár, fædd og uppalin í Vík í Mýrdal. Meðal margs sem hún minntist frá æskuárunum var koma skipsins Skaftfellings til Víkur á vor- in, sem færði þá björg í bú. Í huga hennar var skipið bjargvætturinn, en líka vorboðinn, þegar það sigldi fyrir Reynisdranga. Í síðari heims- styrjöldinni bjargaði þetta skip þýskum sjómönnum af kafbáti, sem hafði verið sökkt af bandamönnum og hefur því e.t.v. bjargað fleiri Þjóðverjum en nokkur annar Íslend- ingur. Síðustu áratugina lá skipið svo í slipp í Vestmannaeyjum. Heitasta ósk móður minnar var að flytja skip- ið til Víkur í Mýrdal. Barðist hún fyrir þessu árum saman en loks í fyrra, daginn fyrir áttræðisafmæli hennar, rættist draumurinn og skip- ið kom til Víkur. Þar hélt hún afmæl- isveislu sína og fagnaði komu Skaft- fellings. Skipið er þar nú í stórri skemmu, ekki fjarri Brydebúð og minnisvarðanum um þýsku sjó- mennina. Flutningur skipsins kost- aði tug milljóna og veðsetti móðir mín íbúð sína í Reykjavík af þeim sökum. Hún lést svo nokkrum vikum síðar og hefur dánarbú hennar nú greitt þessa skuld. Hún leitaði stuðnings til margra vegna flutnings skipsins, m.a. til Þjóðverja ef þeir vildu á þann hátt minnast björgun- arafreks Skaftfellings sem áður get- ur. Margir sýndu henni stuðning í orði, nokkrir í verki, en fjárstuðning fékk hún nær engan. Ekki verður séð af frétt Morgun- blaðsins að neinn hafi minnst skips- ins Skaftfellings, ekki heldur móður minnar, þótt þessir tveir Skaftfell- ingar hvíli nú báðir skammt frá Brydebúð og sjávarkambinum með minnisvarða þýsku sjómannanna. Það hefði þó verið við hæfi, þar sem andi þeirra sveif þarna yfir sand- inum, sem fyrr, og gerir enn. Skipið sem olli byltingu í samgöngum svæðisins, öðlast kannski framhalds- líf þegar fram líða stundir í nýstofn- uðu samgönguminjasafni Íslands, sem er með aðsetur að Skógum. SIGURÐUR V. SIGURJÓNSSON, læknir. Tveir gleymdir Skaftfellingar Frá Sigurði V. Sigurjónssyni: Sigurður V. Sigurjónsson ÞAÐ vakti athygli mína á dögunum þegar Árni Ragnar Árnason alþing- ismaður boðaði aðgerðir vegna þess að Ástþór Magnússon annálaður friðarpostuli skrifaði eitthvað á vef sinn, varðandi fyrirhugað stríð við Írak, sem honum mislíkaði. Nú er ég ekki sérstakur áhuga- maður um skoðanir þeirra Ástþórs og Árna R. Árnasonar, þannig að ég hirti ekki um að kynna mér skoðana- ágreining þeirra, en það sem vakti sérstaklega athygli mína var á hvaða forsendum háttvirtur Árni R. Árna- son vildi banna eða ritskoða vef frið- arhöfðingjans. Viti menn, ástæðan var sú að vefur Ástþórs heitir „alt- hing.org“ Taldi þingmaðurinn að hið opinbera ætti að ritskoða allt efni sem birtist undir því nafni. Við heiðnir menn höfum fram til þessa síður en svo amast við því þó kristnir samlandar okkar hafi tekið upp marga góða heiðna siði hvort heldur það eru jól, sumardagurnn fyrsti svo ekki sé talað um alþingi Íslendinga, þó talsvert sé það frábrugðið hinu heiðna alþingi til forna. Við ásatrúar- menn höldum okkar alþingi á Þing- völlum við Öxará á þórsdegi í 10. viku sumars ár hvert, sem er hinn forni þingsetningardagur alþingis Íslendinga. Það sama má segja um erlend ásatrúarfélög, sem líta frekar til okkar gömlu hefðar sem fyrir- myndar en alþingis við Austurvöll, þó sú stofnun sé alls góðs makleg. Aldrei minnist ég þess að á þing- fundum alþingis við Öxará eða öðr- um heiðnum þingum hafi menn hneykslast sérstaklega á skoðunum einstakra þingmanna alþingis við Austurvöll þó ekki vilji ég útiloka að slíkt gæti hafa gerst. Hitt er fullvíst að enginn hefur enn viðrað þá hug- mynd að ritskoða, hvað þá banna, framsetningu þingmanna við Aust- urvöll á skoðunum sínum hvort held- ur það er á Netinu eða í fjölmiðlum. SIGURÐUR ÞÓRÐARSON, Glaðheimum 18. Til alþingismanna við Austurvöll Frá Sigurði Þórðarsyni: Viltu léttast núna Símar 557 5446 og 891 8902 Meðgöngubelti brjóstahöld, nærfatnaður Þumalína, Skólavörðustíg 41

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.